Þjóðviljinn - 02.06.1976, Page 12

Þjóðviljinn - 02.06.1976, Page 12
12 StÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 2. júni 1976. \ Vélskóli íslands Eftirtaldar deildir verða starfræktar skólaárið 1976-1977: Reykjavik: 1., 2., 3' og 4. stig. Akureyri: 1. og 2. stig. Isafjörður: 1. og 2. stig. Vestmannaeyjar: 1. og 2. stig. Siglufjörður: 1. stig (ef næg þátttaka fæst). 1 ráði er að stofna deildir á Akranesi, i Keflavik og á Neskaupstað er veiti þá fræðslu er þarf til að ljúka 1. stigi vél- stjóranáms, ef næg þátttaka fæst. INNTÖKUSKILYRÐI: 1. stig: a) Umsækjandi hafi náð 17 ára aldri. b) Umsækjandi sé ekki haldinn næmum sjúkdómi eða hafi likamsgalla sem geti oröið honum til tálmunar við starf hans. c) Umsækjandi kunni sund. 2. stig: a) Umsækjandi hafi náð 18 ára aldri b) Sama og fyrir 1. stig. c) Sama og fyrir 1. stig. d) Umsækjandi hafi lokiö miðskólaprófi eða hlotið hlið- stæða menntun. e) Umsækjandihafieittaf þrennu: 1. Lokiö vélstjóranámi 1. stigs með framhaldseinkunn, 2. öðlast amk. tveggja ára reynslu i meðferð véla eða vélaviðgeröum og staðist sér- stakt inntökupróf viö skólann, 3. Lokið eins vetrar námi i verknámskóla iönaöar i málmiðnaðargreinum og hlotiö amk. 6 mánaða reynslu að auki i meðferð véla eða véla- viögerðum og staðist sérstakt inntökupróf. UMSÓKNIR: Umsóknareyðublöð fást i skrifstofu skól- ans i Sjómannaskólanum, hjá húsverði Sjómannaskólans, hjá Vélstjórafélagi ís- lands Bárugötu 11, i Sparisjóði vélstjóra Hátúni 4A og hjá forstöðumönnum deilda. Umsóknir sendist til: Reykjavik: pósthólf 5134, Reykjavik. Akureyri: pósthólf 544, Akureyri. Isafjörður: pósthólf 127, Isafirði. Vestmannaeyjar: pósthólf 224, Vest- mannaeyjum. Upplýsingar um ráðgerðar deildir gefa: Siglufjörður: Markús Kristinsson, simi 96- 71525 Akranes: Sverrir Sverrisson, simi 93-1670 Keflavik: Ingólfur Halldórsson, simi 92- 1857 Neskaupstaður: Kristinn V. Jóhannsson, simi 97-7560. UMSÓKNIR NÝRRA NEMENDA BERIST FYRIR 10. JUNÍ 1976 Skólinn verður settur miðvikudaginn 15. september kl. 14.00. Kennsla hefst fimmtudaginn 16. september kl. 8.00. Endurtökupróf fyrir þá sem ekki náðu til- skilinni einkunn eða náðu ekki framhalds- einkunn, fara fram 7.-10. september 1976. Sækja þarf um þátttöku i þeim á sérstöku eyðublaði. SKÓLASTJÓRI Innheimtustofnun Sambands málm- og skipasmiðja Innheimtustofnun Sambands málm- og skipasmiðja tekur til starfa þann 1. júni. Aðildarfyrirtæki geta frá og með deginum i dag notfært sér þessa þjónustu. Samband málm- og skipasmiðja. Garðastræti 38, Reykjavik, Simar: 17882 og 25531. Af innlendum og erlendum vettvangi Sendum einn af okkar fiskifræð- ingum til Japan fiskímál ^eftir Jóhann J. E. Kúld, Ég hef hér i þessum þætti min- um að undanförnu brugðið upp dálitilli rissmynd af þeim mögu- leikum, sem ég tel vera hér á eldi dýrra fisktegunda I sjó. I þessu sambandi hef ég -Bent á stærstu fiskveiöi- og fiskeldisþjóð heims- ins sem fyrirmynd. En á þessu sviði standa japanir allra þjóða fremstir nú, sökum sinnar miklu kunnáttu og margra alda reynslu i fiskeldi. Sá mikli árangur, sem japanir hafa náð á slöustu árum á þessu sviöi, er svo stórkostlegur, að undrun vekur. Sú nýja 5 ára áætlun, sem nú er nýlega hafin I Japan á sviöi fiskiræktar og fisk- eldis, er grundvölluð og verður uppbyggð af þeirra fremstu og færustu visindamönnum. Hér er ekki lengur um tilraunastarfsemi að ræða, heldur framkvæmd áætlunar, sem byggist á nútima tækni og visindum, þar sem stuðst er viö margra alda reynslu japana. Fiskiræktarþáttur áætlunarinnar. Þar sem japanir reikna með miklum samdrætti i fiskveiðum sinum á næstu árum á f jarlægum miöum, sökum komandi