Þjóðviljinn - 16.06.1976, Page 8
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miövikudagur 16. júni 1976
Ráðstefna um nýtíngu hafsins
og sjávarútvegsmál
Þegar boðað er til ráðstefnu um
ákveðinn málaflokk og þangað er
stefnt visindamönnum, stjórn-
málamönnum og þeim, sem
atvinnu hafa af vafstri i kring um
þau mál, sem til umræðu eru, þá
er ætlunin sú að að fá fram upp-
lýsingar um einstaka þætti mála-
flokksins, fá fram hugmyndir og
skiptast á skoðunum.
Það er orðinn mikill siður að
bjóða til slikra ráðstefna
ráöherrum viðkomandi mála-
flokka. Mætti ætla að slikt boð
væri gert með það fyrir augum að
ráðherrarnir gæfu ráðstefnu-
gestum innsýn i þaö, sem verið
er að bardúsa hverju
sinni, segðu frá
framtiðaráætlunum varðandi
viðgang viðkom
andi atvinnuvegar og hlýddu
siðan á mál þeirra, sem við
atvinnuveginn fást, hlustuðu eftir
hugmyndum þeirra um fram-
tiðarskipan, hlýddu á umræður
þeirra um erfiðleika liðandi
stundar og öfluðu sér þannig
hugmynda og innsýnis i þá
veröld, sem umrædd atvinnu-
grein skapar.
En þannig er þetta þvi miður
ekki.
A laugardaginn var efndi
Fjórðungssamband norölendinga
til ráðstefnu um nýtingu hafsins
og sjávarútvegsmál. Var hún
haldin á Sauöárkróki og vel til
dagsskrárinnar vandað, fengnir
til fjölmargir fræðimenn að flytja
tölur og svo að sjálfsögðu ráð-
herra sjávarútvegsmála.
Þaö er nýbúiö aö gera af-
drifarika sammnga um veiðar út'-
lendinga innan islenskrar land-
helgi. Þaö er nýbúið að semja lög
um veiðar islendinga innan sinn-
ar nýju 200 milna landhelgi. Það
hafa nýverið átt sér stað
byltingarkenndar breytingar á
sjóðakerfi sjávarútvegs. Það er
fyrirsjáanlegur geysilegur sam-
dráttur i afla helsta nytjafisks
okkar. Otgerðir standa höllum
fæti og hraðfrystihúsaeigendur
emja vegna slæmrar afkomu.
Hvað á að gera? Hvað er fram-
undan?
Ráðherra sjávarútvegsmála,
Matthias Bjarnason, hélt langa
framsöguræðu. Hún fjallaði ekki
um framtið islensks sjávar-
útvegs. Þar var ekki frá þvi skýrt
á hvern hátt stjórnvöld hyggðust
blanda sér inn ireksturfyrirtækja
á þessari atvinnugrein svo þau
fari ekki hvert á hausinn af öðru i
einni hrikalegri gjaldþrotaskriðu.
Og heldur var ekki einuorði vikiö
aö hugmyndum stjórnvalda um
æskilega þróun atvinnuvegarins i
framtiðinni.
Ráðherrann talaöi um þaö sem
liðið var, rifjaði upp gerðir sinar
siðustu misseri, talaði um það
sem allir vissu um og ekkert
annað.
Nú er Matthias Bjarnason ekki
einn um slika framkomu og slik
vinnubrögð. Ég minnist þess, að
iðnaðarráðherra, Gunnar
Thoroddsen, hefur i min eyru
nokkrum sinnum haldið ræður
yfir sérfræðingum og starfs-
mönnum i iðnaði, og gert ná-
kvæmlega það sama og Matthias
norður á Sauðárkróki, talað um
þaö, sem áheyrendur vissu gerst
alls, jafnvel betur en sá, sem um
ræddi.
Þetta er i stuttu máli sagt and-
skotans dónaskapur, og þær á-
lyktanir, sem áheyrendur draga
af slikum málflutningi og fram-
komu er æöilangan veg frá þvi að
auka hróður þeirra, sem þannig
koma fram.
Enginn ádráttur.
