Þjóðviljinn - 19.04.1975, Blaðsíða 1
Hvarer nú
frjálsa samkeppnin?
Innflutningur
stöðvaður?
KRON tekur
DJÚÐVIUINN
Laugardagur 19. april 1975 —40. árg. —88. tbl.
POLSKT
TIMBUR
LÆKKAR
LÍKA
Þó er hætta á að timburverð hækki enn á Islandi
Eins og komið hefur
fram í fréttum var samið
við sovétmenn um 22%
lækkun á því timbri sem
keypt verður frá Sovét-
rikjunum í ár, en sovéskt
timbur kemur oftast til
landsins um mitt sumar
eða á haustin.
Hér á landi er nú stödd
samninganefnd frá Póllandi sem
er að semja um verð á timbri
þaðan og er búist við að verðið á
pólska timbrinu lækki einnig
verulega, enda hefur heims-
markaðsverð á timbri lækkað
verulega, eða allt að 20%.
Við höfðum i gær sambnad við
Hjalta Pálsson forstjóra inn-
flutningsdeildar SIS og spurðum
hann hvenær islendingar myndu
njóta góðs af þessu lækkaða timb-
urverði.
Hjalti sagði að timburverð á fs-
landi myndi ekki lækka vegna
þessa. Ástæðan er sú að gengið
hefur lækkað og uppskipun og
flutningskostnaður hefur hækkað.
— Ég geri ekki ráð fyrir þvi að
þessi 20% verðlækkun nægi til
þess að halda hér óbreyttu
timburverði, sagði Hjálti. fcg get
ekki fullyrt þetta eins og er. það
er verið að reikna þetta út. en i
fljótu bragði sýnist mér að þessi
verðlækkun nægi ekki. Kf þessi
verðlækkun hefði ekki orðið. helði
hækkun á timbri hér á landi orðið
hrikaleg. sagði Hjalti a«' lokum.
-S.dör
Timbur frá Sovétrikjunum lœkkar um 22%
Fjórtán stórir togarar
bundnir við bryggju
Svokölluðum
„eigendum” liðst
enn að efna
til atvinnuleysis
Ekkert gerist enn i kjaradeilu
sjómanna, þó verkfall eigi að
skella á aðfaranótt næstkomandi
þriðjudags og verkfall hafi nú
staðið i um tiu sólarhringa á stóru
togurunum. Hefur leynifrumvarp
rikisstjórnarinnar, aðgerðarleysi
liennar og þvermóðska siglt öllu i
strand. Sjávarútvegsráðherra
flaug úr bænum og sinnir þessu
máli ekkert um helgina. Hafa
samningafundir ekki verið
boðaðir i deilunni.
Þeir deiluaðilar sem blaðið
hafði samband við I gær voru
mjög undrandi á vinnubrögðum
þeim sem stjórnarvöld hafa haft i
þessu máli. Rikisstjórnin ætlar
ekki að draga frumvarp sitt um
skerðingu skiptakjara til baka.
Er ætlunin hennar nú að afhenda
útgerðinni fé meö nokkuð öðrum
hætti en ætlað var i upphaflegum
drögum frumvarpsins, en hún
hefur enn ekki skýrt á hvern hátt
það yrði gert.
14 stórir togarar
stöðvaðir
Nú eru 14 stórir togarar
stöðvaðir vegna verkfallsins:
Guðsteinn, Ver, Baldur, Mai,
Engey, Hrönn.Ogri, Vigri, Karls-
efni, Snorri Sturluson, Ingólfur
Arnarson, Þormóður goði og
Sléttbakur. Alls eru stóru
togararnir 22 talsins.
Verkfall á stóru togurunum
hófst 9. april og hefur þvi staðið i
10 sólarhringa. Hefur ekkert
gerst I þessari deilu allan timann.
Kjarasamningar sjómanna á
þessum skipum hafa ekki verið
endurnýjaðir frá áramótum 1973-
1974. Siðast voru samningar
undirritaðir fyrir undirmenn á
þessum skipum 9. mars 1973 en
kjör yfirmanna 'voru lögfest 23.
mars 1973 gegn háværum mót-
mælum svokallaðra eigenda tog-
aranna.
Stefnt á atvinnuleysi
Þrákelkni stjórnarvalda og
„eigenda” togaranna stefnir nú á
atvinnuleysi i frystihúsum viðs-
vegar um landið. „Togaraeig-
endur” bera við rekstrarörðug-
leikum og neita að hreyfa sig um
set. Telur Þjóðviljinn að i slikri
stöðu væri eðlilegast að sjó-
mennirnir sjálfir tækju að sér
reksturinn á togurunum. Núver-
andi ástand þar sem hundruð og
þúsundir lenda i atvinnuleysi er
með öllu ósæmandi.
afleiðingunum
— lœkkar
sykurinn
— Það er rétt. Við
lækkuðum sykurinn í gær
og kostar kilóið hjá okkur
kr. 245, eða 490 kr. tveggja
kílóa pokinn. Það segir sig
sjálft að við eigum ekki
annars úrkosti en að bera
skaðann sjálfir þegar
kaupmenn í allmörgum
verslunum eru farnir að
auglýsa sykurinn á þessu
verði þó að við höfum
keypt sykurinn á gamla
háa verðinu.
