Þjóðviljinn - 06.01.1976, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 06.01.1976, Blaðsíða 1
MÚÐVIUINN Þriðiudagur 6. janúar 1976 — 41. árg. — 3. tbl. Nú er kaup bankastjóra orðið rúmlega 200 þúsund kr. á mánuði Fengu 20 þús. kr. hækkun Sem kunnugt er hafa þær fréttir gengift aö undanförnu aö bankastjórar hafi fengið a 11- verulega kauphækkun nýverið, og hafa verið nefndar i þvi sam- bandi tölurnar 40 og 00 þúsund kr. á mánuði. Þjóðviljinn fékk það staðfest hjá ábyrgum aðila i gær, að kauphækkun sú sem bankastjórarnir fengu um mánaðamótin nóv/des. sl. hafi verið 20 þúsund kr. á mánuði og sé þá kaup hinna al- mennu bankastjóra rúmlega 200 þúsund kr. á mánuði. Forsætisráðherra Geir Hallgrimsson sagðist ekki kannst við það að bankastjórar hefðu fengið kauphækkun er hann var spurður að þvi i „Beinni linu” í útvarpinu sl. sunnudagskvöld og má slikt furðulegt teljast, þar sem þessi kauphækkun bankastjóranna var ákveðin 1. júlf sl. þótt hún kæmi ekki til framkvæmda fyrr en þetta seint. Og einn af þeim sem þarna fékk kaupið sitt hækkað um þvi sem nemur helming mánaðar- Vissi Geir um hækkunina til bankastjóranna cða lét hann sem hann ekki vissi? launa iðnverkafólks, Jóhannes Nordal seðlabankastjóri, sat fyrir framan alþjóð i sjónvarpinu sl. föstudagskvöld og sagði þjóðarhag nú þannig varið, að útilokað væri að fólk gæti fengið kauphækkanir; svig- rúm til þess væri ekki fyrir hendi —S.dór Fundur baknefndar og samninganefndar ASI: Óskar heimildar til viiiiiustöðviinar Á fundi baknefndar og samninganefndar ASí i Tjarnarbúð í gær var samþykkt einróma að fara þess á leit við stjórnir og trúnaðarmannaráð aöildarfélaganna að þau afli sér þegar i stað verk- fallsheimildar hjá félög- unum. Ekki var að svo stöddu talin ástæða til þess að tímasetja hugsanlegar verkfallsaðgerðir m.a. með hliðsjón af kjarabar- áttu sjómanna. Hinsvegar hefur reynslan sannað að litið gengur i kjarasamn- ingum fyrr en verkalýðs- félögin hafa aflað sér verkfallsheimildar. í dag er þess að vænta að at- vinnurekendur svari stefnutillögu Kjararáðstefnu ASt i kjaramál- unum. Hún var m.a. sett fram i 14 punktum, sem miðuðu að þvi að komast fyrir rætur verðbólg unnar og tryggja varanlegan kaupmátt umsaminna launa. At- vinnurekendur töldu sig ekki geta svarað stefnutillögu ASt fyrir jól m.a. vegna þess hve sérkröfur ýmissa aðildarfélaga ASÍ hafa borist seint. Á fundi baknefndar og samn- inganefndar ASl i gær var rætt um hvaða af sékröfum aðildarfélaganna skyldu teknar upp af heildarsamtökunum i samningunum. 1 ræðu Björns Jónssonar, forseta ASt, á fundinum kom m.a. fram að atvinnurekendur hafa ekki léð máls á neinni kauphækk- un. Þeir hafa talið hag atvinnu- veganna og sérstaklega einstakra greina það bágan að ekkert svig- rúm væri til launahækkana, nema að til kæmi veruleg stefnubreyt- ing rikisstjórnarinnar. Hefur þar einkum verið rætt um lánsfjár- þörf, vaxtalækkun, lækkun tolla á hráefnum og vélum o.s.frv. Nokkur þessara atriða koma að mati ASl vel til greina, en krefjast nánari athugunar. Afstaða atvinnurekenda til samningamálanna i heild mun eins og áður sagði væntanlega skýrast i dag. Súgandafjörður: íbúðarhús brann til grunna Mannbjörg varð en heimilisfólk missti aleiguna i gærmorgun kom upp eldur i gainla prestsetrinu að Staö i Súgandafirði og brann það til ösku. Fjórir karlmenn bjuggu i húsinu og sakaöi engan þeirra en þeir misstu allar eigur sinar enda varð engu bjargað. tbúar hússins voru allir i fasta svefni þegar eldurinn kom upp en sprenging varð i húsinu og vaknaði einn mannanna við hana. Hann gat gert félögum sinum viðvart og sluppu þeir naumlega út þar sem eldurinn magnaðist mjög fljótt vegna þess að engin leið var að komast að vatni. Bóndinn á Stað, Þórður Ágúst Eyjólfsson, hafði lykla að nýja prestsetrinu og gat gert slökkvi- liðinu á Suðureyri viðvart i gegnum sima. Þegar það kom á staðinn var