Þjóðviljinn - 19.05.1976, Blaðsíða 13
Miðvikudagur 19. mai 1976 PJODVILJINN — SÍÐA 19
Sjúkraliðar útskrifast
Þetta er siðasti hópurinn, sem
útskriíast frá Landakotsspitala.
A þessu ári eru liðin 10 ár frá þvi
að fyrsti hópurinn útskrifaðist.
Mynd.: fremri röð frá vinstri:
Birgitta Borg, Margrét Hinriks-
dóttir,Kristin Samúelsdóttir,
Systir Hildegard, Elisabet K.
Jakobsdóttir, Kristin Eirilcsdótt-
ir, Vilhelmina Alfreðsdóttir.
Efri röö til vinstri: Elisabet E.
Jónsdöttir, Sigurbjörg Björgvins-
dóttir, Bjarney Gunnarsdóttir,
Valrún Guðmundsdóttir, Þór-
unn Matthiasdóttir, Kristin Asta
Pálsdóttir, Ólöf Brynja Garðars-
dóttir, Björk Geirsdóttir, Auður
Steingrimsdóttir, Sylvia
Kristjánsdóttir.
Ljósmynd.: Ljósm.st. Gunnars
Ingimars.
Kvennadeild Verkalýðsfélags Akraness
Þakkar stuðning og
fjárframlög
Nú á sl. vetri þegar verkakonur
i frystíhúsunum á Akranesi stóðu
einar eftir i verkfalli fyrir við-
kvæmri réttlætiskröfu og jafn-
réttismáli, sem snertir þann hóp
kvenna sem vinnur hin vanda-
sömu störf fyrir þjóðarbúið, aö
skapa þvi' verðmeiri og verðmeiri
vöru til skipta fyrir allt það sem
nútima þjóðfélag telur sig þurfa
að hafa, konurnar sem vinna i
frystihúsunum og hafa i staöinn
fyrir tvöfalt vinnuálag sem hús-
mæður og verkakonur orðið að
þola þá rangsleitni sem þær hafa
veriðbeittar, með stöðugum upp-
sögnum úr starfi til þess að sniö-
ganga umsamda vinnutryggingu,
leyfðu sér að standa einar sér
eftir i verkfalli til að reyna að lag-
færa þetta mál. Þær ætluðust ekki
til aö neinn annar tæki nokkuð á
sig i þessari baráttu, enginn
nema þær sjálfar skyldu standa
uppi kauplausar. Þær óskuðu ekki
eftir þvi að fleiri tæki þátt i þessu
með þeim, þær sjálfar skyldu
leiðrétta málið. Þær voru vanar
þvi að vera sagt upp og sendar
heim. En nú tóku þær sjálfar
ákvörðun um að vera heima og
biöa átekta um hvernig til tækist
með lagfæringu á umdeildri
framkvæmd kauptryggingar-
samningsins sem svo miklar von-
ir voru bundnar við í upphafi. En
reynsla tveggja ára sýndi
minnsta kosti hér á Akranesi
hafði hann valdið misskilningi
vonbrigðum og misrétti.
En verkakonur i' frystihúsunum
á Akranesi stóðu ekki uppi einar
þrátt fyrir allt, þrátt fyrir það þó
félagar þeirra verkamenn
staðarins teldu ekki ástæðu til
þess aö leggja hönd á plóginn með
þeim og þrátt fyrir það þó heild-
arsamtök verkafólks i landinu
sæju ekki ástæðu til að leggja
félögum si'num lið i málinu var
samt fjöldi fólks, einstakra
verkalýðsfélaga, starfshópa,
skólafélaga, réttindahópa og ein-
staklinga, sem sk ildu mál verka-
kvennanna og það rigndi yfir okk-
ur stuðningsyfirlýsingum, i bréf-
um skeytum og með peningagjöf-
um. Og öllum þessum eftirtöldu
ágætu samtökum og einstakling-
um sem studdu okkur svo drengi-
lega á þennan hátt viljum við
senda þakkir okkar fyrir skilning
þeirra á málstað verkakvenna,
fyrir fjármuni sem hafa verið að
berast fram til þessa dags, og
hafa orðið til ómetanlegrar
hjálpar þeim konum sem erfiða
aðstöðu höfðu til að mæta löngu
verkfalli. Þessi ágætu aðilar
sendu okkur baráttukveðjur og
stuðningsyfirlýsingar i bréfum og
skeytum: Rauðsokkahreyfingin,
Nemendur og starfsfólk Félags-
málaskóla alþýðu ölfusborgum,
Leshringur Alþsamb. Arnessýslu,
Selfossi, Konur á fundi um
kvennafrí. Miðstjórn Alþýðu-
bandalagsins. Alþýðuflokksfélag
Akraness. Einingarsamtök
kommúnista, Reykjavik. Miðstöð
rauðsokkahreyfingarinnar.
