Þjóðviljinn - 16.06.1976, Blaðsíða 7

Þjóðviljinn - 16.06.1976, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 16. júni 1976 ÞJóÐVILJINN — SÍÐA 7 100 ára afmœli Isafoldar Ný íslensk- dönsk orðabók Ný islensk - dönsk orðabók mun koma út á vegum tsafoldarprent- smiðju h/f i dag, þann 16. júni. Höfundar hennar eru Haraldur Magnússon og danirnir Oie Widd- ing og Preben Meulengracht. Þetta kom fram á fundi, sem þeir Lúðvik Jónsson, framkvæmda- stjóri tsafoldarprentsmiðju, Ragnar Jónsson, bókaforlags- stjóri, Ólafur B. Thors, formaður stjórnar tsafoldarprentsmiðju og Haraldur Magnússon, orðabókar- höfundur, héldu með fréttamönn- um s.I. mánudag. Útgáfudagur þessarar bókar er ekki valinn af neinu handahófi. Einmitt þann mánaðardag, hinn 16. júnl árið 1877 kom út fyrsta tbl. hins nafnfræga blaðs Björns Jónssonar, ísafoldar, sem prentað var I hinni nýju prent- smiðju blaðsins, en áður hafði ísafold, um nokkurt skeið, verið prentuð i Landsprentsmiðjunni. Meö deginum i dag hefst þvi hundraðasta . starfsár þessa merka fyrirtækis, ísafoldar- prentsmiðju. Er hin nýja orðabók þvi einskonar afmælisrit prent- smiðjunnar og fer vel á þvi, að með útgáfu sliks verks, sé minnst orðsnillingsins Björns Jónssonar og starfa hans. Og á það má minna að Isafoldarprentsmiðja hefur áður verið athafnasöm við útgáfu orðabóka og unnið á þeim akri mikið starf og merkt. Samning orðabókar er ekkert áhlaupaverk, enda á útkoma bókarinnar sér all-langan aðdrag- anda. Arið 1953 ákvaðu þeir Hen- rik Sv. Björnsson, fyrir hönd tsa- foldarprentsmiðju h/f og Ole Widding, þá lektor við Háskóla tslands, að hefja undirbúning að útgáfu bókarinnar. Til verksins völdust þeir Haraldur Magnússon og Ole Widding, en árið 1967 kom svo til liðs við þá félaga Preben M. Sörensen, sem þá var lektor i dönsku við háskólann hér. Að bókinni hefur verið unnið i tveim- ur löndum samtimis: á tslandi og i Danmörku, og er hún algjört tómstundaverk höfundanna. Breytingar hafa orðið miklar á málunum á 25 árum, þróun tung- unnar raunar örari en svo, að unnt væri við gerð bókarinnar að halda til jafns við hana og þvi þurfti i sifellu að breyta og endur- bæta. Haraldur Magnússon lét þess getið, að af þessum ástæðum þyrfti helst að endurskoða orða- bækur á 10 ára fresti. Bókin er gefin út i 1500 eintök- um. Af þeim eru 150 eintök tölu- sett, sérstaklega innbundin og i dag til sölu i Bókaverslun Isa- foldar Austurstræti 8. Verð ein- taksins er kr. 10 þús. en hinna kr. 8.400.- Orðabók verður á hinn bóginn aldrei seld á þvi verði, sem samning hennar og útgáfa kostar, hún verður alltaf öðrum þræði ólaunað þjónustustarf. Til stendur, að af hinum merkari bókum, sem Isa- foldarprentsmiðja gefur út á þessu afmælisári, verði nokkur eintök tölusett. — Sennilega hefði ég gefist upp. við þetta verk ef konan min, sem er danskrar ættar, hefði ekki stappað i mig stálinu og aukið mér kjark þegar seint sóttist og hvað mest blés á móti, sagði Haraldur Magnússon þegar við kvöddum hann á mánudaginn. —mhg Valaskjálf. Safnastofnun Austurlands efnir til almenns fundar 19. júni i Valaskjálf: ÞJÓÐMINJAVERND Á AUSTURLANDI Safnastofnun Austurlands, SAL, gengst fyrir almennum fundi um þjóðminjavernd í Vala- skjálf á Egiisstöðum iaugardag- inn 19. júni ki. 16 i framhaldi af opnun minja- og húsverndar- sýningar. 