Þjóðviljinn - 21.08.1975, Page 3

Þjóðviljinn - 21.08.1975, Page 3
Fimmtudagur 21. ágúst 1975 WÖÐVIUINN — StDA 3 Sól á Suður- og Vesturlandi en skýjað fyrir norðan og r austan — A morgun snýst það við Veðurguðirnir voru í sólskinsskapi í gær, amk. þeir,sem hafa með Suður- og Vesturland að gera. Þar var alls staðar bjart veður, 15—16 stiga hiti á Suðurlandi en heldur svalara á Vesturlandi. Á Norður- og Austurlandi var hins vegar þrútið loft og viða súld og hitinn fór allt niður i 5—6 stig á annesjum. Við hérna á suðvesturhorninu getum nú sagt að þeir eigi það skilið eftir alla sólina i sumar meðan við mátt- um hirast i eilifri rigningu. Markús Á. Einarsson veður- fræðingur sagði okkur i gær að búist væri við óbreyttu veðri i dag en á föstudaginn þykknaði liklega upp og vindurinn hallaði sér i suðrið. Þá ætti sólin að birtast á ný fyrir norðan... Myndirnar sem fylgja tók Haukur Már i fyrradag en þá var indælis veður þótt sólin glennti sig ekki mikið. Lista- maðurinn var samt við öllu bú- inn og dúðaði sig i úlpu þar sem hann sat og festi vöruskemmur Eimskips á léreftið handan við Rauðárárvikina. Stúlkunum á gæsluvellinum við Vesturgötu þótti hinsvegar ástæðulaust að vera að kappklæða sig. —ÞH Finnsk myndlist í Keflavík Um helgina gefst keflvikingum og þeim sem þangað lcggja leið sina kostur á að kynnast sýnis- horni af finnskri myndlist. Þar sýnir finnsk listakona, Elina Sandström, myndir eftir sig og tvo landa sina. Elina er búsett i Finniandi en bjó um margra ára skeið hér á landi. Hún nam list sina i lista- skóla einum i Helsinki sem nefnist Ateneum. Siðan hefur hún fengist við listmálun og keramik i rúma tvo áratugi. Efnivið i mvndir sinar sækir hún einkum út i náttúruna en einnig fæst hún við mannamyndir. Á sýningunni verða um 15 stærri oliumyndir og fjöldi smámynda. Einnig verða á sýningunni nokkur málverk eftir finnana Juhani Taivaljarvi og Kalervo Konster en þeir munu báðir hafa sýnt verk sin áður hér á landi. Sýningin verður i sýningarsal Iðnaðarmannafélags Suðurnesja að Tjarnargötu 3 en þar verður opið milli kl. 14 og 22 föstudag og laugardag og kl. 16—23 á sunnu- dag. Allar myndirnar á sýning- unni eru til sölu. —ÞH Laugavegur 3 ,augns tunginn9 — en hœtt við að breyta risinu Byggingarnefnd Reykjavíkur- borgar samþykkti 10. júli I vor mcð 3 atkvæðum gegn 2 breyting- ar á húseigninni Laugavegi 3, sem fela m.a. i sér endur- byggingu þaks og glugga hússins. Magnús Skúlason og Gunnar Hansson greiddu atkvæði gegn breytingunum, en áður hafði þjóðminjavörður, Þór Magnús- son, (15. mai) sent álitsgerð til formanns byggingarnefndar að hans beiðni og sagði þar m.a. um húsið: „Mér virðist i fljótu bragði séð að alimikil eftirsjá væri að þvi ef þessu húsi væri breytt á ytra borði, einkum á það við um gluggana, sem gefa húsinu og byggingarstilnum hinn sérstæða blæ, hinar smáu rúður, sem til- heyra svo greinilega byggingar- stilþessa tima.Þess vegna vildi ég leyfa mér að ieggja til að útliti hússins verði ekki breytt, ef ekki er brýn nauðsyn til”. Húsið er reist laust fyrir 1930. Blaðið hafði samband við for- mann hússtjórnar Laugavegs 3, Svavar Jóhannsson, en Búnaðar- bankinn á stærstan hluta i húsinu, og sagði hann, að hætt væri við að breyta þakinu, en óhjákvæmilegt væri að skipta um glugga þar sem gluggalistarnir væru ónýtir og nauðsynlegt að setja tvöfalt gler. Er gert ráð fyrir að þessum við- gerðum og öðrum verði lokið fyrir haustið. Magnús Skúlason sagði i viðtali við blaðið, að gluggana mætti vel endurbyggja og nefndi sem dæmi hús Félags isl. stórkaupmanna þar sem allir gluggar voru færðir i sitt upp- runalega form við endurbyggingu og notaðar til þess gamlar teikningar. Kvaðst hann telja Laugaveg 3 vel byggt hús og al- gerlega óþarft að „augnstinga” húsið enda væru smárúðóttir gluggar á mörgum opinberum stofnúnum, t.d. Borgarskrifstof- unum. Þess má geta að byggingarnefnd hafði áður f jallað um þessar breytingar og þá synjað þeim. þs Bíldudalur: Atvinnulífið komið í eðlilegt horf Eins og sagt var frá i Þjóð- viljanum i fyrri viku var rafmagn til frystihússins á Bíldudal tekið af vegna skulda Boða h.f„ sem var fyrri rekstraraðili hússins, en er nú til gjaldþrotameðferðar. Nú er atvinnulif á Bildudal aftur komið I eðlilegt horf, enda var Rafmagnsveitunum gert samkvæmt tilskipun frá iðnaðar- og orkuráðuneytinu að opna fyrir rafstraum til frystihússins á ný. Allt er hinsvegar á huldu um hvort Rafmagnsveitunum tekst að innheimta 2 miljóna króna skuld Boða h.f. Framkvæmda- stjóri Boða h.f. er erlendis um þessar mundir og hefur dvalist ytra nokkra mánuði. Hér er um að ræða Eyjölf Þorkelsson, sem verið hefur i félagi við Hörð Einarsson og Óttar Ingvason um rækjuverksmiðju á Bildudal. Byggðasjóður rekur nú frysti- húsið á Bildudal til bráðabirgða, en eigandi þess er Fiskveiða- sjóður. Undirbúningur er hafinn á Bildudal að stofnun nýs félags um rekstur hússins. Elina Sandström. Myndin er tekin á sýningu sem hún hélt I aprillok i höfuðborg Lapplands, Royaniemi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.