Þjóðviljinn - 26.07.1975, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 26.07.1975, Qupperneq 1
Laugardagur 26. júlí 1975 — 40. árg. —166. tbl. Skattskráin afhjúpar stéttamuninn á íslandi Hafa mánaðartekjur verkamanns á dag! í skattskránni sem kom út í Reykjavík í gær er að finna mörg fróðleg dæmi um það hvernig ,,stórlax- ar" sleppa við að greiða eðlileg gjöld til opinberra framkvæmda í þjóðfélag- inu meðan þeir smáu og tekjulágu eru skattaðir samviskusamlega. En í skattskránni kemur einnig fram sá gífurlegi tekju- mismunur sem er hér á landi. 1 skattskránni kemur fram að 15 menn hafa haft yfir 10 miljónir króna i árstekjur sl. ár. Er þó ekki víst að allt komi fram, en segjum það: Þá eru þessir menn með á dag ámóta kaup og verka- maðurinn hefur á einum mánuði og er þá að sjálfsögðu miðað við síðastliðið ár þvi allir skattar eru teknir eftir á. Það vekur einnig sérstaka at- hygli hverjir það eru sem eru með hæstu gjöldin. Þar er yfirleitt um að ræða byggingamenn og lækna. Hins vegar er leitun að heildsala, fasteignasala eða útgerðarmanni meðal hæstu skattgreiðenda i Reykjavik — og liklega yrði leitin án árangurs. Lagt á einstaklinga, en fyrirtækjum þyrmt Astæðan til þess að þessir hópar manna sleppa er að sjálfsögðu sú ' aðþeir hafa myndað hlutafélög um rekstur sinn og á þau eru færð neysluútgjöld fjölskyldunnar. Ennfremur er ljóst að fyrirtækin hafa sloppið miklu betur en ein- staklingarnir i ár. Þannig hækka gjöld á fyrirtækjunum um innan við 40% meðan gjöld á almenn- ingi — fyrir utan söluskatt — hækka um 54%. Og söluskatturinn hefur hækkað milli ára um 100%. Skattskráin er fróðleg lesning. Við munum glugga nánar i hana næstu dagana. Ekki var mikil örtröð á skattstofunni i gær, þar sem skattskráin liggur frammi, enda flestir búnir að fá álagningarseðla senda heim. Forvitni um náungann og þörfin á útskýringum ýmiskonar kom þó mörgum til að lita þar inn i gær. (Mynd GSP) Kemur ný steinhöll í stað þessara húsa? Ólöglegar hrefnuveiðar norðmanna Rannsókn í Noregi Samkvæmt NTB frétt frá Osló hefur norska stjórnin falið fiski- veiðistjóra Noregs að kanna hvort ásakanir um að norskir bát- ar hafi stundað ólöglegar hrefnu- veiðar innan 50 milna við ísiand, hafi við rök að styöjast. Norska sendiráðið í Reykjavik fór þess á leit við sjávarútvegsráðuneytið I Osló að þetta mál yrði kannað. t fréttinni segir ennfremur að norska sjávarútvegsráðuneytið muni fylgjst vel með könnuninni og aö þegar hafi verið haft sima- samband við ýmsa aðila á tslandi og i Noregi i sambandi við ásak- anirnar. Skipstjórar á hrefnubátunum Björgvin EA, Nirði EA og Sólberg EA skýrðu frá þvi fyrir skömmu að ekki léki nokkur vafi á þvi að norðmenn hefðu stundað ólögleg- ar hrefnuveiðar á Skagagrunni langt innan fimmtiu milna. Þessu til sannindamerkis voru meðal annars beinagrindur hvala á reki nálægt landi. Tveir norsku bát- anna, Andfjord N 65 BR og Haf- lorva N 409 BR komu inn á ölafs- fjörð og var annar báturinn með hrefnukjöt á dekki. Af þvi drógu menn þá ályktun að hrefnan hefði verið skotin langt innan 50 