útfærslu strandrikja á fiskveiðilögsögunni I 200 milur, þá snýst sú 5 ára áætlun, sem nú er farin I gang, mikið um ræktun á fiskistofnum við sjálfa japönsku ströndina. Og þessari ræktun fiskistofna á heimamiðum japana er ætlaö á næstu árum það hlutverk að vega meira I aukinni fiskigengd á japönskum miðum heldur en samdrætti nemur á fjarlægum miðum. Til stuðnings við þessa áætlun japanskra fiskifræðinga hafa nú veriö tilkallaðir færustu verkfræðingar þjóðarinnar. Verkfræðingunum er ætlað það hlutverk við framkvæmd 5 ára áætlunarinnar að breyta hafs- botninum á ýmsum stöðum við ströndina þannig, að sem hag- stæðust skilyrði fáist fyrir hina ýmsu' fiskistofna. Þetta verður gert með byggingu risavaxinna garða á hafsbotni' til að veita fiskinum skjól, plöntun stórra þaraskóga, þar sem dýpi er hentugt til þess, ásamt neðan- sjávarhindrunum, að draga úr of mikilli hreyfingu úthafsöldunnar. Þetta eru aðeins nokkur dæmi um, hvað áætlað er að gera við japönsku ströndina I þjónustu aukinnar fiskiræktar. Ég teldi þaö ómaksins vert, aö islenska sjávarútvegsráðuneytið gengist fyrir þvi, aö sendur væri héðan frá Hafrannsóknastofnuninni is- lenskur fiskifræðingur, sem dveldist I Japan i ekki minna en 6 mánuði og fengi að kynnast þvi, sem þar er verið að gera á sviði fiskiræktar og fiskeldis. Það er vitað mál, að japanir standa á þessum sviöum langtum framar heldur en bæði Evrópumenn og menn vestan hafs. Sökum legu lands okkar, þá er okkur nauðsyn á þvi að gera okkur það ljóst strax, að framtið stækkandi þjóöar I þessu landi verður fyrst og fremst að grundvallast á fisk- veiðum og fiskiðnaði ásamt öörum þeim möguleikum, sem hafið hefur upp á að bjóða, svo sem eldi dýrra fisktegunda. I þessu sambandi hef ég áöur bent á, að okkur er það lifsnauðsyn að halda strandsjó okkar hreinum, svo viðeyðileggjum ekki þau skil- yrði sem þar eru á ýmsum stööum fyrir hendi til fiskiræktar og fiskeldis. Gildi skjóls á hafsbotni Éghef lengihaft grun um, aö á grunnsævi, þar sem hreyfing út- hafsöldunnar nær niður að botni, eða niður undir botn, væri fiskum lifsnauösyn á þvi að geta leitað sér skjóls, þegar hreyfing öldunn- ar verður hvað mest. Þetta er nú viðurkennd staðreynd og ætla japanir að reisa slika skjólgarða á hafsbotni, þar sem þeir telja þörfina vera brýnasta. Þetta er eitt af þeim verkefnum, sem unnið verður að við japönsku ströndina í sambandi viö 5 ára áætlun þá, sem nýlega er hafin um fiskveiðar, fiskræktun og fisk- eldi, eins og ég hef sagt frá hér að framan. Eftir aö fariö var aö beita köfun froskmanna og neðansjávarkvik- myndun i þágu fiskirannsókna, þá kom það greinilega I ljós, að fiskar leituðu skjóls við sokkin skipsflök, hraunsnaga eða hverja aðra sllka ójöfnu á hafsbotni. 1 þessu sambandi er þaö eftirtekt- arvert, að strax aö loknu Surts- eyjargosinu við Vestmannaeyjar, þá leitaði fiskur fljótt upp að eyj- unni andstætt þvi sem ýmsir glöggir fiskimenn héldu, að mundi veröa. Skýringuna á þessu held ég, að sé að finna i þvi skjóli, er þarna myndaðist á hafsbotni viö gosiö. Út frá þessari vitneskju held ég, að nauðsyn beri til fyrir okkur islendinga, að endurskoðuð veröi afstaða okkar til fiskveiða meö botnvörpu á ósléttum botni, t.d. þar sem ennþá er aö finna óslétt hraun á fiskislóð landgrunnsins. Það er ekki ótrúlegt, að búiö sé nú þegar aö slétta of mikið botn sjávarins á ýmsum stöðum á grunnslóð fiskimiða viðs vegar við landið. Þetta getur leitt til þess samkvæmt kenningu japanskra fiskifræðinga, sem ég efast ekki um að séu réttar, að torvelt geti veriö fyrir fisk aö haldast viö á botni, þar sem allt skjól vantar. Þaö getur þvl farið svo, ef við ætlum okkur