Þjóðviljinn - 06.07.1975, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 06.07.1975, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 6. jlill 1975. „Mér hefur aldrei liðið betur en einmitt „Hefurðu heyrt nýju White Bachmann Trio plötuna?” New Morning „Já, ég hafði „New Morning” með, það er B-hliðin. Þetta er upptaka, sem við gerðum fyrir löngu, svo þegar ég fór að blanda saman upptökum, ákvað ég að taka upp raddirnar aftur, og reyna að notfæra mér raddböndin út i ystu æsar. Ég er með nokkurs konar óperusöngstil i þvi, þ.e.a.s. þannig raddbeitingu, nota mina dýpstu rödd. Þetta kann að hijóma einkennilega I fyrstu, en ég er mun ánægðari með þetta svona.” Þessi plata er með þér, Tómasi Tómassyni og Preston? „Fyrstu upptökurnar eru reyndar með Sigurði Karlssyni á trommum, en eftir að Tómas gekk til liðs við Change, fannst mér eins og ég væri að reyna að splundra þeim, svo ég tók Preston inn i trióið, sem er mjög góður vinur minn. Liklega verð ég lika með nýjan bassaleikara næst, John Gilding, sem var með mér i Flash. Hinum megin er svo „All Hands On Deck”, sem er gjörólikt að hljómum og uppbyggingu. Þar syng ég tveim áttundum ofar, og beiti röddinni allt öðru visi, ég kreisti út úr mér það óliklega, nokkuð sem ég hélt mig ekki fær- an um. Syng kannski niður i dýpstu áttundina og lengst I hina áttina. Ég er svona að prófa mig áfram. Þessi plata gefur góða mynd af þvi sem ég hef verið að gera áður og svo kemur önnur White Bachman Trio plata i ágúst, og lögin þau heita „Where Were You” og „Moving On”. White Bachman Trio nafnið kom upp, þegar við unnum að upptökum á „Sumri i Sýrlandi”. Stuðmennirnir eru mjög frjóir og húmorískir menn. — Ég eyddi nú æsku minni á Hvitarbökkum I Borgarfirði og River Band átti t.d. fyrst að heita White River Band, en svo setti ég þetta trló á laggirnar og Stuðmenn stungu upp á White Bachman Trio. Þannig geri ég átthögunum llka einhver skil. Þarna á Hvitárbökk- um fékk ég minn fyrsta tónlistar- lega innblástur, er ég spilaði sálma, þjóðlög, Islensk og Kinks lög á harmonium-orgelið i stof- unni. „Sunny Afternoon”, það var uppáhaldslagiö mitt.” Ertu búinn að spila lengi með Long John? „Ja, við byrjuðum að spila saman fyrir tveimur árum fyrst og höfum haldiö kunningsskap siðan og búum reyndar I sama húsi eins og er. John er mjög ró- legur I tiðinni, og langar ekkert til að verða poppstjarna aftur, bara að gera góða hluti. Eftir að ég var búinn að ganga I gegnum allar þessar hljómsveitir I Bretlandi, Merlin, Peter Banks Flash og Kevin Ayers, og heilmikið af stúdióvinnu með hinum og þess- um, þá fann ég að mig langaði að spila þá tónlist, sem ég hafði spilað með Long John þarna fyrir tveimur árum, þvi hún er sú lang- heilsteyptasta og hreinasta tón- list, sem ég hafði komið nálægt. Baldry hefur lika haft geysimikil áhrif á breskt rokk yfir höfuð (t.d. Rod Stéwart og Elton John). Hljómsveitin þarna fyrir 2 árum var sú mesta fullnæging, sem ég hef fengið þangað til nú. Megin uppistaðan var 4-manna hljómsveit sem hét 747, plús Rabbit og Sam Mitchell og 3 söng- konur. Svo ákváðum við John að koma á laggirnar þessari hljóm- sveit, af þvi að við þekktum nú þessa músikanta sem voru svona sterkastir I bransanum og alla- vega þrir af strákunum höfðu spilað með John þegar ég var með Kevin Ayers. Nú, okkur hef- ur gengið ágætlega i Englandi þennan stutta tima siðan hljóm- sveitin var stofnuð. Otgáfufyrir- tæki I Englandi hafa sýnt þó nokkurn áhuga og við höfum sýnt áhuga á móti, þvi að Baldry er eiginlega