Þjóðviljinn - 17.06.1975, Qupperneq 18

Þjóðviljinn - 17.06.1975, Qupperneq 18
Keflvíkingar heppnir að sleppa með 0:1 tap Víkingarnir áttu tvö stangarskot auk aragrúa marktækifæra — Ég skil þetta bara ekki, það er allt á núlli hjá okk- ur, alveg sama hvað reynt er, ekkert gengur og meira að segja baráttuandinn er algerlega horfinn úr liðinu, sagði Grétar Magnússon landsliðsmaðurinn úr IBK er við ræddum við hann eftir leik Víkings og IBK þar sem kefIvíkingarnir máttu þakka fyrir að sleppa með 0:1 tap. Og Grétar bætti við: — Þetta getur ekki gengið svona lengur hjá okkur, það verður annað hvort að stokka liðið upp eða skipta um leikaðferð. Með þeirri leikaðferð sem við leikum nú skora framlínumennirnir ekki eins og sést á því að við höfum aðeins skorað eitt mark í f jórum leikjum. — Þetta er vissulega rétt hjá Grétari, ÍBK-Iiðið er hvorki fugl né fiskur eins og það leikur nú og að öllu óbreyttu blasir botnbarátta við lið- inu. Víkingarnir léku þarna sinn besta leik á sumrinu, með Guðgeir Leifsson sem lang-besta mann. Hann splundraði IBK-vörninni hvað eftir annaðog lagði bolt- ann í opin færi fyrir félaga sína sem tókst þó ekki að nýta þau, einhverra hluta vegna. Markið 15. minúta. Gisli Torfason og Stefán Halldórsson börðust um boltann rétt fyrir utan vitateig IBK.Gisli hugðist senda boltann til Þorsteins ólafssonar mark- varðar en hann var kominn allt of langt útúr markinu og boltinn sveif yfir hann og i mannlaust markið. Fyrri hálfleikur var heldur þóf- kenndur, en það litla sem sást af knattspyrnu kom frá Vikingum og i nær öllum tilfellum var það Guðgeir sem byggði upp sóknar- lotúr þeirra.Hvorugt liðið átti af- gerandi tækifæri i fyrri hálfleik, utan hvað Grétar Magnússon komst i opið færi seint i fh. en skaut framhjá. I þeim siðari tóku Vikingar öll völd og sóttu nær látlaust. Hvað eftirannað voru þeir Stefán Hall- dórsson, Jóhannes Bárðarson og Guðgeir i opnum færum, en aldrei tókst þeim að skora. Á 78.min.skaut Stefán i stöng af örstuttu færi og aðeins 2 minútum siðar átti Guðgeir skot i stöng af markteigshorni.Þrátt fyrir góðan leik að þessu sinni þurfa Vikingar að athuga sinn gang hvað við- kemur þvi að skora mörk.I fjór- um leikjum hafa þeir skorað eitt mark, úr vitaspyrnu og þarna var um sjálfsmark Gisla að ræða. Eins og áður segir bar Guðgeir Leifsson af á vellinum i þessum leikAlltaf byggjandi upp fyrir lið- ið, leikandi sig frian og notandi eyðurnar.Það var hrein unun að horfa á hve skynsamlega og vel hann lék.Þá átti Stefán Halldórs- son stórleik og hinn ungi og sterki miðvörður Róbert Agnarsson sömuleiðis. Hann mætti þó gera meira af þvi að leggja bolta á samherja i stað þess að hreinsa frá i öllum tilfellum. Hjá ÍBK voru þaö aðeins þeir Grétar og Einar Gunnarsson sem léku eins og maður átti von á; aðrir leikmenn voru langt frá sinu besta-, og eitthvað mikið er að hjá keflvikingum. Það þarf mikið að breytast hjá liðinu ef það ætlar að komast i toppbaráttuna i sumar. —Sdór Sigurmarkiö á síðustu mínútu Haukar úr Hafnarfirði sluppu svo sannarlega með skrekkinn úr leik sinum gegn Vlkingi frá Óiafs- vik.1-0 sigurinn var lítt sannfær- andi og þetta eina mark kom ekki fyrr en á siöustu eða næstsiðustu minútu leiksins, og var þaö ólaf- ur Jóhannesson sem þar var að vcrki. I fyrri hálfleik léku Haukar undan vindi og áttu þá tækifæri á tækifæri ofan.En i netið vildi bolt- inn ekki.I þeim siðari jafnaðist leikurinn nokkuð, Vikingar léku undan vindi og náðu að halda boltanum öllu lengra frá marki sinu og,ógnuðu jafnvel töluvert á köflum. Haukunum gengur ekki eins vel og búast hefði mátt við eftir þokkalega