Þjóðviljinn - 19.05.1976, Blaðsíða 16
PJÚÐVIUINN
Miðvikudagur 19. mai 1976
37 þús. í
húsaleigu
Veistu það, að húsaieiga fyrii
4ra herbergja ibúð er a.m.k. 37
þusund á mánuði fyrir utan ljós
og hita og árið greitt fyrirfram
Blaðið hafði fregnir af þvi i
gær, að fjölskylda greiðir 37
þúsund á mánuði fyrir 4rra
herbergja ibúð. Skyldi greiða
árið fyrirfram. Nú átti fjöl-
skyldan litla peninga og varð
því að taka bankalán. Til við-
bótar fyrrgreindri upphæð
þurfti þvi fjölskyldan að greiða
vexti af peningaupphæðinni.
Nú háttar svo til i lögum, að
húsaleiga er ekki frádráttar-
bær. Þvi skiptir engu fyrir
leigjanda hversu mikið hann
þarf að greiða. Hins vegar
skiptir hér nokkru fyrir leigu-
sala, þvi tekjur af húsaleigu
þarf að telja fram til skatts.
I þvi dæmi, sem að framan er
getið var það skilyrði fyrir þvi
að ibúðin fengist á leigu, að ekki
væri meira gefið upp til skatts
en 15 þúsund króna mánaðar-
leiga. Þannig greiðir húsa-
leigjandinn ekki einungis okur-
leigu heldur og skattinn fyrir
húseigandann.
—úþ
Dauði
Nýjasta nýtt í Vængjadeilunni:
Skrifstofustúlku
sagt upp störfum
Grunuð um samúðmeð flugmönnum
Deila stjórnar Vængja hf. við
flugmenn tekur á sig sifellt
annarlegri blæ. Til að mynda
var skrifstofustúlka, sem hjá
félaginu hefur unnið í tvö ár
rekin þaðan i gær grunuð um að
hafa samúð með flugmönnum.
Á mánudag var skrifstofu-
stúlkunni, Þórunni Sigurðar-
dóttur, gefinn kostur á að segja
upp störfum. Siðar þann dag
hringdi framkvæmdastjóri
Vængja, Hafþór Helgason, til
hennar og spurði hana hvort hún
væri búin að hugsa málið.
Sagði hún nei við þvi, og sagði
þá framkvæmdastjórinn henni,
að hún fengi fri fram til
mánaðarmóta mai- júni.
Á þriðjudagsmorgun mætti
Þórunn á skrifstofu Verslunar-
mannafélags Reykjavikur og
spurði ráða. Þar var henni ráð-
lagt að mæta til vinnu, sem hún
gerði.
Eftir að Þórunn hafði verið
við vinnu i smátima mætti
framkvæmdastjóri félagsins og
spurði hvort hún væri ekki i frii.
Visaði hún til VR á staðnum, og
sagði framkvæmdastjórinn
Þórunni þá upp störfum.
Er greinilegt, að deila
Vængjastjórnar við flugmenn
hefur gjörsamiega brenglað
dómgreind stjórnarmanna.
—úþ
Þórunn Sigurðardóttir
V-þýsku samningarnir og bókun 6:
Það hefur ekkert
nasísks
fjölda-
morðingja
DUSSELDORF 18/5 Reuter — 73
ára gömul kona, Elisabeth Minna
Orlowski, sem ákærð var fyrir að
hafa átt þátt i að myrða um 1000
fanga i Majdanek, einangrunar-
fangabúðum nasista i Póllandi,
lést um helgina á sjúkrahúsi. Hún
var meðal 15 manna sem eru fyrir
rétti i Dusseldorf, sakaðir um á-
byrgð á morðum á gyðingum i
Majdanek á árunum 1941-1944.
Orlowski er meðal annars ákærð
fyrir að hafa persónulega valið úr
um 100 börn til að verða tekin af
lifi i gasklefum. Réttarhöldin yfir
þessum fimmtán hófust i nóvem-
ber s.l., og er ekki lokið enn.
