Þjóðviljinn - 08.01.1976, Qupperneq 8
8 SÍÐA - ÞJÓÐVILJINN Fimmtudagur 8. janúar 1!I7(>.
Veröur 01-
leikunum í
Montreal
frestaö?
„Erfitt að komast hjá því” segja
Kanadamenn. „Kemur ekki til
greina” segir alþjóðanefndin.
Undanfarnar vikur hafa þær
raddir orðiB æ háværari, sem
hallasthafa aðþvi, aðekki verði
hjá þvi komist að fresta
Olympiuleikunum i Montreal
næsta sumar. Þeir eiga skv.
áætluninni að hefjast 17. júli en
verkföll, verðhækkanir o.m.fl.
hefur tafið framkvæmdir veru-
lega.
Framkvæmdanefnd leikanna
hefur þó til þessa ekki ljáð
máls á þvi, að hugsanlega þyrfti
að fresta leikunum. Það var
ekki fyrr en i gær að formaður
framkvæmdanefndarinnar,
Goldbloom, lýsti þvi yfir, að
hann gæti ekki ábyrgst að þessi
griðarlegu mannvirki yrðu til-
búin i tæka tið. Ummæli hans
þykja fyrsta visbending þess, að
kanadamenn muni á næstunni
sækja um frestun leikanna i ein-
hvern tima. Goldbloom lagði á
það áherslu að allar ákvarðanir
um frestun eða annað þess hátt-
ar yrði Alþjóða Ólympiunefndin
að taka.
Frá henni barst yfirlýsing
þess efnis, að kanadamenn
hefðu enga beiðni sent um frest-
un enn og að Alþjóðanefndin
hefði ekki heyrt neitt á slikt
minnst. Varaformaður nefndar-
innar lýsti þvi yfir að slikt kæmi
llún er eKki smá i sniðum mannvirkjagerftin i Montreal og kostnaftur hefur rokift upp úr öllu valdi miöaö
vift þaft, scm i upphafi var áætlaft.
enda ekki til nokkurra mála,
væri „einfaldlega óhugsandi”.
„Við getum það eins og
mexicanar”.
Goldblomm ræddi einnig við
fréttamenn um tilboð mexicana
þess efnis, að þeir vildu halda
Olympiuleikana i október og
yrðu þá tilbúnir með öll mann-
virki, sem þeir eiga raunar til
frá þvi þeir héldu leikana árið
1968.
„Ef þeir geta hugsanlega
hlaupið i skarðið fyrir okkur og
fengið að halda leikana i októ-
ber sé ég ekki neina ástæðu til
þess að ég geti það ekki lika”,
sagði Goldbloom. Við eigum að
hafa algjöran forgang að þvi að
halda þessa Olympiuleika og ég
trúi ekki öðru en fullt tillit verði
tekið til þeirrar vinnu, sem
þegar hefur átt sér stað. En
ennþá er ég þó sannfærður um
að okkur takist þetta; við mun-
um fórna öllu til þess að stand-
ast timaáætlunina”.
Kostnaður hefur
fjórfaldast
Kostnaður við mannvirkja-
gerðina hefur.svo sannarlega
farið fram úr áætlun. Upphaf-
lega átti að setja i þetta 250
miljónir Kanadadollara en nú er
ljóst að þeir verða ekki undir
eittþúsund miljónum og jafnvel
rúmlega það. Aætlaðar beinar
tekjur vegna leikanna eru 400
miljónir dollara og litlar likur til
þess að sú tala fjórfaldist. Eftir
standa siðan mikil verðmæti i
mannvirkjum, ekki sist sjálfu
Oly mpiuþorpinu, sem selt
verður til ibúðarhúsnæðis að
leikunum loknum.
Borgarsjóður Montrealborgar
var upphaflega ábyrgur fyrir
framkvæmdunum. en nú hefur
stjórn Quebec-fylkis tekið við
yfirumsjón og ábyrgð verksins.
