Þjóðviljinn - 10.09.1975, Page 2
2 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 10. september 1975.
HORN
í SÍÐU
Ofstœki
Ofstæki er undarleg kennd.
Svo virðist, sem ofstæki byrji
einhvern veginn þannig, að
sjónhringur manna skerðist,
svo heyrnarskyn og siöan hvert
skynsviðið af öðru. Loks er engu
likara en þeir, sem ofstæki á
háu stigi eru haldnir, gangi um
sjónlausir og heyrnarlausir i
glampandi sól og vaði á hvað-
eina. Allt sem fyrir slikum verð-
ur er þá jafnan á röngum stað,
en þeir á réttri leið.
Þannig virðist komið fyrir
þeim vesalingsmanni, sem las
yfir þjóðinni i útvarpið á mánu-
dagskvöld i þættinum um dag-
inn og veginn, og undarleg
stefna er það hjá útvarpinu, að
visu ekki nýupptekin, að lita á
sig sem vettvang lækninga fyrir
menn, sem slikri sýki eru haldn-
ir, sem ofstæki er. Ef útvarpið
telur sér skylt að veita sjúkum
liö, þá væri það áreiðanlega öll-
um fyrir bestu, að sú aðstoð yrði
veitt i formi greiðslna til
hjúkrunarhæla, sem reyndu eft-
ir læknisfræðilegum aðferðum
að veita slikum vesalingum ein-
hverja bót.
Nú er ekki svo, að maður
þessi geti talist með öllu
óábyrgur gerða sinna og orða.
Hér er á ferðinni einn af bæjar-
fulltrúum Sjálfstæðisflokksins i
hinum nýja kaupstað, Sel-
tjarnarneskaupstað. Þvi ætti að
vera enn meira áriðandi að
hann kæmist sem fyrst undir
læknis hendur, þvi ef til vill
mætti ráða bót á ofstæki hans og
ekki með öllu útilokað að hann
gæti þá orðið nýtur maður, og
einhverjum til gagns og jafnvel
gleði.
Það var sama hvar maður
þessi bar niður i máli sinu, jafn-
an voru sjúkdómseinkennin
augljós.
Verslunarstéttin, en henni
tilheyrir sjúklingur þessi, átti
að hætta að auglýsa i Þjóð-
viljanum vegna þess að Þjóð-
viljinn vilji alla þá stétt feiga!
Guð átti að hætta að lita til
með sovétmönnum vegna þess
að öllum kristnum mönnum þar
eystra væri stungið i tugthús!
Sami guð átti svo að veita
sjálfstæðismönnum sérlegan
frið vegna þess að þeir bera svo
mikla umhyggju fyrir öldruðu
fólki!
Þetta sagði maðurinn vegna
þess að hann var svo mikill
frelsisunnandi að eigin áliti.
Nú er það svo, að aldrei hefur
Þjóðviljinn haldið þvi fram, að
verslunarstéttin væri best kom-
in dauð, fólk tugthúsað austur i
Sovét fyrir það að trúa á guð
almáttugan né heldur, að sjálf-
stæðismenn hafi borið umtals-
verða umhyggju fyrir öldruðu
fólki.
Hins vegar eru staðreyndir,
sem engu skipta svo sjúkan
mann þær, að Þjóðviljinn hefur
bent á það oftar en einu sinni og
oftar en tvisvar, að
kaupmannastéttin og þá sér i
lagi heildsalastéttin sé allt of
fjölmenn hérlendis og mun
væntanlega halda áfram að
senda á það i náinni framtið ef
ekki rætist úr. Guðstrú með öll-
um afbrigðum hennar stendur
undarlega sterkum fótum i
Sovét, og innan landamerkja
þeirra eru t.d. einhver fjöl-
mennustu söfnuðir Votta
Jehova sem fyrirfinnast með
nokkurri þjóð svo undarlegt
sem það er. Heldur hefur Sjálf-
stæðisflokkurinn ekki borið
neina sérstaka umhyggju fyrir
öldruðum, og mætti sá sjúki,
þegar honum fer að liða skár,
lita til baráttu fyrir lifeyri fyrir
aldraða, baráttu fyrir löggjöf
um elliheimili og fl. og fl.. Ef
hins vegar heilsa hans tekur
ekki nógu skjótum framförum,
og honum ekki treystandi að lita
nokkur ár aftur i timann til þess
að kynna sér frammistöðu
flokksmanna sinna i ofan-
greindum málum, ætti honum
að vera i lófa lagið að lita til
höfuðborgarinnar, eins og hún
býr að öldruðum i dag. Þar ráða
flokksmenn hans einir og hafa
gert i meira en hálfa öld. Ekki
veit ég til þess að borgin reki
mörg né merkileg heimili fyrir
aldraða, og sannast sagna
minnist ég þess að hafa heyrt
borgarstjórann og pótintáta
hans hvern af öðrum halda um
það ræður á borgarstjórnar-
fundi i vor, að litið yrði hægt að
gera i ma'lefnum gamalla
borgarbúa þetta árið.