Aðalfundur
ABR
Aðalfundur Alþýðu-
bandala gsins i
Reykjavik verður
haldinn miðvikudag-
inn 26. þessa mánaðar
i Lindarbæ og hefst kl.
20.30. Dagskrá:
Venjuleg aðalfundar-
störf.
32 breskir
togarar á
miðunum
Þrjátiu og tveir breskir togarar
voru hér að við land i gær i fylgd
með flota dráttarbáta og her-
skipa. Flestir voru komir suður
fyrir friðaða svæðið út af Langa-
nesi. Um 19 togarar voru á Hval-
bakssvæðinu. Af 21 togara sem
gæsluvélin Týr sá greinilega i gær
á eftirlitsflugi voru aðeins sjö að
veiðum.
nýtt gerst í
segir utanríkisráðuneytið
Rikisstjórnin hafði það sem
yfirvarp, þegar á hana var,skorað
að segja samningunum við v-
þjóðverja upp um siðustu
mánaðarmót, þar sem bókun
6 væriekki enn komin til fram-
kvæmda, að unnið væri að lausn
málsins af fullum krafti og þá á
múlinu
Þannig er það ljóst, að Þjóð-
verjar geta ekki þokað þessu máli
um fet, hvorki nú frekar en áður.
Þannig er það einnig ljóst að
rikisstjórnin vissi vel að það var
nákvæmlega ekkert að gerast i
þessu máli fyrir 3 vikumsiðan
þegar hún hafði það sem. afsökun
fyrir þvi að segja samningunum
við v-þjóðverja upp, að unnið væri
að lausn málsins af fullum krafti.
—S.dór
svo viðkvæmu stigi að hún tcldi
ckki rétt að segja samningunum
upp þcss vegna.
— Nei, það hefur ekkert nýtt
gerst i þessu máli, sagði Hennrik
Sv. Björnsson ráðuneytisstjóri i
utanrikisráðuneytinu i gær þegar
við spurðumst frétta af málinu.
Stjórnarkreppu
afstýrt í Finnlandi
HELSINKI 18/5 NTB — Stjórnar-
kreppunni i Finnlandi hefur verið
afstýrt. t dag tók forsætisráð-
herrann, Martti Miettunen, aftur
lausnarbeiðni rikisstjornarinnar,
en lausnarbeiðnin varlögð fram á
fimmtudaginn. Urho Kekkonen
Finnlandsforseti neitaði að taka
lausnarbeiðnina tii greina og kom
fram með málamiðlunartillögu,
sem allir stjórnarflokkarnir, sex
að tölu, hafa fallist á.
Stjórnarkreppan stafaði af
deilum um söluskattshækkun,
sem f ó 1 k d e m ó k r a t a r
(kommúnistar og fl.) eru mót-
fallnir. Kekkonen spurðist fyrir
um, hvort stjórnarflokkarnir
gætu hugsað sér að halda sam-
starfinu áfram þótt svo að þing-
menn fólkdemókrata greiddu at-
kvæði gegn söluskatts-
hækkuninni.
Martti Miettunen — stjórn hans
situr áfram.
Aðalfundur Járnblendifélagsins á morgun:
Allt er enn í óvissu
með hvað Union Carbide gerir á fundinum
Aðalfundur Járnblendifélags-
ins verður haldinn hér á landi á
morgun, fimmtudag, og að sögn
Asgeirs Magnússonar forstjóra
félagsins er ekki vitaö hvað með-
eigandi rikisins i fyrirtækinu,
bandariska féiagið Union Carbide
gerir en sem kunnugt er hafa
forráðamenn bandariska félags-
ins gefiö i skin að þeir vilji hætta
þátttöku i byggingu járnblendi-
verksmiðjunnar á Grundartanga
og af þeim sökum hafa allar
framkvæmdir við verksmiðjuna
stöðvast.