Var það ekki sist vegna óánægju
og ótta borgarbúa Montreal um
að borgin yrði hreinlega gjald-
þrota vegna hins gifurlega
kostnaðar. —gsp
Þorsteinn aldrei
kallaður fyrir
2 1. deildarliö slegin
út í enska bikarnum
Vegna ummæla á iþróttasiðu
Þjóðviljans sl. þriðjudag þess
efnis að ÍR hafi oftsinnis kallað
Þorstein Hallgrimsson heim frá
Danmörku til að leika með iiðinu,
meðan hann dvaldist ytra, hafði
Þorsteinn samband við blaðið og
bað um að þetta væri leiðrétt.
Sagðist hann aldrei hafa verið
kallaður heim til að leika með ÍR.
Hitt væri aftur á móti rétt að fyrri
hluta vetrar hafi hann leikið með
Sisu, en lokið siðan skólanámi og
flutt heim og tekið að leika með
ÍR eftir það; en að hann hafi verið
kallaðurheim fyrir einstaka leiki
væri rangt.
Þetta leiðréttist hér með og
biðjum við Þorstein velvirðingar
á mistökunum. —S.dór.
Þau óvæntu úrslit urftu i ensku
bikarkeppninni i fyrrakvöld, aft
tvö 1. deildarlift voru slegin út,
þegar sex leikir voru endurteknir
i :!. umferft.
Middlesbrough tapafti fyrir
Bury úr :f. deild og Birmingham
fyrir neösta liftinu i 2. deild. úrslit
leikja urftu þessi:
Birmingham- Portsmouth 0:1
Bolton-Brentford 2:0
Bury-Middlesbrough 3:2
Plymouth-Hull 1:4
Rochdale-Norwich 0:0
Tooting-Swindon 2.1
Þar vantaði rökin
Örfá orð vegna ásakana landsliðsfyrirliðans
Ólafs H. Jónssonar, í garð íþróttafréttamanna
Ef
grannt
er
skoöaö
Mönnum hefur orftið tíðrætt
um þær hörftu ásakanir sem
fyrirlifti landsliðsins f
handknattieik ólafur II. Jóns-
son bar á islenska iþróttafrétta-
menn fyrir niöurrifsstarfsemi i
sjónvarpinu sl. laugardag og
siftan itrekun þessara ásakana i
vifttali, eöa réttarasagt eintali
hans i Mbl. sl. þriftjudag. Og þar
sem allir iþróttafréttamenn eru
þarna dregnir undir einn hatt tel
ég mig eiga hluta af kökunni og
vildi gjarnan fara örfáum orft-
um um þessi ummæli Ólafs
vinar mins orðhvata, sem þvi
miftur eru sögð af meiri hita en
viti; það skorti nefnilega öll rök i
þessi ummæli hans. Og snúum
okkur þá beint að þvi sem hann
sagði.
Ólafur sagði að strax i fyrra
hefði niðurrifsstarfsemi iþrótta-
fréttamanna byrjað, þegar
reynt var að BYGGJA UPP
LANDSLIÐ eins og hann orðaði
það. öllu má nafn gefa, og ef
gagnrýni skal ævinlega kölluð
niðurrifsstarfsemi, þá það, en
þaö er rétt aft iþróttafrétta-
mcnn, ekki allir að visu, þar
vantaði einn, gagnrýndu nokkuft
vinnubrögðin i sambandi við
landsliðið þá, en þó ekki fyrr en
sýnt var að um fálm frekar en
uppbyggingu landsliðs var að
ræða.
Ólafur sagði i ásökunum sin-
um aft landsliðskjarni væri
nauðsynlegur og nefndi 7—9
menn. En i fyrravetur voru
reyndir 27 menn i landsliði. Þar
sem nú landslift f handknattleik
er skipaft 12 mönnum hverju
sinni, þá cr hér um rúmlega tvö
lið að ræða og það verður tæp-
lega kölluð uppbygging 12
manna liös að rcyna 27 menn i
örfáum leikjum á einum vetri.
Þetta var gagnrynt, ásamt f
sumum tilfellum val liðsins.