En ráöherra slapp þó ekki
alveg við að gera ráðstefnu-
gestum nokkra grein fyrir fram-
tiðaráællunum, þó svo lengivel
segði enginn maður neitt né
spyrði eftir að hann hafði lokið
ræðu sinni, sjálfsagt vegna undr-
unar yfir framkomu ráðherrans.
Ráðherra var spurður um
ráðstaíanir vegna lausaskulda
útgerðar og fiskvinnslu, um land-
helgismál og fl.
f svörum ráðherra kom fram,
að hann hefur tekið loforð af
Seðlabankanum um að hann geri
viðskiptabönkum útgerðarinnar
kleift að krefjast aðeins helmings
afborgana af lausaskuldalánum
útgerðar, sem gengið var frá i
fyrra og breytt i langtimalán, en
þessi lánafyrirgreiðsla nam sam-
tals 3,2 miljörðum.
Verð á spærlingi og kolmunna
mun verða hærra en afurðaverð
og ætiar rikisstjórnin að á-
byrgjast að hægt sé að greiða
slikt verð fyrir hráefni. Fyrir
dyrum stendur að senda 100 tonn
af kolmunnamarningi og 100 tonn
af hertum kolmunna á markaði
og eru verðlagshorfur ekki ýkja
slæmar.
Þá fullyrti ráðherrann, að
cnginn ádráttur hefði verið gefinn
Björn Daghja rtsson, lorstj.
It a nnsúknastof n una r fisk-
iðnaðarins.
Matthias lljarnasun, sjávar-
úlvegsráðherra.
bretum um Irekari veiðar þeirra
innan islenskrar landhelgi eftir
að uúverandi samningur um
veiðar þeirra hér rennur út.
Jafnframt sagði hann að hann
vildi ekki fyrirfram neita bretum
né nokkurri annarri þjóð um
samninga um veiðar innan land-
helgi okkar, ef við fengjum i
staöinn eitthvað það, sem ekki
væri minna virði.
Og er þar með lokið aö segja frá
tilleggi ráðherra á ráðstefnu
þessari. Heldur mátti hann ekki
vera að þvi að sitja ráöstefnuna
nema til hádegis, i tæpa tvo
klukkutima, og varð þess vegna
Jakob Jakobsson, Iiskifræðingur.
af þvi að heyra hljóð I mönnum,
hugmyndir þeirra og álit á is-
lenskri útgerö og þá norölenskri.
Aörar framsögur.
Auk ráðherrans fluttu fjórir
fræðimenn framsöguræður, og
svöruöu fyrirspurnum. Kristjón
Kolbeins, fulltrúi i Fram-
kvæmdastofnun rikisins, flutti
yfirlitserindi um stöðu i sjávar-
útvegsgreinum á Noröurlandi,
Jakob Jakobsson,fiskifræðingur,
flutti erindium ástand fiskistofna
og nýtingu þeirra, Björn
Dagbjartsson, forstj.
Ra nnsóknarstofnunar fisk-
iðnaöarins, flutti erindi um
nýtingu sjávarafla og nýjungar i
fiskiðnaði og Jónas Blöndal,
skrifstofustjóri hjá Fiskifélaginu
flutti erindi um leiðir og markmið
i fiskveiðum.
Helmingi minni sókn
gæfi meiri afla.
Þess gefstekki kostur að rekja
framsöguerindi ofangreindra
fræöimanna. Þess I stað verður
tiundað hér litið brot af þvi, sem i
erindum þeirra kom fram, aö við-
bættu þvi, sem fram kom i svör-
um þeirra við fyrirspurnum
ráðstefnugesta.
Vöxtur norðlenska bátaflotans
hefur verið meiri en vöxtur
bátaflotans annars staðar á
landinu, en bátar nyrðra eru yfir-
leitt minni en i öðrum lands-
hlutum. Um 19% þess verðmætis,
sem bundið er i fiskiskipastól
okkar er staðsett á Norðurlandi.
1589 kg. af þorski fást nú af 1000
fiskum og lætur þá eftir sig 782
kg. hrygningarstofn, en yröi
sóknin minnkuð um helming
fengist út úr sama fjölda fiska
1609 kg. afli og hrygningastofn,
sem vægi 2470 kg.,og yrði sóknin
minnkuð niður i fjórðung af þvi,
sem hún nú er mundu aflast 1480
kg. af 1000 fiska viðmiðuninni og
hrygningastofninn kæmi þá til
með að vega um 5 tonn.
