Þjóðviljinn - 22.03.1975, Qupperneq 16

Þjóðviljinn - 22.03.1975, Qupperneq 16
VOÐVIUINN Laugardagur 22. marz 1975. Breskur togari strandaði Breskur 700 lesta togari strandaöi i gærmorgun við Kötlu- tanga. Fyrir kl. 19 i gærkvöld hafði öllum skipverjum verið bjargað i land. Það var björgun- arsveit Vikverja sem bjargaði mönnunum i land. Atti að flytja mennina til Hafnar i Hornafirði. Skip hafa hvað eftir annað strandað þarna að undanförnu., Tölva á að spara bensín INDIANAPOLIS 21/3 Smiðuð hef- ur verið litil tölva i bila sem getur með þvi að bæta bensínnýtingu leitt til allmikils sparnaðar. Yrði tækið útbreitt gæti það sparað um 27 miljónir tunna af hráoliu á ári en það er mánaðarskammtur af þeim sparnaði i oliuinnflutningi sem stjórnvöld eru að reyna að koma á. Tækið mun i fjöldaframleiðslu kosta um 100 dollara. Skatta- lœkkun WASHINGTON 21/3 — öldunga- deild bandariska þingsins sam- þykkti i dag lög um lækkun skatta á cinstaklingum og fyrirtækjum um samtals 31 miljarð dollara. Um leið voru afnumin umdeild ákvæði um nokkur skattfriðindi til handa oliufélögum. Náði CIA sov- éskum kafbáti? WASHINGTON 21/3 - Blaðið Washington Post skýrir frá þvi i dag, að bandariska leyniþjónust- an CIA muni að likindum hafa fundið tvö kjarnorkutundurskeyti i sovéskum kafbát, sem fórst i Kyrrahafi. Blaðið segir einnig, að allur báturinn hafi náðst upp, en áður hafði fulltrúi CIA haldið þvi fram, að aðeins hefði náðst hluti hans og að CIA hefði orðið að hætta við frekari tilraunir til að ná bátnum upp eftir að blöð komust i málið. Búist var og við þvi að I kafbátnum mætti finna vél til að ráða dulmálsskeyti. Skriðdrekar Saigonhers I bardaga: Thieu segist vera aö spara vopn og skotfæri. Sóknin i Suður-Víetnam: Er Hue að falli komin? SAIGON 21/2. t dag var tilkynnt um enn eina fylkishöfuðborg I Suður-VIetnam sem her Saigon- stjórnarinnar hefur hörfað frá. Aftur á móti var neitaö staðhæf- ingum um að Saigonherinn hafi hörfað frá hinni fornu höfuðborg landsins, Hue, en hitt var staö- fest, að um helmingur ibúanna mun þegar flúinn þaðan. í dag var skýrt frá þvi, að hörf- að hefði verið frá Hau Bon, sem er höfuðborg Phu Bon héraðs. Þá hafa sjöhéraðshöfuðborgir fallið i hendur þjóðfrelsisöflum og þar af sex á einni viku, en Phuoc Binh féll I janúar. Ennfremur hefur stjórnarherinn yfirgefið An Loc, sem lengi var barist um 1972, en umhverfi hennar hefur siðan þá verið á valdi ÞFF. Enn ein hér- aðsmiðstöð skammt norðvestur af Saigon er og talin I hættu en það er Tay Ninh. Var birgðalest á leiðinni þangað gerð fyrirsát að- eins um 25 km. fyrir vestan Saigon. Sem fyrr segir hefur tæpur helmingur ibúa Hue, sem er ein- hver helsta borgin I noröurhluta S-Vietnams, flúið þaðan, og sagt er að yfirvöldin hafi hvatt til þess. Setuliðið i borginni segist hafa komið upp nýrri varnarlinu um 30 km. fyrir norðan borgina. Fulltrúar bandariska hermála- ráðuneytisins viðurkenndu I gær að hin snöggu umskipti i Vietnam hefðu komiö þeim á óvart. Schles- inger hermálaráðherra kenndi þvi um að norðurvietnamar ætl- uðu nú að efna til stórsóknar sem mundi verða enn áhrifameiri en sóknin 1972. Talsmenn Pentagons og Thieu forseti hafa mjög hátt um mikinn herstyrk frá Norður-VIetnam