Þjóðviljinn - 19.04.1975, Blaðsíða 6

Þjóðviljinn - 19.04.1975, Blaðsíða 6
6 SÍÐA — ÞJ6ÐVILJINN Laugardagur 19. aprfl X975. REYNSLAN AF STRÍÐINU reisn einstakra greina iðnaðarins hélt þó áfram. Kolaframleiðslan náði sama magni og fyrir strið þegar árið 1947, stál- og sements- framleiðslan 1948, járn- og oliu- framleiðslan 1949, en framleiðsla leðurskófatnaðar og bómullar- dúka fyrst árið 1951. Landbúnað- arframleiðslan og kornuppskeran náði ekki sama marki og fyrir strið fyrr en árið 1952. Þjóðin gekk að endurreisnar- starfinu af sömu atorku og hún hafði barist. Þvi var það að þakka, að unnt reyndist að reisa efnahagslifið úr rústum og eyði- leggingu á timabiji fyrstu fimm ára áætlunarinnar eftir styrjöld- ina. Ef þú spyrð mig, hvenær við höfum lokið endanlega við að lækna sár striðsins, þá get ég ekki svanað 'þeirri spurningu. Það er jafn erfitt eins og að reikna út heildartjónið, sem landið beið af innrás fasista. Er raunverulega unnt að reikna út hverjar afleiðingar striðið hafði fyrir þjóðina? Þar er ekki aðeins um að ræða fólk, sem var drepið eða limlest, eyddar borgir og rúið efnahagslif. Það var ekki aðeins að bestu syn- ir margra þjóða lands okkar létu lifið heldur glataðist og með þeim reynsla kynslóðanna, sem þeir fengu ekki miðlað sonum sinum og nemendum. Það var ekki aðeins að hluti af menningu okkar og list eyðilegðist, að rithöfundar, listamenn og tónskáld væru drep- in, það eru einnig bækur, sem þeir fengu ekki ritað, málverkin, sem þeir máluðu aldrei, tónlistin sem þeir sömdu ekki. Striðið olli vissulega óbætanlegu efnalegu tjóni, en það bakaði mönnum einnig mikið andlegt tjón. Miljón- ir mæðra heimtu aldrei eigin- menn sina aftur úr striðinu og ungar brúðir urðu ekkjur án þess að hafa nokkru sinni notið unaðs- semda hjónabandsins. Heil kynslóö var rænd bernsku sinni og æsku. Arlega deyja þúsundir manna, er urðu örkumla i striðinu og hafa áratugum saman hökt fótalausir um götur borga og þorpa. Þeir deyja en láta eftir sig börn, sem sex ára gömul voru orðin hærri en feður þeirra. Er unnt að meta það sálarlega tjón er styrjöldin olli? En eru til menn, sem fer hrollur um, er þeir heyra talaða þýsku. Sjálfur hef ég séð föður, fölan af reiði, slá son sinn, er hafði hrætt hann með þvi að æpa á þýsku: „Hande hoch!” (Upp með hendur!). „Vogaðu þér ekki áð Rússar færðu ægilegar fórnir f siðustu heimsstyrjöld. Þeim er striðið og striðsárin þvi fastar i huga en mörgum öðrum,og hér á siðunni er birt grein um striðið eftir Viadimir Lomeiko, aðairit- stjóra Vestur-Evrópudeildar APN. Hann er fæddur 1933 og er þvi barn að aldri þegar striðið ster.dur sem hæst, en i skólanámi sinu lagði hann sig sérstaklega eftir vandamálum á sviði alþjóðastjórnmála. Minningar um striðið eru rússa þungbærar. En hann gleymir þvi ekki. Ekki vegna þess, að hann vilji gera upp reikningana við gamlan óvin, heldur sökum þess, að minning hins liðna lifir með okkur enn i dag. Einnig sökum þess, að friður og gagnkvæmur skilningur þjóða i milli byggist að verulegu leyti á réttum skilningi á hinu liðna. Við minnumst striðsins ekki að- eins á afmælisárum. Striðið blas- ir við okkur, býr i hjörtum okkar. gistir heimili okkar óvænt dag hvern. Það birtist skyndilega : 1 minni þeirra sem stöðvuðu skrið- drekaframsókn fasista árið 1941. I opinberu bréfi, er tilkynnir fall hermannsog kemur 30 árum eftir strið frá fjarlægu