Þjóðviljinn - 10.09.1975, Blaðsíða 10

Þjóðviljinn - 10.09.1975, Blaðsíða 10
10 ÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 10. september 1975. Barnamúsíkskóli Reykjavíkur Breiðholtsútibú, annað starfsár Breiðholtsibúar athugið: Barnamúsikskólinn mun starfrækja útibú i Fellahelli i vetur fyrir 6 og 7 ára börn i Breiðholtshverfi. Athugið að aðeins verða tekin 6 og 7 ára börn, ekki eldri. Innritun væntanlegra nemenda fer fram i Iðnskólahúsinu við Skólavörðuholt, inn- gangur frá Vitastig, 5. hæð, dagana 11.—13. september (fimmtudag, föstudag og laugardag) kl. 2—6 siðdegis. Hafið með ykkur stundaskrá barnanna úr barnaskól- anum. Einnig er innritað i sima 28477 á sama tima. Athugið einnig, að nokkur 7 ára börn geta enn innritast i stofnskólann i Iðnskólahús- inu sömu daga og á sama tima. Skólastjóri. Atvinna ■ Atvinna Laus staða Staða aðalbókara við embætti tollstjórans i Reykjavik er laus til umsóknar. Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna rikisins. Umsóknir um stöðuna, ásamt upplýsingum um menntun og starfsferil, skulu sendar ráðuneytinu fyrir 10. októ- ber. Fjármálaráðuneytið, 9. sept. 1975. |1| Félagsráðgjafi Staða félagsráðgjafa við Borgarspitalann er laus til umsóknar. Laun samkvæmt kjarasamningi borgar- stofnana. Umsóknir, ásamt upplýsingum um aldur, menntun og fyrri störf sendist Borgarspitalanum fyrir 25. sept. 1975. Upplýsingar um stöðuna veitir yfirlæknir Geðdeildar, Karl Strand. Reykjavik, 9. sept. 1975. Stjórn sjúkrastofnana Reykjavíkurborg- ar. Störf á teiknistofu Rafmagnsveita Reykjavikur óskar eftir að ráða starfsfólk i eftirtalin störf á teikni- stofu: 1. Starf við kortavinnu, innfærslu á kort o.fl. 2. Starf tækniteiknara. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar um störfin fást á skrifstofu Rafmagnsveit- unnar, Hafnarhúsinu, 4. hæð. Umsóknar- frestur er til 18. september 1975. Rafmagnsveita Reykjavikur Minning Anna Sigríður Sigurjónsdóttir Fædd 6. ágúst 1914 — dáin 3. september 1975 Anna, min elskulega mágkona er látin, 61 árs að aldri. Það er ekki hár aldur i dag og hér átti lika i hlut sérlega ungleg kona, ekki bara i útliti heldur einnig i andanum. Það þýðir ekki að hana hafi skort lifsreynslu eða þroska, hvorttveggja hafði hún i rikum mæli. Þegar ég kynntist henni fyrir réttum 40 árum var hún, þá 21 árs, að flytja búferlum til Heykjavikur frá Vopnafirði ásamt eiginmanni sinum, Krist- jáni Fr. Guðmundssyni með elsta son sinn á þriðja ári á handleggn- um, bar þriðja barn sitt undir belti og búin að missa dreng á fyrsta ári sem var þar á milli. Móðir min tók á móti þeim og þau voru kærkomnir gestir á heimili okkar að Bergþórugötu 18. Ekki voru húsakynnin stór, aðeins tvö herbergi og eldhús. Við vorum 7 systkinin fyrir heima þegar Kristján hálfbróðir kom með fjöl- skyldu sina til okkar. Faðir okkar hafði látist árið áður, en móðir min átti hjartarúm og þess vegna var lika húsrúm. Kristján kom suður i atvinnu- leit og honum tókst fljótlega að finna sér atvinnu og húsnæði, á Stokkseyri til að byrja með. Þar bjuggu þau i 1 ár, en siðan fluttu þau aftur til Reykjavikur og hafa búið hér siðan. Mér fannst frá fyrstu fundum okkar Onnu að ég hefði eignast eina góða systur til viðbótar þeim sem fyrir voru og hefur það haldist óbreytt i þessi 40 ár. Anna fæddist 6. ágúst 1914 að Skálum i Vopnafirði, dóttir hjón- anna Birgittu Sveinsdóttur og Sigurjóns Gunnlaugssonar út- vegsbónda. Hún ólst upp i föður- húsum ásamt 8 systkinum. Með önnueru fjögur systkinanna látin en eftir lifa Guðni leigubilstjóri