Þjóðviljinn - 02.06.1976, Qupperneq 14
14 SIÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 2. júni 1976.
Járniðnaðar-
menn mótmæla
Fundur I stjórn Félags járniön-
aðarmanna 1. júnl 1976, mótmælir
samningsviöræðum við breta um
veiðar þeirra I fiskveiðilandhelgi
tslands, sem nú fara fram og hóf-
ust á Nato —fundinum I Oslo, fyr-
ir stuttu síðan.
Stjórn Félags járniðnaðar-
manna telur að forsenda við-
ræðna við breta eigi að vera af-
dráttarlaus viðurkenning þeirra á
óskertum yfirráðum islendinga á
200 mllna fiskveiðilandhelgi ts-
lands.
Lúðvik
Framhald af 16. siðu.
Þá felst í þessu öllu að samn-
ingurinn við vestur—þjóðverja
veröur áfram i gildi, en hann
átti að vera úr gildi faliinn. Hér
erveriðaðheimila útlendingum
miklar veiðar og mikið skarð
höggvið I islenska fiskistofna.
Ég tel þvl samninginn mjög
varh ugaverðan og nú þurfi
þjóðin að fylkja sér saman um
hörð mótmæli gegn þessu sam-
komulagi sem gert hefur veriö,
krefjast þess að Alþingi verði
kallað saman til að fjalla um
máliö og koma á þann hátt I veg
fyrir þessa samningagerö.
Þeir sömdu
Framhald af bls. 1.
stjórnarinnar varðandi hvað við
tæki eftir 1. des, af hálfu Efna-
hagsbandalagsins væri ólikur.
Augljóst er, að bretar áskilja
sér allan rétt til að láta Efnahags-
bandalagið knýja islendinga með
viðskiptaþvingunum til að fram-
lengja breska samninginn. Og
einnig er ljóst, að núverandi
rikisstjórn er ekki Ukleg til að
standa þar I veginum.
A ársgrundvelli má búast við,
að bretar nái samkvæmt þessum
V erkstæðismenn
Maður vanur viðgerðum á þungavinnu-
vélum og maður vanur rafsuðu óskast
strax.
Upplýsingar i sima 83546.
Aðalfundur
Prentsmiðju
Þjóðviljans h£
vegna áranna 1972 og 1975 verður haldinn
að Grettisgötu 3 mánudaginn 14. júni
næstkomandi kl. 8.30 siðdegis.
Dagskrá:
1) Venjuleg aðalfundarstörf skv. sam-
þykktum félagsins.
2) Framtið hlutafélagsins.
STJÓRNIN
V élpr j ónasambandið
auglýsir
Sýnikennsla á prjónavélar að Hallveigar-
stöðum verður frá kl. 2-10 eh.
Hljómleikar
Samkór Selfoss heldur samsöng i Félags-
stofnun stúdenta við Hringbraut i Há-
skólahverfi miðvikudag 2. júni kl. 9 e.h.
Stjórnandi er dr. Hallgrimur Helgason, en
einsöngvari Dóra Reyndal.
Pianóundirleik annast Krystyna Cortes.
Á efnisskrá eru m.a. islensk kórlög, þjóð-
visudansar og kantata eftir Franz Schu-
bert.
Aðgöngumiðar fást við innganginn.
mmm^m^m^m^mmm^^mmmmmrnmm^^m^
Astkær sonur okkar bróðir og unnusti
Jóhann Hjörleifsson,
Itauðumýri 3, Akureyri,
sem lést af slysförum 27. mai, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju föstudaginn 4. júni kl. 13.30. e.h.
Júliana Hinriksdóttir Hjörleifur Hafliðason
Siguröur Hinrik Hjörleifsson Sjöfn Ragnarsdóttii
Elisabet Hjörleifsdóttir
Guðrún Þorláksdóttir.
^^mmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmmi^r
samnmgi um 70.000 tonnum af
fiski.
1 21. grein stjórnarskrár is-
lenska lýðveldisins segir: „For-
seti Islands gerir samninga við
önnur rlki. Þó getur hann enga
slika samninga gert, ef þeir hafa i
sér fólgið afsal eða kvaðir á landi
eða landhelgi... nema samþykki
Alþingis komi til.”
Krafan er að Alþingi komi sam-
an nú þegar, og rikisstjórnin stað-
festi samninginn ekki fyrr en á
málið hefur reynt á þingi.
Ölver
Framhald af '6. siðu.
vera undir sama þaki og frysti-
húsið ásamt kaffistofu, sem þá
væri jafnframt hægt að nota til
fyrirlestrahalds og kennslu að-
staða til kennslu verkunar salt-
fisks og saltfiskmats, skreiðar og
skreiöarmats, sildarsöltunar og
sildarmats, herslu, reykingar,
niðursuðu ofl.
1 tilefni að þvi, að á þessu vori
eru 5 ár siðan Fiskvinnsluskólinn
var stofnaður með lögum eins og
áður getur, treysti ég og vona að
með yfirlýsta stefnu okkar æðstu
manna i menntamálum þjóðar-
innar, i sambandi við verklega
menntun i huga, að gert verði stór
átak til þess að Fiskvinnsluskól-
inn geti skilað nemendum með
þeirri verkmenntun, sem af hon-
um er ætlast.
Gleymum þvi aldrei, að fisk-
veiöar okkar og fiskvinnsla er sú
undirstaða, sem við þurfum að
byggja alla velmegun okkar á um
langa framtið.