Og Ólafur hélt áfram og sagði
að i haust og vetur hefði niður-
rifsstarfsem i iþróttafrétta-
manna haldiö áfram og að allir
eigi þar sök. Það er rétt að
tvennt hefur verið gagnrýnt I
sambandi við landsliðið i haust
af öllum fþróttafréttamönnum
nema einum. I fyrsta lagi undir-
búningurlandsliðsinsogi annan
stað val liðsins.
t sambandi vift gagnrynína a
undirbúning liðsins hafa þó allir
fréttamennirnir sýnt skilning á
þeirrierfiðu aðstöðu sem HSt er
i vegna fjárskorts og sér i lagi
vegna húsnæðisleysis, þannig
að þar hefur fremur verið um að
ræða umræðu en gagnrýni.
En i hinu tilfellinu hefur verið
um allnokkra gagnrýni að
ræða. Nær öll blöftin hafa gagn-
rýnt það að þeir Jón II jaltalin og
þó alveg sérstaklega Bjarni
Jónsson skyldu ekki vera valdir
i landsliðift og Morgunblaðið
minnist á Steindór Gunnarsson i
þessu sambandi.ef ég man rétt.
Nú, þessir þrir menn voru
ekki i liftinu gegn pólverjum og
töpuðust báðir leikirnir, ekki
gegn norðmönnum og töpuðust
báftir leikirnir, ekki gegn
júgóslövum og töpuöust báðir
leikirnir, ekki gegn dönum og
töpuftust allir leikirnir, en sfðan
komu tveir af þeim inn gegn
rússum, Bjarni og Steindór, og
þá allt í einu næst jafntefli við
„besta lið heims” eins og rúss-
arnir voru kallaftir i sumum
blöftum. Þaft skyldu þó
aldrci vera óli minn aft vift
asnarnir sem aldrei höfum
leikið handknattleik og
höfum þvi ekkert vit á honum
eins og þú sagðir af litillæti
þinu i sjónvarpinu á dögun-
um höfum haft rétt fyrir okkur?
Og nokkrir landsliðsmenn sem
ég ræddi við eftir siðari leikinn
sögðu skarft Bjarna i vörninni i
honum hafa verift of stórt, þess
vegna hefði hann tapast meft 4
mörkum.
Hitt er svo annaft mál, að ég
cinn gagnrýndi valið á Björgvin
Björgvinssyni I liðið gegn
Lúxembúrg, eftir að hann hafði
verið frá handknattleik i nærri
heilt ár austur á Egilsstöftum.og
við þá gagnrýni stcnd ég enn.
En eftir að Björgvin var kominn
hingaft suður og búinn að æfa
daglega i nær 3 vikur var ekkert
sjálfsagðara en að hann væri
valinn i liðið. Hann hafði nóg
þrek, hann vantafti bolta-æfing-
una og slikur snillingur sem
Björgvin er þarf ekki nema 3—4
vikur til að ná henni að fullu,
þótt aðrir leiki það kannski ekki
eftir.
Mér finnst það i hæsta máta
rakaleysi i ásökunum Ólafs aft
þegar loks er tekift mark á
gagnrýni fréttamanna og þeir
menn sem þeir vildu inni liftift
eru komnir þangaft, þá næst
besti árangur vetrarins. Ef
þetta er ekki að fara f hring og
rassskella sjálfan sig þá veit ég
ekki hvað það er.
ólafur talar Ifka um að við
höfum aðeins horft á dökku
hliðarnar og útmálað þær. Þvi
miður vegna okkar allra sem
gaman höfum af handknattleik,
þær hafa verið fáar og litlar
ljósu hliðarnar hjá landsliðinu i
haust. Liðið hefur leikið 12 leiki,
10 hafa tapast, þar af 7 á heima-
velli, eitt jafntefli og einn sigur,
en þvi miður gegn hinu slaka liði
Lúxembúrg. Ef þú sérð bjarta
hlift á þessari útkomu,óli minn,
þá höfum við ólikt mat á þessum
málum. Ég sé bjarta hlið ef
leikur ekki tapast, ég óska
aldrei eftir öðru en sigri til
handa isl. landsliðinu i hvaða
grcin sem er. En ef landsliðs-
fyrirliðinn í handknattleik sér
bjarta hlið á 10 tapleikjum af 12,
á tæpum 3 mánuftum, þá finnst
mér það ekki nógu gott, vegna
þess að ég hélt að keppnismenn
og alveg sérstaklega fyrirliðar
vildu ekki annað en sigur. S.dór.