Þjóðviljinn - 24.02.1976, Side 3
Þriðjudagur 24. febrúar 1976 ÞJÖDVILJINN — SÍÐA 3
V erkfallsbrot á
Snæfellsnesi
Annað hindrað — hitt fullkomnað
Fyrir helgina frömdu
sjómenn á tveim bátum á
Snæfellsnesi verkfallsbrot,
þótt ekki yrði nema annað
þeirra fullkomnað.
Sigurður Lárusson, formaður
verkalýðsfélagsins á Grundar-
firði sagði Þjóðviljanum i gær, að
skipverjar á Siglunesi hefðu róið
aðfaranótt laugardags, en þá var
verkfall hafið bæði i landi og á
sjó. Báturinn reri með linu sem
hann átti fullbeitta 13. febrúar en
hann komst ekki út þá til róðra
vegna veðurs. Netabátar hefðu
ekki heldur komist þá að sækja
net sin en fengið til þess undan-
þágu. Siglunesi hefði hins vegar
verið neitað um hana. Að sögn
Sigurðar var i fyrstu álitið að
aðeins væru á bátnum stýrimaður
og vélstjórar, sem ekki voru i
verkfalli, en hann reyndist með
fulla skipshöfn er hann kom að á
laugardaginn og ætlaði að landa.
Af löndun varð þó ekki þar sem
15-20 verkfallsverðir hindruðu
slikt, og er fiskurinn, eitthvað á
annað tonn, enn i bátnum, en ætl-
un skipverja mun hafa verið að
setja hann i herslu, þar sem
ekkert er unnið i frystihúsinu.
Þá hafði Þjóðviljinn samband
við Gunnar Kristófersson for-
mann Verkalýðsfélagsins Aftur-
eldingar á Hellissandi. Hann
sagði að þar hefði eitt alvarlegt
verkfallsbrot verið framið, sem
þeir hefðu orðið of seinir til að
koma i veg fyrir. Báturinn
Hamrasvanur sem róðið hefði
sem landróðrabátur frá Eifi hefði
ekki komið inn fyrr en eftir
tveggja eða þriggja daga útivist á
föstudaginn var, en verkfall hófst
á Sandi þann 19. Hefðu skipverjar
landað aflanum og flutt hann
suður á Hellna, þar sem aðstaða
er til að verka hann i salt. Hellnar
teljast hins vegar ekki á félags-
svæði neins verkalýðsfélags og
var þvi litið hægt að gera eftir að
fiskurinn var þangað kominn, úr
þvi að ekki var tekið fyrir flutning
hans þangað, en til þess sagði
Gunnar að fregnir hefðu borist of
seint.
Að öðru leyti sögðu þeir kolleg-
ar að allt væri rólegt á Snæefells-
nesi það þeir best vissu og ekki
aðrar alvarlegar tilraunir til
verkfallsbrota. —erl
Forsætisráðherrann hefur tvisvar skotið upp kollinum um helgina
Myndina tók —gsp á fundi með Tækniskólanemum um helgina.
FUNDINN!
Okkur er ánægja af þvi að
geta birt i blaðinu glænýja
mynd af Geir Hallgrimssyni
forsætisráðherra. Hann hefur
litið sést siðustu vikurnar,
dregið sig að þvi er virðist i hlé
meðan sviptingar og átök i
þjóðfélaginu eru á jafn háu og
hættulegu stigi og nú er.
Hlédrægni Geirs hefur hins
vegar þýtt aukið álag á samráð-
herra hans og þá ekki sist dóms-
málaráðherrann, sem hefur
staðið i ströngu við að réttlæta
aðgerðir eða aðgerðaleysi rikis-
stjórnarinnar i ýmsum þeim
Imálum, sem ofarlega eru á
baugi.
Já, Geir hefur litið sést og
verið afar upptekinn þegar
a.m.k. Þjv. hefur reynt að ná
tali af honum, vegna eins eða
annars. Hins vegar fundum við
hann i tvigang um helgina og
fengum vissu okkar fyrir þvi að
enn væri hann á róli þótt leynt
færi. 1 annað skiptið var for-
sætisráðherrann á efnahags-
málaráðstefnu sjálfstæðis-
flokksins, sem haldin var a
Loftleiðahótelinu og i hitt
skiptið er þessi mynd var tekin,
var hann á fundi hjá Tækni-
skólanemum!! Sannarlega önn-
um kafinn maður a’tarna!
— gsp
Sjónskifan á Vighól er oft heimsótt af kópavogsbúum, sem nú taka það óstinnt upp, að bæjaryfirvöld
skuli hafa úthlutað byggingalóðum undir einbýlishús, sem skyggja munu á hið frábæra útsýni. Mynd:
—gsp
Kópavogsbúar þinga
um „grænu svæðin
Kópavogsbúar hafa f mörg
horn að líta um þessar
mundir hvað snertir
náttúruvernd og „græn
svæði" í bæjarfélaginu.
Áhugi er enda mikill meðal
bæjarbúa og um helgina
var haldinn almennur
b o r g a r a f u n d u r um
„Manninn og umhverfi
hans".
Einkum eru þrjú mál ofarlega á
baugi um þessar mundir. Fyrst er
þar að telja fyrirhugaða lagningu
hraðbrautar i gegnum Fossvogs-
dal, en sú ráðagerð mætti þegar i
upphafi afar kröftugri mótspyrnu
bæjarbúa, sem réðust i blaðaút-
gáfu o.m.fl. til þess að túlka sin
sjónarmið.
