Þjóðviljinn - 02.06.1976, Page 13
Miðvikudagur 2. júni 1976. ÞJóÐVILJINN — StÐA 13
Joris Ivens ekki af baki dottinn:
Gerði tólf stunda heim-
ildarkvikmynd um Kína
Hollendingurinn Joris
Ivens, einn þekktasti
meistari heimildarkvik-
mynda, er sannarlega
ekki sestur í helgan stein
enda þótt hann sé 78 ára.
Hann hefur nýlega gert
Joris Ivens: Var með bæði á
mikla kvikmynd um Kína
eftir menningarbyltingu
sem alls er í f jórum hlut-
um og tekur 12 stundir að
sýna. Þessi mynd, sem
heitir „Hvernig Júkong
færði fjöll" og hefur
verið sýnd i París að
undanförnu, er sögð ýtar-
legasta kvikmynda-
heimild um Kína samtím-
ans sem gerð hefur verið
til þessa.
Ivens gerði fyrstu mynd sina i
Hollandi árið 1927 en hefur slðan
víða farið með kvikmyndavélar
og róttækar skoðanir sinar.
Hann gerði myndina ,,Hetju-
söngur” I Sovétrikjunum árið
1932 og fimm árum siöar gerði
hann hina frægu mynd um
borgarastyrjöldina á Spáni,
Sænsk jörð. Hemingway samdi
textann. Sú mynd fór nýlega
nýja sigurför ekki alls fyrir
löngu þegar Franco einvaldur
lést. Hann gerði „Máttur mold-
ar” i Bandarikjunum 1944, siðar
gerði hann myndir á Kúbu,
Mali, i Chile og Vietnam.
Að ögra fólki
Kinamynd Ivens var sýnd á
kvikmyndahátiðinni i Cannes nú
á dögunum. Höfundur segir að
Spáni og I Vietnam.
alþjóðlega dómnefnd, jafnvel i
Cannes, þar sem menn hafi ekki
mjög hugann við hugmynda-
fræðilegar deilur. En við vilj-
um, segir hann, umræðu, við
viljum að menn hlusti á kin-
verja, sjái hvaða augum kin-
verjar lita á land sitt en ekki
hvaða augum við litum Kina
sjálfir. Við viljum umræðu, ekki
við stjórnanda kvikmyndar-
innar, heldur við kinverjana.
Ivens segir i viðtali við IHT að
hann hafi i 40 ár verið að hugsa
um það hvernig heimildarkvik-
mynd ætti að vera. Hún verður,
segir hann, að vera myndræn
dramatisering á daglegu lifi.
Hún verður að koma fólki til að
hugsa, ögra þvi. t þrengri og
herskárri skilningi: Hún getur
flutt áróður. Svið hennar er vitt
— hún getur spannað frá frétta-
mynd til leikinna atriða. Það er,
þegar allt kemur til alls, engin
trygging fyrir þvi, að rétt sé
með farið að, kvikmyndavélin
hafi horft á raunverulega at-
burði, skáldskapur getur verið
sannari.
Vildu ekki nærmyndir
Joris Ivens kom fyrst
til Kina árið 1938. Hann tók
þar mynd sem fjallaði um
japanska ásælni, sem hét „400
miljónir”. Þá skildist honum, að
Sjú En-læ þætti mikils um vert
að geta kvikmyndað þá sögu
sem kommúnistar voru þá að
skapa, og þvi skildi Joris eftir
kvikmyndavél sina og 2000
metra af filmu.
Fyrstu orðin sem Joris Ivens
lærði i Kina 1938 voru „bú jao
kan” — ekki horfa i vélina.
Hann kom aftur austur þangað
1958, tók þá mynd sem hét „Bréf
frá Kina” og hélt hámskeið i
kvikmyndagerð. Hann segir að
það sé fyrst núna að kinverska
kvikmyndagerð sé að taka
nokkrum framförum. Myndir
þeirra eru bundnari en við eig-
um að venjast, segir hann.
Kvikmyndavélin tekur ekki þátt
i atburðunum, hún virðir þá fyr-
ir sér.
Annað er, að kinverjar voru
mjög tregir til að nota nær-
myndir vegna þeirrar gömlu
heföar að það sé ósæmandi að
gerast nærgöngull við einkalif
manna. Ég varð að útskýra fyr-
ir þeim, að andlit gæti verið eins
fallegt og landslag. Þessi hefð
var tengd konfúsiusarsið, og
það er liklega tengt baráttunni
gegn þeirri arfleifð sem kin-
verjar eru alveg núverið farnir
að nota miklu meir en áður nær-
myndir.
Að skilja eftir jurt
Joris Ivens hefur kvikmyndað
fyrir Shell og Philips, en flestar
myndir hans hafa endurspeglað
róttækar pólitískar skoðanir
hans i þeim mæli aö hann hefur
verið kallaður kreddukommi.
Það finnst honum, óréttlátt.t bók
sinni „Kvikmyndavélin og ég”
skrifar hann: „Það er nauðsyn-
legt að finna fyrst hinn félags-
lega veruleika og siðan það
megindrama sem að baki þessa
veruleika felst.”
