Þjóðviljinn - 06.09.1975, Qupperneq 8

Þjóðviljinn - 06.09.1975, Qupperneq 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. september 1975. Kjartan á Loftinu „Svona sýningaraðstöðu hef- ur mér alltaf þótt vanta,” sagði Kjartan Guðjónsson listmálari, sem opnar sýningu á 28 mynd- um á Loftinu að Skólavörðustig 4 laugardaginn 6. september. Kjartan sýnir að þessu sinni aðeins litlar myndir, flestar málaðar á þessu ári, en einar fimm eða sex eru þó gamlar, reyndar allt frá þvi um 1950. Myndirnar eru flestar málaðar með vatnslitum, en stöku krit- armynd hangir þó á veggjum Loftsins. Myndirnar eru allar til sölu og verðið mun vera i réttu hlutfalli við stærð myndanna. Nú er eitt og hálft ár siðan Kjartan sýndi siðast, en þá höfðu liðið 12 ár milli sýninga hjá málaranum. ,,Það er nauðsynlegt að hafa svona sal eins og Loftið. Hér er svo heimilislegt — fólk getur betur gert sér grein fyrir hvern- ig myndirnar fara heima”. Og þú heldur þig við abstrakt- ið? ,,Já, þetta er orðin gamalgró- in aðferð”. Sýning Kjartans Guðjónsson- ar verður opin á laugardaginn frá 14 til 18 en aðra daga á versl- unartima. Sýningin mun standa i tvær vikur. — GG Hringur sýnir pastel- myndir „Þetta eru myndir sem ég hef málað undanfarin 14 ár, en fæst- ar hafa verið til sýnis áður. Sumar eru frummyndir að stærri verkum, sem ég hef þeg- ar sýnt,” sagði Hringur Jóhann- esson listmálari, en hann opnar á laugardaginn sýningu i Boga- sal Þjóðminjasafnsins i pastel- myndum. Myndirnar eru allar til sölu nema tvær og er verði þeirra stillt i hóf, 20—40 þúsund kr. hver mynd. Hringur sagðist hafa unnið mikið i sumar norður i Haga i Þingeyjarsýslu, en þar dvelst hann oft á sumrin. „Þar vinn ég langbest, hef góða vinnustofu og næði. I sumar hef ég unnið 8—10 tima á dag og gert ein 10—12 málverk og um 40 kritarmyndir. Ég geri ráð fyrir að halda stóra sýningu, jafnvel á næsta ári. Ég var bú- inn að sækja um að fá að sýna á Kjarvalsstöðum, en dró mig til baka þegar deilurnar urðu i vet- ur. Ég mun ekki sýna þar, nema einhver breyting verði á gangi mála. Það er óneitanlega hart im§i en það væri synd að segja að Kjarvalsstaðir hafi gert það i sumar.” sagði Hringur. Sýning að ekki skuli vera hægt að hafa eitt gott sýningarhúsnæði sem heldur einhverjum „standard”, hans er opin daglega til 14. sept- ember frá kl. 2—10. Það er verst að hafa ekki islensku áhorfendurna Leikurinn verður þrælerfiður Segja landsliðsmennirnir Landsleikurinn við belga i kvöld: Þetta er munurinn á atrinnu- og áhuga- „Það sem gerði okkur einkar erfitt fyrir var að áhorfendur stuttu sfna menn svo dyggilega f Frakklandi”, sögðu Isl. landsliðs- mennirnir. „Það var sannarlega erfitt að hafa ekki áhorfendurna úr Laugardalnum á leiknum.” Elmar Geirsson sagðist búast viö svipuðum leik og gegn frökk- um. Taldi hann belgana þó eiga betra lið en frakkana. Asgeir Sigurvinsson sagði að belgar ættu tvimælalaust sterkara lið en frakkarnir, en um úrslit leiksins vildi hann ekkert segja. Ég var ekki ánægður með úr- slitin i leiknum við frakka 1-0 hefði verið nær þvi, sem ég hefði getað sætt mig við.” Landsliðið býr sig sem sagt undir erfiðan leik. Andinn var þó góður og í gærkveldi var Ásgeiri Sigurvinssyni afhent gullúr fyrir 25 leikna landsleiki og Jóhannesi Eðvaldssyni var gefin afmælis- gjöf. Slðan var sungiö og leikið á gítar, en margir góðir söngmenn og gitarleikarar eru I landsliðs- hópnum. „Ég sá ekkert, ég heyrði ekk- ert, ég hreyfði bara fæturna”, sagði Karl Þórðarson eftir fyrsta landsleik sinn. Frönsku blöðin skrifa margt um landsleik islendinga og frakka. 1 blöðunum er Asgeir Sigurvinssyni jafnað við Pele sem knattspyrnumanni. íslenska liðið fær góða dóma og þá sérstaklega Asgeir og Arni Stefánsson, markvörður. Belglskur njósnari, sem sá leik- inn I Frakklandi sagði að þeir LIÐIÐ í KVÖLD Það er ekki öfundsvert hlut- verk, sem þeir landsliðsnefnd- armenn eru i sem þurfa að velja liðið fyrir landsleikinn i kvöld. Óvist er hvort þrir fastamanna verði með, hinir fjórir, sem eru á sjúkraskrá munu þó væntanlega leika. Ekki er óliklegt að liðið verði þannig skipað, ef enginn forfallast frekar en nú er: 1 markinu verður Arni Stef- ánsson. Varnarmenn verða þeir Ólafur Sigurvinsson og Jón Pétursson bakverðir og Marteinn og Gisii á miöjunni. Tengiliðir verða þeir Guð- geir og Hörður. Asgeir og Matthias, sem kemur aftur i stað Jóhannesar. Elmar og Teitur verða siðan i framlinunni. Guðgeir og Ásgeir væru stór- hættulegir saman. Ennfremur sagði hann að belgar yrðu að fara að öllu með gát, leikurinn væri ekki unninn fyrirfram. Sterkur orðrómur gengur um það, óstaðfestur að visu, að As- geir verði fyrirliði islenska lands- liðsins I leiknum við belga I kvöld. mönnum Sagði Tony Knapp um leikinn við frakka. — Sjö leikmenn i lœknismeðferð i dag Frá Gunnari Steini Pálssyni, Liege Belgiu. t kvöld fer fram á heimavelii Asgeirs Sigurvinssonar hér I Belgiu leikur tslands og Belgiu i Evrópukeppni landsliða. Hér glima menn við ýmis vandamál 24 stundum fyrir leikinn, hvorki meira né minna en 7 leikmenn eru undir læknishendi og fyrirliðinn Jóhannes Eðvaldsson mun ekki leika með. Jón Pétursson fékk matareitr- un. Guðgeir er með hálsbólgu og hita. Gisli Torfason meiddist og var borinn út af i leiknum við frakka. Þá hafa þeir ólafur Sig- urvinsson, Matthias, Arni Stefánsson, Elmar og Hörður Hilmarsson verið i meðferð hjá læknum I dag vegna minniháttar erfiðleika. Tony Knapp: „Ég get ekki hugsað neitt um hvernig liðið verður. skipað. Vandamálin eru ægileg, og óskemmtilegt að eiga að berjast við landslið, sem talað er um sem sterkasta lið i Evrópu, þegar svo margir eru á sjúkra- Iista. Við getum skipað i 11 manna lið, en þar af eru tveir markmenn.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.