Þjóðviljinn - 22.03.1975, Qupperneq 5
Laugardagur 22. marz 1975. ÞJóÐVlLJINN — SÍÐA 5
Einn borgarfulltrúa Sjálfstœðisflokksins
um úthlutun ibúðabyggingarlóðar til Heimdallar:
Verður ekkert
# 1 #
^fc~l átTym, QQk ráðsins. Var sú tillaga felld með 9
■ j III W I I f I . I I I I atkvæðum meirihlula Sjálfstæð-
^ -M. isflokksins gegn 6 atkvæðum full-
triia minnihlutaflokkanna.
Albert flúði af borgarstjórnarfundi!
Á borgarstjórnarfundi á
fimmtudag staðfesti borgar-
stjórnarmeirihlut Sjálfstæðis-
flokksins þann gjörning meiri-
hluta sama flokks I borgarráði að
afhenda byggingarfélagi Heim-
dallar byggingarlóð við Hagamel,
en felldi fram komna tillögu um
það, að Byggingarsamvinnufélag
starfsmanna st jórnarráðsin's
skyldi fá umrædda lóð.
Með þessari samþykkt hefur
borgarstjórnarmeirihlutinn tekið
upp ný/ vinnubrögð við úthlutun
lóða i borginni, þau, að forgang til
lóða skuli þeir hafa, sem eru i ei.n-
hverju félagi Sjálfstæðisflokks-
ins.
Allmiklar og harðar umræður
urðu um þessa lóðaveitingu á sið-
asta borgarstjórnarfundi. Báru
þeir Kristján Benediktsson og
Sigurjón Pétursson upp tillögu
þess efnis á fundinum, að lóðun-
um við Hagamel skyldi úthlutað
til Byggingasamv.-fél. stjórnar-
Að þvi var spurt i umræðunum,
hvort þessi úthlutun ætti að verða
einsdæmi, eða hvort hér væri um
að ræða upphaf að nýjum vinnu-
brögðum við lóðaúthlutun, þeim,
að væntanlegir húsbyggjendur i
borginni skuli fyrst ganga i eitt-
hvert sjálfstæðisfélag áður en
þeir komi til greina með að fá lóð
til úthlutunar.
Markús örn Antonsson, borg-
arráðsmaður Sjálfstæðisflokks-
ins, svaraði spurningunni og
sagðist ekkert vilja um það segja
hvort þetta ætti að verða eins-
Albert Guðmundsson
dæmi eða ekki, en hitt gæti hann
sagt, að hann sæi ekkert þvi til
fyrirstöðu að úthluta BYGGUNG,
þeas. byggingarfélagi Heimdall-
ar lóð aftur!
Nafnakall var viðhaft um stað-
festingu á úthlutun borgarráðs á
lóðunum, og greiddu allir borgar-
fulltrúar meirihlutans, niu að
tölu, atkvæði með þvi að Heim-
dallur sæti fyrir lóðunum, en
minnihlutafulltrúarnir allir gegn.
Það vakti athygli, að Albert
Guðmundsson flúði af borgar-
stjórnarfundinum þegar málið
kom til umræðu, en hann mun
hafa heitið Byggingasamv.fél.
stjórnarráðsins liðsinni i málinu,
en sveik svo það loforð á siðasta
borgarráðsfundi, er hann greiddi
Heimdellingum atkvæði.
Væntanlega verður hægt að
segja nánar frá umræðunum i
blaöinu i næstu viku. — úþ
Alþýðubandalagið i Kópavogi:
Kvöldvaka á skírdag
Bæjarmálaráð Alþýöubanda-
lagsins i Kópavogi hefur nú I all-
mörg ár haldiö kvöldvöku á skir-
dag meö fjölbreyttri dagskrá og
sameiginlegri kaffidrykkju.
Kvöldvakan hefur sérstaklega
haft þann tilgang aö viöhalda
kynnum þeirra manna sem lengst
hafa unniö saman aö bæjarmál-
um i Kópavogi.
Að þessu sinni verður dagskrá-
in fjölbreytt, upplestur, söngur og
sýnd stutt kvikmynd auk þess
sem spjallað verður um bæjar-
málin. Kvöldvaka þessi er opin
öllu stuðningsfólki Alþýðubanda-
lagsins á meöan húsrúm leyfir og
kaffi er á könnunni.
vettvangi
Tveir flokkar þinga
Nýr vinstriflokkur stofnaður i Noregi, en mikill
ágreiningur rikir innan VPK i Sviþjóð, þar
sem Hermansson hefur látið af formennsku
Fyrir skömmu voru
haldin flokksþing tveggja
norrænna stjórnmála-
flokka sem báðir telja sig
standa vinstra megin við
krataflokka eigin landa.
Þessir flokkar eru
Vansterpartiet
kommunisterna (VPK) í
Svíþjóð og Sósíalíska
kosningabandalagið (SV)
í Noregi.
A báðum þingum urðu nokkur
timamót i sögu flokkanna og
bæði einkenndust þau af hörðum
deilum um gamalkunn þrætu-
epli sósialiskrar hreyfingar.
