Þjóðviljinn - 06.09.1975, Síða 10
10 ÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 6. september 1975.
Nýtt verð á síld
Yfirnefnd Verölagsráös sjávar-
útvegsins ákvað á fundi i gær
eftirfarandi lágmarksverö á sild
veiddri f reknet til söltunar frá
byrjun reknetaveiða til 15. sept-
ember 1975.
A) Stór sild
(34 cm og stærri),
hvert kg.............kr. 40.50
B) Millistærð
(32 sm til 34 cm),
hvert kg.................30.50
C) Smá slld
(undir 32 cm),
hvertkg..............kr. 14.00
Stærðarflokkun framkvæmist
af Framleiðslueftirliti sjávaraf-
urða.
Verðið er miðað við sildina upp
til hópa komna á flutningstæki við
hlið veiðiskips.
1 yfirnefndinni áttu sæti: Ólafur
Daviðsson, sem var oddamaður
nefndarinnar, Guðmundur Jör-
undsson og Ingólfur Ingólfsson af
hálfu seljenda og Dagbjartur
Einarsson og Margeir Jónsson af
hálfu kaupenda.
Framangreind stærðarflokkun
var samþykkt með fjórum at-
kvæðum gegn atkvæði Margeirs
Jónssonar, en verðið var ákveðið
með atkvæðum oddamanns og
fulltrúa seljenda gegn atkvæðum
fulltrúa kaupenda.
Norrœna húsið:
þorpið til
umrœðu
Að undanförnu hafa orðið all-
miklar umræður um nýfram-
komnar tillögur að nýju skipulagi
Grjótaþorps I Reykjavik. Að
þessu tilefni hafa Norræna húsið
og Torfusamtökin ákveðið að efna
til almenns fundar á morgun,
sunnudaginn 7. sept. kl. 16 um
efnið „VERNDUN GAMALLA
HÚSA OG BORGARHVERFA”.
Á fundinum kynna arkitektarn-
ir Guðmundur Kr. Guðmundsson
og Olafur Sigurðsson tillögu sina
að skipulagi Grjótaþorps.
Hörður Ágústsson, listmálari,
mun halda stutt erindi um tillögu
til húsafriðunar, sem hann gerði
ásamt Þorsteini Gunnarssyni
fyrir Reykjavlkurborg.
Loks fjallar Trausti Valsson,
arkitekt, um verndun og friðun út
frá skipulagslegum sjónarmið-
um. Á eftir gefst tækifæri til
spurninga og umræðna.
Fundarstjóri.verður Thor Vil-
hjálmsson, forseti Bandalags Is-
lenskra listamanna. Fundurinn
verður í Norræna húsinu.
Breska
alþýðusambandið
Ekki verði
fyrir
verk-
smiðju-
tökur
Blackpool 2/9 reuter — Þing
breska alþýðusambandsins, TUC,
hefur krafist þess að hætt verði að
sækja til saka verkamenn sem
taka verksmiðjur á sitt vald.
Á undanförnum árum hefur æ
oftar komið fyrir að verkamenn
yfirtaki vinnustaði stna og i
mörgum tilvikum halda þeir
framleiðslunni áfram fyrir eigin
reikning. Eru þessar aðgerðir
oftast vörn verkamanna gegn
ákvörðunum eigenda verksmiðja
um að leggja rekstur þeirra niður
með þvi fororði að hann sé ekki
lengur arðbær.
Það var fulltrúi stéttarfélags
hönnuða og tækniteiknara sem
bar þessa tillögu fram. Sagði
hann að atvinnurekendur teldu
sig ævinlega hafa rétt til að hætta
rekstri ef hann gæfi ekki af sér
nægan gróða að þeirra mati. —
Þeir sýna of litla virðingu framtlð
fólkinu, staðnum, iðnaðinum og
þjóðinni, sagði hann.
Fyrir skömmu voru verkamenn
I Hull kærðir fyrir verksmiðju-
töku og fékk eigandinn þvi
framgengt að loka fyrirtækinu. I
öðru tilviki knúðu verkamenn
rlkisstjórnina til að veita fé til að
stofna samvinnufélag verka-
manna um rekstur mótorhjóla-
verksmiðju sem Iýst hafði verið
gjaldþrota svo unnt reyndist að
haiHa rekstri hennar áfram.
Dögg
spilar úti
Hljómsveitin Dögg heldur úti-
hijómleika I Austurstræti á morg-
un, sunnudag.
Dögg mun þenja strengina frá
kiukkan 15 til 16.
