Þjóðviljinn - 19.04.1975, Qupperneq 5

Þjóðviljinn - 19.04.1975, Qupperneq 5
Laugardagur 19. apríl 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 Aö grœða á olíukreppu: Meðan olíukreppan stóð sem hæst veturinn 1973- 1974 gerðist það, að oliu- skip f rá hinu þýska útibúi Shell var látið bíða i 12 daga rétt úti fyrir höfn- inni í New York. Það var hlaðið svartolíu. Það var kalt í New York og naumt um olíu. En olíusöiufyrir- tækið Gasland, sem hafði leigt skipið, lét það bíða eftir að verðið hækkaði. Á þessum tólf dögum hækk- ? " ' *’ m 'V - nælt úr risaoliuskipi: falsaöar faktúrur, umskipun á rúmsjó.. Svik og prettir olíukaupmanna aði olíuverðið úr 8.65 doll- urum á tunnu í 12,26 doll- ara. Fyrirtækið græddi á þessu bragði 673 þúsund dollara. Meö þessum og öðrum rúðum höfðu oliubraskarar einn til þrjá miljarði dollara af bandarisk- um oliuneytendum meðan á kreppunni stóð. Með svikum, fölskum upplýsingum, samsæri milli oliukaupmanna, skipaeig- enda og glæpasamtaka. Hlið- stæð tiöindi gerðust og i öðrum löndum, t.d. á ttaliu, þar sem útibú oliuhringanna lugu til um þær birgðir sem til voru i land- inu i þeirri viðleitni að skrúfa verðið sem mest upp. Hinn óttalegi leyndardómur Heimildir um þessi mál koma frá yfirvöldum tollmála og orkumála i Bandarikjunum, sem eru nú að rannsaka þann óttalega leyndardóm, hvernig það mátti verða, að enda þótt Bandarikin séu tiltölulega litið háð innflutningi oliu frá OPEC- löndum og haft sé strangt verð- lagseftirlit með oliu sem kemur annarsstaðar frá, þá var oliu- verðið i Bandarikjunum skrúfað upp um helming meðan á oliu- kreppunni stóð. Um 30 oliuinnflytjendur eru grunaðir um græsku: að þeir hafi meðan hið arabiska oliu- bann gegn Bandarikjunum stóð, rakað saman fé með þvi að falsa farmskrár eða umskipa oliu úti á rúmsjó. Til dæmis sýndu eig- endur oliuskips nokkurs, sem losaði skömmu eftir að oliu- kreppan hófst 500 þúsund tunnur af oliu á austurströnd Banda- rikjanna, pappira upp á það, að olian hefði verið tekin i Venezú- elu. Tilgangurinn var sem hér segir: Strax eftir að arabarikin og Iran hækkuðu verðið i desember 1973 hafði stjórn Venezúelu hækkað verðið i 10 dollara fatið. bar eð bandarisk- irkaupendur máttu aðeins velta hækkuðu innkaupsveröi yfir á neytendur, tóku þeir sig til og skirðu upp nigeriuoliu eða indó- nesiuoliu og kváðu hana komna frá Alsír eða Venezúelu. Um- framgróðinn af þvi að falsa pappira og flytja skipið þar með frá Nlgeríu til Venezúelu nam rúmum tveim miljónum doll- Blanda, blanda Fyrirhafnarmeiri en ekki sið- ur gróðavænleg var sú aðferð, að dæla erlendri olíu úr risastór um skipum yfir i smærri oliu- skip i Mexikóflóa. Skipstjórarn- ir, sem höfðu tankana fyrir hálf- fulla af texasoliu, gáfu það siðan upp að þeir væru aðeins með er- lenda oliu. En bandariska stjórnin hafði ákveðið að há- marksverð fyrir oliu sem unnin var i landinu sjálfu (t.d. i Texas) skyldi vera 5,25 dollar- ar. Með þvi að blanda innlenda oliu erlendri úti á rúmsjó og hagræða pappírum eftir þvi, var hægt að stinga i vasann tvöföld- um gróða af innlendri oliu. Oliubröskurum tókst að fá út úr orkufyrirtækinu Los Angeles Water and Power Authority allt að 23-25 dollurum fyrir fat af oliu, sem gefið var upp að kæmi frá Perú eða Venezúelu eða Al- sir. Þetta var að sjálfsögðu miklu hærri upphæð, en þessi lönd höfðu nokkru sinni farið fram á fyrir oliu sina. Fleiri milliliðir Þa úotuðu oliukaupmenn ann- að bragð til að auka bilið á milli innkaupsverðs og söluverðs. Þeir stofnuðu gervifélög sem höfðu ekki öðru hlutverki að gegna en