— Þetta sagði Ingólfur ólafs-
son, kaupfélagsstjóri KRON, er
Þjóðviljinn ræddi við hann i gær.
llann sagði að tvö kilóin kostuðu i
heildsölu 560 kr. og þess vegna
verður KRON að borga með
sykrinum út úr búð. Fyrir lækkun
kostaði kilóið 310 kr„ en semsagt
••245. meiMagið 65 kr. kilóið. Þegar
maður hefur gert skökk innkaup
verður að taka afleiðingunum,
sagði Ingólfur.
Eins og kunnugt er af fréttum
og auglýsingum keyptu nokkrir
kaupmenn inn i landið allmikið
magn af sykri á lægra verði en
áður hefur verið fáanlegt. Hins
vegar eiga aðalinnflytjendur
sykurs — SIS og Impuni — enn
miklar birgðir af sykri á hærra
verði, sem þeir óttast nú að þeir
losni ekki við vegna lága
verðsins, sem sumsstaðar er nú
boðið. Hefur heyrst að þessir aðil-
ar reyni nú að fá yfirvöld til þess
að stöðva innflutning á ódýra
sykrinum þangað til sá dýri er
genginn til þurrðar i landinu.
Sykur er leyfisvara og þvi þarf
leyfi til innflutnings á honum.
Sykurstríðið
— Sjá frétt
á baksíðu
Þingmenn þriggja flokka leggja til:
Viðurkenningu á byltingar-
stjóminni í Suður-Vietnam
Lögð hefur verið fram á al-
þingi þingsályktunartillaga um
að fela utanrikisráðherra að
viðurkenna bráðabirgðabylt-
ingarstjórnina I Suður-Vietnam.
Flutningsmenn eru þing-
mennirnir Magnús Kjartans-
son, Magnús T. Ólafsson og Sig-
hvatur Björgvinsson.
Tillagan er á þcssa leið:
„Alþingi ályktar að fela utan-
rikisráðherra að viðurkenna
bráðabirgðabyltingarstjórnina i
Suður-Vietnam.
Jafnframt skorar Alþingi á
rikisstjórnina að leggja fram fé
til endurreisnarstarfa i Indó-
kina i samvinnu við önnur
Norðurlandariki.”
i greinargerð segir
„Styrjöldin i Vietnam, sem
segja má að geisað hafi nær ó-
slitið i hálfan fjórða áratug hef-
ur orðið mjög nærgöngul við
samvisku manna um allan
heim. Vietnamar hafa á þessu
timabili orðið að berjast við inn-
rásarheri frá Japan, Frakk-
landi og Bandarikjunum; mann-
fall og limlestingar hafa orðið
hlutfallslega meiri en i nokkrum
öðrum styrjöldum, ásamt eyð-
ingu á náttúru landsins, mann-
virkjum og samfélagsháttum.
Lengi vel var deilt mjög um eðli
þessara styrjalda, en nú hefur
reynslan sannað svo að ekki
verður um deilt að i Vietnam
hefur alla tið verið um þjóð-
frelsisbaráttu að ræða, þar sem
allur þorri landsmanna hefur
stefnt að sjálfstæði og barist
gegn erlendu valdi.
Fjöldasamtök almennings og
fjölmörg riki heims hafa á und-
anförnum árum reynt að stuðla
að þvi að bundinn yrði endir á
ógnarástandið i Vietnam. Þann-
ig viðurkenndi fyrrverandi
rikisstjórn Islands rikisstjórn-
ina i Hanoi, i þvi skyni að mót-
mæla loftárásum bandarikja-
manna á Norður-Vietnam.
40—50 riki hafa nú þegar viður-
kennt bráðabirgðabyltingar-
stjórnina i Suður-Vietnam, þar
sem ljóst er orðið að hún er full-
trúi meginhluta ibúanna i þeim
landshluta og endanlegur sigur
hennar skammt undan. Hér er
lagt til að rikisstjórn Islands
gangi frá slikri viðurkenningu
og stuðli þannig siðferðilega að
þvi að styrjaldarátökunum i
Vietnam sloti sem fyrst og
landsmenn geti einir og frjálsir
tekist á við hin risavöxnu
vandamál sin.
Endurreisnarstarfið i Viet-
nam og öðrum striðshrjáðum
rikjum Indókina verður erfitt og
kostnaðarsamt, og þegnar
þeirra munu þurfa á allri til-
tækri aðstoð að halda. ITér er
lagt til að islendingar leggi sinn
skerf af mörkum til þeirra verk-
efna, og væri eðlilegt að sú að-
stoð yrði veitt i samvinnu við
önnur Norðurlandariki, sem
þegar hafa lagt fram verulega
fjármuni i þessu skyni og skuld-
bundið sie til enn meiri átaka.”