Þrir
fræðslu-
stj ór ar
settir til
eins árs
Stöður fræðslustjóra i Austur-
lands-, Suðurlands- og Vestur-
landsumdæmum samkvæmt
grunnskólalögum voru fyrir
nokkru auglýstar lausar til um-
sóknar. Að fengnum tiilögum
þeirra fræðsluráða, sem hlut eiga
að máli hefur ráðuneytið sett i
stöðumar sem hér segir:
Jón R. Hjálmarsson, skóla-
stjóri Héraðsskólans að Skógum
undir Eyjafjöllum hefur verið
settur fræðslustjóri I Suðurlands-
umdæmi, en það umdæmi nær
yfir Vestur-Skaftafellssýslu,
Vestmannaeyjar, Rangárvalla-
sýslu og Árnessýslu.
2) Kristján Ingólfsson, náms-
stjóri, hefur verið settur fræðslu-
stjóri I Austurlandsumdæmi, en
það nær yfir Norður-Múlasýslu,
Seyðisfjarðarkaupstað, Suður-
Múlasýslu, Neskaupstað, Eski-
fjarðarkaupstað og Austur-
Skaftafellssýslu.
3) Snorri Þorsteinsson, kenn-
ari, hefur verið settur fræðslu-
stjóri' i Vesturlandsumdæmi, en
það nær yfir Borgarfjarðarsýslu,
Akraneskaupstað, Mýrasýslu,
Snæfellsnes- og Hnappadalssýslu
og Dalasýslu.
Kínverjar
hrósuðu
Rússum
HONG KONG 3/9 reuterKInverj-
ar héldu það hátiðlegt I dag að 30
ár voru liðin siðan japanir voru
sigraðir á meginlandi Klna. Hrós-
að var framgöngu sovéska hers-
ins á striðsárunum en um leið
ráðist harkalega á núverandi
stjórnendur Sovétrikjanna og
þeir ásakaðir fyrir „sósial-
imperlalisma”.
Alusuisse
Framhald af bls. 1.
Austurlandi, og reyndar þóttí
ekki ástæða til að gera forsvars-
mönnum raforkumála á Austur-
landi viövart um komu sendi-
manna auðhringsins. Miklar
vegaframkvæmdir standa nú yfir
á Fljótsdalsheiði eystra, og fer
ekki milli mála, að þar er um
varanlegar framkvæmdir að
ræða, en ekki aðeins I tengslum
við rannsóknir.
Vilja seilast lengra
Þær fréttir sem hér eru birtar
um þátt sendimanna hins erlenda
auðhrings i undirbúningi virkjana
á Austurlandi verða óhjákvæmi-
lega til að minna á áform, sem
skýrt var frá I Þjóöviljanum fyrir
nokkrum mánuðum.
Það er sem sagt vitað, að full-
trúar auðhringsins Alu-Suisse
hafa óskað eftir þvl við islensku
rikisstjórnina að hringurinn þurfi
ekki lengur að láta sér nægja að
eiga verksmiðju (eða verk-
smiðjur) á Islandi, heldur verði
hann einnig beinn aðili að
virkjunum hér á landi. Beiðni
auðhringsins felur i sér, að is
lenska rikið leggi fram i eitt skipti
fyrir öll mjög verulegan hluta af
öllu virkjanlegu vatnsafli á Is-
landi sem framlag i sameiginlegt
fyrirtæki með hringnum, en
hringurinn ieggi fram fjármagn
og námuréttindi.
Þyrluflug sendimanna
auðhringsins milli hugsanlegra
virkjunarstaða á Austurlandi
kann þvi að vera upphafið að öðru
og meira.
Og timabært er að Gunnar
Thoroddsen iðnaðarráðherra
svari þvi, hvers vegna hann telur
að ekki sé lengur hægt að láta is-
lenska starfsmenn orkumála
annast virkjunarrannsóknir hér á
landi óstudda, eins og hingað til?
Njósnir
Framhald af bls. 1.
milli togaraeigenda og ráðuneytis
og bréf frá skipstjóranum á v-
þýska eftirlitsskipinu Meerkatze.
I þessum skjölum kemur meðal
annars fram að Sambandsrlkið
þýska greiðir allan herkostnað
|hverju nafni sem hann nefnist
i fyrir þýska togara I islenskri
ílandhelgi og gerir enn.
Þá kom fram að skipstjórnar-
menn á v-þýsku eftirlitsskipunum
beittu sér fyrir náinni samvinnu
við yfirmenn á bresku herskipun-
um I siðasta landhelgisstrlði og
kröfðust Ihlutunar v-þýska sjó-
hersins.
Vestur-Þjóðverjar eru eina
: erlenda þjóðin sem enn heldur
uppi veiðiþjófnaði innan 50 mllna
llandhelgi. Og það var v-þýska
Istjórnin sem fyrir tilstilli
auðhringa I V-þýskalandi knúði I
gegn viðskiptaþvinganir gegn
íslandi innan Efnahagsbandalags
Evrópu.
nn ••
1 opum
Framhald af bls. 1.
