Þjóðviljinn - 08.06.1975, Blaðsíða 11

Þjóðviljinn - 08.06.1975, Blaðsíða 11
Sunnudagur 8. júni 1975 ÞJOÐVILJINN — SIÐA 11 Siguröur Bjóia. Valgeir Guöjónsson Egill ólafsson. sýnilega þeir allra spenntustu, þar til myndin er búin. Fyrsta lagiö er gott og eitthvað sérstakt og jafnvel eitthvaö meira en maö- ur á viö aö búast frá svo ungum mönnum. Lögin voru flest mjög góö, Egill er mikill söngvari, skemmtilegur i sviösframkomu, þó stundum fyndist mér vera of- leikið. Egill spilaöi mest á bass- ann, en tók auk þess i gitar, klassiskan gitar, pianó og lang- spil. Valgeir kom fram sem kynn- ir og brandarakall, honum tókst oftast vel upp. Valgeir söng vel, hann hefur sterka rödd. Val- geir spilaöi mest á gitar, en tók i bassann og i 12-strengja gitarinn. Sigurður er aö minu áliti sá sem gerir Spilverk þjóöanna aö ein- ingu. Þeir Valgeir og Egill eru báðir með sterkar og djúpar raddir, en Siguröur hefur veika Þeir fóru aö semja og æfa en lengst af komuþeirhvergi fram nema i skólum. Það var ekki fyrr en nú i mai að þeir léku fyrst fyrir almenning i Stúdentakjallaranum og þá fór að færast fjör i leikinn. Steinar Berg verslunarstjóri i hljóm- deild Faco og Óiafur Þórðarson fyrrum Rió-triómaður komu að máli viö þá og létu i ljós áhuga á plötugerö. Mættu þeir litilli mótspyrnu og i liöinni viku hóf- ust upptökur i stúdióinu i Hafnarfirði. — Viö verðum með sömu lögin og viö höfum leikið á tónleikunum, þe. hráefniö veröur það sama en i eitthvað breyttri mynd. Það er ágætt að afgreiða þessi lög með þvi að setja þau á plötu, spila sig frá þeim, við eigum mikið af óunnu efni sem við getum þá snúið okkur að. Fyrir nokkru gerðu þeir svo sjónvarpsþáttsem.þeir vona að verði sýndur fyrir sumarleyfi sjónvarpsins. Þátturinn var tekinn upp „life” eins og það heitir, þe. tónupptakan fór fram um leið og myndatakan. Það var hópur fólks viðstaddur sem tók þátt I grininu. Þetta verður liklega nokkuð óvenjulegur poppþáttur. Stefna út fyrir landhelgi — Hver er svo framtiðarsýn þeirra félaga? — Við ætlum að reyna að lifa á þessu i nokkur ár. Það er ólík- legt að við verðum enn að eftir svo sem fimm ár, þá er viðbúið að kerfið verði búið að negla okkur einhversstaöar niður pikkfasta, það gerist með alla. En það er litill markaður fyrir okkar tónlist hérlendis. Það fengist kannski fólk til að hlusta á okkur en þá kemur vanda- málið með húsnæöið. Okkar tónlist krefst litilla sala þar sem hún er ekki rafmögnuð og erfitt að koma þvi við að rafmagna hana. Norræna húsið er gott og stúdentakjallarinn en þar fyrir utan er lítið að hafa. Við getum ekki spiiað á böllum þar sem hávaðinn er ærandi. Um tima hugleiddum við að fara út i dansiballaspileri, en hættum við það, sem betur fer. Við stefnum þvi að utanferð einhvern tima. En það verður ekki fyrr en við fáum eitthvað handfast tilboð. Af hverju enskir textar? Textar þeirra spilverks- manna eru flestallir á ensku. Af hverju? — Það er náttúrulega þetta klassiska að enska er heimsmál poppsins og svo er öll sú músik sem okkur likar best flutt á ensku. Kannski er hugsunin sú að það eigi fleiri eftir að hlusta á okkur en Is- lendingar. Við höfum gert is- lenska texta við lögin en bæði er að þeir vilja veröa stifir og klaufalegir og falla oft illa að lögunum og svo að það er erfitt að vera með tvo texta við sama lagið. Þar að auki skilur fólk okkur amk. þeir sem koma og hlusta á okkur. Það hefur gengið fjöllunum hærra að Spilverk þjóðanna stæði I einhverjum dularfullum tengsium við hulduhljóm- sveitina Stuðmenn. Við inntum þá félaga eftir þessum tengsl- um. — Gat nú slíeð að þú spyrðir að þessu. Við könnumst ekkert við Stuðmenn og viljum ekkert við þá kannast, segja þeir fýldir á svip. -ÞH. og fingerða rödd, sem gerir góðar raddanir mögulegar. Sigurður söng eitt af þeim lögum sem fest- ist mér i minni, „Lazy Daisy”, og gerði það reglulega vel, aftur á móti var „Old Man” ekki við hans hæfi. Konsertinn var mjög góður, þó mér sé sagt aö þeir hafi verið miklu betri I Norræna húsinu og enn betri I kjallaranum á Garði, en hvað með það, þeir