Þjóðviljinn - 13.06.1975, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 13.06.1975, Qupperneq 1
Föstudagur 13. júni 1975 —40. árg. 130. tbl. DAGSBRÚNARMENN! — félagsfundur i Austurbæjarbiói ki. 10 ár- degis. Fundarefni: Drög að kjarasamningum. Verkamannafélagið Dagsbrún. SAMNINGAR TÓKUST Verkfalli ekki aflýst, en fundir í félögunum í dag Baknefnd ASt kom saman til fundar slödegis f gær og samþykkti þá aö heimila 9-mannanefnd aö ganga frá samningum á þeim grundvelli sem þá lá fyrir. (Myndir: AK) Ekki meira en 40% af sköttum Reglugerð ókomin enn! Sem kunnugt er gaf ríkis- stjórnin það loforö sl. vetur aö af þeim mönnum sem lækka i tckjum áriö 1975 miöaö viö áriö 1974 veröi aldrei dregiö meira en 40% af iaunum i skatt, þannig aö afnumin veröi sú harka aö taka jafnvel öll laun manna uppi skatta- greiöslur. Að sögn Guðmundar Vignis framkvæmdastjóra gjald- heimtunnar er óvlst hvenær þetta kemur til framkvæmda vegna þess að fjármálaráðu- neytið á eftir að gera reglu- gerðsem að þessu lýtur. Þetta er flókið mál og ekki auðvelt að semja reglugerðina. Nú er allt i óvissu um hvenær skattskráin kemur út, en samkvæmt lögum á að greiða fyrstu greiðslu af skott- unum 1. ágúst og taldi Guð- mundur Vignir að þessi reglu- gerð yrði að vera komin fyrir þann tima ef hún á að koma til framkvæmda á þessu ári eins og lofað var. —S.dór SÍÐUSTU FRÉTTIR Skömmu fyrir miðnætti virtist ljóst að samningar mundu takast i kjaradeilu Alþýðusambands islands og atvinnurekenda. Fjármagnsskortur Rafmagnsveitna ríkisins: „RAUÐA STRIKIД ,,Rauða strikið” verður 1. nóvember en siðari hluti kauphækkunarinnar kemur 1. október. Kaup- hækkunin er 5.300 kr. á mánuði frá 1. júni, en siðan koma 2.200 kr. á mánuði frá 1. október. Samnings- timinn er til 31. desember. NIÐURGREIÐSLUR ÓBREYTTAR í samningsuppkasti var gert ráð fyrir þvi að kaupið hækkaði I tveim- ur áföngum alls um 16% ofan á það kaup sem nú er greitt. Ennfremur gaf rlkisstjórnin fyrirheit um að landbúnaðarhækkunin sem koma átti til framkvæmda 1. júni sl. komi ekki inn I verðlag til neytenda á samningstimabilinu. Þá mun i samningsdrögunum hafa verið gert ráð fyrir „rauðum strikúm”, þannig að fari framfærsluvisitalan fram yfir tiltekið mark, verði það sem umfram er bætt I kaupinu. Það var ekki fyrr en eftir mikið samningaþref i allan gærdag og fyrrinótt aö atvinnurekendur létu af þrjósku sinni, en allt fram til siðustu stundar neituðu þeir aö hækka kaupið hið minnsta. Þegar þeim var ljóst að verkfall skylli á um miðnættið og eftir miklar viðræður við rikisstjórnina ákváðu þeir að láta undan. BAKNEFNDIN SAMÞYKKTI Beðið eftir úrskurði ráðherra Eins og Þjóðviljinn vakti at- hygli á fyrir síöustu helgi eiga Rafmagnsveitur rikisins nú i mikium fjárhagsvandræðum og hrekkur framkvæmdaféð, sem er 1200 miljónir, fyrir utan fé til byggöalinu og sveitarafvæðingar, hvergi nærri til aö standa viö áætlun i ár. Taiið er aö hér skakki nokkur hundruö miljónum. Stjórn rafmagnsveitna rikisins hefur fjallað um þetta mál að undanförnu og sagði Helgi Bergs stjórnarformaður Rarik, fyrir helgina, að vandanum yrði annaðhvort að mæta með frestun framkvæmda til næsta árs eða með viðbótarfé frá rikinu. Helgi Bergs sagði i samtali við Þjóðviljann i gær, að stjórn RARIK, hefði i fyrradag sent iðnaðar- og orkuráðherra tillögur um lausn þessara, fjárhagsvand- kvæða og nú væri beðið úrskurðar rikisstjórnarinnar. Samningafundur atvinnurekenda og 9 manna nefndar ASl hjá sátta- nefnd stóð I fyrrinótt til kl. 5 um morgunin. Fundir hófust aftur snemma I gær og var rættum ýmis atriði samkomulagsins, svo og yfir- lýsingu frá rikisstjórninni. Hlé var gert á fundunum kl. 18 er baknefnd ASÍ hélt fund. Stóð sá fundur fram uiidir kvöldmat, en fyrir þann fund höfðu bæði talsmenn atvinnurekenda, Alþýðusambandsins og sátta- semjari sagt, að þeir væru bjartsýnir á að samningar tækjust og sam- komulag væri I nánd. Blaðið hafði samband við Slnorra Jónsson framkvæmdastjóra ASÍ að loknum baknefndarfundi. Hann sagði m.a. aö baknefndin heföi sam- þykkt að heimila 9-manna nefndinni að ganga frá samningum á þeim grundvelli, sem þá lá fyrir. Sagði Snorri að verkfalli yrði ekki aflýst, en fundir haldnir i félögunum I dag. TOGARADEILAN ÓLEYST? Óvissa var I togaradeilunni i gærkvöld og með hverjum hætti lausn hennar yrði tengd lausn almennu kjarasamninganna. Sáttafundur er boðaður i togaradeilunni I dag. Leiðari um samningana Forsœtisráðherra: Veit ekkert um þetta mál — Ég veit ekkert um þetta mál, sagöi forsætisráðherra, Geir Haligrimsson, er blaöiö spuröi hann eftir þvi i gær, hvort honum væri kunnugt um aö islenskir „togaraeigendur” væru aö þrcifa fyrir sér um sölu stóru togaranna úr landi. — Þetta mál hefur ekkert kom- ið til okkar kasta að einu eða neinu leyti né við frétt af þvi, sagði ráðherrann. — Það er ekki hægt aö selja togarana úr landi nema með leyfi stjórnvalda, er það? — Nei, mér skilst að það þurfi að fá leyfi stjórnvalda til þess. — Er ráðherra tilbúinn að gefa eitthvað út á það hvert álit hans yrði ef farið yrði framá leyfi fyrir sölu á togurum úr landi? — Nei, ég vil ekki fyrirfram segja neitt um það. Það verður að skoða málið i hverju tilviki fyrir sig. Við höfum gefiö leyfi til þess að selja fiskiskip úr landi, og ég held að i flestum ef ekki öllum til- vikum hafi viðkomandi aðili verið að kaupa nýtt skip. —úþ

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.