Þjóðviljinn - 30.11.1975, Page 5

Þjóðviljinn - 30.11.1975, Page 5
Sunnudagur 30. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 5 af erlendum vettvangi Lik hans fannst á einni þcirri eyðimörk blikkkofa og ruslabingja sem hann hafði svo oft skrifað um og kvikinyndað. I’asolini með vini sinum Moravia: italia hefur misst einn af sinuin hestu sonuin... Moröið á Pasol samfélag sjúkt Ekki veit ég hvort menn hafa nokkuð velt fyrir sér fréttum af morðinu á italska rithöfundinum og kvikmyndastjóranum Pier Paolo Pasolini snemma i mánuð- inum. Fréttaburðurinn var mjög einfaldur: Pasolini var hommi (og kommi) og hann var drepinn af ungum strák, sem hann gerðist nærgöngull við. bað er handhægt i slikum tilvikum að láta fordóm- ana lausa og segja sem svo: var það ekki mátulegt á helvitið? Ef maður nennir þá að gefa málinu gaum. Ekki svo einfalt Hitt er vist að á ttaliu er ekki litið svo einföldum augum á mál þetta. Menn lita alls ekki á það sem einstakt atvik, slys, heldur sem tákn um hörmulega þróun. Viðbrögðin við morðinu á Paso- lini eru i sjálfu sér tjáning á þvi heimsslitaandrúmslofti sem ræður rikjum i itölsku menntalifi. f ræðu sinni við útför Pasolinis sagði rithöfundurinn Alberto Moravia: ,,Hinar hörmulegu, ömurlegu aðstæður við dauða hans, sem enn sækja að okkur, eru einnig endurspeglun á landi, sem verður að breyta með rót- tækum hætti. Þetta er sá hinsti boðskapur sem hann hefur skilið okkur eftir með dauða sinum.” Pasolini var myrtur af sautján ára hommamellu, en hann hef- ur skýrt svo frá að hann hafi bar- ið Pasolini i rot með planka og ek- ið siðan tvisvar yfir hann. Likið fannst af tilviljun morgun einn við ruslahauga á ströndinni 'við Ostia, skammt frá Hóm. Pasolini var hómosexúalisti og hafði alla ævi lifað i nánu sam- bandi við smáglæpalýð — vændis- stráka, slæpingja og þjófa — við þennan tötralýð Rómar sem hann hefur lýst i kvikmyndum og skáldsögum. Morðstaðinn kann- ast menn við af mörgum kvik- myndum hans — ömurleg út- hverfi Itómar með bárujárns- skúra og rusl, þar sem hvorki eru götur, ljós, sorpræsi né nein önn- ur ummerki siðmenningarfélaes. Samkennd Hann var einn af dáðustu lista- mönnum ítaliu og virkur þátttak- andi i kappræðu um stjórnmál og menningarmál. Hann var ein- staklega góður maður, jafn mildur og auðmjúkur i fram- göngu og hann oft var ögrandi i kappræðum. Vissulega hafa bæði atvik morðsins og frægð Pasolinis lagt sitt til þess, hve gifurlega at- hygli glæpurinn vakti — en samt nægir þetta ekki til að útskýra hve mikill harmur mönnum finnst nú kveðinn að samfélaginu. Samstaðan um þennan harm- leik kom m.a. ljóst fram þegar tiu þúsundir rómverja — listafröm- uðir, tötrughypjur, hefðarmenn, venjulegir Giuseppar — stöðvuðu umferð i þrjár stundir meðan út- förin var gerð. Minningarræður héldu þeir Aldo Tortorella, „menntamálaráðherra” komm- únistaflokksins.og Alberto Mora- via. Þegar kistan var borin út úr menningarhúsi kommúnista braust út eins og ósjálfrátt mikið lófatak. Einn viðstaddra kemst svoaðorði um þetta: ,,Ég held að fólk hafi ekki einungis klappað i heiðursskyni við hinn látna, held- ur til að sýna samstöðu, samfélag við hinn myrta, vegna þess að hann hafi orðið fórnarlamb ein- hvers þess, sem hin klappandi sorgarganga taldi sig einnig hafa orðið fyrir barðinu á”. f5asolini hafði einmitt siðustu vikur ævi sinnar tekið þátt i um- ræðu um sivaxandi flóðbylgju of- beldisverka á ftaliu og hafði tekið afstöðu sem margir, einnig þeir sem annars eru honum skyldir i skoðunum, telja full bölsýna. Sigurför ofbeldisins Þessi alda ofbeldis flæðir með skelfilegum hraða um alla parta italsks þjóðfélags. Menn geta kortlagt hana m.a. af glæpakrón- iku blaðanna, sem skýrir frá þvi að morð, mannrán