Joris Ivens vann i þrjú ár að
kvikmyndinni „Hvernig Júkong
flutti fjöll”. Hann tók 120
klukkustundir af filmu og notaði
einn tiunda hlutann. Hann háfði
franska konu sér til aðstoðar, en
að ööru leyti voru allir liðsmenn
kinverskir og lærðu fagiö meö-
an á verkinu stóð.
Mér finnst gott að vinna með
landsmönnum sjálfum þar sem
ég kem. Þetta geröi ég i Banda-
rikjunum, á Kúbu og i Vietnam.
Mér finnst gott að hafa einn
þeirra á bak við kvikmynda-
tökuvélina. Það eykur hinum
traust. Þetta getur stundum
verið erfitt fyrir kvikmynda-
stjórann, en það þýðir, að hann
hefur kennt fólki. Maður hefur
skilið eftir jurt sem mun vaxa.
það sé ágætt að fá myndir fyrir
| útvarp
7.00 Morgunútvarp. Veður-
fregnir kl. 7.00, 8.15 og 10.10.
Morgunleikfimi kl. 7.15 og
9.05. Fréttir kl. 7.30, 8.15 (og
forustugr. dagbl), 9.00 og
10.00. Morgunbæn kl. 7.55.
Morgunstund barnanna kl.
8.45: Einar Björgvin byrjar
lestur sögu sinnar „Palla,
Ingu og krakkanna i Vik”.
Tilkynningar kl. 9.30. Létt
lög milli atriða. Kirkjutón-
listkl. 10.25: Páll tsólfsson
leikur orgelverk eftir
Buxtehude, Clérambault,
Zipoli, Bach og HSndel.
Morguntónleikar kl. 11.00:
Sinfóniuhljómsyeit Utah-
fyikis leikur „Hitabeltis-
nótt” sinfóniu nr.' 1 eftir
Louis Moreau Gottschalk;
Maurice Abravanel
stj./Hljómsveit Tónlistar-
skólans I Paris leikur
„Arstiðirnar,” ballettmúsik
op. 67 eftir Alexander
Glaxúnoff: Albert Wolff
stjórnar.
12.00 Dagskráin. Tónleikar.
Tilkynningar.
12.25 Fréttir og veðurfregnir.
Tilkynningar.
13.00 Við vinnuna: Tónleikar.
14.30 Miðdegissagan:
„Myndin af Dorian Gray”
eftir Oscar Wilde.Valdimar
Lárusson les þýðingu
Sigurðar Einarssonar (6.)
15.00 Miðdegistónleikar.
György Cziffra leikur
pianótónlist eftir Franz
Liszt: Konsertetýðu i Des-
dúr, Tarantellu, Konsert-
etýðu I f-moll og Helgisögn
nr. 2. Janet Baker syngur
„Þrjá söngva Bilitis” eftir
Claude Debussy. Gerald
Moore leikur á pianó.
Pierre Penassou og Jacqu-
eline Robin leika Sónötu
fyrir selló og pianó eftir
Francis Poulenc.
16.00 Fréttir. Tilkynningar.
(16.15 Veðurfregnir).
16.20 Tónleikar.
17.00 Lagið mitt. Berglind
Bjarnadóttir kynnir óskalög
barna innan tólf ára aldurs.
17.30 „Eitthvað að lifa fyrir”
eftir Victor E. Frankl.
Hóimfriður Gunnarsdóttir
byrjar lestur þýðingar sinn-
ar á bók eftir austurriskan
geðlækni, sem greinir frá
athugunum sinum á við-
brögðum fólks i fanga-
búðum nasista á striðsárun-
um.
18.00 Tónleikar. Tilkynningar.
18.45 Veðurfregnir. Dagskrá
kvöldsins.
19.00 Fréttir. Fréttaauki. Til-
kynningar.
19.35 Vinnumál.Þáttur um lög
og rétt á vinnumarkaði.
Umsjónarmenn Arnmundur
Backman og Gunnar Eydal
lögfræðingur.
20.00 Kvöldvaka. a. Einsöng-
ur.Þuriður Pálsdóttir syng-
ur lög eftir Karl O. Runólfs-
son. Ólafur Vignir Alberts-
son leikur á pianó. b. A
Jökulhálsi. Hallgrimur
Jónasson rithöfundur flytur
ferðaþátt. c. Kolfreyja og
Vöttur.Rósa Gisladóttir les
þjóðsögu úr safni Sigfúsar
Sigfússonar. d. Stormasöm
ævi á stóli biskups. Jón T.
Hjálmarsson flytur siðara
erindi sitt um Bauka-Jón. e.
Um islenska þjóðhætti. Árni
Björnsson cand. mag. flytur
þáttinn. f. Samsöngur.
Tryggvi Tryggvason og
félagar syngja.
21.30 Útvarpssagan: „Siðasta
freistingin” eftir Nikos
Kazantakis. Sigurður A.
Magnússon les þýðingu
Kristins Björnssonar (35).
