Þjóðviljinn - 24.02.1976, Blaðsíða 14

Þjóðviljinn - 24.02.1976, Blaðsíða 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Þriöjudagur 24. febrúar 1976 Ragnar Framhald af bls. 1. önnur leið er ekki til, þá er verk- fallsvopnið neyðarréttur hins vinnandi manns.”' Siðar sagði Ragnar: „Islenskt launafólk kýs vinnufrið og samn- ingaleiðina, ef þess er nokkur kostur. bað sýndi sig best i tið vinstri stjórnarinnar, þegar verk- föll voru óvenju fátið, enda litu þá stjórnvöldá það, sem frumskyldu sina að bæta lifskjörin, tryggja vinnufrið og forðast atvinnuleysi. — En nú er öldin önnur. .... Hvort sem verkföllin standa lengur eða skemur úr þessu, hlýtur öllum að vera ljóst, að viðunandi vinnufriður fæst ekki með þessari stjórn, stefnu hennar og starfsháttum. Hún á þvi að vikja, enda eru landsmenn fullsaddir af 18 mánaða óstjórn.” Skiptaprósentan Framhald af 16. siðu. Mikið eftir enn Um þróun viðræðnanna vilja menn helst ekki spá, en þó lét Sig- finnur sig hafa það að segja, að hann hefði litla trú á að sam- komulag næðist nú i nótt, um þær tólf tölur, sem eftir væru af skiptaprósentunni. Ef svo til tækist bjóst Sigfinnur við, að þegar yrði gengið i það að ræða aðrar kröfur Sjómannasam- bandsins, þar á meðal kauptrygg- inguna og tryggingartimabilið, sem enn hefur ekki verið rætt um. 100 þúsund krónur á mánuði Formaður Sjómannasambands fslands, Jón Sigurðsson, sagði blaðamanni það i gær, að hann teldi 100 þúsund króna kaup- tryggingu algjört lágmark. Nú er kauptrygging á mánuði hverjum tæpl. 78 þúsund krónur. A samninganefndarfundi, sem hófst klukkan 5 i gærdag, heyrði blaðamaður einnig af þvi, að m.a. sérkrafna Sjómannasambandsins væri krafa um á að giska 2 þúsund króna aukagreiöslu fyrir hvern róöur, sem farinn er, hvort sem kæmi til að afli færði mönnum hlut eða ekki, heldur bætist þessi greiðsia við aflahlut eða kaup- tryggingu, hvort heldur sem er. —úþ Engar tillögur Framhald af 16. siðu. öðrum leiðum, að auk þessarar tillögu sem Alþ.bl. skýrði frá og skotið hefur upp kollinum innan nefndarinnar en verið illa tekið hafi koipið þar fram margar aðrar álika fáránlegar tillögur. Meðal annars sú að semja við breta hvað sem það kosti o.s.frv. 1 nefndinni eiga sæti eftirtaldir menn: Einar Ingvarsson, for- maður, Tryggvi Helgason, frá Sjómannasambandinu, Asgeir Sölvason, frá FFSt, Björn Guðmundsson frá LÍC, Vilhelm borsteinsson, einnig frá Llú, Már Elisson frá Fiskifél. Islands, Sigfús Schopka frá Hafrann- sóknarstofnuninni, Eggert Jónsson frá fiskimálaráði. —S.dór Læknamál Framhald af bls. 2. lega tiiiagan samþykkt að við-* bættum viðbótartillögunum tveimur, og var það gert með öll- um 15 atkvæðum borgarfuiltrú- anna. Sjónvarpið Eins og að framan segir út- varpaði fréttastofa sjónvarps þvi i fréttatima á laugardag, að borg- arstjórn hefði samþykkt tillögu frá borgarfulltrúum Sjálfstæðis- flokksins um varðlæknaþjónustu og neyðarvakt i borginni. Svo sem að framan er sýnt, er endanlega tillagan ekki frá sjálfstæðismönn- um einum og ekki samþykkt af þeim einum. Eftir að fréttin hafði verið lesin hafði Sigurjón Pétursson, borgar- ráðsmaður Alþýðubandalagsins, samband við fréttastofu sjón- varpsins meðan enn stóð yfir fréttaútsending og bað um að ieiörétt yrði fréttin og frá breyt- ingatillögum skýrt. Fékk hann þau svör, að það yrði gert, en ekki fyrrén deginum seinna. Leiðrétt- inguna birti sjónvarpið svo