Kommúnistasamtökin , Reykja-
vik. Verkalýðsfélagið Vaka,
Siglufirði, Verkalýðsfélagið Val-
ur, Búðardal, Verkakonur hrað-
frystihússins i Hnifsdal. Verka-
lýðsfélag Skagastrandar.
Fylkingin, Reykjavik. Verka-
kvennafélagið Ald"an Sauðár-
króki. Starfshópur i jafnréttis-
málum, Neskaupstað. Byltingar-
sinnarnir, Reykjav. Verkalýðs-
félag Austur- Húnvetninga,
Blönduósi.
Og eftirtaldir sendu okkur
einnig upphæö i verkfallssjóðinn:
Skólafélag Menntaskólans
Akureyri. SÍNE, samb. isl. náms-
manna erlendis. Verkalýðsfélag
Húsavikur. Alþýðuleikhúsið,
Akureyri, Verka lýðsfélagið
Bjarmi, Stokkseyri. Baráttusam-
tök launafólks, Akureyri. Alþýðu-
bandalagið Akureyri. Félag
járniðnaðarmanna, Reykjavik.
A.S.B. Rvk. Sókn, Reykjavik.
Stúdentaráð Háskóla tslands.
Skipverjar á skuttogaranum
Krossvik, Akranesi. Jónas Arna-
son alþm. Verkalýösfél. Vaka,
Siglufirði. Hið islenska prentara-
fél. Reykjavik. Tryggvi Helga-
son, Akureyri. Sigrikur Sigrikss.
Akranesi. Kommúnistasamtökin.
Verkalýðsfél. Jökull, Ólafsv.
Freyja Eiriksdóttir, Akureyri.
Byggingarfél. Arvakur, Húsav.
Þórarinn Hjartarson Rvk. Iðja
Reykjavik. Sjúkraliðafél. Is-
lands. Starfsfólk fæöingar-
heimilis Reykjavikur. Konur
Hellissandi. Stúdentar Kaup-
mannahöfn. Starfsfólk i Sútun h/f
Akranesi. Fiskvinnufólk á
Stokkseyri. Safnaðaf Rauðsokka-
hreyfingunni. Starfsmenn bif-
reiðaverkstæðis Kaupfélags Ar-
nesinga, Selfossi.
Ogenn þökkum við ykkur öllum
hjartanlega og látum hinn góða
samhug hvetja okkur til nýrrar
og djarfrar verkalýðsbaráttu
fyrir framtiðina.
F.h. kvennadeildar Verkalýðs-
fél. Akraness.
Ilerdis Olafsdóttir,
Akranesi.
Laus staða
Staða aðalbókara i skrifstofu Sements-
verksmiðju rikisins, Akranesi, er laus til
umsóknar.
Umsóknir tilgreini aldur, menntun, og
fyrri störf.
Umsóknarfrestur er til 16. júni næstkom-
andi.
SEMENTSVERKSMIÐJA RÍKISINS,
AKRANESI.
dm
WÞ
o
®Uím}[p[°)
útvarp
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagblaðanna),
9.00 og 10.00. Morgunbænkl.
7.55. Morgunstund barn-
annakl. 8.45: Sigrún Sigurð-
ardóttir byrjar lestur þýð-
ingar sinnar á sögunni
,,Þegar Friðbjörn Brands-
son minnkaði” eftir Inger
Sandberg. Tilkynningar kl.
9.30. Þingfréttir kl. 9.45.
Létt lög milli atriða. Kirkju-
tónlist kl. 10.25: Robert
Pritchard leikur á orgel
Dómkirkjunnar i Reykja-
vik: Prelúdiu og fúgu i Es-
dúr eftir Bach, Sálmatil-
brigði eftir Sweelinck,
Sónatinu nr. 26 eftir Brown
og Fúgu eftir Honegger.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Ralph Holmes og Eric Fen-
by leika Sónötu nr. 1 fyrir
fiðlu og pianó eftir Frede-
rick Delius/ Janácek kvart-
ettinn leikur Strengjakvart-
ett nr. 1 eftir Leos Janácek/
Aldo Parisot sellóleikari og
Hljómsveit Rikisóperunnar
i Vin leika ,,Choro” eftir
Camargo Guarnieri, Gustav
Meier sjórnar.
13.15 Til umhugsunar. Þáttur
um áfengismál i umsjá
Arna Gunnarssonar.
13.30 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan: „Gest-
ur i blindgötu” eftir Jane
Blackmore. Valdis Hall-
dórsdóttir les þýðingu sina
(8).