núna, og svo að undanhald Saigonhersins megi rekja til þess að Bandaríkin hafa dregið úr hernaðaraðstoð sinni við Thieu. Báðir telja samt ólik- legt að það takist að fá banda- riska þingið til að auka aðstoðina um 300 miljónir dollara eins og stjórn Fords hefur farið fram á. (Reuter) Fordœma morð á kúrdum í Irak PARIS 21/3 1 gær birtu 36 þekktir franskir menntamenn áskorun til alþjóðlegra samtaka og lýðræðis- afla um að stöðvuð verði fjölda- LUNDÚNUM 20/3 — William Hamling, einkaritari Wilsons for- sætisráðherra I neðri málstofu breska þingsins, andaðist I gær- kvöldi,og hefur rikisstjórn Verka- mannaflokksins þá aðeins einsat- kvæðis meirihluta I þinginu. morð á kúrdum i Irak. Meðal þeirra sem undir rita eru rit- höfundarnir Jean-Paul Sartre og Simone de Beauvoir. I ávarpinu, sem birt er I Le Monde er lýst yfir stuðningi við rétt kúrda til sjálfsákvörðunar. Þar segir m.a. að það sé glæpur að bæla niður þjóðernisbaráttu kúgaðs minnihluta og skiptir þá ekki máli að þeir sem ábyrgð bera á sliku kalli sig sósialista. (Reuter) Árshátíð AB í Rvík — haldin að Hótel Borg 26. marz Dagskrá árshátiðarinnar verður sem hér segir: 1. Avarp. 2. „Frjáls menning”. örn Bjarnason syngur um þjóð- lifið. 3. „Þar hefur liðið yfir þrjár manneskjur i afmælisveisl- um”. Karl Guðmundsson leikari les kafla eftir Guð- berg Bergsson. 4. „Konur og kosningar”. Margrét Helga Jóhanns- dóttir leikari syngur á- deiluvisur við undirleik Bjarna Þórs Jónatansson- ar. 5. Þorleifur Hauksson cand. mag. les ljóð. 6. „Sjá, hin ungborna tið”. Kór trésmiðafélagsins syngur undir stjórn Guð- jóns B. Jónssonar. 7. Hljómsveit Ólafs Gauks leikur fyrir dansi. Kynnir er Halla Guðmunds- dóttir léikari. Dagskráin hefst stundvislega kl. 21.30. Húsið er opnað kl. 20.30. Félagar, fjölmennið! Skemmtinefndin. Kissinger aftur til Tel Aviv: Assad og Arafat semja um sam- einaða herstjórn BEIRUT KAIRO 21/3 Ráð sam- taka Palestinuaraba hefur fallist einróma á tillögur Assads forseta Sýrlands um að koma á fót sam- eiginlegri herstjórn sýrlendinga og PLO, frelsisfylkingar Palestinu. Talsmaður PLO, Fahúm, sagði við blaðamenn I Beirut, að þessu samkomulagi væri ekki beint gegn neinum og væri öllum Arabarikjum velkomið að gerast aðilar að þvi. En sýnt þykir, að samkomulag þetta dragi úr líkum á þvi að viðleitni Kissingers til að koma á friði i áföngum takist. Kissinger kom aftur til tsrael i dag með gagntilboð egypta við þeim hugmyndum um nýja til- högun á aðskilnaði herja á Siani- skága, sem israelsmenn höfðu komið sér saman um. I gær var einn af talsmönnum stjórnar Egyptalands að þvi spurður, hvort hætta væri á þvi að upp úr samningum slitnaði og svaraði hann þvi til að „svo langt hefur það ekki gengið.” — Reuter Enn stokkar Lon Nol upp PHNOMP PEHN 21/z: Lon Nol heldur áfram að stokka upp lið sitt i hinni umsetnu höfuðborg Kambodju. I dag var tilkynnt um skipan nýrrar rikisstjórnar og á m.a. sæti i henni Hang Thun Hak, fyrrv. forsætisráðherra, sem er sagður einn af fáum stjórnmála- mönnum þar I borg sem gæti náð sambandi við leiðtoga Khmer rouge. Nokkrar eldflaugar féllu á höfuðborgina i dag, þ.