Þjóðviljinn - 04.06.1975, Blaðsíða 8
8 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 4. júni 1975
Magdebu rga r-ævi ntýrið
endurtekið annað kvöld?
— en þá mætir íslenska liðið því a-þýska öðru sinni í EB
Annað kvöld kl. 20.00
hefst á Laugardals-
vellinum síðari leikur
íslendinga og a-þjóðverja í
EB landsliða. Fyrri leik-
urinn fór fram sl. haust
eins og menn ef laust muna
og þá vann íslenska lands-
liðið það afrek að ná jafn-
tefli við a-þjóðverjana í
Magdeburg. Því er það
spurningin nú — verður
Magdeburgarævintýrið —
endurtekið annað kvöld?
Það var sannkallað ævin-
týri að ná jafntefli gegn a-
þjóðverjunum í fyrra og
það verður ekki síður ævin-
týri takist aftur að ná jafn-
tefli gegn þeim, hvað þá ef
þau ósköp gerast að
íslenska liðinu tækist að
sigra. Þvi miður er lítil von
til þess en jafntefli ætti
ekki að vera fjarlægur
draumur, það sást vel hvað
islenska liðið getur um
þessar mundir í leiknum
gegn frökkum á dögunum.
Að vísu eru a-þjóðverjarnir
sterkari en frakkar, en
einhverra orsaka vegna
hefur a-þjóðverjum ekki
gengið vei í viðureigninni
við íslenska landsliðið.
Menn muna enn hinn
nauma 2:1 sigur þeirra í
hitteð fyrra þegar löglega
Tveir nýir menn í
landsliðshópinn
íslenska landsiiöiö sem
leikur gegn a-þjóðverjum
annaö kvöld verður valiö úr
sama hópnum og liöið sem lék
gegn frökkum nema hvað
tveir nýir menn koma I
hópinn, Valsmennirnir Höröur
Hilmarsson og Vilhjálmur
Kjartansson þannig að liðið
verður nú valið úr 18 manna
hópi i stað 16 siðast. Þessi 18
manna hópur lltur þá þannig
út:
Árni Stefánsson Fram
Sigurður Pagsson Val
Jóhannes Pétursson Fram
Jóhannes Eðvaldsson Holbæk
Marteinn Geirsson Fram
Jón Gunnlaugsson ÍA
Gisli Torfason ÍBK
Björn Lárusson ÍA
Guðgeir Leifsson Vikingi
Karl Hermannsson ÍBK
Grétar Magnússon ÍBK
Elmar Geirsson Herta Berlin
ólafur Júlíusson ÍBK
Ásgeir Sigurvinsson Standard
L.
Matthias Hallgrimsson ÍA
Teitur Þórðarson ÍA
Hörður Hilmarsson Val
Vilhjálmur Kjartansson Val
skorað mark ísl. liðsins var
ekki dæmt vegna mistaka
dómara og línuvarðar.
A blaðamannafundi hjá KSl i
gær kom það fram að a-þjóð-
verjarnir höfðu ekki sent lista yfir
þá 16 leikmenn sem þeir koma
með, heldur yfir 34 manna hóp
sem liðið verður valið úr og þvi
veit maður alls ekkert um a-
þýska liðið. Þvi hefur ekki vegnað
vel i vetur og vor, tapaði á heima-
velli fyrir pólverjum i siðustu
viku. Talið er vist að nokkuð
miklar breytingar verði gerðar á
liðinu frá þvi sem var i fyrra og
að yngri menn komi nú inni liðið.
í iþróttaþætti sjónvarpsins i
fyrrakvöld var skýrt frá hvaða
menn myndu koma til Islands og
samkvæmt þvi er talið að þjóð-
verjarnir muni ekki leika stifan
sóknarleik, heldur fara að öllu
með gát. Þeir eru með sterka
varnarmenn og miðvallarleik-
menn og virðast leggja alla
áherslu á að ná völdum þar. Það
virðist þvi sem þeir óttist islenska
liðið eftir að hafa horft á það leika
á dögunum gegn frökkum.
Dómari i leiknum á morgun
verður skoti, Foote að nafni og
linuverðir eru einnig frá Skot-
landi, Mackenzie og Smith.
Forsala aðgöngumiða hófst i
gær og verða miðar til sölu við
Útvegsbankann i Reykjavik, og
einnig verða miðar seldir I Kefla-
vik, Akranesi og á Selfossi.
