Þjóðviljinn - 22.03.1975, Qupperneq 6
6 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 22. marz 197a.
Það mun kosta
UM 400
ÞIJSUND
KRÓNUR
að bora með Jötni
Við spurðum Rögnvald
Finnbogason hjá Orku-
stofnun að því hvort ekki
væri hin mesta kúnst að
flytja Jötun úr stað/ en
það nafn hefur þessum
stærsta jarðbor lands-
manna verið gefið.
— Þetta er nú lítið þyngra en
þau tæki, sem við höfum verið
meö, sagði Rögnvaldur, þau eru
bara fleiri. Hver eining er svona
20-30 tonn, og við höfum flutt
tæki, sem vega 23 tonn.
— En er þetta þá ekki svo fyr-
irferðarmikið, að vegirnir okk-
ar og brýrnar láti undan þung-
anum?
— Það held ég ekki. Þetta er
þó breiðara en algengur flutn-
ingur.
— Er hægt að nefna einhverja
viðmiðun um vinnuhraða þessa
bors umfram þess, sem stærst-
ur hefur verið hingað til?
— Þegar við erum að taka
stangirnar upp úr holunni tök-
um við með þessum bor 27
metra i einu, en aftur 18 metra
með hinum.
— Gengur þessi bor hraðar
niöur?
— Hann á að gera það. Við
munum þó nota alveg sama pró-
gramm varðandi holuviddir, en
við getum lagt meira á hann,
meira afl. Við notum þungar
stangir neðst, alveg niður við
krónu, til að gefa krónunni álag,
og við munum bora með meira
álagi og ættum þvi að geta náð
meiri borhraða.
— 1 hvers lags boranir ætlið
þið að nota hann hér?
— Ég held að hann verði aðal-
lega notaður til þess að bora eft-
ir heitu vatni.
— Hefur verið reiknað út
hvað kostar að reka svona bor á
klukkutima?
— Við erum ennþá að reyna
að komast að niðurstöðu með
það, en við erum ekki búnir að
fá heildarborverðið. Það kæmi
mér þó ekki á óvart þótt borleig
an yrði um eða yfir 400 þúsund
krónur á sólarhring.
— Er þetta mikið verð fyrir
slikt tæki.
— Það er nú eftir þvi hvernig
á það er litið. Við verðum að
taka tillit til þess, að borverðið
er nær allt lánað og á að afskrif-
ast á tju árum. Þetta hækkar að
sjálfsögðu leiguna.
Sólarhringsleigan fyrir 2 þús-
und metra borinn er nú 190 þús-
und.
— Hver eru svo afköstin?
— 1 tvö þúsund metra holu
má segja að við höfum borað
fimm metra að jafnaði á
klukkutima. Bortiminn er svona
50-60% af heildar.verktimanum.
Annar timi fer i það að taka
borinn upp, þá tökum við hann
niður og fóðrum holurnar, og
eitt og annað er i kring um
þetta.
— Hver er borfloti stofnunar-
innar?
— Við erum með gufuborinn,
sem er eign rikisins og Reykja-
vikurborgar. Þá er það þessi
nýi, Jötunn. Svo erum við að
kaupa einn 12-1400 metra bor,
sem við höfum skýrt Narfa. Við
eigum von á honum i mai. Við
erum með einn 1000 metra bor.
Hann er núna að bora að 'Laug
um i Reykjadal. Þá erum við
með 600 metra bor, sem við
köllum Glaum.
— Hvar eru þeir að störfum
borarnir, sem þú tilgreindir
ekki hvar væru?
— Glaumur er nú við Hrafna-
gilsskóla i Eyjafirði. Gufubor-
inn er i Mosfellssveit, og mein-
ingin er að hann fari upp að
Leirá i næsta mánuði. Jötunn
fer að öllum likindum austur i
Þorlákshöfn.
— Hvað ætlið þið að gera við
Narfa?