Þá lita menn hornauga fyrir-
hugaða byggingu Fjölbrautar-
eða menntaskóla i kirkjuholtinu
auk þess sem þar mun eiga að
risa safnaðarheimili vesturb.æ-
inga og jafnvel einhver fleiri
mannvirki. Kirkjuholtið með öllu
sinu grjóti þykir ákaflega fallegt
og hefur til þessa verið friðað
gegn hvers konar tilfærslum.
Mál málanna þessa dagana er
þó lóðaúthlutun fyrir tvö einbýlis-
hús fyrir fram sjónskifuna á Vig-
hól, sem er einn hæstu punktur á
Reykjavikursvæðinu. Þaðan er
viðsýnt til allra átta og kópavogs-
búar flykkjast þangað unnvörp-
um til þess að skima yfir ná-
grennið.
A fundinum um helgina ræddi
framsögumaðurinn, Finnur Torfi
Hjörleifsson úr náttúruverndar-
nefnd bæjarins m.a. um þessa
lóðaúthlutun og gat þess að tæp-
lega þrjúhundruð kópavogsbúar
úr næsta nágrenni Vighóls hefðu
skrifað undir mótmælaskjal og
krafist þess, að lóöaúthlutunin
yrði afturkölluð.
Hefur sú málaleitan hins vegar
til þessa fengið litinn hljómgrunn
meðal bæjarstjórnarfulltrúa
meirihlutans, enda hafa fram-
sóknar- og sjálfstæðisflokkur
(meirihlutinn) skipt lóðunum
bróðurlega á milli sin, þ.e.
framsókn með aðra og ihaldið
hina. —gsp
Verkfallsverðir i Keflavik
Tóku fyrir bensínafgreiðslu
á einkabíla „verndaranna”
A laugardaginn fóru verkfalls-
verðir úr Keflavik upp á Kefla-
vikurflugvöll og iokuðu þar
bensinstöð, sem afgreiddi bensin
á einkabila hermannanna. Stöð
þessi er i eigu Navy Exchange,.
sem annast öll viðskipti á vellin-
um, hefur á boðstólum Essó-
ben'sin á 55 sent gallonið en það er
rúmar 20 krónur islenskar.
Starfsmenn þar munu vera þrir,
þar af tveir islendingar, en verk-
fallið hefur ekki verið látið ná til
starfsmanna hersins eins og skýrt
var frá í Þjóðviljanum sl. laugar-
dag.
Logi Þormóðsson i Keflavik var
einn af þeim verkfallsvörðum,
sem lokaði stöðinni. 1 samtali við
Þjóðviljann i gær sagði hann, að á
föstudaginn hefði stöðinni verið
gefinn frestur til hádegis á laug-
ardag til að hætta afgreiðslu. Að
honum loknum hefði svo stöðinni
verið lokað.
Er verkfallsverðir komu svo
upp á völl i gærmorgun til að
fylgjast með framkvæmd lok-
unarinnar voru þar fyrir menn úr
öryggislögreglu staðarins og ætl-
uðu að láta starfsmenn hefja af-
greiðslu undir sinni vernd.
Verkfallsverðir komu i veg fyrir
slikt og lokuðu stöðinni. Urðu
40—50 bilar frá að hverfa og er
stöðin nú undir eftirliti verkfalls-
varða. Logi sagði að bilar her-
mannanna hefðu verið orðnir
mjög áberandi á götum Keflavik-
ur, en áttundi hluti bæjarbúa er af
þvi sauðarhúsi. Verða þeir nú að
deila bensinskortinum með sam-
borgurum sinum uns verkfall
leysist. Bilar herliðsins sjálfs fá
hins vegar bensin úr öðrum
geymum, og ættu þvi „varnir”
landsins ekki að verða óvirkar
vegna bensinleysis láti óvinurinn
á sér kræla meðan verkfall stend-
ur.
—erl.
Naumt
skammtaö
vínið
á þremur
veitingahúsum
Fyrir helgina lögðu eftirlits-
menn vinveitingahúsa hald á
sjússamæla i þrem veitingahús
um i Reykjavik vegna þess að á
þá vantaði löggildingarmerki. t
gær var athugun og mælingu á
mælum frá einu húsanna lokið
og reyndust þeir vera 10—12%
minni en lög segja fyrir um, eða
2,6—2,7 sentilitrar i stað
þriggja. Þetta staðfesti William
Th. Möllcr fulltrúi lögregiu-
stjóra i gær. Mæla hinna hús
anna tveggja kvað hann þó ekki
lögiega upp mælda, en þeir
munu áþekkir hinum að stærð
og gerð.
Að sögn Williams var hér ekki
um neina allsherjar „rassiu” að
ræða, heldur aðeins þátt i venju
legu eftirliti eftirlitsmannanna.
Voru mælar annarra húsa ekki
athugaðiri sama sinn og finnast
tæpast ólöglegir mælar þar á
næstunni hafi þeir verið viðar
notaðir.
Til marks um hagnaðinn sem
hafa má af vinsölu með notkun
mæla sem þeirra er teknir voru
má taka, að úr flöskunni fást þá
28—29 sjússar i stað 25. Nokkuð
er misjafnt verð á hinum ýmsu
vintegundum en ekki ætti að
vera fjarri lagi að áætla hagn
aðinn 5—600 krónur af hverri
flösku. Það ætti að geta orðið
dálagleg upphæð á einu kvöldi
en rannsókn er ekki hafin á þvi
hverjir hana hafa fengið. Það
biður sakadóms, en að uppmæl
ingu lokinni verður málið sent
sakadómi til rannsóknar —erl