Þjóðviljinn - 04.06.1975, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 04.06.1975, Blaðsíða 9
Mifivikudagur 4. júni 1975 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9 Framarar fengu upp- reisn æru með óvæntum en kærkomnum sigri 1-0 sigri yfir ÍBK Eftir tap framara i fyrstu umferð fyrir fh-ingum áttu fæstir von á stórum afrekum þeirra i leiknum gegn keflvikingum sem fram fór á heimavelli þeirra siðarnefndu í fyrrakvöld. En mörgum á óvart sýndu framarar allt annan leik en i fyrstu um- ferð, þeir voru baráttuglaðir, fljótir, ákveðnir og ógnandi. Uppskeran varð 2 dýrmæt og kærkomin stig sem veita Fram töluverða uppreisn æru eftir hina slæmu byrjun i mótinu. Engum dylst að sigurinn var verðskuldaður þrátt fyrir að ÍBK hafi sótt stift i lokin. Árni Stefánsson varði þá stórkostlega i marki Fram og er honum öðrum fremur að þakka að keflvikingar jöfnuðu ekki á lokaminútunum. úrslit leiksins hljóta að hafa komið illa við keflvikinga, á heimavelli hafa þeir aldrei verið auðunnin bráð. Þótt framarar hafi komiö á óvart meö friskleika sinum veröur ekki litiö framhjá þeirri staöreynd aö slök frammistaöa andstæöinganna lagöi sitt af mörkunum til aö bæöi stigin færu til Reykjavikur. Þaö mátti enda heyra á áhorfendum aö þeir voru ekki sáttir viö sina menn, frammistaöa þeirra olli von- brigöum. Þeir áttu ágætan leik I vörn og á miöjunni en upp viö markiö brugöust sóknarmennirn- ir og þrátt fyrir þokkaleg mark- tækifæri tókst þeim aldrei aö skora. Arni Stefánsson var eins og köttur á eftir hverjum bolta og þaö sem keflvisku sóknarmenn- irnir geröu laglega féll i skuggann fyrir stórskemmtilegum tilburö- um Árna þegar hann flaug á milli stanganna og hirti hvern bolta sem aö marki kom. Markvöröurinn i hinu markinu, Þorsteinn Ölafsson stóö sig einnig meö prýöi. Hann varöi t.a.m. stórglæsilega þrumuskot frá vita- teig á 25. min, en þremur min, siðar átti hann þó ekkert svar. Þaö var hinn efnilegi miö- framherji framara, Steinn Jóns- son sem skoraöi þá eitthvert fallegasta mark sem ég hef séö. Boltinn kom til hans i meters hæö frá hægra kanti og Steinn sendi hann viöstööulaust frá vitateigs- linu meö þrumuskoti I bláhorniö. Stórglæsilegt mark sem Þorsteinn haföi ekki nokkur tök á að koma I veg fyrir. Framarar voru greinilega ákveönir i aö gefa ekki þessi 2 stig eftir fyrr en i fulla hnefana. Þeir lögðu áherslu á varnarleikinn, keflvikingar sóttu nokkuö stift I seinni hálfleik en framarar áttu þá einnig sin tækifæri eins og þegar Steinn stóö óvaldaöur meö boltann rétt fyrir utan markteig en skaut framhjá. E.t.v. heföi ekki veriö ósann- gjarnt aö stigin heföu skipst á milli liöanna, en sigur Fram var þó alls ekki til kominn vegna einhverrar heppni heldur fyrst og fremst sem uppskera mikillar vinnu og baráttugleði. Gula spjaldið hjá Þorvarði Björnssyni dómara fengu þeir Hjörtur Zakariasson IBK og Steinn Jónsson Fram. —gsp ! Þorsteinn ólafsson hirfiir boltann af Steini Jónssyni, sem skoraði sigurmark framara. Einar Gunnars son er einnig til varnar. Sundmót Ármanns fer fram á mánudag Fyrsta sundmót sumarsins fer fram nk. mánudag, 9. júni og fer þaö fram í Laugardals- lauginni og hefst kl. 20.00. Keppnisgreinar: 400 m fjórsund karla 100 m flugsund kvcnna 200 m bringusund karla 100 m bringusund kvenna 100 m skrifisund karla, bikar- sund 200 m fjórsund kvenna, bikar- sund 50 m skriösund drengja (1959 og síöar), bikarsund 50 m skriösund telpna (1959 og sifiar) bikarsund 100 m flugsund karla 100 m baksund kvenna 4x100 m skriösund karla 4x100 m fjórsund kvenna. Þátttökutilkynningar sendist Guðmundi Gislasyni c/o Laugardalslaug fyrir 6. júni, á timavaröaspjöldum ásamt þátttökugjaldi kr. 50.- fyrir hverja skráningu. STÓRÚTSALA VÍÐIR STÓRÚTSALA TRÉSMIÐJAN VÍÐIR H.F. AUGLÝSIR: STÓRÚTSALA vegna flutnings úr verksmiðjuhúsnœði okkar i nýtt húsnœði. Seljum nœstu daga húsgögn með miklum afslœtti. Notið einstakt tœkifœri og gerið góð kaup. Trésmiðjan VÍÐIR Laugavegi 166 — sími 22222 og 22229

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.