Þjóðviljinn - 09.11.1975, Qupperneq 21

Þjóðviljinn - 09.11.1975, Qupperneq 21
Sunnudagur 9. nóvember 1975. ÞJóÐVILJINN — SIÐA 21 — Sjáöu þá livitu! Sjáöu þá gulu! Stjörnuhrap — Vandræöabarn... — Stóri og litli björninn sitt hvorum megin viö pólstjörn- una svo að lnin fari ekki á flakk! — Sitjiö þið nú fyrir nieöan viö teiknum tviburainerkiö... 12.000 tonna gotnesk kirkja flytur búferlum Merkilegir flutningar hafa átt sér staö í Tékkó- slóvakíu undanfarnar vikur. Um fimm alda gam- alli gotneskri kirkju var lyft af grunni, og hefur hún um fjögurra vikna skeið skriðið með 2—3 sm hraða á mínútu í átt til nýs aðsetursstaðar, sem er um kílómetra frá fyrri grunni. Kirkjan er um 12 þúsund tonn á þyngd. Kirkja þessi hefur staöið i Most, litlum námabæ i Bæheimi, allt frá þvi hún var fullgerð 1549. Þykir hún mesti kjörgripur. Þessvegna var ákveðið að bjarga henni þeg- ar mikil brúnkolalög fundust, að- eins tiu metra undir yfirborði hins gamla bæjar, og talið var nauð- synlegt að vinna þau með opinni aðferð. Flestöll önnur hús i bæn- um hafa verið lögð i rúst og ibú- arnir fluttir til annars staðar og i ný húsakynni. Unnið hefur verið að undirbún- ingi á tilfærslu kirkjunnar frá 1968, og kostnaður er áætlaður um tveir miljarðir króna. Fyrst var allt lauslegt borið út úr kirkjunni, og burðareiningar hennar styrkt- ar með ýmsum hætti. Tekið var neðan af hverri súlu og steyptur sökkull settur i staðinn. Gólfinu varð að fórna. en öflugur stein- steyptur og járnhentur hringur var lagður undir ytri múra kirkj- unnar. Um leið var unnið að þvi að koma íyrir flókinni stálgrind sem liggur meðfram veggjum kirkjunnar og eftir henni endi- langri og inn um glugga og þvert yfir hana. Hvilir grind þessi á meira en fimmtiu fjórhjóla buröarvögnum sem eru i fjórum röðum, tvær meðfram kirkju- veggjum og tvær inni i henni. Lævislegur vökvaútbúnaður sér um að kirkjan haggist ekki á leið- inni. Kirkjan átti að vera komin á áfangastað nú skömmu eftir mánaðamót. Ekki hafði ein þak- skifa dottið af henni á leiðinni. þegar siðast fréttist. FarseÓill, sem vekur fögnuð erlendis í desember bjóðum við sérstök jóla- fargjöld frá útlöndum til íslands. Þessi jólafargjöld, sem eru 30% lægri en venjulega, gera fleirum kleift að komast heim til íslands um jólin. Ef þú átt ættingja eða vini erlendis, sem vilja halda jólin heima, þá bendum við þér á að farseðill heim til íslands er kærkomin gjöf. Slikur farseöill vekur sannarlega fögnuö. FLl/GFÉLAG LOFTLEIDIR /SLAJVDS

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.