voru rétti- lega kallaðir upp tvisvar, I fyrra skiptiö spiluöu þeir bráð- skemmtilegt lag, „Icelandic Cowboy” og svo tóku þeir lag, sem þeir sögðust vera að spila i siðasta sinn, en það var eina lagið með islenskum texta á konsertin- um. Ég man ekki hvað það hét, en ég vona aö þeir taki þaö nú samt aftur, það var skemmtilegt. Þökk fyrir afar skemmtilegan konsert. Margir læknar hafa tilhneig- ingu til að lita svo á að hugleiðsla — tækni til að öölast svonefnda „æðri meðvitund” sé ekki annað en della, tengd þeim áhuga sem viða hefur gripið um sig á aust- rænum trúarbrögðum. En fræði- menn við Harvardháskóla I Bandarikjunum hafa skoðað hug- leiðslu betur og halda þvi fram, að þegar búið er að taka hana inn- an úr dulfræðiiegum umbúðum, þá sé hægt að nota hugleiðslu með árangri gegn háum blóðþrýstingi. Dr Herbert Benson telur, að of hár blóðþrýstingur eigi sér bæði likamlegar og sálrænar orsakir, og að i mörgum tilvikum feli þær i sér viðbrögð sem kölluð eru „berjast eða flýja”. Viðbrögð þessi eru meðfætt svar manna við hættu, og auka þau blóðþrýst- ing,örva hjartslátt og andardrátt. Aukinn blóðstraumur berst til vöðvanna 'og undirbýr likamann undir það að snúast til varnar eða flýja. Benson segir sem svo, að þessi viðbrögð hafi verið nytsöm til aðverndamenn til forna fyrir fjandsamlegu umhverfi, en þau séu siður nauðsynleg nútima- manni, sem á fyrst og fremst við andlega streitu að etja. Hann tel- ur, að ein helsta forsendan fyrir háum blóðþrýstingi geti verið sú, að hinn mikli hraði i nútimalifi hleypi þessum hættuviðbrögðum af stað i tima og ótima. En Benson segir einnig, að til sé önnur „afslöppunarviðbrögð” sem virki i gagnstæða átt, dragi úr blóðþrýstingi og seinki hjartslætti. Og hann segir einnig, að hugleiðsla sé ein leiðin til að framkalla þessi viðbrögð. Það hafi einmitt komið I ljós við athuganir fyrir nokkrum árum, að áhugamenn um hugleiðslu höfðu að meðaltali lægri blóð- þrýsting en aðrir menn. Segðu einn. Benson sneið sér siðan lækningaaðferð upp úr hug- leiðslu. Eins og hugleiðslumenn byggir hann á að sjúklingurinn sé i friðsælu umhverfi, stilli sig inn á óvirka afstöðu til umhverfisins, sitji sem þægilegast. Auk þess er notað „andlegt bragð” eins og Benson kallar það. I hugleiðslu aðaustan er notað „mantra” eitt- hvert orð sem venjulega kemur úr indverskum ritningum og hug- leiðarar endurtaka hvað eftir annað. Benson segir, að það sé eins gott að endurtaka orðið „one” (einn) við hverja útöndun. Hann kennir sjúklingum að sitja rólegum á stól, slaka á vöðvum og fara með orðið eina aftur og aftur þær tuttugu minútur sem hver meðhöndlun stendur á dag. Þessi aðferð hefur verið notuð á meira en hundrað sjúklinga með of háan blóðþrýsting og hefur lækkað þrýstinginn verulega eftir tveggja mánaða iðkun. Meðan á meðferð stendur, segir einn þeirra, berast margar hugsanir inn i höfuðið, en ég held minni ró og læt þær barasta fljóta út og inn.... Hug- leiösla gegn of háum blóö- þrýstingi Dr. Benson ásamt sjúklingi; teldu upp að einum i tuttugu minútur samfleytt. Færcyjaferö er oðruvisi Fjöldi víðförulla íslendinga, sem heimsótt hafa Færeyjar, ferðast um eyjarnar og kynnst fólkinu, eru á einu máli um að ferð til Færeyja sé öðruvísi en aðrar utanlands- ferðir. Þeir eru líka á einu máli um að Færeyjaferð sé ógleymanlegt ævintýri. Það sem gerir Færeyjaferð að ævintýri, er hin mikla náttúrufegurð, ásamt margbreytilegum möguleikum á skemmti- og skoðunarferóum um eyjarnar, og siðast en ekki síst hið vingjarnlega viðmót fólks- ins. Ef þú ert einhvers staðar velkominn erlendis, þá er það i Færeyjum. Færeyjaferð er skemmtileg fjölskylduferð, og hún er líkaogekki siður tilvalin ferö fyrir starfshópa og félagasamtök. Og nú er i fyrsta sinn hægt að fljúga til útlanda frá öðrum stað en suðvesturhorni landsins. Við fljúgum til Færeyja bæði frá Reykjavík og Egilsstöðum. Færeyjaferð er ódýrasta utanlandsferð sem völ er á. FLUCFÉLAG LOFTLEIDIR /SLA/VDS Félög með beint flug frá Reykjavík og Egilsstöðum

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.