Þjóðviljinn - 22.07.1975, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 22.07.1975, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 22. júli 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Eyjamenn voru óheppnir á móti FH-ingum og uröu að sætta sig við 0-0 jafntefli þrátt fyrir aragrúa marktækifæra ^ Þeirvoru svo sannarlega óheppnir, vestmannaey- ingarnir sem sóttu FH heim sl. laugardag. Tæki- færi þeirra í leiknum voru mýmörg en framlínu- mönnunum brást alltaf bogalistin þegar á reyndi og komu boltanum aldrei í netið. Lokatölur urðu þvi 0- 0, vart var við því að búast að hafnfirðingar skoruðu mark, þeir sýndu litið skemmtilegt í þessum leik og höfðu ærinn starfa f vörninni einni saman. Þó áttu FH-ingar fyrsta tæki- færið i leiknum. Það kom á 10. min. Þegar Leifur Helgason skaut að marki, boltinn hrökk i boga frá marklinu út að mark- teigslinu þar sem Janus Guð- laugsson þurfti ekki annað en að Blaklandsliðið fer í undankeppni OL leikur fjóra æfingalandsleiki áður en það fer í keppnina sem fram fer á Ítalíu Blaklandssamband lslands hefur ákveðið að fslenska landsliðið I blaki taki þátt f undankeppni Ófympfuleikanna f blaki, sem fram fer á næsta ári. Fer kcppnin fram á ttaliu i janúar 1976. Ekki er enn vitað með hvaða þjóðum tsland verður f riðli. Áður en þessi keppni hefst mun landsliðið leika fjóra landsleiki, sem einskonar æfingaleiki fyrir keppnina. Verða þeir gegn engiend- ingum og færeyingum. Fara þeir fram I nóvember og desember f haust. Þegar hefur verið valinn 14 manna landsliðshópur, sem er byrjaður æfingar fyrir undankeppnina. tslenskir blakmenn hafa ekki áður tekið þátt f undankeppni ÓL, og er þetta i raun fyrsta stórverkefni íslenska landsliðsins, ef undan er skilin þátttaka þess f sfðasta NM. Verður gaman aö fyfgjast með árangri blakliðsins, en áhugi á blaki og geta fslenskra blakmanna hefur farið sfvaxandi sl. 2-3 ár. —S.dór ■ ■ •-!______________________ hneigja sig til þess að senda bolt- ann i tómt markið. En atburða- rásin var of hörð fyrir Janus, honum fataðist skallataktikin og boltinn fór hátt yfir. Þá var komið að Sigurlási, mið- framherja eyjamanna, að leggja fyrsta hlekkinn I óhappakeðju sina I þessum leik. Hann var i dauðafæri á 25. min. og aftur i galopnu færi á 30. min. þegar hann var aleinn fyrir innan alla varnarmenn FH en skaut fram- hjá.Sigurlás átti eftir að koma oft ar við sögu i leiknum, hann klúðr- aði sinum tækifærum á sama hátt og aðrir félagar hans i framlin- unni en þeim var það öllum sam- eiginlegt að skorta þann neista, sem þarf til þess aö reka enda- hnútinn á ágætar sóknarlotur sin- ar. I síðari hálfleik hélst sami hátt- ur á. Sveinn Sveinsson átti þrumuskot fyrir IBV af löngu færi i þverslá og út. Afram sóttu vest- mannaeyingar en vissulega tóku heimamenn spretti við og við sem sköpuðu þeim þó ekki umtalsverð tækifæri. 0-0 urðu þvi lokatölurnar i þess- um tilþriflitla leik sem bauö upp á enga skemmtun, nema þessi tækifæri sem runnu þó öll út sand- inn. Dómari var Eysteinn Guðmundsson. —gsp Ekki var óalgengt aö tveir FH-ingar væru tii varnar gegn hverjum eyjamanni eins og hér á myndinni. Stefán felldi byrjunar- hæðina í stangarstökki og fyrir bragðið varð fsland í neðsta sæti í sínum riðli I tugþrautarkeppninnar tslendingarnir sem þátt tóku i Evrópukeppninni I Barcelona um helgina unnu ekki stórafrek. Þeir höfnuðu i neðsta sæti f sinum riðli en hefðu þó unniö bæði breta og spánverja ef Stefán Hallgrimsson heföi ekki fellt byrjunarhæðina i stangarstökki, 3,70 metra. Islenska liðið var skipað þeim Hafsteini Jóhannessyni Breiðabliki (fékk 6.185 stig), Ellasi Sveinssyni (6.920 stig) Stefáni Hallgrimssyni (6.660 stig) og Valbirni Þorlákssyni sem átti I erfiðleikum i spjótkastinu og fékk fyrir bragðið aðeins 5.904 stig. Arangur islensku keppendanna er langt frá þeirra besta og má e.t.v. kenna miklum hita þar um og þá ekki sist i stangarstökkinu en þar breytir