Þjóðviljinn - 18.12.1975, Qupperneq 13
Fimmtudagur 18. dcsember 1975. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐA 13
AFERLENDUM
IBÓKAMARKAÐI
NÝJAR BÆKUR
43 sönglög
eftir Einar
Markan
Komið er út hefti með 43 söng-
lögum eftir Einar Markan.
Útgefandi er Vilhelmina Markan
Carl Billich bjó til prentunar.
myndskreytingar eru eftir Arna
Elfar, myndamót gerði Ljósbrot
hf. og Félagsprentsmiðjan prent-
aði.
Einar Makan er fæddur i Ólafs-
vfk 17. júli 1902oglést i Reykjavik
6. febr. 1973. Hann var þekktur
sem einsöngvari frá unga aldri,
stundaði söngnám i Osló og
Berlin, hélt fjölda tónleika og
söng inn á hljómplötur. Hann
hafði einnig sköpunarhæfileika i
Einar Markan.
fleiri listgreinum og hafa komið
út eftir hann þrjár ljóðabækur, og
auk þess lagði hann stund á
málaralist.
Nýjar víddir
í mannlegri
skynjun
Bókaútgáfan Þjóðsaga hefur
sent frá sér bókina Nýjar viddir i
mannlegri skynjun, eftir Shafica
Karagulla.sérfræðing i tauga- og
geðsjúkdómum. Ester B. Vagns-
dóttir islenskaði. Prentun annað-
ist Prentsmiðja Arna Valdemars-
sonar hf.
Shafica Karagulla er fædd i
Tyrklandi, stundaði meðal ann-
ars nám við háskólann i Edinborg
meö geðlækningar sem sérgrein
og er nú bandariskur rikis-
borgari. Arið 1957 varð hún að-
stoðarprófessor við geðdeild
sjúkrahúss New York-háskóla. í
texta innan á kápu segir meðal
annars:
„Karagulla leggur fram sann-
anir, reistar á tilraunum,
hljóta að vekja athygli og áhuga.
Sumir hinna „skynnæmu”, sem
hún notaði við tailraunir sinar,
gátu séð inn i og gegnum manns
likamann. Athuganir þeirra á
heilsufarsástandi og sjúkdóm
um komu nákvæmlega heim
og saman við niðurstöður
læk narannsókna .. Aðrir
„skynnæmir” gátu séð orku
skipti milli einstaklinga inn
an hóps og lýst þvi hvað gerðist
þegar menn verða fyrir orkutapi
fyrir áhrif „orkueyðenda.” A
hinn bóginn sáu þeir einnig,
hvernig leikari gat hlaðist orku,
sem geislaði frá honum á sviðinu
til allra leikhúsgesta og magnaði
tilfinningalega og vitsmunalega
orku þeirra..:. Eru svonefnd hug-
boð visir að þróun æðri skynj-
unar? Er snilligáfan blátt áfram
þróaðir HSP-hæfileikar?” (HSP
er skammstöfun fyrir Higher
Sense Perception, æðri skynjun.)
Bókin er 214 bls. og fylgir henni
heimildaskrá.
Myndabókaútgáfan, Reykja-
vik, hefur sent frá sér fjórar
myndskreyttar smábækur með
ævintýrum um hina vinsælu
teiknimy ndapersónu Walts
Disney, Mikka mús. Bækurnar
eru Ifundurinn i höiiinni, Beinið
Alfræði Menningarsjóðs: Hag-
fræði, eftir Ólaf Björnsson pró-
fessor. Lesmálssiður 51, mynda-
efni 11 síður. Búöarverð: 1.440 kr.
Kver þetta er samið sem skyr-
ingar á safni uppsláttarorða i
stafrófsröð i hagfræði, hefst á að-
fanga- og áfurðagreiningu og
endar á ökonómetrfu (sem ekki
hefur fundist islenskt orð fyrir).
Fyrirkomulag er svipað og ann-
arra bóka i' þessari ritröð Menn-
ingarsjóðs og Þjóðvinafélags, svo
sem um bókmenntir og islands-
sögu (þarflegt væri að hafa i
hverri bók skrá um áður út-
komnar bækur sömu raðar, en
það er ekki).
þú
Steinar Sigurjónsson.
Út er komin bókin Þú, eftir
Stcinar Sigurjónsson, og er inni-
hald hennar ljóðrænir textar.
Káputeikning er eftir Arnar
Herbertsson, Letur fjölritaði.
Bókin skiptist i átta kafla og er 52
bls.
sem talaði. Leyndardómur Ostru-
flóaog Litli þvottabjörninn. Bæk-
urnar eru 16 bls. hver, prentaðar i
Vestur-Þýskalandi. Filmusetn-
ingu annaðist Prentsmiðjan Oddi
hf.
