Þjóðviljinn - 20.11.1975, Blaðsíða 5

Þjóðviljinn - 20.11.1975, Blaðsíða 5
. Fimmtudagur 20. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 5 Spiro Agnew gerist rithöfundur Herald Tribune skýrir frá þvi nýlega að Spiro Agnew fyrrver- andi varaforseti Bandarikjanna sem hrökklaðist úr embætti vegna mútuþægni hafi lokið við að semja skáldsögu sem væntan- leg er á markað næsta vor. Talsmaður Scott Meridith Literary Agency sem er bók- menntalegt ráðgjafarfyrirtæki segir að hér sé á ferðinni pólitisk skáldsaga sem gerist á næsta áratug. Fjallar hún um frjáls- lyndan og framgjarnan vara- forseta Bandarikjanna sem sækist eftir útnefningu flokks sins til forsetaframboðs. í þeim darraðardansi ná iranskir þjóð- ernissinnar honum á sitt vald og vilja beita honum i striði sinu gegn israelum. Verður hann óviljandi til þess að koma landi sinu i alþjóðlega pólitiska kreppu. Þess er getið i frétt blaðsins að glaumgosaklúbburinn Playboy muni gefa bókina út. —ÞH Fasteignakaup á Spáni virðist vera samnorrœnt vandamál líins og menn muna urðu mikil blaðaskrif um það I fyrra hvort islenskir peningamenn hefðu gerst brotlegir við gjaldeyrislög- gjöfina og keypt sér fasteignir á Spáni. Yfirvöld hétu þvi að rann- saka málið en eins og svo oft vill verða gufaði sú rannsókn upp. Fasteignakaup á Spáni virðast ekki vera neitt einkamál islend- inga þvi nýlega skýrir Dagens Nyheter frá þvi að englendingur einn hafi verið handtekinn i Sviþjóð, grunaður um að hafa haft milligöngu um kaup á sumarhúsum á Spáni fyrir sænska peningamenn og er einnig talið að hann hafi hjálpað þeim að smygla sænskum peningum úr landi i þvi skyni. Englendingur þessi var fil skamms tima starfsmaður spænskrar fasteignasölu. Fyrir- tækið auglýsti i sænskum blöðum „kostakjör” ef menn væru á þeim buxunum að kaupa sér sumarhöll á Costa del Sol. Þessar auglýsingar virðast hafa hrifið þvi i fórum englendingsins fundust kvittanir fyrir móttöku á 600 þúsund sænskum krónum i það minnsta. Englendingurinn harðneitaði að hafa flutt þetta fé úr landi heldur hafi það farið i ýmiss konar kostnað i Sviþjóð. Samkvæmt auglýsingunum nægði þetta fé til kaupa á 10—20 húsum á Spáni. Lögreglan fann einnig ýmis skjöl i fórum mannsins sem leiddu til þess að 15 sviar voru kallaðir til yfirheyrslu. Þeir viðurkenndu ailir að hafa látið manninn hafa fé til fasteigna- kaupa á Spáni Að þeirra sögn kvaðst englendingurinn mundu sækja um heimild til yfirfærslu á fénu en það láðist honum að gera. Lögreglan gerir sig ekki ánægða með skýringar fimmtánmenn- inganna, þvi þeir eru flestir atvinnurekendur og ætti þess vegna að vera fullkunnugt um ákvæði sænskra gjaldeyrislaga. En málið er enn á byrjunarstigi þvi i fórum englendingsins fannst spjaldskrá með nöfnum 400 fjár- sterkra svia sem lögreglan hyggst ná tali af. Einnig er ætlunin að senda menn til Spánar að kynna sér húseignir svia þar og eiga þeir að reyna að komast að þvi hvernig þeir hafa komist yfir þau. Hér virðist þvi komið upp ansi „heitt” fjársvikamál. En ólikt virðast sænsk yfirvöld bregðast harðar við en þau islensku... — ÞH VINDMYLLUR Vindmylla Svend Jensens við heimili hans á Norður-Jótlandi. Vœndiskonur alls Frakklands: Sameinist! Samtökin PUSSI í Bretlandi veita siðferðilegan stuðning ryða sér til rúms í Danmörku Á timum orkukreppu og þverrandi orkulinda er skyggnst i allar áttir eftir nýjum mögulcikum á orku- framleiðslu. Panir sem livorki liafa oliu né vatnsföll liafa skilj- anlega mikinn áhuga á fram- þróun i orkumálum. Eins og fleiri renna þeir hýru auga til kjarnorkunnar. En Svend Jensen i Frederiks- havn á Norður-Jótlandi datt i hug aðe.t.v. væri timi vindmyll- unnar runninn upp á nýjanJeik. Hann rekur véla verkstæ^i og þar hóf hann smiði vindmyllu. Þegar hún var fullbúin reisti hann hana á hlaðinu hjá sér og nú segist hann spara sex þúsund litra af oliu á ári fyrir tilstilli vindmyllunnar. En Svend Jensen er athafna- maður og þvi hyggur hann á ' fjöldaframleiðslu. Hefur hann gert samning við vélaverk- smiðju i Dybvad og framleiðir nú eina vindmyllu á viku. Ný- lega vann hann þann sigur að Um hundrað visindamenn frá mörgum löndum settust á rökstóla i Nýju-Delhi á Indlandi ekki alls fyrir löngu til þess að ræða vandamál sem snertir vestræna visindamenn illa. Það -hefur semsé komið i ljós að öpum fer mjög fækkandi i heiminum og er orðið erfitt fyrir rannsókna- stol'ur að ía þá keypta. Eins og allir vita eru apar taldir nokkuð skyldir mannskepnunni og þvi tilvaldir til að gera tilraunir á þeim með ný lyf