Þjóðviljinn - 22.03.1975, Side 4

Þjóðviljinn - 22.03.1975, Side 4
4 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. marz 1975. PJODVIUINN MÁLGAGN SÓSÍALISMA VERKALÝÐSHREYFINGAR OG ÞJÖÐFRELSIS titgefandi: Ctgáfufélag Þjóöviljans Framkvæmdastjóri: Eiöur Bergmann Ritstjórar: Kjartan ólafsson, Svavar Gestsson Fréttastjóri: Einar Karl Haraldsson Umsjón meö sunnudagsblaöi: Vilborg Haröardóttir Ritstjórn, afgreiösla, auglýsingar: Skólavöröust. 19. Sími 17500 (5 linur) Prentun: Blaöaprent h.f. STJÓRNIN GAF OG STJÓRNIN TÓK Rikisstjórnin hefur lagt fyrir alþingi nýtt frumvarp um ráðstafanir i efnahags- málum. Meginatriði frumvarpsins eru annars vegar verulegur niðurskurður á fjárlögum-um 3500 miljónir króna, og hins vegar breýting i skattamálum. Auk þessa felur frumvarpið i sér nokkur önnur atriði, svo sem skyldusparnað á hærri tekjur, flugvallargjald og lántökuheimildir. Litum fyrst á skattamálin. Varðandi ó- beina skatta er það að segja, að rikis- stjórnin hefur sem kunnugt er nýlega gengist fyrir hækkun söluskatts um eitt prósentustig. Talið er af sérfræðingum rikisstjórnarinnar, að þetta söluskattsstig færi rikissjóði kr. 960 miljónir á þessu ári. Með hinu nýja frumvarpi, sem rikis- stjórnin lagði fram i fyrradag óskar hún nú hins vegar eftir heimild tií lækkunar söluskatts og tolla um 600—800 miljónir króna (hér verður miðað við 700 miljónir), — og þarna er þó aðeins um heimildará- kvæði að ræða. Þegar þetta tvennt er skoðað saman, er ljóst að rikisstjórnin ætlar sér ekki að lækka óbeina skatta á þessu ári, heldur að hækka þá um svo sem 260 miljónir. Um beinu skattana er það að segja, að rikisstjórnin hefur nýlega ákveðið, að heimila hækkun útsvarsálagningar þann- ig að menn greiði 11% af brúttótekjum i stað 10% i fyrra. Þeirri ákvörðun er ætlað að standa. Talið er af sérfræðingum, að þetta þýði i reynd hækkun útsvarsálagn- ingar yfir landið, sem nemur 700 miljón- um króna. Samkvæmt hinu nýja frum- varpi rikisstjórnarinnar eiga beinir skatt- ar, það er tekjuskattur og útsvar, nú hins vegar að lækka um 1240 miljónir króna, — ekki frá þvi sem þeir voru i fyrra, heldur frá þvi, sem þeir hefðu ella orðið nú miðað við 11% útsvarsálagningu. CJtkoman úr þessu verður sú að lækkun beinu skattanna frá álagningargrundvelli fyrra árs verður 1240 minus 700, það er 540 miljónir króna. Sem sagt lækkun beinna skatta um 540 miljónir, en hækkun ó- beinna skatta um 260 miljónir. Mismunur- inn er þá 280 miljónir, og er það þá öll skattalækkunin í reynd, þótt gert sé ráð fyrir, að rikisstjórnin noti þær heimildir, sem hún fer fram á varðandi lækkun sölu- skatts og tolla. Hér hefur að sjálfsögðu verið tekin með i dæmið sú hækkun sölu- skatts og hækkun útsvarsprósentu, sem rikisstjórnin hefur gengist fyrir fyrr á þessu ári, enda gjörsamlega út i bláinn að setja dæmið upp með öðrum hætti. Niðurstaðan er sem sagt lækkun skatta um liðlega 1000.- krónur, segi og skrifa eitt þúsund krónur, á hvert nef i landinu, — og þetta á að heita innlegg i kjarasamning- ana! Og þá er þess að geta, að hér er verið að tala um lækkun frá þvi, sem skattar hefðu orðið að óbreyttum álagningargrundvelli. En að sjálfsögðu munu skattarnir stór- hækka i raun frá fyrra ári, ekki bara að krónutölu, heldur sem hlutfall af þeim tekjum, sem menn hafa til að greiða skattana af. Á þessu ári verða menn að sjálfsögðu að borga skatta af tiltölulega góðum tekjum siðasta árs, og þá verður að greiða af tekjum þessa árs, þegar búið er að skerða kaupmátt ráðstöfunartekna heimilanna svo gegndarlaust sem raun ber vitni með