Til rits af þessu tagi verða ekki
geröar sömu kröfur og til bóka i
samfelldu máli um eitthvert
frjálst viðfangsefni i fræðum eða
þjóðlifi. Það getur áreiðanlega
ekki verið skemmtandi i þeim
skilningi að vera upplifg.
andi eða fyndið, og það getur ekki
heldur verið frumlegt. Ekki má
heldur setja fram nein sjónarmið
sem deilum valda nema allir
málspartar séu skýrðir, og rétt er
að hnýta slaufu uppá halann á
hverjum einasta ivitnuðum fræði-
manni. Slik rit hljóta þvi að eiga
að vera æði sundurlaus, og það er
jafnvel til ills eins og hinnar
mestu ávirðingar ef þau bera
skýr höfundareinkenni.
Bók blifur þótt maður hverfi.
Ekki sist bók sem inniheldur al-
riðisorð afmarkaðrar fræöi-
greinar. Slikar bækur eru i reynd
ódauðlegar, þvi að þær verða ó-
trúlega lengi lesnar og enn lengur
til þeirra vitnað, t.d. þannig að
þær verði stofn að nýjum bókum
innan sömu greinar.
Ólafur Björnsson prófessor
hefur reistsér dálitinn bautastein
með þessu verki. „Hagfræði" er
að minni hyggju samstæðara rit
og samfelldara en önnur rit hans,
og sjaldnast þarf lengi að lesa
áður en höfundurinn birtist
manni, föðurlegur i fasi með holl-
ar ráðleggingar, sanngjarn að þvi
er sýnist vera i umfjöllun um
skoðanir annarra, en ýtinn og ó-
trúlega áleitinn með eiginn mál-
stað.
Reynslan sýnir að þeir sem á
annað borð hafa enga nasasjón af
hagfræði eru yfirleitt ansi tregir i
taumi inn i gripahús hagfræðinn-
ar, jafnvel þótt þar sé borin á
garða ilmandi taða og kjarnfóður
með. Þeir haga sér yfirleitt eins
og staðar bykkjur. Eftirrekstur-
inn einn dugar. Vegna þessa
eðlisþáttar hagfræðinnar er hætt
við þvi að rit próf. Ólafs hljóti
ekki ótaminna hylli. Liklegt er að
fyrrverandi nemendur höfundar-
jns verði meðal þeirra sem mesta
The Medieval Economy
and Society
An Economic History of Britain
in the Middle Ages. M.M. Poston.
Penguin Books 1975.
Bókin kom fyrst út hjá Weiden-
feld and Nicolson og er nú endur
prentuð i bókaflokki Penguin-út-
gáfunnar ,,The Pelican Economic
History of Britain 1". Höfundur-
inn er einn þekktasti miöalda-
tiag-sagnfræðingur breta og var
prófessor i hagsögu við Cam-
brigde-háskólann frá 1938—1965.
Hann er útgáfustjóri Cambridge
Economic History of Europe og
hefur ritað margt um hagsögu
miðalda.
Höfundur sýnir fram á það i
fyrsta kafla ritsins, að allt of mik-
ið hafi verið gert úr germönskum
áhrifum við mótun samfélags
engil-saxa og að rómversk áhrif
hafi átt sinn þátt i þeirri mótun
ekki siður en germönsk. Hann
rekur þessa áráttu enskra sagn-
fræðinga til þýskra áhrifa, en i
Þýskalandi var mikill áróður
upphafinn á fyrri hluta 19. aldar
um áhrifamátt germanskra
samfélagshátta til mótunar
miðaldasamfélaga vitt um
Evrópu. Þessar þýsku kenningar
höfðu mikil áhrif t.d. hér á landi,
bar sem menn skrifuðu svonefnda
iornaldarsögu tslands með þýsk-
um gleraugum og mátu alla bók-
mennta- og söguarfleifð islensks
miðaldasamfélags eftir vitlaus-
um þýskum stórgermönskum for-
ánægju hafa af þvi að handleika
þessa bók. Liklegt er að þeir
endurlifi með sjálfum sér liðna
fyrirlestra og annað hugstætt úr
námstið sinni. Með tilliti ti! þess
að hérlendir viðskiptafræðingar
eru vist ein 4 hundruð að tölu og
þeim fer ört fjölgandi. má
fullyrða að bókin hlýtur að fá
hinar bestu viðtökur á markaðin-
um (samanber atriðisorðið
markaður:.....með þvi er átt við
þann vettvang. þar sem framboö
ogeftirspurn vöru eða þjónustu á-
kvarðast. en hann þarf ekki að
vera bundinn ákveðnum stað eða
tima”)
Ekki veit ég nema eftirspyrj-
endur bókarinnar kunni að telja
það kost en ekki löst á henni, að
Karl heitinn Marx hefði visast
rekið flest það öfugt ofan i höf-
undinn sem eftir honum og um
kenningar hans er haft. Ég býst
þó við að staliniskum kommúnist
um (t.d. svonefndum „mellum"
og „eikum") liki það býsna vel
sem greinir undir atriðisorðinu
marxisnii.Ekki veit ég hvort þeir
sakna skilgreiningar höfundar á
meintri meiningu Marx um auð-
magnið.