þorpi i Hvita- rússlandi, þar sem skólabörn hafa grafist fyrir um gröf óþekkts hermanns og bjargað frá gleymsku nafni og hvilustað manns, er skráður var týndur. I þögn er slær á fjölskyldusam- komu, er öldruð móðir þerrar tár af auga, er hún skoðar fölnaða mynd af ungum hermanni. Þrjátiu ár eru liðin, en enn þann dag i dag skýtur striðið upp koll- inum öðru hvoru i einhverri borg eða þéttbýlu héraði, er gröfu- menn koma við uppgröft fyrir nýjum skóla eða sjúkrahúsi niður á gamla, grafna ruslahauga með skotfæraleifum, svo að kalla verður á sprengjusérfræðinga til að grafa upp og fjarlægja ryð- brunnin, hættuleg vopn, þannig að lifi fólks sé ekki stofnað i hættu. f skólunum er fjallað um striðið i kennslustundum. Og barnabörn þeirra sem i mai 1945 trúðu þvi vart, að striðinu væri lokið og þeir hefðu lifað það af, svara i sögu- timum spurningum kennarans um það, hvað striðið kostaði Sovétrikin. Hér eru nokkrar tölur. Ekki allar, aðeins þær helstu: — Yfir 20 miljónir sovét- borgara létu lifið i striðinu. — 6 miljónir borgara voru drepnar og pyndaðar af fasistum á hernumdum svæðum Sovétrikj- anna. — Yfir 4 miljónir sovétborgara voru fluttar til Þýskalands i nauð- ungarvinnu — Alls voru 1710 bæir og yfir 70 þúsund þorp eyðilögð, 6 miljónir bygginga brenndar og eyddar, 25 miljónir manna urðu heimilis- lausar. — Á hernámstimanum voru 32 þús. iðnfyrirtæki, 65 þús. km. járnbrautarteina, 4.100 brautar- stöðvar, um 14 þús. járnbrautar- brýr og önnur mannvirki eyði- lögð, 16 þús. eimvögnum og 428 þús. vögnum var stolið eða þeir eyðilagðir. — 40 þús. sjúkrahús, 84 þús, skólar og æðri menntastofnanir voru lögð i rúst. — Landbúnaðurinn varð fyrir gifurlegu tjóni: 98 þús. samyrkju- bú, 1876 rikisbú og 2090 landbún- aðarvélastöðvar voru eyðilögð. — t hernumdu héruðunum tók innrásarliðið gifurlegt magn af korni, 7 milj. hross, 17 milj. stór- gripa, 20milj. svin 27 milj. kindur og geitur og 100 milj. alifugla. Samkvæmt hagskýrslum nam eyðileggingin i Sovétrikjunum alls 679.000 miljón rúblum á strið- timanum og misstu þau þriðjung þjóðarauðæfa sinna. Og það eru íleiri tölur. Ef kostnaðurinn við striðsreksturinn er tekinn með i reikninginn, endurskipulagning þjóðarbúsins vegna styrjaldarinnar, svo og tjónið af völdum þess, að mikil landsvæði voru hernumin og landið naut ekki afurða þeirra, þá nemur tjónið 2.600.000 milj. rúblum. Og fleiri tölur mætti nefna, sem of langt er að telja. En sú tala, sem menn minnast með mestri eftirsjá eru 20 miljónirnar, er létu lifið. Meðal þeirra áttum við allir einhvern ástvin. Tölur má gæða lifi, ef þær snerta þitt eigið lif. ... Við sitjum við stórt borð, móðir min, ég og bróðir minn tveggja ára. Úti rikir Leningrad- vetur. Það er i desember 1941. Á borðinu eru þrjár þunnar brauðsneiðar. Við horfum þögul á þær. Mamma leggur eina fyrir framan hvert okkar. Gætilega, svo enginn moli falli, leggur hún lika sina eigin sneið i hvitan, skin- inn lófa bróður mins. Andlit hans sýnist bara augun. Þegjandi legg- ur hann brauðið aftur hjá Churchill, Roosevelt og Stalin á Krimráðstefnunni 4.