Þjóðviljinn - 21.06.1975, Blaðsíða 6
6 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 21. júni 1975.
Laugardagur 21. júni 1975. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 7
JJ
10 stunda vinnudagur
algjört lágmark"
„Ég held að við hjá Bæjarút-
gerðinni séum með þeim siðustu
sem sagt var upp vegna togara-
verkfallsins og þó eru núna
komnar rúmar 7 vikur siðan
kauptryggingin rann út,” sagði
Lára Þórðardóttir i samtali við
Þjóðviljann. „Þú getur trúlega
imyndað þér að ástandið er orð-
ið ansi erfitt hjá sumum; sumar
kvennanna sem vinna i fiskin-
um eru e.t.v. einstæðar mæður
með börn á framfæri og það
hlýtur að vera erfitt fyrir þær að
láta enda ná saman.”
— Hefur þú unnið lengi i
frystihúsi?
— Já, blessaður vertu, fleiri
fleiri ár. Þó vantar mikið upp á
að ég hafi unnið lengst af þeim
sem ég þekki, þær eru margar
með 25-35 ára starfsreynslu. Allt
þetta fólk verður þó að sætta sig>
við það að fá uppsögn með að-
eins viku fyrirvara og þurfa
siðan að vera atvinnulaust þar
til úr rætist. Engin af þeim kon-
um sem ég þekki hefur getað
fengið sér aðra vinnu á meðan
togaradeilan hefur staðið. Enda
er óneitanlega hart fyrir fólk
sem búið er að sérhæfa sig i
þessari vinnu i áratugi að þurfa
að leita sér að annarri vinnu og
þurfa siðan að byrja allt upp á
nýtt.
— Þið hafið ekkert starfs-
aldursmat?
— Nei, við þurftum i gamla
daga að vinna i 2 ár til að fá öll
þau réttindi sem við höfum eins
og t.d. veikindadaga, sumarfri
og þ.h. Einnig fengum við 4%
hærra kaup eftir þennan tima.
Nú þarf ekki nema ár til að
öðlast réttindi, en hins vegar
missum við þau ef við ráðum
okkur i annað frystihús. Þá
þurfum við að vinna i 6 mánuði
áður en réttindin fást aftur!!
— Er ekki oft langur vinnu-
timi hjá ykkur?
— Hann er iðulega ekki minna
en 10 timar og oft meira. Það er
enda ekki hægt að lifa af dag-
vinnunni einni,og frystihúsafólk
þiggur alltaf alla þá yfirvinnu
sem gefst. Maður er þvi oft
þreyttur að loknum vinnudegi
og það hlýtur að vera erfitt að
þurfa siðan e.t.v. að vera einn
um heimilishald fyrir sig og
börn sin að loknum 10-12 stund-
um i frystihúsinu.
” 'I
V
' Wmmm
L6* ,• U
""Í'V
Þeir leggja væntanlega á miöin fljótlega þessir
Tómur vinnusalur I einu frystihúsa borgarinnar.
Frystihúsiö í Kópavogi:
Stöðug vinna
fastráðinna
starfsmanna
Hjá Frystihúsinu i Kópavogi hefur verið
hægt að halda fastráðnu starfsfólki i svo til
stöðugri vinnu og hefur ekki þurft að gripa til
uppsagna. Rætt var við Guðrúnu Sigurðardótt-
ur, sem er ein fastráðinna kvenna við frysti-
húsið:
— Hvað eru margar f astráðnar konur hjá ykkur?
— Ég gæti trúað að við séum rúmlega 15 sem er-
um fastráðnar og höfum haldið okkar vinnu og
kauptryggingu óskertri.
— Nóg að gera þrátt fyrir togaraverkfallið?
— E.t.v. ekki nóg, en okkur hefur a.m.k. ávallt
verið útveguð einhver vinna þannig að ekki hefur
þurft að segja fastráðnum konum upp. Annars hef-
ur yfirleitt verið nóg af fiski fyrir okkur að vinna
við og kemur það til af því að frystihúsið á sjálft
báta sem gerðir eru út frá Sandgerði og viðar.
Togaraverkfallið hef ur því ekki hafttiltöluleg áhrif
á þette. f rystihús og lausráðið fólk hef ur unnið tölu-
vert siðustu mánuðina.
— Þið vinnið þá eingöngu í fiski?
— Nei, því er ekki að neita að við höfum farið í
hreingerningar, þegar annað hefur ekki verið að
gera,en okkur var sagt að við það væri ekkert að at-
huga. Við ræddum við okkar verkalýðsfélag um
réttmæti þess að setja okkur í hreingerningar og
var okkur tjáð að ekki væri hægt að amast við því.
Annars hefur fiskur verið nægur nema fyrst eftir
að séð var fram á allsherjarverkfall. Bátarnir voru
þá ekki sendir út og um tíma f ór ástandið úr skorð-
um en nú er allt komið aftur í eðlilegt horf.
— Einhver yfirvinna?
— Nei, það er ekki mikið. Þó stafar það trúlega
ekki neitt frekar af togaraverkfallinu þvi yfir
vinna hefur verið lítil í allan vetur. Undanfarin ár
hefur yfirvinna verið mikiþen sl. haust minnkaði
hún skyndilega niður í næstum því ekki neitt.
Geysilega erfitt
ástand hjá starfs-
fólki ífrystihúsum
Þegar þessi orð eru skrif uð, þann 19.
júní, eru liðnir 72 dagar frá því verk-
fall á stóru togurunum hófst. Það var
9. apríl sl. sem togaraf lotinn
stöðvaðist og það er fyrst í dag að
fréttir berast um að eitthvað hafi
rofað til í samningamálunum og að
samningar séu e.t.v. á næsta leiti.
Ljóster þóað langur tími mun líða þar
tii fiskur kemur á ný í frystihúsin,
togararnir eiga eftir að fara út á mið
og síðan aftur til hafnar áður en
verkafólk í frystihúsunum fær at-
vinnu sína á ný.
Engum dylst að afleiðingar þessa
langa verkfalls eru miklar og alvar-
legar. Starfsfólki frystihúsanna var
öllu sagt upp um leið og séð var f ram á
verkef naskort,en sem kunnugt er þarf
ekki að segja fastráðnu starfsfólki
upp nema með viku fyrirvara. í þessa
tæpu 3 mánuði sem verkfallið hefur
staðið hafa atvinnuleysisbæturnar
einar orðið að nægja til að framf leyta
margri f jölskyldunni en þær eru yfir-
leitt á milli sex og átta þúsund krónur
á viku. Hundruðum kvenna var sagt
upp vinnu er verkfallið skall á og hafa
þær flestar verið á atvinnuleysisskrá
síðan. Aðeins á Akureyri misstu rúm-
lega 500 manns atvinnuna vegna verk-
fallsins.
Hér í opnunni birtast viðtöl við tvær
konur, sem báðar hafa unnið í frysti-
húsum í langan tíma. Aðstaða þeirra
er þó ólík; önnur missti vinnuna strax,
en hin er svo heppin að vinna i einu af
fáum frystihúsum landsins sem ekki
hafa stöðvast um leið og togaraflot-
inn.
Fimm togarar liggja hér við landfestar.
Togaraverkfallið