Enginn hljóp þó á dyr né heldur
var nokkur „hreinsaður”.
Sósíalíski
vinstrif lokkurinn
öllu merkari áfangi náðist hjá
SV þvi norska, en eins og menn
vita er þar stefnt að þvi að sam-
eina þrjá hópa á vinstri kantin-
um i einn flokk. Þar sameinuð-
ust Sósialiski alþýðuflokkurinn,
Norski kommúnistaflokkurinn
og Lýðræðissinnaðir sósialistar
(Liðhlaupar úr Verkamanna-
flokknum og óháðir sósialistar)
um að lýsa yfir stofnun nýs
flokks, Sósialiska vinstriflokks-
ins.
Formaður nýja flokksins var
kjörin Berit As sem var aðstoð-
arborgarstjóri i einu af úthverf-
um Oslóar, Asker, fyrir Verka-
mannaflokkinn þar til hún sagði
skilið við þann flokk eftir at-
kvæðagreiðsluna um aðild norð-
manna að EBE haustið 1972. Sér
til halds i og trausts hefur hún 3
„næstledere” eins og þeir nefn-
ast á norsku: Roald Halvorsen,
fyrrum félagi i NKP og dagleg-
ur framkvæmdastjóri SV, Marit
L. Berntzen úr NKP og Steinar
Stjernö sem er SFari.
Þótt nýr flokkur hafi verið
stofnaður verða hinir ekki lagö-
ir niður strax. Það á að gerast
samkvæmt áætlun fyrir árslok
1976. Reyndar munu kommún-
istar vera einna ófúsastir til að
leggja sinn flokk niður en for-
maður NKP, Reidar T. Larsen,
er mjög áhugasamur um sam-
eininguna og hann mun ekki
standa i vegi fyrir þvi að flokk-
urinn verði lagður niður.
Ágreiningsatriöi söltuö
Innan NKP var lika hörðust
andstaða gegn nýja flokknum.
Þessi andstaða varð til þess að
ýmis deilumál voru lögð til hlið-
ar og þeim sleppt úr stefnuyfir-
lýsingu nýja flokksins sem sam-
þykkt var á þinginu. Tvennt var
það einkum sem deilt var um:
fræðilegur grundvöllur flokks-
ins og afstaðan til hinnar sósial-
Isku heimshreyfingar.
NKP svipar að mörgu leyti til
annarra kommúnistaflokka álf-
unnar, þ.e. þeirra sem til urðu
viö klofning frá krataflokkunum
á 2. og 3. áratugi aldarinnar.
Innan þeirra eimir eftir af þvi
viðhorfi að sækja sér fyrir-
myndir austur fyrir járntjald og
taka mið af þvi hverig hlutverk
kommúnista i auðvaldsheimin-
um er túlkað þar. Flokkurinn
fylgir þeirri stefnu að reyna beri
að samfylkja með flokkum
smáborgara og millistétar geQn
stórauðvaldinu sem skipulagt er
i auðhringunum en þessi stefna
hefur um nokkurt skeið verið
ráðandi innan evrópskra
kommúnistaflokka, td. þeirra i
Danmörku og Frakklandi.
Af þessum ástæðum m.a. brá
flokkurinn hart við er fram var
lagður sá hluti stefnuyfirlýsing-
ar nýja flokksins þar sem innrás
Varsjárbandalagsins i Tékkó-
slóvakiu var harðlega fordæmd.
Andstaða hans varð til þess að
þessum hluta var kippt út úr
stefnuyfirlýsingunni og hann
borinn fram i breyttri mynd
sem ályktun þingsins þar sem
orðalag allt var mun kurteis-
legra. Flokkurinn hefur að visu
sett fram óbeina gagnrýni á inn-
rásina en treysti sér þó ekki til
að standa að þessari ályktun og
sátu fulltrúar hans hjá við at-
kvæðagreiðslu um hana.
Reidar T. Larsen sagði eftir
þingið að það hefðu veriö mistök
að leggja þessa ályktun fram.
Hann kvaðst þó vera ánægður
með niðurstöður þingsins og
sagði að áætlunin um samein-
inguna sem samþykkt var á
þingi SV i fyrra hefði staðist
fram að þessu.
Roald Halvorsen lagði fram
ályktunina um Tékkóslóvakiu
og kvaðst hafa gert það að ósk
margra þingfulltrúa. Hann
sagði að þetta mál þyrfti nú að
ræða ofan i kjölinn I nýja flokkn-
um. — Þetta hefur gengið fram-
ar vonum. Við höfum náð langt i
að sameina flokkana og sú þró-
un verður auðveldari þegar við
höfum fengið einn flokk.