-11 febrúar 1945. sprengjuárásum og 632.253 borg- arar dóu úr hungri. Er umsátinni lauk voru um 600 þúsund manns eftir á lifi i borginni. Hér eru tölur um matar- skammtinn á umsáturtimanum: Fyrir follorðna fjölskyldumeð- limi var skammturinn 125 gr. brauð, 6.6 gr. feitmeti, 13.2 gr. kjöt, 26.6 gr. sykur, 20 gr. grjón Eftir Vladimir Lomeiko mömmu. Enginn sagði neitt. Við spöruðum kraftana. Það var heil eilifð frá hádegisverði til kvöld- verðar. Til kvöldverðar verður einnig brauð, jafnvel enn þynnri sneiðar, og bolli af soðnu vatni. Siðanfara allir snemma að hátta. Svefninn er góður bandamaður gegn hungrinu. Það kemur nótt og aftur morgunn. 900 dagar, hver öðrum likur, frá 8. sept. 1941 til 18. jan. 1943. 1 um- sátinni um Leningrad, er her- sveitir fasista umkringdu borg- ina, létust 17 þúsund manns i eða hveitipipur — alls 466 hitaein- ingar. Fyrir börn innan 12 ára: 125 gr. brauð, 16.6 gr. feitmeti, 13.2 gr. brauð, 40 gr. sykur, 40 gr. grjón, eða 684 hitaeiningar. En jafnvel þessi skammtur var oft aðeins á pappirnum. Suma mánuði var hvorki að fá kjöt né neins konar feitmeti. Fólk tútnaði út og dó úr sulti. En þrátt fyrir það stóðst borgin og gafst ekki upp. Ég skildi löngu síðar, að innrás- arliðið ætlaði viljandi að láta borgarbúa deyja. Foringi iþýsku BIFREIÐAEIGENDUR Viö BRYNVERJUM bifreiðina gegn tæringu veöra og vinda og búum hana í sitt fegursta skart. Kynnið ykkur BRYNGLJÁEFNAMEÐFERÐ að Ármúla 26 miili kl. 14 og 17 í dag og á morgun. GUÁINN h.f. Ármúla 26, sími 86370 h e r s t j ó r n i n n i sagði um Leningrad: „Hvað okkur varðar, þá er ekkert unnið með þvi að bjarga lifi, þó ekki væri nema hluta af ibúum þessarar stóru borgar.” Sem einn þeirra lifðu af, get ég borið vitni um það, að i desember 1941 sá ég engan mun á þjóð- verja og fasista. Þeir voru eitt, „óvinurinn” sem ætlaði að svelta okkur til uppgjafar. Mér hefði fundist það óeðlilegt og óhugs- andi, ef einhver hafði sagt mér þá, að innan fárra ára ætti ég eftir að hef ja þýskunám i skóla og lesa hugfanginn Heine, Goethe og Schiller. Við hötum ekki þjóðverja. Stöku sinnum finnurðu til bitur- leika og hryggðar, er þú hittir þá, sem ekki virðast hafa lært neitt af striðinu nema hefnigirni og sjá ekki skóg hvitra birkikrossa á leiðum fyrir trjánum i litla garð- inum sem þeir misstu. Og maður getur stundum blygðast sin fyrir þjóðverja, er ritar háðslega um slæma vegi okkar, lélega þjón- ustu og hrörleg hibýli og gleymir þvi, að e.t.v. hefur hans eigin fað- ir ruðst fram og til baka um þessa vegi á skriðdreka... Maður sem ekki getur lagt mat á þær fórnir og þjáningar, sem striðið hafði i för með sér fyrir Sovétrikin, mun aldrei skilja þá óeigingirni, er miljónir sovétborgara sýndu i strýðinu og við uppbygging- unga eftir styrjöldina. Striðið, sem fasisminn neyddi okkur út i, ér einhver harðasti reynslutimi, sem þjóð okkar hefur orðið að þola. Og reynslutiminn hélt áfram eftir striðið. Gifurlegt landssvæði, frá Volgu að vestur- landamærunum, lá i rústum. Astand þjóðarbúskaparins var al- varlegt. Og umfram allt skorti n®nnafla. Iðnverkamenn og skrifstofumenn voru 4 miljónum færri en 1940. Framleiðsla neysluvara nam aðeins 59 prósentum af þvi sem hún var fyrir striðið. I mars 1946 var samþykkt fjórða fimm ára áætlunin um endurreisn og þróun þjóðarbú- skaparins. Lögð var áhersla á endurreisn og þróun þungaiðnað- arins og samgöngumála. Á áætl- unartimabilinu var 250.300 milj. rúblna varið til fjárfestingar og fóru 40 prósent þeirrar upphæðar til endurreisnar hernumdu hérað- anna. Þegar i árslok 1948 höfðu 2000 sovésk íyrirtæki náð seltu marki fimm ára áætlunarinnar. Endur-

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.