Þjóðviljinn - 17.06.1975, Blaðsíða 19

Þjóðviljinn - 17.06.1975, Blaðsíða 19
Þriðjudagur 17.júnl 1975 þjóÐVILAINN — SÍÐA 19 Enn hafa KR- skorað mark! ingar ekki og Fram sigraði með tveimur mörkum gegn engu ÍBV - ÍA 3:2 Mikil harka allan tímann Akurnesingar sóttu svo sannarlega ekki gull í greipar eyjamanna er þeir heimsóttu þá sl. laugar- dag. Vestmannaeyingar tóku heldur óbliðlega á móti þeim, spiluðu geysi- harða vörn og höfðu með látum bæði stigin út úr viðureigninni. Úrslitin hljóta að vera mikið reiðarslag fyrir skaga- menn sem hafa ekki tapað leik í deildakeppninni siðan 1973 og 17 leiki höfðu þeir leikið án taps áður en þessi fór fram. E.t.v. hafa skagamenn vanmetið andstæðingana eftir 7—1 sigurinn yfir FH í þriðju umferð. En vanmat var ekki það sem fyrst og fremst réði úrslitum, held- ur það, að heimamenn gáfu aldrei eftir, hleyptu botnlausri hörku í leikinn og mörðu þannig sigur. 1 leikhléi var staftan 1-0 og þegar um 15 min.voru til leiksloka höfðu aðeins tvö mörk verið skor- uð.En þá opnaðist allt, eyjamenn bættu vdð einu marki og skaga- menn skoruðu tvö. Það var Orn óskarsson sem skoraði fyrsta markið fyrir eyja- menn og Tómas Pálsson bætti öðru við strax á fyrstu sekúndun- um i siðari hálfleik. Siöan hélst leikurinn i járnum, ekkert var skorað i um 30 minútur. En þá náði Jón Alfreðsson að skora eitt af sinum skallamörkum og stað- an var 2-1 fyrir tBV.Sigurlás bor- leifsson skoraði siðan 3-1 og Teit- ur Þórðarson átti lokaorðið með marki upp úr þvögu þannig að lokatölur urðu 3-2 sigur heima- liðsins. „Þetta var ekki fótbolti sem þeir spiluðu, heldur einhver allt önnur iþróttategund” sagði Matt- hias Hallgrimsson eftir leikinn.en hann fékk óbliðar móttökur hjá varnarmönnum ÍBV.Og vissulega voru margir sammála honum.Til- raunir til að leika knattspyrnu voru engar hjá IBV og þrátt fyrir að skagamenn reyndu eitthvað að spila þá voru það veikburða til- burðir sem báru litinn árangur Marktækifærin sem sköpuðust urðu þó nýmörg og jöfn á báða bóga. Stemmning i Eyjum var mikil eins og ávallt þegar skaga- menn eða keflvikingar leika Framhald á 17. siöu. Reykjavíkurmeistarar Tony Knapps hafa enn ekki skorað mark í deilda- keppninni og eru að því er virðist hverju liði auðveld bráð. Framarar áttu a.m.k. ekki í vandræðum með að leggja þá að velli og ná sér þar í tvö kærkom- in stig. Varnarleikkerfi þjálfar- ans stenst ekki þær kröfur sem til þess eru gerðar. Vissulega hafa KR-ingar ekki fengið á sig niörg mörk, en þeir hafa ekki skorað eitt einasta heldur. Jafnvel í leiknum gegn Fram, þegar staðan var 2-0 og 10 mínútur eftir var ekki annað að sjá en að KR-ingar >spiluðu varnar- leik! Ekki var óalgengt að sjá 4—5 menn hanga ná- lægt miðlínunni og fylgjast þaðan aðgerðarlausir með félögum sínum að berjast upp við mark andstæðings- ins. Framarar hengdu vesturbæ- ingana upp á þráð strax á 3.min- útu.Kristinn Jörundsson fékk fal - lega sendingu frá Rúnari Gisla- syni inn