Elmar Geirsson, einn „útlendinganna” I islenska liðinu I baráttu við
franskan landsliðsmann. (ljósm. GSP)
Deildaskipting í blaki
Þing Blaksambands íslands
var haldið um siðustu helgi og
þar var samþykkt að taka upp
deildarskiptingu i blakinu
næsta vetur. Verða deildirnar
tvær til að byrja með, 1. og 2.
deild, en auk þess verður tekin
upp keppni í öldungaflokki.
t 1. deild verða 6 efstu liðin i
siðasta tslandsmóti en i 2.
deild þau önnur lið sem áhuga
hafa á að taka þátt i mótinu,
svo og B-lið þeirra félaga sem
leika i 1. deild.
Dr. Ingimar Jónsson var
endurkjörinn formaður Blak-
sambands isiands. Anton
Bjarnason, hinn kunni knatt-
spyrnu, körfuknattleiks og
blakmaður var sæmdur gull-
merki BSl á þinginu.
Sigurganga Ragnars
Ólafs heldur áfram
Hann sigraöi á Víkurbæjarmóti GS í Leiru
Ragnar ólafsson, golf-
leikarinn snjalli úr GR
sigraði örugglega á Víkur-
bæjarmóti GS í golfi sem
fram fór á golfvellinum í
Leiru um síöustu helgi.
Ragnar hefur staðið sig
mjög vel það sem af er
keppnistimabilinu í golfi
og unnið góða sigra hvað
eftir annaö.
Vikurbæjarkeppnin var 36 holu
keppni og gaf hún stig til lands-
liðsins, en úrslit i mfl. urðu þessi:
högg
1. Ragnar Ólafsson 154
2. Einar Guðnason 156
3. ÓskarSæmundsson 157
4. Jóhann Ó. Guðmundsson 158
5. Þórhallur Hólmgeirsson 161
6. Sigurður Thorarensen 162
7. Björgvin Þorsteinsson 164
8. -10. Þorbjörn Kjærbo, Atli
Aðalsteinsson og Gunnar Þórðar-
son 165
I 1. fl. urðu úrslit þessi: 18 holur:
högg
1. Björn V. Skúlason 76
2. Jón Þór Ólafsson 84
3. Leifur Ársælsson 85
2. fl. 18 holur:
1. Guðlaugur Kristjánsson 85
2. Jón Hjálmarsson 86
3. Bogi Þorsteinsson 87
3. flokkur 18 holur:
1. Einar Benediktsson 82
2. Asgeir Nikulásson 84
3. Guðjón Stefánsson 86
Þess má geta að Asgeir
Nikulásson fékk sérstök auka-
verðlaun fyrir það að komast
næst hinni svokölluðu Bergvikur-
holu, hann var 1,77 m. frá henni i
fyrsta höggi.
Unglingafl. 18 holur:
1. Hilmar Björgvinsson 74
2. Gylfi Kristjánsson 75
3. Guðmundur V. Sveinsson 78
1. fl. kvenna 18 holur:
1 Hanna Aðalsteinsdóttir 87
2. Jóhanna Ingólfsdóttir 87
3. Laufey Karlsdóttir 98
4. Inga Magnúsdóttir 98
2. fl. kvenna 18 holur:
1. Hanna Gabrielsson 94
2. Agústa D. Jónsdóttir 106
3. GuðnýKjærbo 106
4. Kristin Guðmundsdóttir 109.
Svíarnir í
sérflokki
á alþjóðamóti í Kanada
A alþjóðlegu borðtennismóti
sem fram fór i Kanada um
siðustu helgi voru sænsku
borðtennisleikmennirnir i al-
gerum sérflokki og það voru
þeir Stellan Bengtsson og
Kjell Johansson scm léku til
úrslita og eins og svo oft áður
var það „Mini” Stellan
Bengtsson sem sigraði.
Bengtsson sigraði Johans-
son 21:11—21:14—19:21 og
24:22 f úrslitaleiknum.
t k vennaf lokkki sigraði
suður kórenska stúlkan Kim
Soon, sigraði löndu sina Chung
Hyun Sook
19:21—17:21—21:19—21:13 og
23:21.
t keppni landsliða sigruðu
svíar i karlaflokki, sigruðu
júgóslava I úrslitum 3:1 en i
kvennaflokki sigraði S-Korea
Sviþjóð 3:0.
Stellan Bengtsson