hitinn mjög eigin- leikum stanganna sjálfra. Sigurvegari i riðlinum varð A- Þýskaland með 22.969 stig og Frakkar fengu 22.689 stig. Þessar tvær þjóðir komast því áfram i lokakeppnina. Staöan Úrslit úr 9. umferð 1. deildar: FII — ÍBV 0:0 Víkingur — Akranes 2:2 Valur — KR 2:2 t kvöld leika Fram og tBK á Laugardalsvelli. Staðan I 1. deild er því þessi: Akranes Fram Vlkingur Keflavlk Valur KR FH Vestm.eyjar 9 1 19:9 13 10:3 12 11:8 9 7:8 8 11:11 8 6:8 7 6:14 7 8:13 6 Orslit 19. umferð 2. deildar: Selfoss — Völsungur 4:1 Armann — Vlkingur Ó 1:0 Þróttur — Reynir 4:2 UBK — Ilaukar 4:0 t 2. deild er staðan þessi eft- ir 9. umferð Breiðablik 9 8 0 1 36: 6 16 Þróttur 9 7 1 1 20: 8 15 Armann 9 5 : 2 : 2 15: 8 12 Selfoss 8 4 2 2 18 : 13 10 Ilaukar 9 3 1 5 13 : 18 7 Reynir 9 3 0 4 11 :22 6 Völsungur 9 1 2 6 5 : 19 4 Víkingur Ó 8 0 0 8 4 : 29 0 KR missti máttinn eftir aö hafa náö 2:0 forystu og Valsmenn jöfnuðu 2:2 og voru óheppnir að vinna ekki ( „Rauðu ljónin” úr vesturbæn- um byrjuðu leikinn gegn Val I gærkveldi af þvlllkum krafti að maður hélt um tima að þau ætl- uðu að sigra Val með yfirburðum. Eftir aöeins 20 mlnútur af leik var staðan orðin 2:0 KR I vil og ekkert lát á sókn liösins. Og það sem eft- ir liföi fyrri hálfleiks sóttu KR-ingar stift, áttu nokkur ágæt marktækifæri sem ekki nýttust og manni virtist Vals-liðið algerlega heillum horfið, alveg sérstaklega vörnin sem var cins og gatasigti. En það hefur verið eitthvað krassandi scm þjálfari Vals, Gil- roy, hefur sagt við sina menn I leikhléi, þvi að dæmið snerist við. Valsmcnn tóku leikinn I slnár hendur, voru búnir að jafna eftir 16 minútur og KR réöi ekki við neitt og var stálheppið að sleppa með jafnteflið. Mörkin: 12. min. Jóhann Torfason skor- aði 1:0 eftir aö Arni Steinsson hafði skotið i þverslá, en Jóhann fylgdi vel á eftir. A 19. min. Haukur Ottesen fékk boltann við vitateigslinu, lék á Grim Sæmundsen bakvörð og skoraði 2:0. 58. mín. Albert Guðmundsson framkvæmdi hornspyrnu, boltinn barst til Guðmundar Þorbjörns- sonar sem skoraði 2:1. 61. mín. Atli Eðvaldsson skaut að marki af 25 m færi, Magnús markvörður var hlaupinn úr markinu af einhverjum orsökum og boltinn fór i bláhornið, 2:2. Eftir þetta sóttu Valsmenn lát- laust og hvað eftir annað áttu þeir gullin tækifæri til að ná forystunni en voru bæði klaufskir og óheppn- ir. Tvö dauðafæri misnotaði Her- mann Gunnarsson sem virðist al- veg heillum horfinn uppvið mörk- in. Og eitt sinn var Ingi Björn of seinn er hann stóð meter frá marklinu og enginn i markinu. Boltinn var hirtur af tánum á honum. Eftir atvikum voru þessi úrslit sanngjörn. KR-ingar áttu mörg góð marktækifæri i fyrn hálfleik, og það hefði verið blóðugt fyrir þá að tapa þessum leik, jafnvel þótt liðið hafi misst allan vind I siðari hálfleik. Hjá KR áttu þeir Guðjón Hilmarsson og Baldvin Eliasson bestan leik, en hjá Val Hörður Hilmarsson, Albert Guðmunds- son og Guðmundur Þorbjörnsson. Dómari var Hinrik Lárusson og var dómgæsla hans hreint hneyksli. Bæði var misræmi i dómum hans og eins sleppti hann grófum brotum, einkum á KR-ingana, sem' eru að veröa grófasta liðið i 1. deild. En svo stóð hann I að gefa mönnum gula spjaldið fyrir eitthvert orðbragð. —S.dór Haukarnir auðveld bráð Breiðabliksmenn áttu ekki i erfiðleikum með lið Hauka úr Hafnarfirði, þegar lið þessi mættust i Kópavogi i gær- kvöld . Staðan i leikhléi var 3:0 og i siðari hálfleik bættu Blikarnir við sinu 4. marki og lauk leiknum þannig, 4:0 fyrir Breiðablik. Mörk Breiðabliks skoruðu: Gisli Sigurðsson 2 (1 úr viti), Hinrik Þórhallsons 1 og Olafur Friðriksson 1. Haukarnir voru ekki upp á marga fiska i þessum leik. Þeir áttu þó þokkalega spretti i siðari hálfleik og sóttu nokk- uð á móti Blikunum, sem hins- vegar virtust ekki hafa áhuga á fleiri mörkum og var sem þeir biðu þess eins, að flauta dómarans gylli við að leiks- lokum. — gsp

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.