Eg fyrir mitt leyti hefði haft
gaman af þvi að sjá hann fjalla
um hugt. fjölþjóðafélag. Ekki
hefði heldur sakað að t'á eitthvað
um stagflation („stöðnunar-
bólgu”) i ljósi þess sem segir um
verðbólgu (inflation). Oliukreppa
heföi vel mátt koma fyrir, en úti-
vist hennar og ýmsar tima-
skekkjur eru til vitnis um það, að
höfundur muni hafa hætt samn-
ingu skýringa við atriðisorðin um
tveim árum áður en hann undir-
ritar formálann.
Höfundur „Hagfræði” er fyrr-
verandi st jórnmálamaður i flokki
atvinnurekenda og allra annarra
stétta. Þess vegna þykir honum
hlýða að hafa lágt um tengsl há-
skólagreinar sinnar við atvinnu-
lifið: orðin atvinnuvegur eða
atvinnuskipting. fiskveiðilögsaga
Framhald á 14. siðu
skriftum. Forngermanskir sam-
félagshættir voru fabúleraðir upp
að nokkru á grundvelli ádeilurits
Tacitusar, Germania, sem var
dulbúin árás á sóðalegt munaðar-
lif rómverja á hans dögum. Þvi
fór i rauninni fjarri að austur-
germanskir þjóðflokkar væru
nein fyrirmynd um lifernishætti
fyrir og eftir hingaðburð vors
Herra. öðrum þræði lifðu þessir
þjóðflokkar sem flækingsþjóðir,
nautanasjúkir, kynvilltir animal-
istar, ruddalegir barbarar og svo
heimskir, að rómverjar gátu að-
eins nýtt þá til einföldustu verka
svo sem manndrápa.
Þessar þýsku kenningar drógu
upp glansmynd af germönskum
þjóðflokkum, drengskaparmönn-
um og vinnusömum spekingum,
hetjum og sem sagt dýrðarmönn-
um i hvivetna. Þessi þýska fabúla
hefur skekkt alla söguritun á
Norðurlöndum og hér á landi og
eins og Postan heldur fram á
Englandi. Rómversku áhrifin
voru mun meiri en hingað til hef-
ur verið álitið og þáttur kirkjunn-
ar stórum meiri til mótunar bæði
beint og óbeint.
Höfundur rekur hagsögu ensks
miðaldasamfélags samkvæmt
aukinni þekkingu á rómverskum
áhrifum sem koma fram i sam-
timaheimildum og fornleifarann-
sóknum. Þetta er ágætt rit og
gætu islenskir fræðimenn mikið
lært af rannsóknaraðferðum höf-
undar.
Á svölunum
Komin er út ljóðabókin A svöl-
ununi, eftir Þuriði Guðmunds-
dóttur.og er þetta þriðja bók höf-
undar. í bókinni. sem er 51 bls..
eru 45 ljóð. Letur hf. fjölritaði.
kápumynd gerði Björg Þorsteins-
dóttir og kápuprentun annaðist
Grafik hf. Fyrri bækur Þuriðar
C.uðmundsdóttur eru Aðeins eitt
blóm, sem kom út 1969. og Hlátur
þinn skýjaður. sem kom út 1972.
Gjöf til fé-
lagsstarfsemi
í Húsi Jóns
Sigurðssonar
Þegar Hús Jóns Sigurðssonar
var opnað 1. september 1970
fengu tslendingafélag og Félag
isl. námsmanna i- Kaupmanna-
höfn þar hálfa aðra hæð til um-
ráða. Er þar bókasafn og smá-
fundaherbergi uppi, en veitinga-
og samkomusalur niðri.
A margan hátt var það slyrkur
fyrir félögin að eignast fast aðset-
ur i Húsi Jóns Sigurðssonar.
„Islands Kulturhus". Starfsemin
varð öflugri og fjölbreyttari.
Þarna er opið daglega og blöðin
að heiman og kaffisopi á boðstól-
Framhald á 14. siðu
Öbrotgjörn hagfræði
viðskiptafræðinganna