— Það liggja mörg verkefni
fyrir. Það þarf að 'bora á
Blönduósi, Sauðárkróki og við-
ar. Við erum ekki búnir að á-
kveða til fullnustu hver röðin
verður á verkefnunum.
— Borið þið mikið eftir fersk-
vatni?
— Já. Til þess notum við aðra
gerð af borum. Þessir borar,
sem ég hef nefnt.eru allir snún-
ingsborar. Þeir sem við notum
við ferskvatnsborun eru högg-
borar, sem bora með meitlum.
— Hefur ásókn i ferskvatns-
borun aukist?
— Já. Við erum til dæmis að
bora núna i Þorlákshöfn eftir
köldu vatni og einn bor er alveg
i þvi að bora fyrir Vatnsveitu
Reykjavikur.
— Þið ætlið vonandi ekki að
fara að bora eftir oliu?
— Nei, enda held ég að við
yrðum að fara langt út i hafs-
auga til þess.
—úþ.
Tilkynning
Að gefnu tilefni viljum vér hér með vekja
athygli á eftirfarandi reglu, er gildir um
úthlutun ferðagjaldeyris til islenskra
ferðaskrifstofa:
Yfirfærslur til ferðaskrifstofa vegna IT-
og hópferðafarþega til greiðslu á hótel-
kostnaði og skoðunarferðum eru 3.50
sterlingspund á dag fyrir hvern farþega
að hámarki i 15 daga.
í samræmi vi© framanskráð, er islenskum
ferðaskrifstofum óheimilt að selja hóp-
ferðir til útlanda, er standa lengur en 15
daga.
GJALDEYRISDEILD BANKANNA
ÞETTA ER JÖTUNN
Borinn er keyptur af South-
land Drilling Co., Houston,
Texas. Kaupverð er á núverandi
gengi 330 milj. kr. fyrir utan
tolla og söluskatt. Borinn er
tæplega 3 ára gamall, diesel-
rafdrifinn, 3 rafstöðvar af
Caterpillar-gerö framleiða allt
að 1500 kw, 600 v, -60 riða
straum. Riðstraumnum er
breytt i jafnstraum með S.C.R.
(Silicon Controlled Rectifier)
kerfi. Jafnstraumsmótorar
knýja siðan hvert tæki fyrir sig
og eru 4 af General Electric-
gerð hver 750 hö, 600 v. DC.
Oll stjórnun fer fram frá
stjðrnborða á borpalli. Tölvu-
stýring sér um að ekki er hægt
að yfirlesta aflvélar né S.C.R.
kerfið. Borinn er hannaður fyrir
borun 8 3/4” (222,3 m/m) holu 1
allt að 3600 m dýpi. Borstaminn
samanstendur af 5” borstöng-
um og 7 1/4” x 2 15/16” álags-
stöngum hver eining 9,15 m
löng. Borspilið er af Gardner
Denver-gerð (700 E), 750 hö.
Mesti togkraftur þess er 30,8
tonn við 101 m/min af 1 1/4” vlr.
Bordælur eru 2 af Gardner
Denver-gerð. Model P7-8-750 hö
Triplex. Hámarksafköst 239
tonn/klst (66,4 1/sek) við 155
kg/fersm. þrýsting og við há-
marksþrýsting 378 kg/fercm. 97
tonn/klst (27 1/sek).
Bormastriðer af Lee C. More-
gerð. 40 m (131 ft) á hæð og með
undirstöðum er hæsti punktur 1
um 48 m hæð frá jörðu. Há-
markslyftigeta með þvi er 180
tonn (397.000 lbs).
Auk þessara aðalhluta borsins
er mikið af smærri tækjum og
varahlutum með honum. Heild-
arþyngd borsins er um 521 tonn.
Stutt viðtal við Helga Seljan:
Fundur um
landbúnaðarmál
í Valaskjálf n.k. fimmtudag, skírdag
Alþýðubandalagið hcfur ákveö-
ið að boða til almenns fundar um
landbúnaðarmál á Egilsstöðum
n.k. fimmtudag. Fundarefnið
verður staða landbúnaðarins i
dag og framtiðarverkefni.
