Þjóðviljinn - 10.10.1975, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 10.10.1975, Qupperneq 10
JO SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Föstudagur 10. október 1975. 60 kínverskir loftfimleika- menn œtla að syngja á islensku í Laugardalshöll! og leika sinar frábœru listir á fjórum sýningum hérlendis auk þess sem þeir heimsœkja vinnustaði Þaö er svo þröngt i Kina aö þar veröur aö gjörnýta farartækin! Menningar- og fræðslusamband alþýðu Félagsmálaskóli alþýðu tekur til starfa 2. nóvember I Ölfusborg- um. Skólinn starfar I 2 vikur, frá 2. nóvember til 15. nóvem- ber. Námsstarfið fer fram I fyrirlestrum hópstarfi og fi jálsum umræöum og stendur flesta daga frá kl. 9.00—18.00. Auk þess verða listkynningar og umræður um menningarmál. Skólavist er ætluð meðlimum verkalýösfélaganna og geta nemendur orðið 18 alls. Námsstjóri verður Bolli B. Thoroddsen. Umsókn um skólavist þarf að berast skrif- stofu MFA fyrir 20. október. Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu MFA, Laugavegi 18 VI. hæð simi 26425. RÍKISSPÍTALARNIKt lausar stöður LANDSPÍTALINN EÁÐSKONA OG AÐSTOÐAR- RÁÐSKONA óskast til starfa i borð- stofu spitalans. Húsmæðrakennara- menntun æskileg i stöðu ráðskonu eða önnur jafn góð menntun. Umsóknir um stöðurnar, er greini frá aldri, menntun og fyrri störfum, óskst sendar stjórnarnefnd rikis- spitalanna, Eiriksgötu 5, fyrir 23. október n.k. Reykjavik, 8.10. 1975. SKRIFSTOFA RÍKISSPÍTALANNA EIRÍKSGÖTU 5, SÍM111765 í næstu viku kemur hingað til lands 60 manna hópur f jölleikafólks frá Kína, sem verið hefur á sýningaf erðalagi um Norðurlöndin. Hafa þeir sýnt í Finnlandi, Sviþjóð, Noregi og Danmörku og enda þeir siðan ferð sína hér á Islandi. Fyrirhugað var að halda héðan til Spánar og sýna þar víða um land en hætt var við þá ráðagerð vegna þess, að hinar umdeildu aftökur þar áttu sér stað. Hefur öllum sýningum flokksins á Spáni verið aflýst. Kinverjar munu sýna hér á landi fjórum sinnum auk þess, sem þeir munu e.t.v. heimsækja vinnustaði og bregða þar á leik. Sýnt verður laugardag og sunnu- dag um þar næstu helgi og siðan á þriðjudags- og miðvikudagskvöld i þar næstu viku. Miðaverð er 800 krónur i stúku og 500 i stæði Hver sýning stendur i hátt á þriðja tima og eru dagskráratriði yfir tuttugu talsins. Kinverjar koma hingað á vegum Iþróttabandalags Reykjavikur og Kinversk- Islenska Menningarfélagsins. Leikin verður hefðbundin kin- versk hljómlist með sýningar- atriðum og mestmegnis notuð þarlensk ihljióðfæri. Auk þess hyggjast kinverjarnir leika islensk þjóðlög og meira að segja taka eitt eða tvö islensk lög og syngja þau á kjarnyrtri islensku!!! Flokkurinn, sem álitinn er einn sá besti sem kinverjar eiga, kemur hingað með tæplega sjö tonn af áhöldum og er ekki svo litið fyrirtæki að taka á móti þessum stóra hópi og farangri hér. Kinverska sjónvarpið sendi menn i þessa för og er að vinna heimildarkvikmynd um ferð flokksins þannig að ekki er ólik- legtað okkar ágæta iþróttahöll og umhverfi höfuðstaðarins verði á skjánum i Kina, fyrir framan hundruð miljóna sjónvarps- áhugamanna þar i landi. Loftfimleikamenn i Kina hafa á undanförnum rúmlega tuttugu árum heimsótt reglulega verk- smiðjur, námur, þorp og herbúðir i Kina. Mikil áhersla er lögð á slikar heimsóknir þar i landi og munu þeir hafa hug á að lita inn á vinnustaði hér. —gsp Ármannsfellsmálið Bréfið ekki komið til Sakadóms! v Bréf borgarfulltrúa Alþýðu- bandalagsins til Saksóknara, þar sem farið var fram á, að i sambandi við rannsókn hins svokallaða Ármannsfells- máls, yrðu og rannsakaðar aðrar lóðaúthlutanir borgar- innar á byggingatima Sjálf- stæðishússins og hugsanlegt samband milli framlaga i byggingasjóð hússins og lóðaveitinga, hefur ekki enn borist Sakadómi, þrátt fyrir það að rannsókn Ármanns- fellsmálsins fyrir Sakadómi sé ,,vel á veg komin,” eins og Erla Jónsdóttir, sakadómari orðaði það i gær. Astæðan fyrir þvi að bréfið er ekki enn komið i hendur Sakadóms mun vera sú, að saksóknari er i útlandinu, og svo virðist, sem enginn gegni starfi hans þá hann er fjar- verandi. úþ SNJÓFLÓÐA- VARNIR í blaðinu i gær var birt frétt um snjóflóðavarnir i Neskaupstað. Hún var tekin úr vikuritinu „Austurlandi” og hafði birst þar sem fréttatilkynning i siðustu viku. Við lestur fréttarinnar þarf þvi að taka tillit til þess að tima- tilvisanir eiga við næstliðna viku. Minning: Jón Pétursson F. 11.11. 