oþh. Indverjar hafa verið stærstu útflytjendur á þessu sviði og fluttu um árabil um 200 þúsund orkumálaráðuneytið úrskurðaði að lög sem hvetja eiga til orku- sparnaðar og nýtni ná yfir myll- urnar hans. Samkvæmt þeim greiðir rikið allt að 25% af stofn- kostnaði við myllurnar. f Verðið á hverri vindmyllu er um 25 þúsund danskar krónur (rúmar 700 þúsund isl. kr.). Þar af fær kaupandinn allt að 5 þús- und króna afslátt i krafti áður- nefndra laga. Er talið að myllan geti sparað allt að 4 þúsund krónur á ári i olíukaupum. apa út á ári hverju. Vinsælasta tegundin var rhesus sem mikið var af i skógum Norður-Indlands. Með þvi að áhyggjur manna af umhverfisspjöllum og eyðingu dýrastofna jukust voru liömlur settar á útl'lutning indverskra apa. i fyrra var útflutningurinn kominn niður i 50 þúsund stykki á ári og verðið hafði hækkað úr 70 dollurum i 250 á einu ári. t ár hefur útflutningurinn enn verið skorinn niður um helming. Var dýrunum farið að fækka iskyggi- lega vegna óhóflegra veiða en einnig kom til minnkun skóg- Myllan er tengd við rafal og getur þvi lýst og hitað upp hús. Svend Jensen hefur bent á þann möguleika að koma upp stórum myllum i nágrenni spennistöðva þar sem geyma mætti orkuna og dreifa henni þegar mikið álag er. Rekstrarkostnaður vind- myllu er að sjálfsögðu enginn þvi enn sem komið er hefur vind urinn ekki verið verðlagður neins staðar svo vitað sé.—ÞH lendis vegna þess að nota þufti landið til matvælaræktunar eða beitar. Bandariskir visindamenn hafa miklar áhyggjur og stórar af þessu máli. Bandariskar rann- sóknastofur hafa keypt um helm- ing þeirra apa sem falir eru á heimsmarkaði og vinsældir þeirra sem tilraunadýra hafa stóraukist. Nú er orðið erfitt að fá þá auk þess sem verðið hefur stórhækkað. Onnur lönd sem flutt hafa út apa, svo sem Perú og Kólumbia, hafa einnig sett strangar hömlur gegn útflutningi þeirra. PARIS þriðjudag — Um tvö þús- und franskar vændiskonur komu saman til fyrsta landsfundar sins i Paris i dag. Klæddar dýrum pelsum og i háleggja stigvélum komu þær einbeittar á svip úr öll- uni héruðum Frakklands og söfn- uðust saman i salarkynnum sem iðulega eru leigð undir stjórn- málafundi. Landsfundurinn er haldinn við bakgrunn þeirrar nýlundu að lög- reglan hefur fengið lagaheimild til að gefa út handtökutilskipanir á vændiskonur eftir þvi sem henni best likar — að þvi er starfandi konur i þessari stétt halda fram. Lögin banna rekstur hóruhúsa en um leið veita þau lögreglunni heimild til að sekta þær konur sem leggja net sin á gangstéttum. Vændiskonur landsins hafa smám saman gert sér ljóst að við þessar óviðunandi kringumstæð- ur dygðu ekkert annað en stéttar- samtök á landsvisu. F'yrstu um- merkin um stéttvisi komu i ljós i sumar þegar vændiskonur i 6 Hafa visindarnennirnir hugleitt þá lausn vandans að koma á fót aparæktarstöðvum i Bandarikj- unum en við það mundi yeröið hækka enn meir.—ÞH (heimild IHT) stærstu borgum Frakklands tóku kirkjur á sitt vald. Aðgerðirnar voru stöðvaðar þegar þær bjuggu sig til innrásar i sjálfa Notre Dame (Vorrar-frúar-kirkju) i Paris. Helsti formælandi vændis- kvennanna er hin ljóshærða Ulla frá Lyon sem kveðst vonast til þess að mynduð verði landssam- tók á fundinum. Ráðagerð hennar er sú að vændiskonur greiði skatt af atvinnutekjum sinum gegn þvi að lögreglan láti þær i friði og meðhöndli þær systur sem hvert annað atvinnufólk. Allir 490 þingmenn á þjóðar- samkundu frakka eru boðnir á landsfund vændiskvenna og að auki fjöldi þekktra manna af öðru tagi. — „Við erum þreyttar á þvi að komið er fram við okkur eins og sora. Við viljum geta lifað eins og aðrar heiðvirðar konur”, sagði einn fundargesta i dag þegar hún kom til salarkynnanna þar sem hún hitti starfssystur sinar. F'ulltrúi frá Lyon að nafni Karine lagði áherslu á það að vændiskonur eru hvorki óþokkar né bjánar. „Við erum venjulegar konur sem óskum eftir að lifa eðlilegu lifi", sagði hún við komu sina á fundinn. Alls munu vændiskonur F'rakk- lands vera um 30 þúsund talsins. Tekjustig þeirra er afar misjafnt. Sumar þeirra kvarta yfir þvi að hafa verið sektaðar um allt að 180 þúsund krónur á mánuði. F'rönsku konurnar hafa fengið siðferðilegan stuðning frá starfs- systrum sinum i Bretlandi sem bundust samtökum á mánudag- inn og nefnast þau „Félagslegt og kynferðislegt heilindabandalag vændiskvenna” (á ensku: Prosti- tutes Union for Social & Sexual Integrity, skammstafað PUSSI). —reuter (beimild Inf.) Skortur á öpum til rannsókna

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.