árið 1974 til þessara landa var Is-
varinn fiskur, að verðmæti 1794
miljónir. Tollur af honum er nú
15%, en þó ekki nema 8% af
karfa, sem er nokkur hluti þessa
útflutnings. Þótt við semdum um
veiðirétt handa EBE rikjum inn-
an fiskveiðimarkanna félli þessi
tollur ekki alveg niður heldur yrði
3,7% af öðrum fiski en karfa, en
tollur af honum yrði 2%.
Annar mestur útflutningur
sjávarafurða var útflutningur
fiskimjöls. Af þvi er greiddur 2%
tollur, og mun hann falla niður ef
samið verður um veiðar handa
EBE rikjum, en mjöl var flutt til
þessara landa fyrir 1253 miljónir
á siðasta ári. Þessir tveir liðir út-
fluttra sjávarafurða gerðu þannig
meira en helming alls útflutnings
til þessara landa á siðasta ári og
hagnaður af niðurfellingu tolla af
þeim er óverulegur.
Af frystum flökum er nú
greiddur 15% tollur, af rækju 20%
tollur, af kaviar 30% toílur, og
mun tollur af þessum vöruflokk-
um falla niður með öllu ef við
semjum við EBE riki. Hins vegar
er tollur af niðursuðuvörum nú
20% en yrði 10% þrátt fyrir það að
við veittum EBE rikjunum veiði-
rétt innan fiskveiðilögsögunnar.
Þessir slðasttöldu vöruflokkar
vega ekki mikið I heildarút-
flutningi, auk þess sem tollur
verður ekki felldur niður af þeim
öllum. Reikna má með að meðal-
talstollur allra útfluttra sjávaraf-
urða til EBE rikja sem falla
mundi niður við það að semja við
þau um veiðirétt innan fiskveiði-
markanna geti numið 10% af
heildarútfiutningi þessara vöru-
flokka til fyrrtaldra landa. Það
þýðir með öðrum orðum 600 milj-
ón króna hagnað í tollafrfðindum
á móti þvi að hleypa stórvirkustu
veiðitækjum þessar landa inn
fyrir fiskveiðimörkin. Og með
enn öðrum orðum: 3 miijónir
fyrir hverja milu nýrrar fisk-
veiðilögsögu!
Getur slikur og þvilikur kaup-
skapur vart talisthagkvæmur.
—úþ
- - .
SKIPAUTGCRB RÍKISINS
M/s Esja
fer frá Reykjavlk föstudaginn
12. þm. vestur um land I hring-
ferð. Vörumóttaka miðviku-
dag og fimmtudag til Vest-
fjarðahafna, Norðurfjarðar,
Sigluf jarðar, Ólafsfjarðar,
Akureyrar, Húsavlkur,
Raufarhafnar, Þórshafnar,
Bakkafjarðar, Vopnafjarðar
og Borgarfjarðar eystra.
M/s Baldur
fer frá Reykjavlk I næstu viku
til Breiðafjaröarhafna. Vöru-
móttaka mánudag og þriðju-
dag.
Nesprestakall
Stuðningsmenn sr. Guðmundar óskars
Ólafssonar hafa opnað skrifstofu i
KR-heimilinu, Frostaskjóli.
Opið kl. 5-10. Simar 18336 og 18337. Upplýs-
ingar um kjörskrá o.fl. liggja þar frammi.
Frá Digranesskóla
Nemendur komi i skólann mánudaginn 8.
sept. sem hér segir:
Böm fædd 1963 og 64 (11 og 12 ára) kl. 9
Böm fædd 1965 og 66 (9 og 10 ára) kl. 11
Böm fædd 1967 og 68 (7 og 8 ára) kl. 13.
Skólastjóri
KAUPMENN —
INNKAUPASTJÓRAR
ISLENZKUR
FATNAÐUR
Haustkaupstefna (SLENZKS FATNAÐAR
verður haldin að Kristalsal Hótel Loftleiða 7.-
9. september n.k.
Kaupstéfnan opnar kl. 14:00 sunnudaginn 7.
september og verður opin frá kl. 10:00-18:00
mánudag og þriðjudag 8. og 9. september.
Tískusýningar kl. 14:00 alla daga.
Komið og kynnið ykkur haust- og vetrartísku
íslenskra fataframleiðenda.
fslenskur fatnaður
HÓTEL LOFTLEIÐIP,
Atvinna ■ Atvinna
Lausar stöður
Stöður fræðslustjóra I Norðurlandsumdæmi vestra og
Norðurlandsumdæmi eystra samkvæmt lögum nr.
63/1974, um grunnskóla, eru lausar til umsóknar.
Laun samkvæmt launakerfi opinberra starfsmanna.
Umsóknir, ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil
sendist menntamálaráðuneytinu fyrir 1. október n.k.
Menntamálaráðuneytið
5. sept. 1975.
Grjóta