1906 - D. 25.9. 1975 A laugardag var til moldar bor- inn vinur minn Jón Pétursson, Borgarnesi. Ég kynntist Jóni fyrst er hann réðist sem húsvörður að Barna- og gagnfræðaskólanum i Borgar- nesi. Ég ætla ekki að rekja æviferil hans, heldur einungis að þakka honum fyrir samstarf og vináttu og margar ógleymanlegar sam- verustundir. Þessar samveru- stundir voru mér meira virði en flest annað, — föðurlegar ábend- ingar, hreinskilni hans, hjarta- hlýja og fræðsla um gamalt og nýtt, um menn og málefni. Jón var einn þeirra mörgu manna, sem vinna störf sin i kyrrþey, sem sjaldan er getið, en allir njóta ávaxtanna af verkum þeirra. Jón var sannur sósialisti, einn af boðberum, er skærast skina og ylja upp umhverfi sitt til gróðurverndar islensku mannlífi; án sérhyggju og öfundar i garð annarra manna. Jón var bæði velvirkur og at- orkumaður mikill til allrar vinnu, stjórnsamur og laginn. Segja þeir, sem gerst mega um vita, að hvérju verki hafi verið vel borgið, sem hann sá um. Hinn heiðarlegi og samviskusami maður undi ekki öðru en að leysa hvert verk svo vel af hendi sem verklagni og kunnátta frekast leyfðu án þess að hugsa um tima eða peninga. Aðaláhugamál hans hin siðari ár var að prýða og bæta umhverfi sitt við islenska gróðurmold. Var unun á að horfa er hann fór hönd- um um jurtir þeirrar moldar, sem hann er nú horfinn til. Jón missti konu sina árið 1970. Minntist hann hennar með sökn- uði og hlýju, en hjónaband þeirra Jóns og Ingveldar Halldórsdóttur konu hans var með miklum ágæt- um, og talaði hann oft um hversu mikill hamingjumaður hann væri F j árstuðningur Framhald af 12 siðu sjúkrahúsanna og konur sem við þau starfa munu ekki leggja niður vinnu. En hversu langt á að ganga? A til dæmis að koma i veg fyrir aðalæfingu á óperunni Carmen sem er á dagskrá að kvöldi 24.? Allar horfur eru á að það gerist þótt frumsýningin eigi að vera daginn eftir þvi konur i Sinfóniu- hljómsveitinni ætla allar sem ein að leggja niður vinnu. Og eins og við var að búast taka atvinnurekendur þessu verkfalli ekki með þögninn einni saman frekar en öðrum vinnu- stöðvunum. Nokkuð mun vera um að atvinnurekendur hafi haft i frammi hótanir um uppsagnir ef starfsfólk þeirra tekur þátt i verkfallinu. Til þess hafa þeir að visu lagalegan rétt en konur sem fyrir slikum hótunum verða ættu að hafa hugfast að full samstaða þeirra getur stöðvað öll slik áform, td. samstaða um að neita að vinna með konum sem atvinnurekendur ætla að setja i störf þeirra sem reknar eru. 1 slikum tilfellum er best að hafa samráð við viðkomandi verka- lýðsfélag. Sumir atvinnurekendur ganga lika lengra en aðrir i hótunum sinum. Til dæmis hefur blaðið frétt af einum slungnum kaupa- héðni sem hefur margar konur i vinnu við sauma og afgreiðslu- störf. Hann mun hafa hótað þeim konum sem ætla að leggja niður vinnu þann 24. að fara i mál við þær. Ætlar hann að fá þær dæmdar til að bæta sér upp það tap sem verður á rekstri fyrir- tækja hans þennan dag! ÞH Rauntekjur Framhald af bls. 1. minna um yfirvinnu nú i ár, heldur en á atvinnuleysisárunum 1968 - 1969 hjá verkamönnum. Slikt hefði vissulega verið ánægjuefni, ef kaupmáttur dag- vinnukaupsins hefði farið hækk- andi, og menn þannig fengið meiri ráðstöfunartekjur fyrir minni vinnu. En eins og nú er, þegar kaup- máttur dagvinnukaupsins hefur fariðstórlega lækkandi og við það bætist svo, verulega minni yfir- vinna, þá ættu jafnvel núverandi stjórnvöld að sjá, hve herfileg útkoman er fyrir islensk alþýðu- heimili. MADRin 9/10 — Einn major og tveir höfuðsmenn i spænska hernum hafa verið handteknir i Barcelona. Þeir eru sakaðir um að vera félagar i Lýðræðisbanda- laginu, leynisamtökum sem einkum munu starfa innan hers ins. Nfu herforingjar voru hand- teknir i Madrid snemma í sumar og eru þeir allir sakaðir um and- róður gegn stjórninni. Þeir eiga einnig að vera meðiimir i Lýðræðisbandalaginu. að hafa átt svo góðan félaga og lifsförunaut. Hvaö er lif án samhjálpar? sagði hann. Drengskaparmaðurinn Jón Pétursson er horfinn sjónum okk- ar. Ljósgeisli augna þinna er slokknaður. En megi það ljós, er þú tendraðir i brjóstum barna þinna, vina og samferðarmanna verða að gróðursprota fyrir betra lifi á þessari jörð frá þeirri mold, sem allir eru sprottnir frá. Eyjólfur Magnússon, Borgarnesi.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.