eidur orðinn svo magnaður að ekki varð við neitt ráðið og brann húsið til ösku. Enginn hlutur bjargaðist úr húsinu sem var um 70 ára gamalt timburhús og innan- stokksmunir voru mjög lágt vátryggðir. Það er trú manna á Suðureyri að ef slökkviliðið er kallð út i bruna, þá fylgi tveir aðrir á eftir. Þannig hefur það verið um margra ára skeið og þannig var það einnig nú, þetta var þriðja brunaútkalliðá mjög skömmum tima hjá slökkviliðinu á Suður- eyri og þvi vonast menn til þess að ósköpin séu nú gengin yfir i bili. —Gísli/S.dór S Utgerðarmenn krefjast: Verð á loðnu fyrsta Annars stopp frá 18. janúar ÍJtgerðarmenn loðnuskipa kröfðust þess á fundi, sem þeir héldu með sér i gær, að loðnuverð fyrir janúarmánuð verði ákveðið hið fyrsta af Verðlagsráði sjávar- útvegsins. Á fundinum gerðu þeir ennfremur með sér þá samþykkt að stöðva veiðar loðnuflotans. verði ekki búið að ákveða loðnu- verðið fyrir 18. janúar. Tvö eða þrjú loðnuskip eru lögð af stað til veiða og næstu daga munu fleiri leggja i hann. Ekki liggja önnur verkefni fyrir is- lensku nótaskipunum en loðnuveiðar. þar sem sildveiðar i Norðursjó hafa nú verið bannaðar af sjávarútvegsráðuneytinu. Hafrannsóknarskipið Árni Friðriksson leitar nú loðnu suður með austurströndinni. Leiðangursstjóri er Hjálmar Vilhjálmsson. Tíu verndarar á miðunum Tiu skip aðstoða nú 32 breska togara við veiöar á svæðinu frá Glettinganesi að Mclrakkasléttu. Hafa þau aldrei vcrið fleiri. Gæsluvélin Sýr greindi eftirtalin skip á eftirlitsflugi i gær: Freigáturnar Andromeda, Lowestoft, Gurklia og ein, sem ekki náðist nafnið á. Práttar- bátarnir Statesman, Lloydsman og Koysterer, sem er á vegum sjóhersins, birgöaskipiö Tight- pool, og aðstoöarskipin Hausa og Olven. Niu starfsmenn fjölmiðla eru nú um borð i varðskipum. þar af sex frá breskum sjónvarpsstöðv- um. t hópi þeirra er Norman Rees frá ITN og Larry Harris frá BBC. Báðir hafa þeir áður greint frá islenskum málefnum. Guðmundur J. Guðmundsson formaður Verltamannasambands Islands: ískyggilegar horfur í “ atvinnumálum yfir — Komist vertið ekki strax i gang og og ekki er útlit fyrir aö þeir menn veröi endurráðnir i vetur. Þá hefur fólk i frystihúsum liaft heldur litla vinnu undanfarið og verður svo enn um lirið vegna þess að togararnir sigla nú ineð aflann og mér er cngin launung á þvi, að komist vertið ekki strax i gang og vcrði lánamálapólitik Franihald á bls. 10. lánastefna bankanna ekki endurskoðuð blasir stórfellt atvinnuleysi við — Þvi miður/ útlitið í at- vinnumálum er vægast sagt iskyggilegt. Uppsagn- ir hafa dunið yfir menn í byggingavinnu að undan- förnu og einnig hjá verka- mönnum sem unnið hafa hjá verktökum ýmiskonar Flugslys í Borgarfirði eystra í gœr 5 manna flugvél brotlenti Flugmaðurinn var einn i vélinni og slapp ómeiddur, eu flugvélin er ónýt Um kl. 13 i gærdag brotlenti fimm manna Cessna-flugvél frá Flugfélagi Austurlands skammt frá bænum Hvannastoð scm er innsti bær i Borgarfirði eystra. Flugmaðurinn var einn i vélinni og slapp hann ómeiddur, cn talið ér að flugvélin sé gerónýt. Slysið bar að með þeim hætti að flugvélin var á leið frá Egils- stöðum til Borgarfjarðar og flaug flugmaðurinn I gegnum svo kallað Sandskarð. Þegar i gegnum skarðiö kom lokaðist allt útsýni skyndilega vegna þoku og átti flugmaðurinn engra annara kosta völ en að nauð- lenda, þar sem skarðið er of þröngt til þess að vélin gæti snúið þar við. Þarna munu vera sléttir blettir undir og þar reyndi flugmaðurinn lendingu með þeim afleiðingum að af varð brotlending og vélin eyði- lagðist. Sæmilegt veður var fvrir austan i gær og talið var fært til Borgarf jarðar þegar flug- maðurinn lagði af stað frá Egilsstööum en svo lokaðist leiðin skyndilega. Þessi vél sem þarna eyðilagðist var nýleg. eða um árs gömul. af Cessna-gerð sem fyrr sagði. og tók hún fimm manns. —Sveinn/S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.