miln- anna, sennilega i mynni Eyja- fjarðar. Skipstjórarnir á islensku hrefnubátunum kaérðu veiðar norðmannanna til sjávarútvegs- ráðuneytisins. Landhelgisgæslan hefur kann- að veiðar norsku hrefnubátanna, en ekki staðið þá að ólöglegum veiðum, né fundið nokkuð athuga- vert við veiðarfæri þeirra. Nýlega var á hvalveiðiráð- stefnu úrskurðað að kvótinn fyrir hrefnuveiðar i Norður-Atlants- hafi skyldi vera 2000 skepnur, en Islendingar veiddu sl. ár liðlega eitt hundrað hrefnur. ,,Það hafa allmargir aðilar spurst fyrir um þessar eignir, enda vafaiaust um að ræða einhvern eftir- sóttasta stað i miöbænum fyrir þá sem hafa áhuga á aðstöðu á þessu svæði á næstu árum,” sagði Ragnar Tómasson hjá Fasteignaþjónustunni, en skrifstofan auglýsti i gær til sölu húseignirnar Banka- stræti 8 og 10 og Ingólfsstræti 2. Ragnar sagði að verð á fasteignum væri fremur lágt i dag, en með hliðsjón af verði á fasteignum við Laugarveginn væri talað um 40 miljón króna lágmarksverð og þætti sumum það of lágt. Það munu vera erfingjar fleiri en eins aöila sem standa að sölunni og söluverðið væntanlega skiptast á milli allmargra aðila, sem eiga misstóran erfðahlut. Fasteignaverð lóöarinnar, sem er 54 fm, er tæpar 12 miljónir, en brunabótamatiö, sem er gamalt, á milli 15 og 16 milj. — þs. alþýðu mRmni Alþýðublaðið kemur út að nýju eftir sumarleyfi laugardaginn annan ágúst. Otgáfan verður með sama sniði og áður. Blaðið kemur út 5 daga vikunnar og verður 12 síður að stærð. Blaða- mannaliðið verður það Alþýðublaðið áfram dagblað Kemur út með sama hœtti og áður 2. ágúst sama og áður og starfa níu manns á ritstjórn blaðsins að stjórnmála- ritstjóra og Ijósmyndara meðtöldum. Ritstjórnin hefur þegar hafið vinnu að Síðumúla 11, þar sem ritstjórnarskrifstofur eru til húsa. Eyjólfur K. Sigurjónsson, for- maður Blaðs h.f., sem gefur út Alþýðublaðið, sagði i viðtali við Þjóðviljann i gær, að gengið hefði verið i það að bjarga fjár- hag Alþýðublaðsins og væri rekstur þess nú tryggður um sinn. Vonast væri til þess að blaðið gæti tekið inn Reuter- fjarrita, sem auðvelda myndi erlenda fréttaöflun. Eyjólfur sagði að þetta sumarfri Alþýðu- blaösins hefði komið vel út rekstrarlega, og hugsanlega yrði sami háttur hafður á i framtiöinni. Þá sagði formaður Blaðs h.f. að á árinu 1974 hefðu rekstrarörðugleikar Alþýðu- blaðsins ekki verið óyfirstigan- legir, en i ár hefði reksturinn verið stöðug glima við verð- bólgudrauginn og vaxandi út- gáfukostnað. Við þá lausn á erf- iðleikum blaðsins, sem nú hefði verið fundinn, heföi ekki verið leitað til opinberra aðila, og yrði það ekki gert. Að lokum sagði Eyjólfur að Alþýðublaðið þyrfti á fleiri áskrifendum aö halda og farið væri á stað með útgáfuna á ný i trausti þess að almenningur hefði skilning á þvi að Alþýðu- blaðið ætti sinn sess meðal is- lenskra dagblaða og nauösyn- legt væri að tryggja útkomu þess til þess að viðhalda eðli- Íegri skoðanamyndun i landinu. —ekh. Karamanlis öruggur í sessi 6Tækniþróun í iðnaði Hvalfjörður — myndir og texti

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.