fasturhjá GM Records, sem gáfu út siðustu LP plötu hans, sem er hræðilegt fyrirtæki. John verður sem sagt bara með- limur i River Band og við semjum um útgáfur á plötum undir nafni hljómsveitarinnar. En svo verður John lika að standa við sina samninga og gefa út „sóló” plötur fyrir GM. Nú, og svo mun ég halda áfram aö gefa út minar sóló plötur og hinir ef þeir kæra sig um, en River Band verður nr. 1. Jóhann G. Jóhannsson „What’ ’ya Gonna Do” / „lcelandic Airlines” Sun Records/no. 003 Fyrir um það bil tveimur vik- um kom út litil plata með Jó- hanni G. Þessi plata inniheldur besta lagið af stóru plötunni „Langspil”, „What’ya gonna do”, mjög fallegt lag. „Ice- landic Airlines” er nýja lagið. Það er ekta bakhliðarlag, frem- ur persónulitið og likt Change hljómnum, t.d. „Hit Record”. Þessi plata væri gefin út I USA eða Englandi til þess að auka sölu á stórri plötu. Hér er þvi tæplega fyrir að fara, þar sem stórar plötur eru ekkert siður spilaðar i útvarpinu. „Icelandic Airlines” er svo miklu slappara en allt það efni sem á „Lang- spil” er, enda nokkuð góð LP plata það. En sem sagt ,A-hliðin er góð. t næsta sunnudagsblaði verða islenskar hljómplötur svo loks gagnrýndar. Það hefur safnast saman smá bunki af islenskum plötum, flestum góðum, en meö undantekningum þó. Ástæðan fyrir þvi, að John var ekki með okkur á þriðjudags- kvöldið, er sú, að við erum að gera kvikmynd fyrir Paramount, þar sem við æfum og spilum. Myndin er gerð fyrir sjónvarp.Við ætluöum varla að komast hingað vegna þessa þvl þeir voru með samninga og töldu sig ekki hafa fengið nóg til þess að vinna úr. John bjargaði þessu með þvl að lofa að fljúga út til Englands einn dag og tala inn á mynd, um popp bisnissinn almennt.” Segðu mér eitt. Hvað er „producer”? „Þegar hljómsveit kemur t.d. inn i stúdió i fyrsta sinn, stúdió sem kostar kannski 15 þúsund á timann, sem er algengt I Eng- landi núna, þá er ómögulegt fyrir menn að standa ráöalausir og eyða tima i að finna út hvernig á að stilla o.s.frv. Upptökustjóri, liklega besta Islenska orðið yfir þetta, gefur ráð um hvernig eigi VIÐTAL VIÐ JAKOB MAGNÚSSON Jakob Magnússon er á margan hátt merkilegur naður. Við þekkjum hann einna helst fyrir að íann hefur verið nokkurs konar lykilmaður á bak ?ið Stuðmenn og svo fyrir að honum gengur vel i ínglandi. Hann hefur lika stjórnað upptökum á nörgum islenskum plötum og nú er hann hér með iigin hljómsveit, sem i eru viðfrægar kempur, illa vega einJLong John Baldry. Jakob hóf sjálfur /iðtalið, sem hér kemur. að taka upp, stilla, til þess að fá vissan hljóm, útsetja og stjórna hljóðfæraleik. Stúdió-spil er ágætt til þess að afla sér tekna, en ég er orðinn þreyttur á slikri leigumennsku svo ég ákvað að gerast minn eigin herra og stofna eigin hljómsveit, og gæti auk þess stússað i ýmsu öðru. Mér hefur aldrei liðið bet- ur en siðan ég tók þessa ákvörðun. Allt sem ég hef áður gert hefur I raun og veru verið undirbúningur undir að geta verið sjálfs mins herra. Svo þegar ég er orðinn fjár- hagslega sjálfstæður flyt ég heim til að geta sinnt fleiri hugðarefn- um svo sem Háskólanámi etc. Ég er nú að koriia upp minu eigin húsi I Englandi, svo að ég geti bæði verið i Englandi og hér. Þetta er hvort eð er stutt að fara.” Þess má að lokum geta að White Bachman Trio verður með tvölög á „Hrifum II”, sem kemur bráðum á markaðinn, annað er samiö af þeim öllum, en hitt heitir „Saki”. White Bachman Trio kemur svo hingað I lok júli og dvelst hér I 3. vikur.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.