byrjun.Vikingur hefur enn ekki náð sér i stig og stendur þvi á botninum með 0 stig ásamt Reyni frá Árskógsströnd. —gsp íþróttir eru á bls. 18, 19 og 20 FH - Valur 0:3 Guðmundur skor- aði öll mörkin hinn átján ára gamli leikmaður Vals, Guðmund- ur Þorbjörnsson kom ásamt félögum sínum í vec fyrir að nýliðarnir í 1. deild fengju uppreisn æru eftir 1-7 tapið á Akranesi í 3. umferð deildakeppninnar. Guðmundur skoraði öll þrjú mörk leiksins, þar af tvö i fyrri hálfleiKog sigur Vals var öruggur og sann- gjarn. Enn halda Valsmenr marki sínu því hreinu. Tveimur fyrstu leikjum liðsins lauk 0-0, síðan kom 1-0 sigur gegn Víkingi og núna 3-0 sigur gegn FH. Landsliðsmarkvörðurinn Sigurður Dagsson virðisl því standa vel fyrir sínu. Leikurinn fór fram á heimavelli FH-inga, Kaplakrika, og var greinilegt strax I upphafi, að heimamenn áttu ekki möguleika gegn ákveðnum Valsmönnum. Fyrsta markið kom þó ekki fyrr en á 39.minútu.Grimur Sæmund- sen átti fast skot að marki sem ómar markvörður varði en hélt ekki.Boltinn hrökk til Guðmundar sem skoraði 1-0 með litilli fyrir- höfn. Aðeins tveimur minútum' siðar skoraði Guðmundur aftur,. Her- mann Gunnarsson og Atli Eð- valdsson léku skemmtilega sam- an I gegnum vörn FH, Guðmundur stóð skyndilega á auðum sjó fyrir framan markið, boltinn kom til hans á vitapunkt og þaðan skaut Guðmundur þrumuskoti sem ómar hafði eng- in tök á að verja. Á 28. min. siðari hálfleiks kom siðan 3-0. Enn var Guðmundur Þorbjörnsson að verki.Hann fékk laglegan stungubolta fram völl- inn og gott skot hans frá vitateig lenti i stöng og inn. Eins og áður segir voru yfir- burðir Valsmanna miklir. Tæki- færin voru enn fleiri, þar af átti Guðmundur nokkur sem misnot- uðust. FH-ingar hafa ekki getað spiiað úr hinni ágætu byrjun I mótinu og virðast eitthvað vera missa flugiðEnginn i liðinu var á- berandi, leikur þess var litlaus og skorti þá snerpu sem bjó I þvi i fyrstu leikjunum. Hermann Gunnarsson átti stór- leik með liði Valsmanna og lagði oft mjög góða bolta fyrir markið og skapaði þannig marktækifæri Þá kom Dýri Guðmundsson að vanda vel frá sinu hlutverki svo og Höröur Hilmarsson.Hinn korn- Ármann enn í basli Armenningar lentu I erfiðleik- um með Reyni frá Árskógsströnd um helgina. 1-0 sigur Reykjavik- urliðsins var I mikilli hættu undir lokin en þá sóttu heimamenn stifi Jón Hermannsson skoraði eina markiö á 20. min.fyrri hálfleiks Armenningar misstu 2 varnar- menn sina útaf vegna meiösla og drógu þeir sig þá smám saman meira i vörn þannig að heima- menn pressuðu æ meira.Það var þvi ekkert gefið eftir á siðustu minútunum og hart barist i teig Armenninga. En i markið vildi boltinn ekki; hefur Reynir þvi enn ekkihlotiðstigikeppninni. —gsp ungi Albert Guðmundsson er að vinna sér sast sæti i liðinu.Hann var með allan leikinn og stóð sig með prýði. Dómari var Eysteinn Guðmundsson og skilaði hann sinu hlutverki mjög þokkalega. —gsp staóan Vikingur — Keflavik 1-0 IBV — ÍA 1-0 FH — Valur 0-3 Fram — KR 2-0 Staðan aö loknum fjórum um- feröum: Valur 4 2 2 0 4-0 6 Fram 4 3 0 1 4-1 6 Akranes 4 1 2 1 10-5 4 Vikingur 4 1 2 1 2-2 4 ÍBV 4 1 2 1 4-4 4 ÍBK 4 1 1 2 1-2 3 FH 4 1 1 2 3-11 3 KR 4 0 2 2 0-3 2 2. deild Þróttur — Selfoss 1-1 Haukar — Vikingur ó 1-0 Völsungur — Breiðabiik 0-4 Reynir A — Armann 0-1 Staöan aö lokinni 4. umferð: Breiöablik Selfoss Þróttur Ármann Haukar VölSungur Víkingur Ó Reynir A 4 4 0 0 19-0 8 4 3 10 11-2 7 4 3 10 10-3 7 4 2 11 6-4 5 4 2 0 2 7-5 4 4 0 1 3 0-9 1 4 0 0 4 3-22 0 4 0 0 4 1-12 0 Markahæstir: Hinrik Þórhallsson Brbl. 8 Sumarliöi Guðbjartsson Self. 7

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.