Þjóðviljinn - 08.06.1975, Blaðsíða 10
10 SIÐA — ÞJÓÐVILJINNSunnudagur 8. júni 1975
Umsjdn: Halldór Andrésson
haga ykkur á konsert? spurði
Valgeir eitt sinn sármóðgaður
þegar áheyrendur héldu að
lagið væri búiö og fóru að
klappa þegar nokkrir tónar voru
eftir. Þeir hefja tónleikanna
yfirleitt á þvi að lesa upp úr
dularfullri svartri stilakompu
eitthvert litt skiljanlegt ] þrugl,
lýsingar á samkvæmisleikjum,
stuttar smásögur oþh. Á
tónleikum i Norræna húsinu
fyrir hálfum mánuði kynntu
þeir eitt lagið (semreyndar var
tileinkað Gunnari Huseby) og
gerðu siöan hlé. Lagið léku þeir
svo eftir hlé. — Þetta er yfrleitt
alveg óundirbúið, segja þeir, en
'með timanum verður þetta ef-
laust að rútínu.
Ungir menn með náms-
leiða
En svo við byrjum nú loksins
á byrjuninni og tökum hlutina i
réttri röð, þá varö spilverkið til
fyrir uþb. tveimur árum. Aður
höfðu þeir reyndar oft leikið.
saman á árshátiðum Mennta-
skólans við Hamrahlið og
öðrum skemmtunum sama
skóla. Þar var vaninn að smala
saman nokkrum músiköntum
fyrir árshátiðir og láta þá
skemmta lýðnum með
frumsaminni tónlist. En svo
urðu menn stúdentar eins og
vera ber fyrir þremur árum.
Valgeir og Sigurður Bjóla fóru i
háskóla en brátt gerðust þeir
SPILVERK ÞJÓÐANNA
Meðan íslenskur
poppheimur er i óða önn
að stokka sjálfan sig upp
læðist lítill flokkur með
það tignarlega heiti
Spilverk þjóðanna inn um
bakdyrnar og tekur að
halsa sér völl. Þetta
fyrirbæri hefur haldið
nokkra tónleika að
undanförnu hér i borginni
og undirritaður getur
borið um að viðtökurnar
voru geysigóðar.
Það hefur ekki farið mikið
fyrir frumleika i framleiðslu is-
lenskra poppara undanfarin
misseri. Hún skersig ekki mikið
úr þvi sem gert er i nágranna-
löndunum. Þvi vekur það
fögnuð að heyra eitthvað nýtt og
ferskt sem ekki er bara fram-
hald af þeirri lognmollu sem
rikir.
Bara spilverksmúsík
Spilaverk þjóðanna vekur
slikan sögnuð. Það er skipað
þremur mönnum, þeim Agli
Ólafssyni, Valgeiri Guðjónssyni
og Sigurði Bjólu Garðarssyni.
Þessir þrir skiptast á um að
syngja og leika á hin ýmsu
hljóðfæri — gitara, pianó,
kontrabassa, slagverk, o. fl. —
sem öll eiga það sammerkt að
þarfnast ekki rafmagns. öll
tónlist og textar eru frumsamd-
ir. Það er ekki auðvelt að flokka
tónlist þeirra félaga. Flest eru
lögin róleg og falleg en inn á
milli leika þeir svo „eldfjöruga
skottisa” og létt rokklög. — Það
er ekki hægt að flokka okkar
tónlist sem einhverja ákveðna
stefnu innan tónlistarinnar,
segja þeir, þetta er bara spil -
verksmúsik. Að sjáifsögðu
hlustum við mikið á tónlist og
finnst ýmsir tónlistarmenn
góðir en við eigum enga beina
fyrirmynd sem við stælum.
Blaðamaður mefnir að honum
finnist iikindi með þeim og t.d.
Incredible String Band og Tir
Na Nog, en þeir hrista hausinn
og segjast litið hafa hlustað á
téða flokka.
Þá er sviðsframkoma þeirra
ólik þvi sem maöur venst hjá
poppurum. Þeir ræða viö
áheyrendur, segja þeim óspart
til syndanna, ef þeir koma ekki
rétt fram. — Kunnið þið ekki að
Af tónleikum
í Laugarásbíói
Laugardaginn 31. mai hélt Spil-
verk þjóðanna konsert i Laug-
arásbió. Þetta var reyndar i
fyrsta sinn, sem ég sá og heyrði i
spilverkinu, eftir að hafa heyrt
sögusagnir um þá I allan vetur.
Ég fékk mér sæti fyrir miðju á
fimmta bekk, til þess að falla nú
inn i hópinn og losna viö að tala
við nokkurn mann, þvi ég var i
vondu skapi. Strax fann ég að
spenna var i andrúmsloftinu og
fólkið talaði mikið um þessa
„underground” grúppu (með
„underground” á ég við, að
hljómsveitin laði að hálfgerða
músiksnobbara, oft fólk, sem er
við framhaldsnám og imyndar
sér aö hljómsveitin sé eitthvað
einka fyrir þá. Þetta hefur oft átt
sér staö úti, t.d. Pink Floyd og
King Crimson og Incredible
String Band. En þegar þessar
hljómsveitir verða frægar, þá á-
saka þessir snobbarar hljóm-
sveitirnar fyrir að hafa selt sig,
og snúa oft viö þeim baki.)
Jæja, fyrir aftan mig satkona
sem talaði mjög mikið við fylg-
darmann sinn um Spilverkið og
einstaklinga þess og frændfólk.
Hún uppfræddi mig þannig að Eg-
ill væri nú við söngnám og að þeir
hefðu um 50 frumsamin lög á tak-
teinum. Fýlan, sem ég hafði verið
I, hvarf nú smám saman og ég fór
líka að verða spenntur. Og svo ca.
3 minútur yfir 3 fóru ljósin að
hverfa og allir biöu spenntir eftir
Spilverkinu. A sviöinu voru
kassagitarar, 6 strengja (2),
leiðir á skólagöngunni og fóru
að sinna sinum áhugamálum
sem eru fyrst og fremst tónlist.
Einhverju sinni voru þeir i
ökuferð og sem þeir óku
framhjá MH skaut upp nafninu
Spilverk þjóðanna.
12-strengja og klassiskur, kontra-
bassi iá þarna, illa með farinn
flygill og eldgamalt orgel. Þarna
var lika nokkurs konar trommu-
sett, sem saman stóð af symböl-
um, kúabjöllum, bongotrommum
o.s.frv.
Skömmu eftir aö ljósin eru
slökkt hefst sýning á teiknikvik-
mynd, öllum til mikillar ánægju.
Speedy Gonzales, mexikanska
músin hrifur alla og spennan
hverfur um sinn.
A meðan á sýningu stendur týn-'
ast meðlimir Spilverksins, allir
þrir, upp á svið, Þeir biða svo,