fyrir galopna KR-vörnina og skoraði af öryggi framhjá Magnúsi markverði. Skömmu fyrir leikhlé, á 43.min.innsigluðu þeir siðan sigurinn. Steinn Jóns- son reyndi hjólhestaspyrnu eftir aukaspyrnu rétt fyrir utan vita- teig.Skot Steins mistókst.en bolt- inn barst út úr þvögunni til Ágústs Guðmundssonar sem skoraði 2-0 Þannig lauk fyrri hálfleik með tveggja marka forystu Framara Leikurinn haföi verið nokkuð skemmtilegur og lifandi, gott spil sást á köflum og marktækifæri voru nokkur i viðbót við þau tvö, sem uppskeru gáfu.I siðari hálf- leik datt spilið hins vegar niður i ekki neitt. Framarar lögðu áherslu á að halda forskotinu og á köflum var ekki annað að sjá en að KR-ingar legðu einnig áherslu á að halda úrslitunum óbreyttum Marksæknin var i lágmarki, framlinumennirnir þungir og þá Kristinn Jörundsson skorar fyrsta mark Framara. sjaldan sem þeir náðu að ógna var Arni Stefánsson i márki Framara til varnar og það er ekki svo auðveldur hjall að komast yfir.öryggi hans er aðdáunarvert og snerpan ekki minni en hjá ketti á besta aldri á erfiðum fuglaveiö- um. Eftir óvænt tap fyrir FH i fyrstu umferð hafa Framarar heldur en ekki sótt i sig veðrið undir leið- sögn þjálfaranna Jóhannesar Atlasonar og Guðmundar Jóns- sonar. Þrir siðustu leikir hafa unnist og 6 stig eru komin i sarp- inn. Dómari var Ragnar Magnússon og frammistaða hans og llnu- varðanna var óneitanlega ekki til fyrirmyndar. —gsp Oruggur sigur Breiðabliks gegn Völsungi Breiðabliksmenn hafa siglt í gegnum deilda- keppnina af öryggi það sem af er og hafa nú skor- að 19 mörk í f jórum leikj- um. Enn hafa þeir ekkerl mark fengiðá sig og hefur liðið nú forystu i 2. deild. Um helgina sóttu Blikarnir hús- víkinga heim og sigruðu 4-0 Hinrik Þórhallsson, markakóng- ur I 2. deild um þessar mundir skoraði 2 mörk, Þór Hreiðarsson eitt og Gisli Sigurðsson eitt úr víti Völsungar áttu aldrei mögu- leika gegn blikunum.Ekki er ann- að að sjá en að húsvikingar ættu að fara að yngja lið sitt eitthvað upp, leikmenn virðast flestir á aldrinum 25—35 ára og er þá timi kominn til að hleypa yngra blóði smám saman inn.I þessum leik var liðið þungt og auðveld bráð fyrir blikana sem áttu þó þarna sinn slakasta dag I deildakeppn- inni.Athyglisvert er að Völsungar hafa enn ekki skorað mark i 2 deildiár. —gsp =■£> Norrænir íþrótta- fréttamenn þinga í Rvík Þing norrænna Iþrótta- fréttamanna hefst I Reykjavlk I dag og stendur það fram á föstudag. íþróttafréttamenn frá öllum Norðurlöndunum munu koma til þingsins, einn fulltrúi kemur frá Færeyjum, en fimm fulltrúum var boðið frá hverju hinna Norðurland- anna. Þingiö verður sett I dag að Hótei Loftleiðum af formanni Samtaka Isl. Iþróttafrétta- manna Jóni Asgeirssyni. Siðan munu iþróttafrétta- mennirnir skoða Iþróttamann- virki- I Reykjavik, fara til Vestmannaeyja, nk. miðviku- dag og til Þingvalla, Laugar- vatns, Gullfoss og Geysis á fimmtudag.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.