22.00 Fréttir.
22.15 Veðurfregnir. Kvöldsag-
an: „Sá svarti senujófur”
ævisaga Haralds Björns-
sonar.Höfundurinn Njörður
P. Njarðvik, les (27).
22.40 Nútimatónlist. Þorkell
Sigurbjörnsson kynnir.
23.25 Fréttir. Dagskrárlok.
' # sjónvarp
:....... i !
18.00 Björninn Jógi Bandarisk
teiknimyndasyrpa. Þýðandi
Jón Skaptason.
18.25 Demantaþjófarnir
Finnsk framhaldsmynd.
Lokaþáttur. Efni þriðja
þáttar: Bófarnir felast úti i
eyju. Einn þeirra fer i bæ-
inn. Hann stelur peningum
frá blaðsölustúlku, sem er
vinkona strákanna. Hún elt-
ir hann, en tekst ekki betur
til en svo, að hún verður
fangi bófanna. Þýðandi
Borgþór Kjærnested.
(Nordvision—Finnska sjón-
varpið)
18.40 Gluggar Eyðimörkin i
Saudi Arabiu Nautgripa-
þjófnaður i Japan, Svifflug.
Andaleikur.Þýðandi og þul-
ur Jón O. Edwald.
Hlé
20.00 Fréttir og veður
20.30 Augiýsingar og dagskrá
20.40 Nýjasta tækni og visindi
Hraðgengar járnbrautar-
lestir. Bronx-dýragarður-
inn. Veðrið. Opinn skóli.
Hjáipartæki handa
fötluðum. Umsjónarmaður
Ornólfur Thorlacius.
21.05 Bilaleigan Þýskur
myndaflokkur. Páskavatn
Þýöandi Briet Héðinsdóttir.
21.30 Höfuðtrúarbrögð heims-
ins Kanadisk fræðslumynd
um helstu trúarbrögð
heimsins, hindúasið, búdda-
trú, múhameðstrú og
kristindóm. Brugðið er upp
myndum af helgiathöfnum
og helgistöðum og rætt við
hinn kunna sagnfræðing
ArnoldToynbee. Þýðandi og
þulur Gylfi Pálsson.
22.15 t þessum þætti skemmta
tvö söngtrió, Við þrjú:
Sturla Erlendsson.
Haraldur Baldursson og
Ingibjörg Ingadóttir, og
Þremill: Sverrir Guðjóns-
son, Sæmundur Grétar
Haraldsson og Kjuregej
Alexandra Argunova.
23.00 Dagskrárlok
Fundur um lánamál
atvinnuveganna
Stjórnunarfélag tslands gengst
fyrir almennum fundi um iána-
mál atvinnuveganna að Hótel
Loftleiðum fimmtudaginn 3. júni
n.k. kl. 15.00. A fundinum flytja
framsöguræður þeir Bjarni Bragi
Jónsson hagfr., Helgi Bergs
bankastjóri og Valur Valsson að-
stoðarbankastjóri. Fulltrúi Seðla-
bankans verður gestur fundarins.
Tilgangur fundarins er aö efna
til umræðna um það, hvernig
beina eigi fjármagni og starfs-
orku þjóðarinnar að þeim verk-
efnum sem færa mesta björg I bú.
Segja má, að kveikjan að fundin-
um sé ræöa Jóhannesar Nordal
seðlabankastjóra, formanns
bankastjórnar Seðlabankans,
sem hann flutti á ársfundi bank-
ans 6. mai 1976. í ræðunni komu
fram gagnmerkar upplýsingar
um þróun efnahagsmála og þann
vanda, sem við er að glima.
I ræöu sinni minnti seðlabanka-
stjóri á þaö, hvernig gengið hefur
verið á sjóðu framtiöarinnar með
ofnýtingu fiskistofna og skulda-
söfnun við útlönd. Taldi hann, að
vafasamt væri hvort það tækist
að tryggja verulegan hagvöxt hér
á landi næstu árin, nema að stefn-
unni i fjárfestinga- og atvinnu-
málum verði breytt og hinu tak-
markaða fjármagni, sem til ráð-
stöfunar er, verði beint i auknum
mæli til þeirra greina, sem best
skilyrði hafa til arðbærrar fram-
leiösluaukningar og útflutnings.
Mikilvægur liður i slikri stefnu-
breytingu væri endurskoðun á
starfsemi lánakerfisins og fjár-
magnsmarkaðarins.
Um þessi atriði verður væntan-
lega sérstaklega fjallað á fundi
Stjórnunarfélagsins á morgun,
fimmtudag.
(Fréttatilkynning)
Yerslunin hættir
Nú er tækifærið aö gera góð kaup. Allar vörur seldar með
miklum afslætti. Allt fallegar og góðar barnavörur.
Barnafataverslunin Rauðhetta
Iðnaðarhúsinu v/Hallveigarstlg
Blikkiðjan Garðahreppi
Önnumst þakrennusmíði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar blikksmíði.
Gerum föst verðtilboð.
SÍMI 53468