15.00 Miðdegistónleikar.
Godelieve Monden gitar-
leikari leikur Svitu eftir
Lodewijk de Vocht. Benny
Goodman og Sinfóniuhljóm-
sveit Chicagoborgar leika
Klarinettukonsert i Es-dúr
op. 74 nr. 2 eftir Carl Maria
von Weber. Sinfóniuhljóm-
sveit Berlinar leikur Sin-
fóniu i C-dúr op. 46 eftir
Hans Pfitzner, Ferdinand
Leitner stjórnar.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.16 Veðurfregnir).
16.20 Popphorn.
17.00 Lagið mitt. Berglind
Bjarnadóttir sér um óska-
lagaþátt fyrr börn yngri en
tólf ára.
17.30 Maniilif i mótun. Sæ-
mundur G. Jóhannesson rit-
stjóri á Akureyri rifjar upp
minningar sinar (5).
18.00 Tónleikar. Tilkynning-
ar.
19.15 Landsleikur i knatt-
spyrnu: Noregur—island.
Jón Ásgeirsson lýsir siðasta
hálftima leiksins frá Ulle-
vall-leikvanginum i Osló.
19.45 Tilkynningar.
19.50 Kvöldvaka. a. Einsöng-
ur. Snæbjörg Snæbjarnar-
dóttir syngur lög eftir is-
lensk tónskáld. Fritz Weiss-
happel leikur á pianó. b. Atti
maðurinn eða dvrið að
ráða? Bjarni M. Jónsson
flytur frásöguþátt. c.
Kvæðalög. Þorbjörn Krist-
insson kveður lausavisur og
ljóðmæli eftir Isleif Gisla-
son á Sauðárkróki, Gisla
Ólafsson frá Eiriksstöðum
o.fl. d. Endurminning um
tiu króna seðil. Torfi Þor-
steinsson bóndi i Haga i
Hornafirði segir frá. e. Um
islenska þjóðhætti. Árni
Björnsson cand. mag. flytur
þáttinn. f. Kórsöngur.
Karlakór Akureyrar syng-
ur. Söngstjóri: Jón Hj.
Jónsson.
21.30 Útvarpssagan: „Siðasta
freistingin” eftir Nikos
Kazantzakis. Sigurður A.
Magnússon les þýðingu
Kristins Björnssonar (29).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Sá svarti senuþjófur”,
ævisaga Haralds Björns-
sonar. Höfundurinn, Njörð-
ur P. Njarðvik, les (22).
22.40 Nútimatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.25 Dagskrárlok.
0s|ónvarp [
18.00 Björninn Jógi Bandarisk
teiknimyndasyrpa. Þýðandi
Jón Skaptason.
18.25 Demantaþjófarnir
Finnsk framhaldsmynd 2.
þáttur. Efni fyrsta þáttar:
Strákarnir Pertsa og Kilu
eru komnir i sumarleyfi og
vita ekki, hvað þeir eiga að
taka sér fyrir hendur. Þeir
gera alræmdan glæpamanni
greiða, og lögreglan fær
grun um, að strákarnir séu
á einhvern hátt tengdir
flokki demantaþjófa.
Þýðandi Borgþór
Kjærnested. (Nordvision-
Finnska sjónvarpið)
18.45 Gluggar Breskur
fræðslumyndaflokkur.
Glergerð. Risaflugvélar.
Oliuborpallar. Þýðandi og
þulur Jón O. Edwald.
Illé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Auglýsingar og dagskrá
20.40 Nýjasta tækni og visindi.
Mvndataka af hitageislum
likamans. Nýjungar i
uppskipunartækni. Verndun
höfrunga. Fylgst með
jörðinni úr gervihnöttum.
Umsjónarmaður Sigurður
II. Richter.
21.05 Bilaleigan Þýskur
myndaflokkur. Páskavatn
Þýðandi Briet Héðinsdóttir.
21.30 1 kjallaranum Hljóm-
sveitin Cabaret flytur
frumsamin lög. Hljóm-
sveitina skipa Tryggvi J.
Hubner. Valgeir Skagfjörð.
Ingólfur Sigurðsson, Finnur
Jóhannssou og Jón
Ólafsson. Stjórn upptöku
Egill Eðvarðsson.
21.50 Kvennastörf —
kvennalaun Dönsk fræðslu-
mynd um konur á vinnu-
markaðnum, launamisrétti
og ýmis önnur vandamál.
Þýðandi og þulur Gylfi
Pálsson. (Nordvision-
Danska sjónvarpið)
22.30 Pagskrárlok
Húsbyggjendur
EINANGRUNARPLAST
Getum afgreitt einangrunarplast á Stór-
Reykjavikursvæöið með stuttum fyrir-
vara. Afhending á byggingarstað.
Borgarplast hf.
Borgarnesi
Sími 93-7370
Helgar- og kvöldslmi 93-7355.
Auglýsingasímiim er
17-500 £
WÐVIUINN