Þjóðviljinn - 06.01.1976, Blaðsíða 9

Þjóðviljinn - 06.01.1976, Blaðsíða 9
Þriðjudagur 6. janúar 1976. ÞJÓÐVILJINN — SIÐA 9 Vafasamt vítakast færði sovétmönnum jafntefli frábær vörn og markvarsla hjá íslenska liðinu sem átti þarna einn sinn besta leik um árabil Það fer vart á milli mála, að is- ienska landsliðið i handknattleik náði einum sinum besta leik um árabil i fyrri leiknum við sovét- menn sl. laugardag, þegar sovét- menn máttu þakka fyrir jafnteflið 13:13 en það var þeim fært með i hæsta máta vafasömu vitakasti á siðustu sekúndum leiksins, af annars frábærum dómurum leiksins, Hjuler og Knudsen frá Panmörku. Aðdragandi þess vítakasts var sá að ólafi Einars- syni var hreinlega haldið af ein- um sovétmanninum er hann hugðist reyna stöðva þann leik- mann sovéska liðsins er var að brjótast i gegnum vörn ísl. liðs- ins. ólafur náði að rifa sig lausan en kipptist til og rakst harkalega á þann sem braust i gegn. Og fyrir þetta var dæmt vitakast á isl. liðið i stað þess að dæma aukakast á sovétmenn og úr þessu vitakasti, dæmdu 30 sek. fyrir leikslok, náðu sovétmenn að jafna, 13:13, eftir að isl. liðið hafði haft yfirhöndina svo til allan leik- inn. bað var sorglegt að þessi mis- tök hinna annars ágætu dómara skyldu verða til þess að sovéskir náðu óverðskulduðu jafntefli. Eins og áður segir var þessi leikur einn sá besti sem isl. lands- liðið hefur náð um árabil, einkum var varnarleikurinn og mark- varslan frábær. Liðið tók það til bragðs að láta einn mann leika mjög framarlega i vörninni til þess að stöðva ieikkerfi sovét- manna i fæðingu og var þessu einkum stefnt gegn þeim leik- reynda stjórnanda liðsins Klimov (7) sem er 35 ára gamall og hefur leikið 123 leiki fyrir Sovétrikin. ■ Stefán Gunnarsson sloppinn inn fyrir fjóra rússneska varnarmcnn. Mynd: gsp Þetta tókst fullkomlega. Sovéska liðið leikur nefnilega of kerfis- bundið og sé lykilmaðurinn tekinn úr umferð fer allt úr skorðum hjá þvi. Þar ofan á bættist að Bjarni Jónsson var nú loks tekinn inn i landsliðið og hann átti hreint stór- kostlegan leik i vörninni og lokaði Framhald á bls. 10. Síöari landsleikur Ísland-Sovétríkin 15:19 Úthaldið brást hjá Þetta er framtíðar- kjarni landsliðsins sagði Viðar Símonars. landsliðsþjálfari — Ég held að það orki ekki tvi- mælis aö þeir menii sem léku þessa tvo landsleiki auk þeirra Björgvins Björgvinssonar, Axels og Gunnars Einarssonar verði sá kjarni sem bera mun landsliðið uppi i nánustu framtið; mér finnst ég hafa þarna fundið okkar sterk- asta hóp, sagði Viðar Simonarson eftir slðari leikinn við sovétmenn á sunnudagskvöldið. — Nú er ÓL draumur islenska liðsins búinn, cða svo má segja. Viðar, livað er þá næsta verkefni landsliðsins sem stefnt verður að? — Það cr undankeppni heims- meistarakeppninnar sem hefst næsta vetur og það er einmitt með hana i liuga scm ég tala um þennan hóp sem Iramtiðarkjarna landsliðsins. — Þú ert auðvitað ánægður með fyrri leikinn en livað viltu segja um þann siðari? — Ég tel að úthaldið hafi brugðist, það er of stuttur timi liðinii frá jólasteikinni til þess að leikmenn þoli tvo svona erfiða leiki i röð, auk þess sem hæpið er að liðið náði tveimur toppleikjum i röð, en ég tel að það hafi náð toppleik i fyrri lciknum. — Ilvernig verður með lands- liðsæfingar fram að siðari leikn- um við lúxembúrgara og júgó- slava? — Nú fer islandsmótið af stað af fullum krafti frain i lok febrúar og ég á ekki von á þvi að við get- um æftneitlað ráði þann linta; þó verður það reynt cf mögulegt er, en þegar mótið cr búið verður byrjað af fullunt krafti að undir- búa liðið fyrir þessa tvo leiki. — Viltu gera samanburð á so- véska liðinu og þvi júgósla vneska sem var hér um daginn? — Mér finnst sovéska liðið heil- steyptara sem lið.cn það leikur of kerfisbundið, þannig að það þarf svo litið út af að bera til þess að allt fari úr sambandi hjá þvi. Júgóslavarnir áttu auðveldara nteð að leika ókerfisbundið er kerfi þeirra voru stöðvuð; þetta lield ég aðsé aðalmunurinn. —S.dór íslenska liðinu og sovétmenn sigldu framúr á lokamínútum leiksins Tveir erfiðir landsleikir á tveimur dögum var greinilcga of mikið fyrir islcnsku landsliðs- mennina svona rétt ofan i jóla- steikina og úthaldið brást þeim i siðari landsleiknum við sovét- menn. En meðan úthaldið entist hafði islenska liöið frumkvæðið i leiknum en á lokaminútunum var liðið sprungið og sovéska liðið sigldi framúr og tryggði sér sig- urinn 19:15. Þar ofan á bættist að Bjarni Jónsson meiddist i fyrri leiknum og gat ekki leikið meö i þeim sið- ari og skarð hans i vörninni var of stórt til þess að það yrði fyllt, og var þetta þeim mun ergilegra þar sem Jón Hjaltalin kom nú inn i liðið og breytti sóknarleik þess mjög til hins betra með þrumu- skotum sinum og harðfylgi. íslenska liðið hafði yfirhöndina allan fyrri hálfleik og hafði eitt mark yfir i leikhléi 9:8. Og fram- an af þeim siðari hélt það i við so- vétmennina en eftir að staðan var orðin 10:10 virtist sem úthald leikmaúna væri þrotið og so- véska liðið sigldi framúr hægt og bitandi, náði 3ja marka forystu Framhald á io. siðu. Tek landsliðið fram yfir Lugi sagði Jón Hjaltalín, sem gefur kost á sér í landsliðið — I\lér hefur alltaf þótt það inikill heiður að fá að leika fyrir islands hönd og þess vegna gef ég kost á mér i landsliöiö ef þess verður farið á leit við mig og ég tek lands- leik hiklaust frain yfir leik með ininu félagi I.ugi, sagöi Jón Hjaltalin aðspurður eftir leikina við sovétmenn. — Það eina sem ga'ti staðið i vcginum fvrir þvi að ég gæti verið meö er atvinna min, og ég þyrfti að athuga það mál verði ég valinn i landslið i framtiðin ni. — Hvað viltu segja um þessa tvo l^indsleiki? — Sovéska liðið er nijög sierkt og jafntefli við þá er frábær árangur og ekkert til að skammast sin fyrir að tapa fyrir þessu liði með 1 mörkum. Annars var það aðeins liinn slæmi lokakafli hjá okkur sem varð þess valdandi að við töp- uðuin leiknum. — Ertu nokkuð aö flvtjast heim til islands? — Ekki á þessu ári alla vega, en ég veit ekki hvað ég myndi gera, ef mér bvöist hér góðatvinna. —S.dór

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.