kaupbindingu og samdrætti atvinnu mitt i óðaverðbólgunni. Máske verður fjármálaráðherrann mættur, þegar skattaskráin kemur út i sumar., til að gefa þegnunum kost á að þakka sér fyrir glaðninginn með handa- bandi. Hafi ráðherrarnir imyndað sér, að þeir væru að sætta verkafólk við kjaraskerð- inguna með þessari dúsu, þá verður þeim tæplega að von sinni. Benedikt Daviðsson, semásætii samninganefnd Alþýðusam- bandsins.segir i viðtali við Þjóðviljann i gær: „Frumvarpið er miklu neikvæðara en við höfðum gert okkur vonir um, — og höfðum við þó ekki gert okkur háar von- ir”. Og hann kemst svo að orði að lækkun frá upphæð, sem áður er alveg nýbúið að hækka, sé auðvitað ekkert annað en ein- tómur skollaleikur. Og Benedikt segir: ,,Við höfum sett fram kröfu um það, að i fyrsta áfanga verði helmingúr skerðingar kaupmáttar- ins bættur. Til þess þyrfti 24—25% hækkun kaupsins”. Þjóðviljinn telur, að verkalýðshreyfing- in hafi sýnt mikla hófsemi og langlundar- geð gagnvart rikisstjórn og atvinnurek- endum. En rikisstjórnin og bandamenn hennar atvinnurekendur hafa mætt hóf- sömum kröfum verkalýðshreyfingarinnar af ósvifinni þermóðsku og hroka vikum og mánuðum saman. Þess vegna er nú verið að boða til verkfalla þann 7. april i nauð- vörn. Skattalækkun rikisstjórnarinnar er inn- an við 300 miljónir, en hins vegar á að skera niður fjárlög um 3500 miljónir króna. Og rikisstjórnin fer fram á þessa heimild án þess að gera neina grein fyrir þvi, hvað á að skera. Það fer þó ekkert milli mála, að þar er ekki sist hugsað til hinna verklegu framkvæmda, — hafnir, vegir, sjúkrahús, skólar o.s.frv. Áður heimtaði Sjálfstæðisflokkurinn niðurskurð opinberra framkvæmda vegna of mikillar þenslu á vinnumarkaði. Nú er hins vegar ráðist i niðurskurð opinberra framkvæmda einmitt þegar alvarlegur samdráttur herjar i atvinnulifinu, og með þvi greinilega að þvi stefnt að ýta undir þá þróun. Vissulega varpar boðaður niður- skufður fjárlaga skýrara ljósi á „byggða- stefnu” stjórnarflokkanna en flest annað ekki sist þegar jafnframt eru hafðar i huga fyrirhugaðar tugmiljarða stórfram- kvæmdir á Keflavikurflugvelli og i Hval- firði þar sem erlendir aðilar eiga hlut að. k. Lúðvík Jósepsson: Nið iirskurður framkvæmda meginefni þessa frumvarps 1 gær lauk i neöri deild aiþingis fyrstu umræðu um frumvarp rikisstjórnarinnar um efnahags- ráðstafanir og var því visað til nefndar. Geir Hallgrimsson mælti fyrir frumvarpinu, en næstur talaöi Lúðvik Jósepsson. Lúövik kvaðst ekki mundu ræða frumvarpið itarlega nú við 1. um- ræðu, þvi aö ýmis atriöi kreföust nánari skýringa, sem hann kvaðst vilja vænta að kæmu fram I nefnd. 3500 miljóna niðurskurður. Hann kvaðst þó vilja segja það strax, að meginefni frumvarpsins fæiist i 1. grein þess um heimild til niðurskurðar á fjárlögum um 3500 miljónir króna. Hins vegar væri ekkert sagt beint um það, hvaða útgjöld ætti aö skera niður, — en út úr greinargerð frum- varpsins mætti þó lesa, að það væru ekki hin almennu rekstrar- útgjöld rikisins, heldur útgjöld til verklegra framkvæmda og fé- lagslegra þarfa. Þetta kemur fram f þvi, að i greinargerð frum- varpsins segir, að vegna gengis- lækkunarinnar megi ætla að al- menn rekstrarútgjöld hjá rikinu hækki um 1870 miljónir frá fjár- lögum en áform séu uppi um að lækka þá tölu um 820 miljónir með sparnaði. Þá er sem sagt eft- ir hækkun á almennum rekstrar- útgjöldum frá fjárlagatölunni upp þingsjá á meira en 1000 miljónir króna. Af þessu sést að ekkert af 3500 miljónunum, sem nú er farið fram á, verður tekið af almenn- um rekstrarútgjöldum. Þvi er