i fréttatima á sunnudagskvöid. En til þess að vera alveg vissir um, að það væri hæfa, höfðu frétta- menn samband við borgarstjóra, sjálfsagt til þess að bera undir hann hvort Sigurjón færi rétt með eða leita úrskurðar hans á þvi. bar sem borgarstjóri sá sér ekki annað fært en viðurkenna það sem rétt var i málinu, var honum gefinn kostur á þvi, að skýra frá nýrri hlið málsins, þeirri að hin samþykkta tillaga hefði þegar verið send þeim, sem hana áttu að fá. Hvíta lygin A fulltrúaráðsfundi Alþýðu- bandalagsins i Reykjavik, sem haldinn var um helgina, skýrði Sigurjón Pétursson einmitt frá þvi, að siikt dæmi sem þetta væri ekki einsdæmi. betta heföu borg- arfulltrúar ihaldsins leikið marg- oft og væri einn iiður I fram- kvæmd áætiunar þeirra um það hvernig halda eigi völdum i höf- uðborginni. bar sem hvorki útvarp né sjón- varp hafa fréttamenn til þess að fylgjast með umræðum á borgar- stjórnarfundum, sendir meiri- hlutinn, eða einhver embættis- maður borgarinnar svo „hlut- ieysisblær” haidist, út frétt af einhverju frægðarverki meiri- hlutans,þó svo meirihlutinn hafi ef til vill átt þar minni hlut að en borgarfulltrúar minnihlutaflokk- anna. betta er svo lesið yfir borg- arbúum sem sannleiki, sem hann „hiýtur að vera, vegna þess að hann berst frá útvarpi eða sjón- varpi”. t slíkum fréttatilkynning- um er þess jafnan gætt að geta i engu framlags annarra en ihalds- ins. Smáþjónar ihaldsins á frétta- stofu sjónvarps lita á það sem heilaga skyldu sina, að ganga I engu eftir þvi hvort foringjar þeirra og fyrirmyndir fara með rétt. mál eða ekki. —úþ FH Framhald af bls. 10. ið lakari en oftast áður. Ég hygg að hann hafi verið hvað bestur 1972og 1973, en hann er óneitanlega svipminni nú. — Nú er bikarkeppnin eftir, áttu von á því að þið vinnið hana lika? — Við höum unnið alla þá titla sem okkur hafa staðið til boða i vetur, Reykjanesmótið, meistarakeppni HSl og nú is- landsmótið. Auövitað stefnum við að sigri i bikarkeppninni lika, og við vinnum hana, sagöi Reynir og brosti. —S.dór Kvikmyndir Framhald af bls. 7. timafreka lýðræðislega hópefli með leikurum. Hann kvaðst ekki vita. hvort honum hefði tekist vel með þessa mynd — hann hefði ætlað að ná góðum hljómgrunn með þessari sam- fléttun persónulegrar sögu og sögulegra tiðinda af verkalýðs- hreyfingu, en liklega hefðu menn ekki skilið nógu vel hvað hann væri að fara. Næst mun Vilgot Sjöman gera mynd um kynferðislegan minni- hluta, transvestita („hamskiptafólk”) og byggist hann við þvi, að margir muni reiðast yfir þeim viðkvæmu efn- um sem þar mundi fengist við. Sér til undrunar hefði sjónvarp- ið fallist á að standa að þessari mynd ásamt kvikmyndastofn- uninni. Konur viö stjórn Ann Zacharias er kornung leikkona, stendur á tvitugu. Hún gerði það upp við sig fimmtán vetra að i kvikmyndum skyldi hún starfa og fór til Rómar. Feril sinn hóf hún hinsvegar i Frakklandi (i smáhlutverki hjá Roger Vadim). Hún fer með aðalhlutverkið i mynd Jan Halldorffs, sem sýnd er hér á kvikmyndahátiðinni og heitir „Det sista áventyret” — þar leikur hún táning sem forfærir kennara sinn og dregur um leið fram hjá honum andlegan krankleika. Ann Zacharias mun innan skamms leika i tveim myndum sem konur stýra — það er kannski af þvi, sagði hún, að kvenfólk þarf að vera tiu sinnum færara en karlar til að það fái yfir höfuð tækifæri til að stýra kvikmynd. — AB — Grískir Framhald af