Úr leik
Framhaldaf bls. 11.
leika gegn spaúverjum og
ungverjar gegn frökkum, en
báðir leikirnir fara fram á
föstudaginn.
Úrslit I gærkvöldi uröu
þessi: Júgósl.—Ungverjal. 4-3 (2-2)
Wales—Italia 1-0 (0-0)
Sviss—- Tyrkland 1-0 (0-0)
Spánn — Island 3-0
Frakkl,—Finnl. 0-0 (0-0)
V-Þýskaland — Tékkóslóvakia 3-3 (1-0)
Danmörk —Holland 3-1 (2-1)
USSR — N-írland 2-0 (1-0)
— gsp
Nýr áfangastaður, eyjan
sunnan við Mallorca er
minna kunn íslendingum
en Mallorca en ferða-
mannastraumurinn hefur
aukist þangað jafnt og
þétt síðustu árin. Þarna
eru ágætis hótel og snyrti-
leg aðstaða og ekki síðri
veðursæld en á Mallorca.
Landsýn býður þangað 4
ferðir og margar þeirra
þegar að verða fullsetnar.
Lítið inn í dag.
J
Sf
LANDSÝN
ALÞÝÐUORLOF
SKÓLAVÖRÐUSTÍG 16 SÍMI 28899
Fiskimál
Framhald af 12 siðu
Hafa verið gerðar rannsóknir
úti fyrir Norðurlandi undanfarin
sumur til könnunar á þvi, hvort
eitthvað hafi gengið hingað af
norskri sild á hin gömlu mið úti
fyrir Norðurlandi?
Slikar rannsóknir eru að rninu
viti nauðsynlegar fyrst og fremst
frá haffræöilegu sjónarmiði. Mér
hefurt.d. verið tjáð, að sildar hafi
oröið vartá Húnaflóa á sl. sumri
og að hún hafi ánetjast i silunga
net á Blönduósi, sem óneitanlega
bendir til þess að um fullvaxna
sild af norska stórsildarstofnin-
um hafi verið að ræða, sé þessi
saga sönn. Ég tel mjög æskilegt,
að nú i sumar verði gerð könnun á
þvi með reknetum I miðjum
ágústmánuöi, hvort einhver
slæðingur af norskri stórsfld
kemur hingað ennþá á miðin úti
fyrir Norðurlandi. Ég tel reknet
vera það veiðarfæri er best
hentar til slikra rannsókna og að
látið verði reka á hinum gömlu
reknetamiðum djúpt Uti af Siglu -
firði. Ég beini þessu hér með til
réttra aðila.
(24.5. 1976)
#ÞJÓÐLElKHÚSIfl
IMYNDÚNARVEIKIN
i kvöld kl. 20
föstudag kl. 20
2. hvitasunnudag kl. 20
Næst sfðasta sinn.
Litla sviðið:
LITLA FLUGAN
fimmtudag kl. 20,30.
Næst siðasta sinn.
Miðasala 13,15-20.
Simi 1-1200.
LEIKFÉLAG lál
REYKJAVlKUR
SKJALDHAMRAR
i kvöld. — Uppselt.
Föstudag kl. 20,30.
2. sýningar eftir.
SAUMASTOFAN
fimmtudag. — Uppselt.
Listahátið i Reykjavik:
SAGAN AF DATANUM
frumsýning 2. hvitasunnudag.
— Uppselt.
2. sýning þriðjudag kl. 20,30.
Miöasalan i Iðnó er opin frá kl.
14 til 19. Simi 1-66-20.
1
Innilegar þakkir til allra vina minna, sem
með ljúfum kveðjum og einnig á annan
hátt létu mig gleyma ellinni 27. mai
siðastliðinn.
Lifið öll heil!
Andrés Eyjólfsson
Slöumúla
Alþýðubandalagið i Reykjavik
5. deild — Breiðholt
Aöalheiður
Aðalfundur deildarinnar verður haldinn nk.
miðvikudag 2. júni, að Seljabraut 54 (Kjöt og
fiskur) og hefst kl. 20.30 Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning I fulltrúaráð ABR.
3. Launajafnrétti: Aöalheiður Bjarnfreðsdóttir,
formaður Starfsstúlknafélagsins Sóknar, reifar
umræðuefnið. A eftir verða almennar umræður.
Mætið vel og stundvislega. Stjórn 5. deildar
ABR.
Alþýðubandalagið Neskaupstað
Almennur stjórnmálafundur
verður haldinn I Egilsbúð miðvikudaginn 2. júni
kl. 20.30. Helgi Seljan alþingismaður hefur
framsögu á fundinum.
Allir velkomnir.
Alþýðubandalagið I Neskaupstað.
Alþýðubandalagið i Árnessýslu
Aöurboðuðum fundi Alþýðubandalagsins, sem halda átti á Selfossi I
dag kl. 20.30 með Garðari Sigurössyni, alþingismanni er frestað, vegna
útifundar i Reykjavik um ný viðhorf i landhelgismálinu.
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi
Seltjarnarnes
Barðaströnd Melahverji
Ennfremur vantar blaðbera víðsvegar um
bæinn til afleysinga.
Vinsamlegast haf ið samband við afgreiðsluna
— sími 17500.
ÞJÓÐVILJINN
BLAÐBERAR
Vinsamlega kornið á afgreiðsluna og sækið
rukkunarheffin.
ÞJÓÐVILJINN