og kynferðis- glæpirhafi aldrei verið algengari i landinu. Þar er og skýrt frá þeim áhlaupa- og nauðgarasveit- um ungra fasista sem halda sig i kringum menntaskólana, frá ótöldum glæpaverkum sem tengd eru vændisrekstri, og menn sjá einnig, að kvalalostafilmur, ein- att mjög fjandsamlegar kven- þjóðinni, njóta firnalegra vin- sælda. Hver maður hefur á ftaliu getað virt fyrir sér undanfarin ár póli- tiskt ofbeldi, tengt nýfasisma, of- beldi sem er skipulagt og sjálfu sér samkvæmt og hefur það að tilgangi að grafa undan samfé- lagsbyggingunni með hugsanlega valdatöku sem endanlegt mark- mið. En við hlið þessa ofbeldis hefur vaxið upp annað ofbeldi sem er ruglingslegt og tilviljana- kennt og stigur upp af samfélagi i hnignun. Svo virðist sem mjög ólikir samfélagshópar hafi glutr- að niður sinu siðferðilega mati og ekki hlotið annað i staðinn en blinda, frumstæða, þráláta árás- arhneigð. Allsherjar meinsemd bað var þessi þáttur málsins sem Pasolini tók upp. Hann var kommúnisti, en hann var einnig þverstæðusmiður mikill, og þótt italskir marxistar séu yfirleitt litlir réttlinumenn var hann þeirra lengst frá réttlinuhyggju.. Smekkur hans fyrir þverstæðum hefur undanfarin ár leitt hann út i pólitiskar deilur, sem voru á mörkum þess að jafnvel nánir vinir gætu fylgt honum eftir. Upp á siðkastið hafði hann oft lýst yfir þvi að hann sæi eftir horfnu sam- félagi, sem var i pólitisku tilliti einfaldara að gerð en það sem nú er, samfélagi þar sem voru yfir- stétt og lágstétt, og hvor um sig átti sér sin verðmæti, sin gildi. Hans hugsjón var sú, að ein- hverntima mætti jafna þennan mun og skapa jöfnuð og farsæld. En hann taldi ekki, að ttalia hefði sl. 30 ár verið að færast nær þvi ástandi, heldur þvert á móti. Hann taldi sig hafa komist að þvi nýverið., að sú lágstétt sem hann þekkti og elskaði og hafði lýst i skáldsögum sinum og kvik- myndum væri ekki til lengur. Þau verðmæti sem hann hafði i heiðri eru horfin. Hin siðborna iðnvæð- inghafði ekkijafnað grundvallar- mun milli yfirstéttar og lágstétt- ar, en hún hafði jafnað við jörðu þau verðmæti sem fátækar stéttir áður áttu sér. Pasolini sagði, að neytendasamfélagið hefði með vitfirrtri framleiðslu- og neyslu- maskinu sinni eyðilagt öll siðræn verðmæti, sem áður voru til, og skapað i staðinn miskunnarlaus- an heim án siðrænnar festu. Pasolini sagði, að Italia væri orð- in skelfilegt land. Og hann lagði ini og Pasolini: llelvitiöcr á leið upp til ykkar þaö til kappræðunnar um ofbeld- ið, að það sem i hönd færi væri verra en flestir gætu enn skilið. Það er ekki nóg, sagði hann, að kalla vissa glæpi fasiska, enda þótt að mikið af þeim séu það. öreigastéttin er að veröa eins gagnsýrð af ofbeldi og fasistar 1 sagði kommúnistinn Pasolini og hóf með þvi móti eina 'af sinum þverstæðufullu ritdeilum. „Ég hrópa” Dauði hans var hræðileg stað- festing á þessari viðvörun. t við- tali sem átt var við hann tveim dögum fyrir morðið komst hann svo að orði: „Þetta mun ég segja enda þótt ég verði að hrópa til ykkar. Lif það sem ég lifi hefur vanið mig á að stiga niður til vitis og ég veit um hluti, sem ekki trufla ykkar sálarró. En gætið ykkar — helvitið er á leiðinni upp til ykkar. baðer rétt, að það kem- ur undir ýmsum grimum og fán- um... en það er einnig satt, að viljinn til að slást, ráðast á. drepa, er sterkur og almennur. Þetta verður ekki mikið lengur hættuleg privatreynsla fyrir mann eins og mig, sem hefur „snert lif ofbeldisins”. Og það eruð þið með ykkar skóla, ykkar sjónvarp, ykkar smásálarvitru dagblöð, það eruð þið sem eruð verndarar þessa hræðilega á- stands, sem er byggt á hugsjón eignar og eyðileggingar. bið telj- ið vkkur heppin þegar þið getið sett vörumerki á einhvern glæp. Mér