Þjóðviljinn leitaði til Heiga
Seljan, sem eins frummælenda og
spurði hann stuttlega um tildrög
og eðli fundarins:
Fundur þessi er haldinn á veg-
um Alþýðubandalagsfélags Fljót-
dalshéraðs, en þar hefur lengi
verið mikill áhugi fyrir fundi eins
og þessum.
Bændur á Héraði réttu mjög úr
kútnum á vinstristjórnarárunum,
en engu að siður eru kjör þeirra
almennt langt frá þvi að vera við-
unandi. Einyrkjabúskapurinn er
nær allsráðandi og hann er hvoru
tveggja erfiður og bindandi. Jafn-
framt þvi sem rætt verður um
ástand mála i dag og uggvænleg-
ar blikur á lofti, verða reifuð
lánamál og þó sérstaklega fjallað
um framtiðarverkefni 1 landbún-
aði á Austurlandi. Fundurinn er
öllum opinn og við væntum góðr-
ar þátttöku og mikilla almennra
umræðna. Bændur á Héraði eru
margir ágætir ræðumenn og m.a.
vonum við að fá inn i þessar um-
ræður kempur eins og Svein á
Egilsstöðum og Ingvar i Dölum,
svo aðeins sé minnt á tvo heiðurs-
bændur á Héraði.
Hverjir eru svo frummælend-
ur?
Það verða fimm frummælend-
ur, fjórir auk min, sem ætla að
taka lánamálin örlitið fyrir,
vegna þess að ég á sæti i banka-
ráði Búnaðarbankans.
Páll Sigbjörnsson héraðsráðu-
nautur á Austurlandi mun flytja
framsögu um stöðu landbúnaðar
á Austurlandi i dag og ýmsar leið-
ir til úrbóta.
Stefán Sigfússon landbúnaðar-
kandidat mun flytja framsögu um
nýja stefnumótun i landbúnaði i
anda þeirra hugmynda, sem efst-
ar hafa verið á baugi é Alþýðu-
bandalaginu og ný verkefni land-
búnaðarins i samræmi við það.
Tveir bændur munu flytja
stutta framsögu: Guðmundur
Beck bóndi á Kollaleiru, Reyðar-
firði mun greina frá reynslu sinni
af búskap i fjöröum og helstu
galla, er hann telur fylgja ein-
yrkjabúskapnum.
Jón Arnason bóndi á Finnsstöð-
um i Eiðaþinghá mun reifa skoð-
anir sinar varðandi félagsbúskap
og aukna samvinnu bænda á
milli.
Og þú reiknar með almennri
þátttöku, þó Alþýðubandalagið
boði til fundarins i sinu nafni?
Fundurinn verður ópólitiskur
hvað snertir beina flokkspólitik
og Alþýðubandalagið er engin
Grýla á Austurlandi, heldur ekki
hjá austfirskum bændum.
Auk þess eru bændur þar eystra
miklir félagshyggjumenn og ötul-
ir við að mæta á málþingum,
djarfir og einarðir i allri mála-
fylgju. Ég vænti þvi góðs af þess-
um fundi og veit, að hann verður
mér lærdómsrikur.
Nokkuð i lokin?
Ekki annað en að hvetja bænd-
ur til þátttöku i þessum fundir og
geta þess um leið, að að sjálf-
sögðu verða þeir á fundinum Lúð-
vik Jósepsson alþingismaður og
Sigurður Blöndal skógarvörður,
varaþingmaður Alþýðubanda-
lagsins á Austurlandi. Sem sagt,
ég er bjartsýnn á þennan fund og
vona að hann heppnist sem allra
best og verði austfirskum land-
búnaði til framdráttar og gagns,
að svo miklu leyti sem slikir fund-
ir geta verið það.
Helgi Seljan