Þjóðviljinn - 23.05.1976, Blaðsíða 20
20 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Sunnudagur 23. mai 1976
Skráning í
öldungadeild
Menntaskólans við Hamrahlið fyrir
haustönn 1976 fer fram 24., 25, og 26, mai
kl. 18—19 alla dagana. Skráningargjald er
kr. 4.000.
Rektor.
Húsavík
Skólastjóra eða kennara vantar að
Tónlistarskóla Húsavikur næstkomandi
vetur. Æskilegt er að umsækjandi geti
jafnframt gegnt organistastarfi við Húsa-
vikurkirkju. Nánari upplýsingar veitir
Hólmfriður Benediktsdóttir, simi %-41697.
Tónlistarskóli Húsavíkur
Frá
fjölbrautaskólanum
í Breiðholti
Innritun nýrra nemenda i skólann fer
fram i húsakynnum stofnunarinnar að
Austurbergi dagana 1—4. júni frá kl.
13—18 (frá kl. 1—6). Umsóknir þeirra,
sem ekki geta mætt til innritunar nefnda
daga, skulu hafa borist til skrifstofu
skólans sama stað, fyrir 10. júni.
Allar upplýsingar eru veittar i skólanum.
Skólameistari.
Stýrimannafélag Islands
Aðalfundur
verður haldinn i Tjarnarbúð þriðjudaginn
25. mai n.k. kl. 20.30.
Dagskrá samkvæmt félagslögum.
Stjómin.
Tónlistarskólinn
Seltjarnarnesi
UMSÓKNIR um skólavist i tónlistar-
skólanum skólaárið 1976—’77 þurfa að
berast til bæjarskrifstofu Seltjarnarness
fyrir 1. júni n.k.
Umsóknum, sem siðar berast, er ekki vist
að hægt verði að sinna.
Umsóknareyðublöð fást á bæjarskrif-
stofunni.
Skólastjóri
GÖMUL KYNFRÆÐSLUBÓK:
Getnaðariðja
árið
^ _sn_ _____ 1 1825 : s
uí>tr
‘®«ír«<btun9, «»1 Srnyfi»9ni«
mt
(Erbalmnj í>er SCtáht onb ©ef«it>b«it.
i»en
<35lit ititsrnSiftfajín ðfittfirattenett
Leyndardómur kvenmannsins fyrir 150 árum.
A dögum mikilla og opinskárra
skrifa um kynferðismál hafa
ýmsir menn rennt forvitrium aug-
um til fyrri tima:Hva& gátu menn
lesið sér til um þessa hluti I tið afa
og langömmu? Þjóðverjar voru
einmitt að gefa út 150 ára gamalt
upplýsingarit eftir lækni einn,
JLF. Albrecht að nafni. Heiti
bókarinnar er langt og ýtarlegt
eins og tíðkaðist á þvl herrans ári
1825: „Leyndardómar
kvenmannsins eða leyndar
dómar náttúrunnar að þvi er
varðar æxlun mannsins, um
frjóvgun, hjásofelsi og getnað
heilbrigðra barna og viðhald
krafta og heilbrigðis.”
Eitt af þvi sem nútimalesandi
fyrst rekur augun I er mögnuð
feimni i meðferð orða. Bókarhöf-
undur segir strax að hann vilji
sem minnst nota orðið
„hjásofelsi” sem honum finnist
ljótt. í stað talar hann um „getn-
að'ariðju”, um „bið ljúfa augna-
blik” eða um „fullnægingu æxl
unarhvatar”. Einnig þegar rætt
er um „kynfæri kvenna” finnur
hann fallegri orð eins og „storka-
stigur” eða „holan ljúfa”.
Ýmislegt kyndugt kemur upp,
þegar doktorinn leggur á ráð um
hvernig fótk eigi að fara að við
„þessa sannarlega hrifandi iðju”.
Hann ráðleggur konum „hófsama
tilbuiði likamans,frekar þolandi
en virka” til þess að kraftur
mannsins fari ekki úrskeiðis”.
Ennfremur taldi hann „leik hand-
anna” óþarfan I þessu samhengi.
Samt taldi hann að undantekning-
. *>■
Frá stúlku til konu; þannig lýsti
dr. Albrecht þróun hins stolta
barms
Mælt var með þessum appfrötum
gegn sjálfsfróun.
ar frá þessum borðorðum væru
leyfilegar.
Dr Albrecht telur að best sé að
hafa samfarir á morgnana. Enda
þótt aðrir muni mæla með nótt-
unni vegna þess að myrkrið „sé
best til þess fallið að iðka eðlis-
hvöt vegna blygðunarkenndar
konunnar”, þá mun hann halda
fast við morgunsárið. Astæðan er
þessi: „Vegna vinnu hefur
likaminn misst marga hvikula
parta þegar kvöld er komið”.
Bókarhöfundur mælir mjög
gegn framkvæmdum i kynferðis-
málum á brúðkaupsnótt, vegna
þess að á undan henni fer venju-
lega hátiðahald og vindrykkja.
Telur hann að afkvæmi
brúðkaupsnótta beri einatt merki
sjúkleika alla ævi, ólikt þvi sem
sé um „ástarbörn” sem getin séu
af óþreyttum foreldrum að
morgni dags.
Auglýsing
1 samþykkt borgarstjórnar um umhverfi
og útivist er áætlað að koma upp ýmis
konar leiktækjum (t.d. minigolf) i skrúð-
görðum, eða á opnum ræktunarsvæðum
borgarinnar.
Þeir sem áhuga hafa á að koma upp og
starfrækja slik skemmtitæki eru vinsam-
legast beðnir að hafa samband við garð-
yrkjustjóra borgarinnar i Skúlatúni 2, 3.
hæð. Simi: 18000.
Borgarverkfræðingurinn i Reykjavik.
Kerfis-
fræðingur
Skipulagsdeild Sambandsins óskar að
ráða kerfisfræðing til starfa. Háskóla-
menntun á viðskipta- eða tölvusviði eða
mikil reynsla i kerfishönnun æskileg.
Starfið býður upp á fjölbrey tt viðfangsefni
á sviði tölvuvinnslu. Umsóknir sendist
Starfsmannastjóra Sambandsins fyrir
mailok. Starfsmannahald
SAMBAND ÍSLENZKRA SAMVINNUFÉLAGA