Þjóðviljinn - 21.08.1975, Side 12
Góð uppskera
undan plasti
Kartöflurnar eru fljótvaxnar
þrátt fyrir slœmt tíðarfar
Hitaveita Suðurnesja:
Framkvœmdir
leyfðar í
Grindavík
Gerðardómur í Svartsengismálinu i október
Fimmtudagur 21. ágúst 1975
Bandaríkjamenn
skjóta upp geimfari
Á að kanna
líf á Mars
KANAVERAL-HÖFÐA 20/8 -
1 kvöld kl. 20 aö islenskum
tima munu bandarikjamenn
senda á loft Marsflaugina
„Vlking 1”, sem á aö reyna aö
komast aö þvi hvort lif I ein-
hverri mynd finnist á plánet-
unni Mars.
Upphaflega átti aö senda
Marsflaugina upp I geiminn
fyrr I þessum mánuöi, en þvl
var tvivegis frestað vegna
vélarbilunar. Samkvæmt
áætluninni á geimflaugin aö
lenda á Mars 4. júli 1976, um
leiö og þess er minnst aö tvær
aldir eru siöan bandaríkja-
menn lýstu yfir sjálfstæði
sinu.
Stranda-
glópur í
Indónesíu
LISSABON 20/8 — Indónesar
komu I veg fyrir aö sérstakur
sendimaður Portúgalsstjórn-
ar, Antonio Soares major,
kæmist til portúgalska hluta
eyjarinnar Timor, til þess að
hann gæti kynnt sér ástandiö
þar. Þar hefur verið mikil
upplausn aö undanförnu eftir
að stjórnmálaflokkur, sem
kraföist algers sjálfstæöis
reyndi aö gripa völdin.
Antonio Soares reyndi aö
komast þangaö frá Indóneslu I
þrjá daga en varö aö gefast
upp. Portúgalar ráöa öðrum
helmingi eyjarinnar Timor, en
indónesar hinum helmingn-
um. Fréttamaður Reuters
skýrir frá þvi aö einnig hafi
indónesar bannaö allar ferðir
fréttamanna til eyjarinnar.
Tugir
farast í
fellibyl
TÓKIO 20/8 — Tala þeirra
sem beöið hafa bana af völd-
um fellibylsins Phillis I Japan
er nú komin upp I 60, tólf er
saknaö og 146 hafa slasast. Er
þetta einn harðasti fellibylur
sem geisað hefur í Japan.
Yfirmenn japönsku lögregl-
unnar sögöu að fellibylurinn,
sem geisaði á suövesturströnd
Japans um helgina, heföi
skemmt eða eyðilegt 1124 hús,
en 28.000 hús hefðu orðiö fyrir
flóðum.
„Já, þetta hefur nú vcriö mitt
sport i 25 ár. Ég hef ræktað
kartöflur I öll þessi ár og vinnan
sem fer I þctta gefur bæöi útivist
og ánægju.”
Þetta sagði Jón Guðmundsson,
slökkviliðsstarfsmaður á Reykja-
víkurflugvelli, þegar hann sýndi
okkur fyrstu uppskeruna i ár.
Þctta voru stórar og fallegar
kartöflur, sem hann ræktar i
Skerjafirði við flugvöllinn.
— Nú hefur viðrað illa til
kartöfluræktar sunnanlands i ár.
Hvernig ferðu að þvi að fram-
kalla svo skjótan oggóðan vöxt?
— Ég er með 2 til 3 hundruð fer-
metra garð og þek hluta hans með
plasti. Undir plastinu vex kartafl-
an miklu hraðar og ég fæ
uppskeruna svo sem þrem vikum
fyrr en venjulega, og fyllilega það
i köldum árum eins og nú. Það má
búast við að ekki verði farið að
taka upp almennt fyrr en ein-
hverntima I september.
— Er ekki erfitt að vera með
plast yfir görðunum?
— Jú, það getur verið það, og
kostnaðarsamt er það, ef breitt er
yfir stór svæði. En sé farið vel
með plastið má nota það nokkur
ár I senn.
— Notarðu einhverjar fleiri að-
ferðir til að bæta uppskeruna?
— Nei, ég nota engin bellibrögð,
en nostra við þetta, og nota mik-
inn áburð, bæði óllfrænan og lif-
rænan. Og set mig til dæmis
aldrei úr færi ef ég næ i gott þang.
Framhald á bls. 10
Verkfall ef
hann verður
árangurslaus
Eins og frá hefur verið
skýrt í blöðum er óánægja
orðin mjög mikil meðal
starfsmanna, er vinna að
undirbúningi fram-
kvæmda við Járnblendi-
verksmiðjuna á Grundar-
tanga. Alla aðstöðu skortir
Mál Hitaveitu Suðurnesja og
Landeigendafélagsins, er heldur
nytjarétt á Svartsengi við
Grindavfk, er nú fyrir gerðar-
dómi.
t gerðardómsákvæðunum sem
báðir aöiiar, stjórn hitaveitunnar
og landeigendafélagið, hafa sam-
þykkt, segir, að nú þegar sé Hita-
veitunni heimilt að hefja fram-
kvæmdir i Grindavík.