að f jölga milliliðum i oliuverslun og hækka þar með verðið. Það er nefnt til dæmis, að oliufarmur, sem i reynd hafði verið fluttur um átta km veg frá olíugeymi til raforkuvers, hafði verið bókfærður milli fimm fyr- irtækja. Bókhaldið sýndi, að þessi merki farmur hefði farið yfir landamæri þriggja sam- bandsrikja Bandarikjanna. A þessu ferðlagi gegnum bókhald- ið hafði olian hækkað úr 28 sent- um i 85 sent á gallón. Það er haft eftir einum af embættismönnum bandariska dómsmálaráðuneytisins, að ,,þetta getur orðið eitt skæðasta efnahagsmálahneyskli banda- riskrar sögu. Og i þetta sinn mun mikill fjöldi stórmenna lenda i fangelsi.” Þetta er reyndar hressilega mælt. En sagan kennir mönnum einnig aðra lexiu: þeir sem i fangelsi fara loks þegar greitt hefur verið úr einhverju af ó- endanlegum bókhaldsflækjum verða varla neinir „stórlaxar”. Það rikja sérkennileg lögmál i þeim veiðiskap, sem réttvisin neyðist öðru hvoru til að stunda i hafsjó auðgunarglæpa svo- nefndra. Smáseiðin lenda i vörpu hennar, en stórfiskarnir smjúga i gegn eins og að drekka vatn. (áb byggði á Spiegel) Borgarstofnanir: Auglýsing frá Póst- og símamálastjórninni Vegna stækkunar sjálfvirku sím- stöðvarinnar á Brúarlandi má búast við truflunum og minnkandi afkasta- getu stöðvarinnar frá hádegi laugar- daginn 19. apríl til miðvikudagsins 23. apríl. Ef símnotendur verða þess var- ir, eru þeir vinsamlega beðnir um að takmarka símanotkun sína eftir föngum. Reykjavík, 18. apríl 1975. Sveinafélag pípulagningamanna Aðalfundur félagsins verður haldinn i Tjarnarbúð, Vonarstræti 10, laugardaginn 26. april n.k. kl. 2 e.h. Venjuleg aðalfundarstörf. önnur mál. Reikningar fyrir árið 1974 liggja frammi á skrifstofu félagsins að Freyjugötu 27, föstudaginn 25. april kl. 5-7 e.h. Stjórnin. Atvirina ■ Atvinna PÓSTUR OG SÍMI óskar að ráða ©85: BIFVÉLAVIRKJA nú þegar. Nánari upplýsingar verða veittar i starfsmannadeild Pósts og sima. Kópavogsbúar Óskum að ráða i eftirtalin störf: Vörubifreiðastjóra með meirapróf og þrjá menn i verksmiðju við framleiðslu. Upplýsingar hjá verkstjóra föstudaginn 18. og mánudaginn 21. þ.m. frá kl. 13-16. MÁLNING H.F. Kársnesbraut 32, Kópavogi. Sameiginleg nætur og helgidagavakt Sctt hefur verið á fót sameigin- leg nætur- og helgidagavakt fyrir borgarstofnanir, þ.e. deildir gatnamálastjóra, Hitaveitu Reykjavikur, Vatnsveitu Reykja- vikur og Rafmagnsveitu Reykja víkur. Hún er staðsett i Vélamið- stöö Reykjavikurborgar, Skúla- túni 1. Nætur- og helgidagavaktin starfar utan venjulegs skrifstofu- tima frá kl. 16.15-8.20 virka daga og allan sólarhringinn helgidaga og aðra fridaga. Simi vaktarinnar er 27311 og er númerið skráð fremst i nýju simaskránni, i minnisblaði simnotenda. Raf- mangsveitan heldur jafnframt núverandi kvöldvakt sinni til kl. 23.00 I sima 18230. Nætur- og helgidagavaktinni er ætlað það hlutverk að vera tengi- liður borgarans við borgarstofn- anir varðandi bilanir á leiðslu- kerfum stofnananna, hættu vegna óveðurs o.s.frv. Vaktin veitir upplýsingar og ráðleggingar, en ef vaktmaöur telur viðgerð nauð- synlega þegar i stað kemur hann boðum áleiðis til viðgerðarflokka. Með tilkomu vaktarinnar falla niður simsvarar hjá stofnunum, þar sem visað var á heimasima bakvaktarmanna. Tæknifræðingur Rafmagnsveita Reykjavikur óskar eftir að ráða rafmagnstæknifræðing (sterk- straum) til starfa i innlagnadeild. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Rafmagnsveitunnar, Hafnarhúsinu, 4. hæð. PV1RAFMAGNS L \ 1 VEITA Ul 1 REYKJAVlKUR

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.