íinnast þetta undanbrögð — ef menn geta ekki komið i veg fyrir að vissir hlutir gerist, friða þeir sig með þyi að raða þeim niður á hillur.” Og hann veittist jafnt að stjórnmálamönnum sem rithöfundum og félagsfræðingum fyrir skammsýni þeirra. i grein sem Moravia skrifaði um morðið segir hann m.a. að Pasolini hafi verið fjandmaður ofbeldis, ekki aðeins vegna þess, að hann var blíðlyndur maður og vingjarnlegur, heldur og vegna þess, að uppgötvun hins nýja of- beldis sem fjöldafyrirbæris var honum meira áhyggjuefni en nokkuð annað i menningarlifi og stjórnmálum. En hann trúði ekki nægilega á það sem fjöldafyrir- bæri til að vara sig á þvi sjálfur og komast hjá þvi... Vafasöm skýring Enda þótt hinn 17 ára gamli Pelosi hafi játað á sig morðið draga margir i efa hina opinberu útskýringu á glæpum. Hópur vina Pasolinis, m.a. Moravia og kvikmyndameistar- arnir Antonioni og Bertolucci, hafa krafið lögregluna um ýtar- lega rannsókn málsins. Þeir telja ýmislegt benda til þess að hópur nianna hafi myrt Pasolini. Á morðstað hafa fundist þrir plank- ar blóðugir, og þeir telja það ólik- legt að Pelosi hafi einn notað þrjá planka til að slá Pasolini niður. Undir nöglum Pasolinis hafa og fundist húðagnir, en engar rispur eru á Pelosi. Þá telja vinir Paso- linis það mjög ólikt honum, sem drengurinn segir, að hann hafi byrjað á að slá til sin. Pasolini, sem var rúmlega fimmtugur, hafði mikinn hluta ævi sinnarþekkt vel það umhverfi sem hann lést i, ekki aðeins vegna skyndiheimsókna, heldur og vegna þess að hann hafði haft þar vist um lengri tima. Hann var góðviljaður maður, sem ekki hefði viljað og auk þess kunnað að komast hjá áflogum við sautján ára gamlan vændisstrák. Og þar að auki var hann sterkur maður og vel þjálfaður. miklu aflmeiri en drengur sá sem hefur játað á sig morðið. Oriana Fallaci, sem er fræg blaðakona en óáreiðanleg. kveðst i grein i blaðinu Europeo hafa átt viðtal við vitni að glæpnum. og sagði vitnið að þrir menn hefðu verið að verki. Hún hefur neitað að gefa upp nafn þessa vitnis og vinir Pasolinis hafa farið þess á leit við hana að hún skýri frá þvi, hvort saga þessi sé uppspuni til að ekki verði eytt tima i könnun á falskri visbendingú. Pólitískur glæpur? Það er haft fvrir satt, að Paso- lini hafi verið að rannska glæpa- faraldur i tengslum við homma- vændi. sem á siðari árum hefur komist undir stjórn skipulagðra glæpallokka á sama hátt og venjulegt vændi hefur um langa hrið verið. Möguleg skýring á morðinu er sú, að glæpaflokkar. sem græða á hommavændi. hafi ætlað að refsa Pasolini eða losa sig við hann, og að unglingurinn Pelosi hafi verið gabbaður til eða honum ógnað til að taka á sig alla ábyrgðina. Grunurinn um að fleiri en einn hafi verið að verki er tengdur grunsemd um að morðið sé i öll- um tilvikum afleiðing af mein- semd i samfélaginu. Skáldkonan Dacia Mariani segir: „Enda þótt morðið á Paso- lini geti sýnst privatglæpur. þá finnst mér það pólitiskur glæpur. Jafnvel þótt morðinginn hefði ekki unnið beinlinis i annarra þágu, þá hefur hann gert það ó- beint i þágu vitskerts samfélags sem dýrkar goðsögnina um of- beldi og peninga.” Kvikmvndastjórinn F rederico Fellini segir sem svo: „Kannski er þetta hómósexúal glæpur, en óttinn við að þetta sé pólitiskur glæpur mun lifa i okkur öllum." Og kollegi hans Visconti bætir við: „Morð sem þetta gat aðeins gerst i landi eins og italiu, þar sem ofbeldið magnast takmarka- laust án þess að við þvi sé sporn- að." Félagi þeirra Bertolucci tekur mjög i sama streng: „Hverjar sem vtri aðstæður hafa verið. þá er það okkar timi. eitt- hvað skelfilegt i okkar tima sem réð Pier Paolo Pasolini af dög- um." A.B. endursagði.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.