Hvað svo með Seltjarnarnes?
Er'elliheimili þar?
Það getur verið sárt að ganga
á veggi, einkum og sér i lagi i
glampandi sól þegar samferða-
mennirnir ganga með opin augu
fram hjá eins og leið liggur. En
það er lika sárt fyrir samferða-
mennina að sjá slikar ágöngur.
Þvi væri það allra hagur, að
læknis verði leitað, og það fljótt.
— úþ.
Margir í mat
í Fannahlíð
Maður, kunnugur húsakynnum
i félagsheimilinu Fannahlið, sem
notað verður sem mötuneyti fyrir
verkamenn á Grundartanga, vill
koma eftirfarandi á framfæri:
„Þjóðviljinn sagði nýlega að 30
manns gætu matast i Fannahlið.
Ég er hærddur um að núll hafi
fallið aftan af þeirri tölu, þvi að á
pallinum hér einum er auðveld-
lega hægt að koma fyrir 40, og i
sjálfum salnum er lafhægt að
koma fyrir á annað hundrað
manna i mat”.
Fyrirspurn til
Sjómannadags-
ráðs og
stjórnar DAS
Velunnari DAS spyr:
Er það rétt, sem flýgur fyrir að
til standi að ráða Grétar Hjartar-
son, stýrimann hjá Eimskipa-
félaginu og flokkssmala Sjálf-
stæðisflokksins hjá þvi fyrirtæki,
til þess að verða forstjóri fyrir
nýja DAS-heimilinu, sem risa á
suður i Hafnarfirði, og að þetta
eigi að gerast án auglýsingar?
Gamalt nautakjöt
á boðstólum
nœstu árin?
Páll Helgason hringdi:
„Hvernig stendur á þvi, að
Framleiðsluráð landbúnaðarins
getur boðið lækkað verð á nauta-
kjöti þessa dagana? Hver er til-
gangurinn raunverulega?
Hvernig kemur þessi kjötverðs-
lækkun almenningi til góða? Ég
þekki fáa sem geta keypt hálfa
eða heila skrokka af þessu árs
gamla kjöti fyrir þetta verð.
Enda stendur ekki til að við kaup-
um kjötið, heldur eru það veit-
ingahúsin sem munu kaupa upp
þessi 200 tonn af nautakjöti. Siðan
bjóða veitingamenn fólki upp á
gamalt nautakjöt næstu árin og
kalla það fyrsta flokks”'.
Nokkur misbrestur
á innheimtu orlofsfjár
— Þetta tiltekna fyrirtæki hef-
ur ekki staðið sig með orlofs-
greiðslur, sagði Hans Ólafsson
hjá Pósti og síma. Sagði Hans að
fyrirtæki þetta skuldaði einhverj-
um starfsmanna sinna orlof fyrir
árin 1973 ’74 og ’75.
Fyrirtækin standa sig mjög
misvel í greiðslum orlofsfjár, en
mestur hluti þeirra stendur þó i
skilum með greiðslurnar. Um 30
innheimtumál eru nú i gangi hjá
Pósti og si'ma, en einhverjum
þeirra mun vera lokið.
Fyrirtæki það, sem að ofan
greinir er útgerðarfyrirtæki, og
er um að ræða orlof sjómanna,
sem á togara þess hafa starfað.
Einn sjómanna þeirra, sem hlut
eiga að máli hringdi til blaðsins
og sagði að sér kæmi það undar-
lega fyrir sjónir, að heyra það nú,
að gengi fyrirtækisins væri allt i
einu slikt, að það hygðist kaupa
annan togara, að visu með öðru
fyrirtæki, en það hefði til skamms
tima veriðenn bágar statt en það greiða honum orlof allt frá árinu
fyrirtæki, sem hann hafði unnið 1973.
hjá og ckki hafði haft fé til að ' —úþ
Auglýsing
Auglýst er laus til umsóknar staða ritara
við Skattstofu Austurlandsumdæmis
Egilsstöðum. Laun skv. kjarasamningi
BSRB og fjármálaráðherra frá 15. des.
1973. Staðan veitist frá 1. október nk.
Umsóknir um menntun og fyrri störf
sendist Skattstofu Austurlandsumdæmis,
Egilsstöðum, fyrir 20. sept. nk.
Fjármálaráðuneytið