i Reykjavik, Sigurður sjómaður i Vestmannaeyjum, Helga hús- móðir á Akureyri, Guðrún hús- móðir 1 Neskaupstað og Kristin i Vopnafirði. Anna og Kristján eignuðust 6 börn, fimm þeirra komust upp og búa i Reykjavik og Kópavogi. Þau eru: Birgir verkstjóri i Norðurstjörnunni i Hafnarfirði, giftur Elinu Ellertsdóttur og eiga þau fimm börn, Agatha, gift Kristjáni Halldórssyni verkstjóra I Osta- og smjörsölunni, þau eiga 2börn, Bóas eigandi Blómahall- arinnar, giftur Eddu Kristjáns- dóttur, þau eiga 2 börn, Sigurjón, slökkviliðsmaður i Reykjavik, giftur Mattinu Sigurðardóttur, þau eiga 3 börn, og yngstur er Friðfinnur eigandi Blómastofu Friðfinns, hann á eina dóttur. Allur þessi hópur elskaði hana og virti, enda hafði hún unnið til þess. Þau voru hennar heimur, hún helgaði þeim alla sina ást og alla sina krafta. Þar fyrir utan fylgdist Anna vel með þvi sem var að gerast i þjóðmálunum og hún var bókhneigð kona, las mik- ið seinni árin, einnig hafði hún mikið yndi af músik. Hún kunni lika vel að taka þátt i annarra kjörum, bæði á gleðistundum og eins i erfiðleikum. Ef eitthvað íþróttir Framhald af bls 8. meira en litið að þegar sumir landsliðsmenn okkar eru að meira eða minna leyti að hug- leiða að leggja knattspyrnuna á hilluna tafarlaust. Menn sem standa á hátindi ferils sins hugsa ekki þannig nema á- standið jaðri við að vera óþol- andi. —gsp Pipulagnir , ij Nýlagnir, breytingar, | hitaveitutengingar. ■] Simi 36929 (milli kl. ; 12 og 1 og eftir 7 á kvöldin). bjátaði á hafði hún alltaf lag á að hressa mann upp. Það er stór hópur vina og vandamanna sem saknar þess að þau hjónin skyldu ekki njóta þess lengur að búa i litla húsinu þeirra með stóra fallega garðinum að Njátsgötu 56, þar sem þau höfðu nýlega búið svo fallega um sig, en það átti ekki fyrir þeim að liggja. Ég og fjölskylda min þakka henni allar okkar samverustundir og sendi Kristjáni og allri hans fjölskyldu innilegar samúðar- kveðjur i þeirra miklu sorg. Sigríður E. Guðmundsdóttir Miðstöövarketill óskast 30—40 fermetra ketill ásamt tilheyrandi umbúnaði. Tilboð berist til Verkfræði- og teiknistofunnar s.f., Akranesi, Heiðar- braut 40, simi 93-1785 og 93-1085. Norska sendiráðið Tilboð óskast i að reisa og fullgera skrif- stofu- og ibúðarhús fyrir norska sendiráð- ið, að Fjólugötu 17, Reykjavik. Verklok skulu vera vorið 1977. Otboðsgögn verða afhent á skrifstofu vorri, gegn 10.000 kr. skilatryggingu. Tilboðin verða opnuð á sama stað þ. 8. okt. 1975 kl. 11.00 f.h. INNKAUPASTOFNUN RÍKISINS BORGARTÚNI 7 SÍMI 26844 ENSKAN Kennslan í hinum vinsælu enskunám skeiðum fyrir fullorðna hefsf mánu dag 22. sepfember. Byrjendaf lokkar Framhaldsf lokkar Samtalsflokkar hjá Englendingum Ferðalög Smásögur Bygging málsins Verzlunarenska Síðdegistímar — kvöldtimar, sími 10004 (kl. 1-7 e.h.) Málaskólinn MÍMIR Brautarholti 4 Námskeið fyrir verðandi iðnaðarmenn Menntamálaráöuneytiö hefur ákveöið aö halda námskeið til undirbúnings iðnnáms fyrir þá sem ekki hafa tilskilda menntun, en eru orðnir 18 ára gamlir. Kennslugreinar veröa: islenska, danska, enska, stæröfræði. Kenndar veröa 30stundir á viku. Námskeiöiö verður hald- ið I Vöröuskóla I Reykjavik (Gagnfræðaskóla Austurbæj- ar) og hefst 1. okt. n.k. og lýkur um miðjan desember. Tekið verður á móti umsóknum I skólanum fimmtudaginn 11. og föstudaginn 12. september klukkan 9—12 og 5—7 sið- degis. Þeir sem ekki geta komið i skólann á þessum tima skulu láta innrita sig i sima 13745. Menntamálaráðuneytið.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.