1 fundarbyrjun flytur Hjorleif- ur Guttormsson ávarp, en fram- sögu hafa Þór Magnússon, þjóð- minjavörður, Höröur Agústsson, listmálari, og Gunnlaugur Haraldsson, þjóðháttafræðinemi. Fjalla þeir einkum um verndun þjóðminja og merkra bygginga á Austuriandi, en Hörður mun tengja það efni yfirliti um sögu húsagerðar hérlendis og sýna skýringarmyndir. Væntanlega verður Vilhjálmur Hjálmarsson, menntamálaráðherra, einnig á fundinum. Að framsöguerindum loknum verða almennar umræður. Er áhugafólk um safnamál og vernd- un þjóðminja eindregið hvatt til að sækja fundinn, sem m.a. er ætlað að verða til að ýta á eftir aðgerðum á þessu sviði austan- lands. Bragi vann vindlingamótið Skákmótinu er kennt var við ákveðna vindlingategund lauk á sunnudagskvöldið. Sigurvegari i mótinu varð Bragi Halldórsson, fyrrverandi skákmeistari Norðurlanda, og hlaut hann sam- tals átta vinninga af niu mögu- legum. Annar varð fyrrverandi skákmeistari tslands, Björn Þor- steinsson, með sjö vinninga, en þriðji i röðinni var Guöni Sigur- bjarnarson, einnig með 7 vinninga. Alls hlutu 20 þátttak- endur verðlaun. Forráðamenn Borgarspitalans ásamt gjörgæslutækinu. Stórgjöf til Borgarspítala Nýverið barst Borgarspital- anum I Reykjavik stórgjöf frá fyrirtæki i Reykjavik. Fyrir- tækið, sem óskar ekki eftir að vera nafngreint, færði stofnuninni tæki til gjörgæslu á hjartasjúkl- ingum. Tækin, eru frá Hewlett Packard i Bandarikjunum. Eru þau mjög fullkomin að allri gerð. Hluti tækjanna er við rúm sjúklings og tengdur honum. Sendir hann þaðan allar upp- lýsingar til miðstöðvar, sem stað- sett er i vaktherbergi sjúkra- deildar. Þaðan er þannig hægt að fylgjast með mörgum sjúklingum samtimis og koma fram á tækjunum breytingar og truflanir sem verða á hjartslætti sjúkling- anna. Þessi búnaður kemur til viðbótar hliðstæðum búnaði sem fyrir er, og bætir þessi höfðing- lega gjöf stórlega aðstöðu tii læknismeðferðar hjartasjúkl- inga. Tæki þessi eru að verðmæti u.þ.b. 2 milj. króna. Inúk á stóra sviðinu A föstudag og laugardagskvöid verða siðustu sýningar Ieikársins í Þjóðleikhúsinu. Verður leikritið INÚK þá sýnt á Stóra sviðinu, en leikritið hefur nú verið sýnt yfir 200 sinnum i 18 iöndum, nú siðast i sex löndum Mið- og Suður- Ameriku. Hérlendis hefur leik- ritið einkum verið-sýnt I skólum og fyrir ýmis féiagssamtök og i vetur var það sýnt um skeið á Litla sviðinu i Þjóðleikhús- kjallaranum. Vegna mikilla eftirspurna var ákveðið að hafa tvær sýningar á Stóra sviðinu, en óvist er að fólki gefist fleiri tækifæri til að sjá þennan margrómaða leik. Að undanförnu hafa Þjóðleikhúsinu borist blaðaumsagnir um sýningarnar úr Suður-Amerlku- ferðinni og eru þær sem fyrr ein- róma lof um sýninguna. í leik- hópnum, sem leikur tNDK, eru Brynja Benediktsdóttir, Krist- björg Kjeld, Helga Jónsdóttir, Ketill Larsen, Þórhallur Sigurðs- son; sýningarstjóri er Þorlákur Þórðarson en textahöfundur með hópnum Haraldur Ólafsson. Sem fyrr segir verða þessar tvær sýningar-á INOK siðustu sýningar leikársins i Þjóðleikhús- inu, en hópur frá leikhúsinu er nú á leikferð um landið með tmyndunarveikina eftir Moliére og verður siðasta sýning leikárs- ins þvi á Blönduósi, þar sem ímyndunarveikin verður sýnd 22. júni. Nú kveóur | vió nýjan tón Allar götur síðan 1936 hefur Málningarverk- smiðjan Harpa verið í fararbroddi, hvað snertir nýjungar í framleiðslu á málningu, lakki og ýms- um kemiskum efnum byggingariðnaðarins. Frá upphafi hefur rannsóknarstofa fyrirtækisins rekið umfangsmikla starfsemi, sem beinist að því að reyna þol og gæði framleiðslunnar við mismunandi íslenzkar aðstæður. Sérstaða Hörpu meðal málningarframleiðenda á íslandi er fólgin í því, að Harpa notar ein- göngu uppskriftir sem hannaðar eru á rann- sóknarstofunni fyrir hina umhleypingasömu ís- lenzku veðráttu. Reynsla fengin af nær 40 ára viðureign við íslenzkt veðurfar tryggir gæði framleiðslunnar. LÁTIÐ HÖRPU GEFA TÓNINN HARPA SKÚLAGÖTU 42

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.