Þjóðviljinn - 30.11.1975, Blaðsíða 11
Sunnudagur 30. nóvember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 11
NÝJAR BÆKUR
Þá var öldin
önnur III
Út er komið hjá tsafold þriðja
bindi ritverksins Þá var öldin
önnur, eftir Einar Braga. Með
þessari bók lýkur Einar Bragi
verki sinu, Þá var öldin önnur I-
III, og birtir aftast nafnaskrá yfir
öll bindin. t fyrsta þætti þriðja
bindis, Seyðisfjarðarkaupstaður
hinn forni, er grafinn úr djúpi
gleymskunnar forboðinn verslun-
arstaður, sem fátt var áður vitað
um. Þættirnir Þrjár skaftfellskar
myndir eru samdir út frá þremur
frumstæðum, en afar skemmti-
legum uppdráttum eftir þrjá
skaftfellska presta á 18. öld. t
bindunum þremur er á ferð hálft
annað þúsund manna, einkum
skaftfellinga og austfirðinga.
I fyrri bindum verksins eru
þessir þættir: I. bindi: Siðasta af-
taka á Austfjörðum, Sumardagar
i Suðursveit, Galdra-Fúsi, Sum-
ardagar á Hornbjargsvita: II.
bindi: Svipast um i Suðursveit á
18. öld, Darraðardansinn i Suður-
sveit. Nokkur samstæð eintök af
öllum bindunum þremur eru enn
fáanleg hjá forlaginu.
Þriðja bindi Þá var öldin önnur
er 264 bls. 1 þvi eru nokkrar teikn-
ingar og uppdrættir frá fyrri tið,
Káputeikningu gerði Hörður
Ágústsson, setningu, prentun og
bókband annaðist Isafoldarprent-
smiðja h.f.
Ævisaga Stalíns
Út er komin ævisaga Stalins
eftir J.T. Murphy, sem var einn
af helstu forustumönnum enska
kommúnistaflokksins, var i
Leningrad á byltingartimunum
og dvaldist um árabil i Moskvu.
Formáli að bókinni er eftir Sir
Stafford Cripps, sem lengi var
einn af mikilvirtustu leiðtogum
breska verkamannaflokksins.
Sverrir Kristjánsson, sagnfræð-
ingur, þýddi bókina á islensku.
t bókinni er rakin ævi Jóseps
Stalins frá bernsku hans i þorpinu
Gori i Georgiu allt til loka siðari
heimsstyrjaldar. t texta á kápu-
siðu stendur: ,,En bók Murphys
er ekki,aðeins ævisaga Stalins.
Ævi Stalins var svo samofin rúss-
nesku byltingunni, að það væri
fráleitt að skrifa um Stalin án
þess að segja einnig sögu bolsé-
vismans. Murphy rekur skýrt og
greinilega sögu Stalins og lands
hans á fyrri helmingi aldarinnar
og lætur lesendum i té allar þær
upplýsingar, sem nauðsynlegar
eru til að skilja þróun Rússlands á
þessum tima”.
Bókin er 337 bls. og skiptist i
átján kafla. Útgefandi er Kristján
Júliusson, Reykjavik, prentun
annaðist Prentsmiðjan Oddi h.f.
Svo hleypur
æskan ung
Svo hleypur æskan unga, heitir
bók eftir Skúla Guðjónsson frá
Ljótunnarstöðum, sem Skuggsjá
hefur frá sér sent.Pétur Sumar-
liðason, kennari, bjó bókina til
prentunar og sá um útgáfuna, en
Pétur hefur um áraraðir flutt i út-
varp megnið af þvi efni, sem þar
hefur verið flutt eftir Skúla.
Svo hleypur æskan ung eru
minningarbrot frá bernsku höf-
undarins. Hann segir frá per-
sónulegri reynslu sinni og bregð-
ur upp skemmtilegum svipmynd-
um af mönnum, sem honum eru
minnisstæðir.
Bókin er 180 bls.
Endurminningar
endumýjaðar
Viö önnumst eftir-
tökur og lagfæringar
gamalla mynda.
Stækkum í allar
stæröir frá 13X18 cm
til 2ja fermetra.
AUGLÝSINGA OG
IÐNAÐARLJÓSMYNDUN
HVERFISGÖTU 18,
BAKHÚS
SÍMI 22811
SORPEYÐING
Sveitarfélögin á Suðurnesjum hafa hug á
að koma upp sameiginlegri sorpeyðingu.
Ekki liggja endanlegafyrirmagntölurþess
sorps er eyða skal, en tveir möguleikar
koma til greina, 9000 tonn pr ár og 37000
tonn pr. ár.
Eru innflytjendur sorpeyðingarvéla og
-ofna og aðrir innlendir aðilar sem áhuga
hafa á framleiðslu og/eða sölu slikra
tækja beðnir að senda tillögur sinar ásamt
kostnaðaráætlun til undirritaðs fyrir 31.
des. nk.
Nánari upplýsingar veita sveitar- og
bæjarstjórar á Suðurnesjum.
Sveitarstjóri Vatnsleysustrandarhrepps
Vogagerði 2, Vogum.
ÚTBOÐ
Kröflunefnd óskar eftir tilboðum i ál-
klæðningu á stöðvarhús Kröfluvirkjunar i
Suður-Þingeyjarsýslu. Útboðsgögn verða
afhent á verkfræðistofu vorri, Ármúla 4,
Reykjavik, gegn 3000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð á sama stað föstudag-
inn 19. des. 1975 kl. 11 f.h.
m mmmmm verkfræðistofa sigurðar thoroddsen sf
yMSMM ÁRMÚLI 4 REYKJAVlK SlMI 84499
Auglýsing
Baráttufundur
í tilefni 45 ára afmælis Kommúnistaflokks
Islands verður haldinn i Iðnó sunnudaginn
30. nóvember kl. 15. Ávörp verða flutt,
söngflokkur syngur baráttusöngva, flutt
verður leikrit eftir Bertolt Brecht, auk
annarra dagskrárliða.
KSML-EIK
Verkfræöingur
óskast
Orkustofnun óskar eftir að ráða vélaverk-
fræðing, staríssvið varðar rannsóknir og
athuganir á hagnýtri notkun jarðvarma.
Umsóknum með upplýsingum um nám og
í'yrri störf, sé skilað til starfsmannastjóra
Orkustofnunar fyrir 15. desember næst-
komandi.
Orkustofnun
- MELTAWAY AKATHERN
snjóbræðslukerfi frárennsliskerfi
úr PEX plaströrum úr PEH plaströrum
Nýlagnir Viðgerðir
Hitaveitutengingar Stilling hitakerfa
Pípulagnir sf.
Auðbrekku 59 — Kópavogi S. 43840 & 40506
endurshoöun hf. Suöurlandsbraut 18, Reykjavik. Simi 86533 Guöm S Gústafsson Helgl V. Jónsson hdl Olafur Nilsson. löggiltir endurskoðendur