Mannaskipti
Menn voru ekki eins bjart-
sýnir að loknu flokksþingi VPK i
Sviþjóð i fyrri viku. Þar höfðu
orðið formannsskipti. C.H. Her-
mannsson sagði af sér for-
mennsku eftir ellefu ára starf og
við tók Lars Werner múrari og
aktivisti úr verkalýðshreyfing-
unni. Ekki gengu formanns-
skiptin átakalaust fyrir sig þvi
hartnær þriðjungur þingfulltrúa
greiddi Rolf Hagen atkvæði sitt
en framboði hans var beint gegn
Werner og vissir hópar viðhöfðu
stór orð um að fara sinu fram
innan flokksins ef Hagen næði
ekki kjöri hvað sem öllum
flokkssamþykktum liði.
Flokkur i klemmu
Það er ekki nýtt að klofningur
verði innan raða VPK. Allt frá
stofnun flokksins árið 1917 hefur
hann verið i klemmu milli krata
og moskvukomma. Flokkurinn
varð illa úti i fyrstu kosningun-
um eftir innrásina i Tékkó-
slóvakiu og siðan þá hefur for-
ystan reynt að afmá allt það i
fari flokksins sem ber keim af
rússaþjónkun. En það hefur
ekki hlotiö náð fyrir augum
allra flokksfélaga. Norður i
Norrbotten er flokksdeild sem
kennd er við dagblaðið
Norrskensflamman. Norðlend-
ingar þessir hafa ekki gefið So-
vétrikin upp á bátinn og á
flokksþinginu kváðust þeir
áfram myndu berjast gegn öll-
um „andsovétisma” i flokkn-
um. Þeir hafa sýnt flokksforyst-
unni ýmsan fjandskap og ekki
skirrst við að hundsa samþykkt-
ir flokksþinga ef þær eru þeim
ekki að skapi.
Heitt í kolunum
Þessar deilur blossuðu upp á
þinginu á dögunum og hnútur
flugu um borð. Hermansson
réðst að norðlendingum og öðr-
um slikum af fullum krafti og
sagði að enginn gæti gert sig svo
digran innan flokksins að hann
hefði samþykktir hans að engu.
Þeir sem slikt gerðu skyldu
minnast þess að i flokkslögun-
um væri ákvæði um að þeir sem
stæðu fyrir hópamyndun innan
flokksins skyldu brottrækir úr
honum.
Við þessu brugðust norðlend-
ingar með þvi að ganga út en
þeir komu aftur tviefldir og
gerðu harða hrið að Hermanns-
son og fylgismönnum hans.
Fremstur i flokki þeirra var
Harry Hagberg ritstjóri
Norrskensflamman.
Deilurnar jukust svo orð af
orði þar til kom að formanns-
kjöri. Þá stakk meirihluti upp-
stillingarnefndar upp á Lars
Werner en minnihlutinn bauð
fram Rolf Hagel frá Gautaborg.
Var þá orðið svo heitt i kolunum
að báðir frambjóðendur máttu
þola persónulegar svivirðingar
og norðlendingar höfðu i hótun-
um um að ef Hagel næði ekki
kjöri myndu þeir halda áfram
skæruhernaði gegn flokksfor-
ystunni.
Kosningunum lyktaði svo eins
og að framan greinir: Lars
Werner hlaut 162 atkvæði en
Hagel 74. Werner hlaut þvi mik-
inn meirihluta en allt um það
veröur hlutskipti hans á næst-
unni ekki öfundsvert. Hann þarf
að setja niður harðvitugar deil-
ur og takist honum það ekki er
mikil hætta á að enn einn klofn-
ingurinn vofi yfir.
Arftaki Hermanssons
Um nýja formanninn má geta
þess að hann vann við rriúrverk i
tiu ár þar til hann tók að sér
trúnaðarstörf innan verkalýðs-
hreyfingarinnar. Hann gekk i
flokkinn árið 1953, var kjörinn á
þing árið 1965 og varaformaður
flokksins varð hann 1967. Hann
þykir ekki eins snjall pólitikus
og Hermansson en þar kemur á
móti góð tengsl við verkalýðs-
hreyfinguna sem menntamann-
inn Hermansson skorti. Hann er
talinn hafa mjög svipaðar skoð-
anir á hlutverki og stefnu
flokksins og Hermansson.
Velheppnuð tilraun
En svo þessi tvö flokksþing
séu borin saman virðist fram-
tiðin vera mun bjartari i Noregi.
Þar hefur mönnum tekist að
viðhalda þeirri samstöðu sem
skapaðist i baráttunni gegn að-
ildinni að EBE. Kjósendur virð-
ast hafa tekiö þessum samein-
ingartilraunum vel, þvi SV
hlaut 11% átkvæða i siðustu
þingkosningum og skoðana-
kannanir sem gerðar hafa verið
siðan hafa bent til þess að flokk-
urinn gæti orðið þriðji stærsti
flokkurinn á þingi. En næstu
misserin mun fást úr þvi skorið
hvort tilraunin tekst eða hvort
SV leysist aftur upp i frumein-
ingar sinar. — ÞH
V
Menntamaöurinn Hermansson (t.v.) óskar múraranum Lars Werner
velfarnaöar i starfi formanns VSnsterpartiet kommunisterna.