bls. 9. Papandreús, en aðeins átta af 300 þingsætum, vegna gróflega rang- látrar kosningalöggjafar. í sveit- arstjómarkosningum siðastliðið vor færðust kommúnistar enn i aukana og kosningar i náms- mannasamtökum i haust leiddu i ljós að þeir höfðu þar meira fylgi en nokkur annar flokkur. begar mótmælagöngur og fjöldafundir eru, ber það nú við að rauðir fánar fylli göturnar. bað hefði þótt ótrúlegt fyrir fáeinum árum. Og kosningar i verkalýðs- samtökunum sýna að kommún- istum eykst þar fylgi, þótt þeir hafi ekki enn nað þar yfirbend- inni. Klofningur er til vandræða Griskir kommúnistar væru enn öflugri i landi sínu en þeir eru ef þeir væru ekki margklofnir. Eins og sakir standa eru þeir skiptir i að minnsta kosti fjóra flokka. Sá sterkasti þeirra hallast að sam- stöðu með Sovétrikjunum, og má það kallast mikil tryggð með til- liti til þess, hve gersamlega Sovétrikin brugðust griskum kommúnistum i borgarastriðinu. Næst þessum flokki að fylgi geng- ur annar, sem leggur dherslu á að grfskir kommúnistar séu óháðir og lýðræðissinnaðir, hliðstætt flestum sterkustu kommúnista- flokkum I Vestur-Evrópu. I þriðja lagi eru svo Sameinaðir lýðræðis- sinnaðir vinstrimenn, sem beita sér mest fyrir samstarfi á breið- um grundvelli við flokka og aðila utan hreyfingar kommúnista. Enn má nefna Byltingarsinnaða kommúnista, sem telja farsælast að taka miðaf fordæmi kinverja og fordæma hina flokkana fyrir fylgispekt við Sovétrikin eða sleikjuskap við borgarastéttina. Þá sýndi það sig... Sem fyrr er að vikið efldust kommúnistar mjög að fylgi þau sjö ár, sem herforingjarnir voru við völd, sem ekki var nema von, þar eð þessir illu dólgar reyndu að réttlæta flest sin fólskuverk með þvi að halda þvi fram að þetta væri i þágu „baráttunnar gegn kommúnismanum.” Grunn- tónninn i ihaldinu er allsstaðar sá sami, hvort sem það klæðist úni- formi eins og þá i Grikklandi og nú i Chile eða lýðræðislegum sparifötum eins og til dæmis uppi á Islandi. Leónidas Kyrkos, einn af leiðtogum kommúnista, sagði við fréttamann New York Times: „1 mörg ár óttaðist fólk að kommúnistar myndu koma á ein- ræðisstjórn i Grikklandi. Svo komu herforingjarnir, og þá sýndi það sig að það voru brodd- borgararnir og bandarfkjamenn, sem komu á einræði. betta var mjög mikið áfall og stór hluti þjóðarinnar vissi ekki hvaðan á hana stóðu veðrin i stjórnmálun- um. Allir vilja þeir sósialistar vera Allir þeir, sem börðust gegn einræðinu, voru pyndaðir á sama hátt. Við vorum i fangelsum með hershöfðingjum, prófessorum og svo framvegis. Með okkur og þeim tókust kynni og við lærðum að skilja viðhorf hvers annars.” Núverandi forsætisráðherra grikkja, Konstanti'n Karamanlis, er mjög hliðhollur Vesturveldun- um og andvigur kommúnistum, enda ihald. En hann gerir sér grein fyrir þvi að sósialisk viðhorf hafa aðdráttarafl fyrir fjöldann og viðurkennir það opinberlega. Og það er timanna tákn að hver og einn grisku stjórnarandstöðu- flokkanna rekur áróður fyrir þvi að hann sé hinn eini og sanni sósialistaflokkur landsins. dþ. Fundur Framhald af bls. 6. fundinum. Siðari dag fundarins voru flutt tvö framsöguerindi. Sigurjón Pétursson, borgarráðsmaður, lýsti stjórn Sjálfstæðisflokksins á Reykjavikurborg og lagði fram skýr dæmi um spillinguna og ó- stjórnina, sem þróast hefur i stjórnkerfi borgarinnar. bá rakti Svava Jakobsdóttir, alþingis- maður, þingstörf i vetur og nefndi