aö stunda ræktun fiskistofna á grunnslóð- inni i framtiðinni i stað rányrkju, að við verðum aö gripa til svipaðra aðgerða og japanir nú, þ.e.a.s. koma upp skjólgörðum gerðum af tæknikunnáttu á þýðingarmiklum stöðum. Ástand norsku síldarinnar Eins og mönnum er kunnugt, þá byggöust sildveiðarnar úti fyrir Norðurlandi á hingaökomu norsku stórsildarinnar eftir hrygningu við Suövestur-Noreg, siðast að vetrinum og snemma vors. A hinum miklu slldarárum i Noregi, þá kom sildin venjulega af hafi upp að norsku ströndinni einhverntima i janúarmánuði, en stundum fyrr og sjaldan seinna. Það var á löngu árabili, að sildin kom upp aö ströndinni nálægt Titranvitanum úti fyrir Norð- mæri og hélt siðan suöur með ströndinni á hrygningar- stöðvarnar nálægt Haugasundi. A meðan hún gekk suður með ströndinni, myndaöi hún sjaldan torfur, en varveidd mikið á þeirri leið i reknet. A hrygningar- stöðvunum, sem aö stærsta hluta voru innan skerjagarösins, myndaði sildin hins vegar miklar torfur og var þá veidd i stórum stil I snurpunót. Að lokinni hrygningu hélt hún siöan hingaö tii íslands i ætisleit. Um langt árabil hefur nú sildarinnar ekki orðið vart á hinum gömlu hrygningarstöðvum við Noreg. Siðustu sumarsildveiðar is- lendinga og norömanna voru ekki hér úti fyrir Noröurlandi, heldur á miöum nálægt Bjarnarey. Þaö er nú liöiö hátt á annan áratug, siðan islenskir sildveiöisjómenn hurfu af sildarmiöunum djúpt út af Austfjörðum og þá datt engum I hug a sildarstofninn væri uppveiddur, hvorki islendingum né norðmönnum. En svo gerðist þaö, aö þessi norski stórsildarstofn kom ekki upp að Noregsströnd næsta vetur til aö hrygna nema þá i mjög smáum stil og á allt öðrum stöð- um heldur en áður þekktist. Nú segja bæði norskir og islenskir fiskifræðingar, að sQdarstofninn hafi horfiö sökum ofveiði. Aöeins einn norskur fiskifræðingur, sem nú er hættur störfum, hefur allt frá upphafi haldið fram annarri kenningu og heldur enn. Þaö er Finn Devold. Hans kenning er sú, að aðalástæðan fyrir hvarfi norska stórsiidarstofnsins hafi ekki verið ofveiði, heldur hafi þetta orðið vegna breyttra haf- strauma. Devold heldur þvi fram, að slikt hvarf slldarinnar hafi um margra alda skeið gerst með ná- iægt þvi hundrað ára millibili. Þessa kenningu slna styður hann með þvi að vitna i sildveiöisögu Noregs, sem er til i handritum og nær nokkuð langt aftur i aldir. Eftir hvarf norska sildarstofnsins spáöi Devold þvi, að sildin kæmi upp aö Norður-Noregi eftir 15—20 ár og þá færi stofninn að aukast aftur. Nokkurrar stórsildar hefur orðið vart við Noröur-Noreg allra siðustu árin, en þó mest nú i ár. Fiskifræöingar telja þó, að stofn- inn sé of veikburöa ennþá tD þess að hægt sé að leyfa veiöar á hon- um. ÖD veiði á norska sDdar- stofninum er nú algjöriega bönnuð fyrir atbeina norskra fiskDræðinga. Nú upp á siökastiö hefur hins vegar komið upp deDa á milli sildveiðisjómanna og fiskifræöinganna um það, hvaö norski stórsildarstofninn sé stór. Fiskimennirnir telja stofninn mikið stærri heldur en fiski- fræöingar áætla að hann sé, og á grundvelli þess hafa þeir krafist aö leyfö verði takmörkuð veiði á sildarstofninum. Þessu hafa fiskifræðingarnir neitaö og krefj- ast þess, aðhann fái að vaxa upp i hæfilega nýtingarstærð. Þessi deiia hefur nú komist á það stig aö komast inn i norsk blöð. 1 tQ- efni þessarar deilu þótti mér rétt að rifja upp sögu norska stór- sDdarstofnsins og hvarf hans með fáum orðum. En fyrst ég er farinn aö ræöa um norsku sDdina, þenn- an mikla bjargvætt islenska þjóöarbúsins um áratuga skeið, þá er eðlDegt, að spurt sé: Framhald á bls. 14.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.