augljóst að ætlunin er að draga úr fjárveitingum til verk- legra framkvæmda og félags- legra útgjalda, en þessu er ég al- gerlega andvigur, sagði Lúðvik. Það er einnig augljóst, að vegna gengislækkunarinnar verða þær fjárhæðir, sem nefndar eru á fjárlögum til skóla, sjúkra- húsa, hafna og annarra verklegra framkvæmda mun ódrýgri i reynd en ella hefði verið. Þegar svo á að lækka framkvæmdaféö að auki i krónum talið þá er mikil alvara á ferðum. óveruleg skattabreyting Frumvarpið felur i sér breyt- ingu á lögum um tekjuskatt og tekjustofna sveitarfélaga. Sagt er að beinir skattar eigi að lækka nokkuð, en i dæmum þeim, sem rakin eru i greinargeröinni er veriö að reikna út lækkun frá þvi sem verið hefði með 11% útsvars- greiðslu af brúttótekjum að öðru óbreyttu. Útsvarið i fyrra var hins vegar 10% en ekki 11%, svo að allur þessi samanburöur er mjög villandi i greinargerðinni, sé miðað við fyrra ár. Skatta- lækkunin frá fyrra ári er þvi mun minni en dæmin i greinargerðinni sýna og i flestum tilvikum óveru- leg. Þá er á það að lita, að nokkrir aðilar munu beinlinis tapa á þess- ari breytingu svo sem þeir allra lægst launuðu, (hjón meö 500 þús. i árstekjur), eins og fram kemur i gögnum, sem þingmenn hafa fengið i hendur, og einnig skaðast nokkur hluti af einstæðum for- eldrum, ef frumvarpið verður samþykkt óbreytt. Þá mun það i vissum tilvikum koma sér illa, að hætta á við að greiða út fjöl- skyldubætur, en skuldskeyta á þær greiðslur, sem koma i stað- inn, við opinber gjöld, þannig að þær borgast aldrei út, nema þær nemi hærri upphæð en svarar til opinberra gjalda, sem ekki verð- ur almennt. Lúðvik lagði áherslu á, að ann- ars væri skattabreytingin litið annað en formbreyting, sem engu stóru máli skipti til eða frá. Ekkert væri i frumvarpinu um það, sem þar hefði fyrst og fremst átt að vera, það er að segja skatt- lagningu fyrirtækja, ekki slst varðandi breytingu á fyrningar- reglum. Ekkert væri heldur i frumvarpinu um skatta á verð- bólgugróða og engin ákvæði til að koma i veg fyrir að menn geti skotið tekjum undan skatti. Varöandi ákvæði frumvarpsins um heimildartilaðlækka litillega söluskatt og tolla, sagöi Lúövik, að hann væri þeim út af fyrir sig samþykkur, en teldi þær ganga allt of skammt, og mun skemur en frumvarp, sem Alþýðubanda- lagsmenn hafa flutt i þeim efnum. Þarna væri llka ástæðulaust að hafa aðeins heimildarákvæöi, — þetta ætti að ákveða beint. Hækkun útsvarsafsláttar geng- ur einnig i sömu átt og frumvarp, sem Alþýöubandalagið hefur flutt, og kvaðst Lúðvik vera þvi á- kvæði stjórnarfrum varpsins samþykkur, en það gengur lika of skammt, mun skemur en tillaga Alþýðubandalagsins. Sky Idusparnaður Flugvallagjald Stofnlánasjóöir. Skyldusparnaðinn kvaðst Lúð- vik vel geta hugsað sér, en þarna væri um óverulegar fjárhæðir aö ræða i frumvarpi stjórnarinnar, eða aðeins rúmar 200 miljónir. Flutvallagjaldið taldi Lúðvik einnig geta komið til greina að samþykkja, en sagði þó, að skyn- samlegra væri að leggja auka- gjald á ferðagjaldeyri, þannig að þeir borguðu mest, sem mestan gjaldeyri fengju, en ekki að allir borguðu sömu 2500 krónurnar hvort sem þeir færu til Færeyja eða Japan. Um þær lántökuheimildir, sem frumvarpið gerir ráð fyrir sagði Lúðvik, að þær væru ætlaðar tii að greiða úr vanda stofnlánasjóð- anna, en svo virtist sem með þeim væri verið að setja ákveðin mörk varðandi það, hve mikið fé skuli útvega til sjóöanna. Það er greinilegt að ætlunin er að þrengja mjög að stofnlánasjóöun- Framhald á bls. 14.

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.