Þjóðviljinn - 15.01.1976, Blaðsíða 8

Þjóðviljinn - 15.01.1976, Blaðsíða 8
Sonur hreindýra- bónda í harðri keppni i gær sögöum viö frá cinni af fremstu skiöakonum Sovétrlkjanna en nú kcmur kynning á einum besta göngu- manni þeirra, sem APN fréttastofan hefur scnt frá sér: ,,l\Iig dreymir um Olympíu- verölaun i a.m.k. einni grein,” segir Vasili Hotsjev, 24 ára gamail iþróttakennari frá Sjktjvkar, höfuöborg sjálf- stjórnarlýöveidis i Norður- Rússlandi þar sem smáþjóöin Komi býr. Þetta er engan veginn óraunhæfur draumur sovéska skiöamannsins. Hann vann silfur- og bronsvcrðlaun i siöustu heimsmeistarakeppni I Falun i Sviþjóö og vann síðan tvo sigra á sovétleikunum i Svcrdlovsk. Hann er nú i góðri þjálfun. Vasili Rotsjev er likamlega sterkur, þjálfar kappsamlega og hefur góöan stil. Hann er fæddur 22. des. 1951. kominn af stórri fjölskyldu hreindýra- bænda i þorpinu Bakur I sjálf- stjórnarlýðveldinu Komi. i skóla læröi hann á skiöum hjá Mikjail Durkin, sem enn er þjálfari hans, cn i Bakur likt og mörgum öörum sovéskum þorpum er góöur skiðaleik- vangur og skiðaiþróttin skyldunámsgrein i skólum. Kotsvef reyndist bestur nemenda Hurkins, og að námi þar loknu fór hann i iþrótta- kennaraskólann I Sjktjvkar. Veittu leiðtogar sovéska landsliösins þessum efnilega skiðamanni athygli og er hann nú viðurkenndur fremsti maður sovéska landsliðsins á sinu sviði . — APN. Vsili Rotsjev. Snjóleysi veldur mönnum \ áhyggjum á OL svæðinu í Innsbruck Einstaklega mildur vetur það sem af er I Mið-Evrópu hcfur valdið þvi aö nær snjó- laust er á þeim stað i Inns- bruck i Austurriki, þar sem vetrar-ólympiuleikarnir eiga aö hefjast eftir röskan hálfan mánuð. Þegar leikarnir voru haldnir i Innsbruck 1964 gerðist alveg það sama, snjó- inn vantaði, og þá tóku menn það til bragðs að flytja snjó til keppnissvæðisins. Og nú verður að gera alveg þaö sama. Að visu eru menn ekki úrkula vonar um aö snjói fram aö þeim tima að leikarn- ir eiga að hefjast, en það verður samt að flytja snjó nú þegar til svæðisins vegna þess að keppendur eru margir komnir til Innsbruck eða eru á ieiöinni, þar sem þeir munu dvclja við æfingar á ÓL svæðinu þar til leikarnir hefjast. Þeir keppa í dag i dag hefst suður i Róm á italíu undankcppni ÓL í blaki og er islenska landsliðið meðal þátttökuliða. Ekki búast menn við miklum afrekum hjá landsliði okkar i þessari ferö, enda er landsliðiö i blaki þarna að leika sina fyrstu landsleiki utanlands, og má segja aö blakiþróttin hér á landi sé ekki búin aö slita barnsskónum. Myndin hér aö ofan er tekin sl. sunnudag af landsliðinu áöur en þaö lék sinn siðasta leik fyrir þessa Bjarmalandsför. Nýr frjáls- íþrótta- þjálfari til Ármanns Æfingar hjá frjálsiþrótta- deild Armanns eru nú hafnar af fullum krafti aftur, eftir áramótahlé sem á þeim varö. Þjálfun annast þeir Stefán Jóhannsson og Þorkell Steinar Ellertsson. Sl. haust réðist Þorkell til deildarinnar sem þjálfari. Hann var einn af kcppnis- mönnum félagsins i frjáls- iþróttum fyrir 15—20 árum. Siðan þjálfaði hann frjáls- iþróttamenn félagsins i nokk- ur misseri með góðum árangri, var við nám i iþrótta- fræðum við iþróttakennara- skólann í Sviþjóð i tvö ár. Gerðist eftir það skólastjóri Eiðaskóla, en er nú fluttur aft- ur til Reykjavikur og hefur nú tekið upp þráðinn á ný. Vænta Ármenningar góös árangurs af starfi hans og bjóða hann velkominn til starfa. Stefán Jóhannsson er vel kunnur öllum þeim, sem hafa keppt eða starfað við frjáls- iþróttir siðastliöin ár. Hann hefur þjálfað iþróttamenn deildarinnar, en gerist nú samstarfsmaður Þorkels við þetta verkefni. Fram til vors munu Armenningar einbeita sér aö þjáifun innanhúss, en er vorar munu útiæfingar hefjast. Þá mun einnig hefjast á ný Mikla- túnshlaup Armanns, en það hefur legið niöri frá þvi i haust. Þótt áhuginn sé mikill og æf- ingar vel sóttar af þvi fólki, er þær stunda, skal þvi ekki leynt, að þessi hópur er allt of litill. Er þvi skorað á þá, sem hafa áhuga á þessari grein iþrótta og langar til að vera með, að hika ekki lengur heldur drifa sig af stað. Allar upplýsingar um æf- ingar og annað, sem að þessu máli lýtur, eru gefnar I sima 19171 (Stefán Jóhannsson og Jóhann Jóhannesson form. deildarinnar) s. 16994 (Tómas Einarsson) og 85478 (Sveinn Sigmundsson). Rodnina og Zaitsev í sérflokki Irena Rodnina og Alexander Zaitsev, hiö nýgifta list- skautapar frá Sovétrikjunum var i sérflokki á listskauta- hlaupsmóti sem fram fór á Italiu i fyrradag. Þau hlutu 35,56 stig,en I 2 sæti varð par frá A-Þýskalandi, Romy Kramer og Rolf Oesterreich sem hlutu 34,59 stig og i 3 sæti varö sovéskt par, Irina Vorobyeva og Alexander Vlasov meö 34,07 stig. Þessi stigatafla sýnir glöggt hve yfirburöir Rodninu og Zaitsev voru miklir og eru þau talin örugg um aö hljóta gull- vcrðlaun á ÓL I Innsbruck siöast i þessum mánuöi.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.