Ásgeir sagðist fastlega gera ráð
fyrir að bandarikjamennirnir
myndu formlega fara þess á leit
á fundinum að verða leystir frá
samningi, en til þess þarf sam-
þykki rikisstjórnarinnar. Hins-
vegar sagði hann að ef ekki yrði
fallist á þessa ósk UC, gæti
bandariska fyrirtækið stöðvað
allar framkvæmdir við verk-
smiðjubygginguna, þarsem sam-
þykki beggja þyrfti fyrir öUum
lántökum.
Hvað viðkemur viðræðum við
norðmenn um að norskt fyrirtæki
gangi inni félagið i stað UC, er
það mál allt enn á viðræðustigi og
ekki vitað hvað norðmennirnir
gera, en Asgeir sagði að það væri
sist minni áhugi á að fá þá inni
fyrirtækið en bandarikja-
mennina.
En sem sagt, aðalfundurinn er
á morgun og þá munu linurnar
skýrast i þessu máli. —S.dór
Mótmælaaðgerðir
PARÍS 18/5 NTB—UPI —
Franska blaðið Le Figaro hefur
eftir fréttaritara sinum i Moskvu
aðskorturáýmsummatvörum sé
farinn að valda óánægju viða i
Sovétrikjunum og sumsstaðar
hafi komið til mótmælaaðgerða af
Framhald á bls. 14.
Eanes er taiinn hafa mesta sigur-
möguleika forse taef nanna
þriggja.
Komm-
únistar
í portúgölsku
forseta-
kosningunum
LISSABON 18/5 NTB-REUTER
— Einn af forystumönnum
Kommúnistaflokks Portúgals,
Octavio Pato, hefur ákveðið að
bjóða sig fram i forsetakosn-
ingunum.sem fara fram i landinu
I næsta mánuði. Er hann þriðji
frambjóðandinn, sem hefúr gefið
sig fram, en hinir eru Antonio
Ramalho Eanes, yfirhershöfðingi
landhersins, og Jose Pinheiro de
Azevedo, forsætisráðherra. Pato
er sá eini þeirra þriggja sem ekki
er herforingi.
Eanes er talinn hafa mesta
möguleika til aðná kosningu, þar
eð þrir stærstu stjórnmálaflokk-
arnir, Sósialistaflokku rinn ,
alþýðudemókratar og miðdemó-
kratar og þar á ofan herinn i
tveimur af þremur hersvæðum
landsins hafa lýst stuðningi við
hann. Enginn stjórnmálaflokkur
hefur lýst yfir stuðningi við
Azevedo.
Yfir 300
fallnir í
Líbanon á
2 dögum
BEIRUT 18/5 NTB-Reuter-
URI—Harkan I borgarastríðinu i
Libanon er nú með mesta
móti og er giskað á að um 300
manns að minnsta kosti hafi vcrið
drepnir siðustu tvo dagana. t
Beirút var stórskotaliði mikið
beitt i nótt og skothríðinni að
miklu lcyti beint að ibúðarhverf-
um, sem hafa litla eða enga
hernaðarlega þýðingu.
Forsætirráðherra Libiu, Abdel-
Salam Djallúd, fór i dag heim-
leiðis frá Beirút, en þar hafði
hann dokað við i sólarhring á leið
frá Damaskus. Hann hét i dag
libönskum vinstrisinnum og
palestinsku baráttusamtökunum
fullum stuðningi Libiu, en þaðan
fá libanskir vinstrimenn þegar
vopn. Einnig þóttust fréttamenn
skilja á Djallúd að Libia væri
áfram um það að Sýrlans kallaöi
her sinn frá Libanon, en tugþús-
undir sýrlenskra hermanna og
palestinskra skæruliða, sem sýr-
lendingum eru hlynntir, hafa
siðustu vikurnar farið inn i
Libanon.
f stjórnmálunum gengur hvorki
né rekur. Elias Sarkis, sem þingið
kaus forseta yfir landið 8. mai.
hefur enn ekki tekið við embætti,
þar eð fráfarandi forseti,
Suleiman Franjieh, hefur til
þessa neitað að sleppa embættinu
við hann. Þeir Sarkis og Franjieh
eru báðir kristnir.