Jóhann Einvarðsson bæjar-
stjóri i Keflavik er formaður
stjórnar Hitaveitunnar og tjáði
hann Þjóðviljanum, að ákveðið
hefði verið að gerðardómurinn
lyki störfum i október. Verð það,
sem suðurnesjamenn verða
dæmdir til að greiða landeigend-
um fyrir að veita heitu vatni frá
Svartsengi til Grindavikur,
verður væntanlega ákveðið hlut-
fall af heildarverðinu sem al-
menningur á Suðurnesjum verður
á endanum að greiða eigendum
Kissinger
leggur af stað í
samningaferð
BEIRUT 20/8 — tsraelskar
herflugvélar gerðu f dag
sprengjuárás á stöövar palestfnu-
manna í norðausturhluta
Lfbanons, fáum klukkustundum
áður en Henry Kissinger, utan-
rikisráðherra Bandarikjanna,
átti að leggja af stað I nýja samn-
ingaferð um löndin fyrir botni
Miðjarðarhafs.
Talsmenn israelska hersins i
Tel Aviv sögðu aö flugvélarnar
hefðu gert árás á bækistöðvar
Alþýðuhreyfingarinnar fyrir
frelsun Palestinu PFLP, og hefðu
allar flugvélarnar snúið heilar til
baka. Heimildarmenn I Beirut
staðfestu þessa fregn en vildu
ekki skýra neitt frá staðnum þar
sem árásin var gerð annað en að
hann væri á Baalbeck-svæðinu,
nálægt landamærum Sýrlands.
Þessi árás var refsiaðgerð
Israelsmanna eftir að Israelskir
landamæraverðir höfðu lent I
bardaga við skæruliöa frá PFLP
fyrr I morgun. Þrlr skæruliðar
féllu, og segjast skæruliðar hafa
fellt marga israelsmenn en þeir
fyrir starfsmennina, bæði
svefnskála, salerni og
annað, sem skylt er að
hafa á vinnustöðum, f jarri
þéttbýli.
Verkalýðsfélag Akraness hefur
látið málið til sin taka og verður
fyrir hádegi i dag haldinn fundur
með fulltrúum verktakans og
stjórnar Islenska járnblendi-
félagsins. Verði ekki orðið við
kröfum um úrbætur þegar i stað
hafa verkalýðsfélagiö og önnur
félög, sem hlut eiga að máli,
ákveöið að boða til vinnustöðvun-
ar á Grundartanga.
Svartsengis. Deiluaðilar hafa
komið sér saman um hlutfallstöl-
una, og þvi getur Hitaveitan nú
byrjað að undirbúa útboð vegna
væntanlegra framkvæmda i
Grindavik þótt greiðsla fyrir
heitavatnsnýtinguna sé ekki
ákveðin.
„Það eru þannig likur á að
framkvæmdir verði langt komnar
i Grindavik einhvern tima i
vetur”, sagði Jóhann
Einvarðsson, „og i október
verður gerðardómurinn kominn
og upp úr þvi verður vonandi
hægt að hefja framkvæmdir
annars stðar á Suðurnesjum”.
Gerðardóminn skipa
lagaprófessorarnir Guðmundur
Magnússon og Gaukur Jörunds-
son og Pétur Stefánsson verk-
fræðingur. Lögmaður Hitaveitu
Suðurnesja er Benedikt Blöndal
en lögmaður landeigenda er Jón-
as A. Aðalsteinsson. —GG
vilja ekki viðurkenna að nema
einn hafi fallið.
ísraelsmenn hafa mjög verið á
verði við landamærin að undan-
förnu til að koma I veg fyrir
skæruliðaaðgerðir I sambandi við
komu Kissingers. Oryggislög-
reglumenn frá Bandarikjunum og
tsrael hafa nánast þvi breytt
Jerúsalem i lokað virki til að
tryggja öryggi bandariska utan-
rikisráðherrans, en hann mun
hefja tiu daga ferö sina um
austurlönd nær með komu sinni
til Jerúsalem á morgun.
Málamiðlunartilraun Kissingers
mætir andstöðu bæði i Israel
og arabalöndum. t tsrael
boðuðu stjórnarandstæðingar til
mótmælafundar gegn hvers
konar brottflutningi israelsks
herliðs úr Sinai nema þvi aðeins
að egyptar samþykktu opinbera
friðarsamninga. Hópur manna
braust inn i heimili utanrikisráð-
Framhald á bls. 10
Blaðberar
Þjóðviljinn óskar
eftir blaðberum i eft-
irtalin hverfi:
Höfðahverfi
(Há-, Höföa-, Miö- og
Samtún)
Nökkvavogur
(auk Karfa- og Snekkju-
voga)
Langholtsvegur
(Af leysing vegna
sumarleyfa).
Skipasund
(Af leysing vegna
sumarleyfa).
Þjóðviljinn
Simi 17500
Blaðberar í vetur
Um næstu mánaðamót, ágúst/september,
verða laus nokkur blaðburðarhverfi hjá Þjóð-
viljanum. Það tekur hálfan til einn klukkutima að
bera út i hvert hverfi, svo að þessi vinna hentar
td. skólafólki ágætlega.
Þessi hverfi eru laus eða verða laus um
mánaðamótin:
Nökkvavogur
Drápuhlíð
Þórsgata
Þingholtin
Seltjarnarnes, vesturhluti.
Breiðholt—Fellin (J-Æ)
Laugavegur, neðri hluti
Hverfisgata, neðri hluti.
Vinsamlega hafið samband við afgreiðslu
Þjóðviljans sem fyrst, simi 17500.
Fundur um aðbúnað
á Grundartanga
Bardagar
ísraelsmanna
og araba