ýmis dæmi um fáheyrða af- greiðslu mála. A sunnudagsmorguninn fóru fram nefndarstörf, og siðdegis voru umræður um framsöguer- indi og afgreiðsla ályktana. Með- al annars voru gerðar ályktanir um efnahagsmál, kjaramál, verkmenntun o.fl. og verður gerð grein fyrir þeim og framsöguer- indum siðar i blaðinu. A flokksráðsfundinum var á- kveðið að efna til viðtækrar um- ræðu um ýmis þau mál, sem bryddað var upp á fundardagana, i félagsdeildunum og á félags- fundum á næstunni. Meðal annars er ráðgert að halda innan tiðar fé- lagsfundi um efnahagsmál og borgarmál. Er gert ráð fyrir að þessir fundir verði undirbúnir af kostgæfni með gagnasöfnun o.fl. iÍÞJÓÐLEIKHÚSIfl SPORVAGNINN GIRND föstudag kl. 20. CARMEN laugardag kl. 20. NATTBÓLIÐ (1 djúpinu) eftir Maxim Gorki. býðandi: Halldór Stefánsson. Leikmynd: Davið Borovski. Leikstjóri: Viktor Strizhov. Frumsýning sunnudag kl. 20. 2. sýning miðvikudag kl. 20. Miðasala 13,15—20. Simi 1-1200. ^IEÍRFÉLÍG^ afgEYKJAVÍKUKjö SK J ALDHAMRAR i kvöld kl. 20,30. SAUMASTOFAN miðvikudag kl. 20,30. EQUUS fimmtudag kl. 20,30. SKJALDHAMRAR föstudag kl. 20,30. SAUMASTOFAN laugardag kl. 20,30. EQUUS sunnudag kl. 20,30. Miðasalan i Iðnó er opin kl. 14- 20,30. — Simi 1-66-20. Ekki Framhald af bls. 1. Reiðin er svo mikil hér i Vest- mannaeyjum að ég tek ekki ábyrgð á því hvað gerist af Nor- giobal lætur sjá sig hér inn á höfn- inni.” betta sagði Elias Björnsson, formaður Jötuns, i gærkvöldi. bá hafði öll fyrirgreiðsla við loðnu- bátana tvo, Helgu Guðmunds- dóttur frá Patreksfirði og Hákon frá Grenivík, verið stöðvuð. Hlé var gert á sjómannasamn- ingunum i gærkvöldi meðan menn mötuðust og áttu viðræður að hefjast á ný um ellefu. Ekki var þó af þvi að viðræður hæfust aftur og mun samninganefnd Sjó- mannasambandsins ekki setjast að samningaborðum aftur fyrr en rikisstjórnin hefur séð til þess, að loðnumóttöku um borð i Norglo- bal verði hætt. bað er þvi algjör- lega á ábyrgð rikisstjórnarinnar, hvort samningar sjómanna dragast á langinn, frekar en þörf er á. I™"1 .............................. Sovéskar bækur og tímarit (á ensku), hljómplötur og nótur. Opið frá kl. 10—12 og 14—18, föstudaga til kl. 19, laugardaga kl. 10—12. ERLEND TÍMARIT Hverfisgötu 50 v/Vatnsstig 2. hæð ALÞÝÐUBANDALAG Alþýðubandalagið Neskaupstað Alþýðubandalagið i Neskaupstað heldur félags- fund miðvikudaginn 25. febrúar kl. 20.30 i Egils- búð, fundarsal. Dagskrá: I. Stjórnmálaþróun siðustu vikna. — Málshefj- andi Svavar Gestsson, ritstjóri bjóðviljans. II. Málefni bjóðviljans. III. önnur mál. — Stjórn Alþýðubandalagsins i Neskaupstað Góugleði Alþýöubandalagsins verður i Rein Laugardaginn 28. febrúar kl. 19. Söngur, gleði og gaman. Hljómsveit Kalla Bjarna leikur. Miðasala fimmtudaginn 27. feb. kl. 21. Verð aðgöngumiða 1.800 kr. Skemmtinefndin. Alþýðubandalagið i Reykjavik F'élagsmálanámskeiðið I kvöld, þriðjudaginn 24. febrúar, kl. 20.30: AL- MENNUR MALFUNDUR. Tveir þátttakendur I námskeiðinu hafa framsögu. Leiðbeinandi: Hrafn Magnússon. Rækjuveiðar á Breiðafirði Þeir aðilar, sem ætla að stunda rækju- veiðar á Breiðafirði á komandi vertið verða að sækja um veiðileyfi til sjávarút- vegsráðuneytisins fyrir 3. mars nk. Um- sóknir, sem berast eftir þann tima verða visast ekki teknar til greina. Sjávarútvegsráðuneytið 23. febrúar 1976. Svavar Gestsson Akranes

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.