á m. 15 á flugvöllinn sem er nú eina lifæð borgarinnar. Erlendir sendimenn halda áfram að flýja Kambodju. Sið- ustu bretarnir eru farnir og hafa þeir lokað sendiráði sinu. Einkenni skattafrumvarpsins: Hroðvirkni og beinar falsanir Öll skattadæmin sem sýna eiga lækkun skattanna eru fölsuð Furðuleg hroðvirkni einkennir skattalaga- frumvarp ríkisstjórnar- innar, en það ber þetta yf irlætislega nafn: • Frumvarp til laga um ráðstafanir í efnahags- málum og fjármálum til þess að stuðla að jafn- vægi i þjóðarbúskapnum og treysta undirstöðu at- vinnu og lífskjara." Samfara hroðvirkninni eru hreinar tölulegar falsanir í útreikningum, sem fylgja frumvarpinu. Voru dæmi þau um skatta sem fylgja frumvarpi þessu birt f stjórnar- blöðunum í gær — og Al- þýðublaðinu — enda þótt i þeim sé hallað réttu máli með veigamiklum hætti. Meðlagsgreiðsla föður ófeðraðs barns!! I 9. grein frumvarps þessa er kveðið á um skattlagningu meðlagsgreiðslna og fleira. Þar er meðal annars að finna þessa setningu: „Meðlagsgreiðsla (þmt. barnalifeyrir úr al- mennatryggingum, ef annað hvort foreldra er látið eða barn er ófeðrað) með barni sem orðið er fullra 16 ára I byrjun þess al- manaksárs þegar skattur er lagður á, telst að fullu til tekna hjá þvi foreldri sem við henni tekur, en enginn frádráttur er heimill frá tekjum þess for- eldris sem innir hana af hendi.” Eins og sjá má felur málsgréin- in i sér að faðir ófeðraðs barns fær ekki skattafrádrátt þó að hann hafi borgað skatt með barni sinu!!! Reikningsskekkjur og falsanir Slik hroðvirknisvinnubrögð — eins og tilvitnunin i 9. greinina sýnir — eru auðvitað ekki sæm- andi frumvarpi með jafn metnaðarmiklu nafni. En fleira. kemur til. I dæmum þeim i frumvarpinu sem sýna eiga samanburð á núgildandi og væntanlegu skattakerfi er um alvarlegar falsanir að ræða og þar eru einnig á ferðinni reikningsskekkjur. Alvar- legasta fölsunin kemur fram i þvi að þegar núgildandi skatta- kerfi er-reiknað út er gert ráð fyrir 11% útsvari. Hið rétta er ai skv. núverandi útsvarslögum skal leggja á 10% útsvar og vinstristjórnin heimilaði aldrei meira en 10% útsvarsálagningu, — en skv. lögunum er heimilt að hækka útsvarið 111% eins og nú- verandi rikisstjórn hefur gert. Þegar þetta hefur verið tekið til athugunar og reiknings- skekkjur leiðréttar, kemur eftirfarandi i ljós, skv.tveimur dæmum sem birtast með skattalagafrum varpinu: Hjón með tvö börn og 1200 þúsund króna tekjur sl. ár greiða samkvæmt núgildandi kerfi til hins opinbera,rikis og sveitarfélaga, þegar fjöl- skyldubætur hafa verið dregnar frá 121.268,- en skv. tillögum rikisstjórnarinnar greiða hjóna- kornin hins vegar 114.789. Lækkun skattsins er 6.479 kr eða hvorki meira né minna en 0,5%. t þeim dæmum sem rikis- stjórnin birtir með frumvarpi sinu er hins vegar fullyrt að skattalækkun þessara hjóna verði nærri 23 þúsund krónur frá eldra kerfi. Skekkja og rang- færslur upp á 16.50C kr • Hjón með 2 börn og tvær milj.kr. i tekjur á sl. ári. lækka i sköttum um 19.941 kr. — segir i frum- varpi rikisstjórnarinnar. Hérna er enn á ferðinni reiknings- skekkja, og hún stór: Hið rétta er að skattalækkun umræddrar fjölskyldu er 2.923 kr. á ári eða sem svarar 0,67% af tekjum sl. árs. Mikið er örlæti stjórnarherranna.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.