Ýsuafli landsmanna hefur
minnkað úr þvi að vera um 100
þús. tonn fyrir fáum árum i það
að vcra 35 — 40 þúsund tonn nú.
Fyrir stuttum tima var óhætt
að veiða hér 100 þúsund tonn af
ul'sa. I ár telur Alþjóða hafrann-
sóknaráðið að óhætt ætti að vera
að veiða hér um 80 þúsund tonn,
en ekki neina 60 þúsund tonn á
næsta ári, (en upp á það hljóðar
umsaminn afli v-þjóðverja á ls-
landsmiðum).
Tilraunir
Verið er að gera tilraunir með
vinnslu fiskifóðurs úr skel af
rækju og humri.
Verið er að gera tilraunir meö
framieiðslu titins fyrir
Bandarikjamarkað.
Tilraunir eru gerðar með að
framleiða súpukraft úr humar-
hölum.
Tilraunir eru gerðar meö
veiðar og vinnslu á kúffiski, en úr
honum er gerður súpukraftur.
Tilraunir eru geröar með
vinnslu slógmjöls, og á næstunni
verða gerðar tilraunir með að
blanda sliku mjöli i grasköggla.
Verið er að vinna að tilraunum
á vinnslu hormönalyfja úr
sviljum, á ly fjaframleiðslu úr
galli, fiskkrafti úr spærlingi,
framleiðslu hunda- og kattafæðu
úr fiskbeinum og hausum,
limframleiðslu úr grásleppu-
hveiju, niðurlagningu á kol-
munna og fl. og fl.
Selur og viðkoma
þorsksins.
Landselastofninn hér við land
er talinn vera 25 — 35 þúsund dýr
og hefur hann vaxiö nokkuö
undanfarið. titselastofninn mun
einnig hafa vaxið. Hver selur er
talinn þufa 2—3 tonn af fiski sér
til lifsviðurværis á ári. Þannig
innbyrðir selastofninn 60 — 100
þúsund tonn af fiski á hvert, mest
er þetta þorskur og þá einmitt
ungfiskur. Hringormar verða
kynþroska i sel.
Framhald á bls. 14.
Um hvitasunnuhelgina hélt 18
manna unglingasveit T.R. i tafl-
för til Austurlands. Sveitin keppti
bæði i hraðskák og hægri skák
gegn einvalaliði Austurlands.
Hraöskákkeppnin fór fram
laugardaginn 5. júni og urðu úr-
slit þau aö unglingasveitin sigraöi.
hlaut 217 v. gegn 107 v. Austur-
lands. A sunnudeginum voru svo
tefld fjöltefli á fjórum stööum á
Austurlandi. Margeir Pétursson
tefldi á 8 borðum á Neskaupsstað,
vann 5 skákir en tapaði þremur.
Omar Jónsson tefldi á 10 borðum
á Eskifirði, vann 8 skákir en tap-
aði 2. Jón L Árnason tefldi á 20
borðum á Stöðvarfirði, vann 18
skákir en tapaði 2. Helgi Úlafsson
tefldi á Egilsstöðum á 22 borðum,
vann 21 skák en tapaði 1.
A annan í hvitasunnu voru svo
hægu skákirnar á dagskrá. Sigr-
aði unglingasveitin með 12.5
vinningi gegn 5.5 vinningum.
Tapaði sveitin aðeins tveimur
skákum, gerði sjö jafntefli og
vann niu.
Siöastliðið þriðjudagskvöld hóf-
usthér i Reykjavik tvö skákmót,
sem mikill styr hefur staðið um
þ.e. Winston-skákmótið svokall-
aða sem haldið er að Hótel Loft-
leiöum og skákmót sem haldiö er
i skákheimilinu við Grensásveg.
Um 80 manns taka þátt i
Winston-mótinu. Þar eru tefldar 9
umferðir eftir Monrad-kerfi, og er
umhugsunartiminn 20 minútur á
Unglingasveit TR
til Austiirlands
mann hver skák. Að loknum 4
umferðum eru þeir Bragi Hall-
dórsson, Hannes Ólafsson og
samvinnu við Taflfélag Reykja-
vikur og er haldið undir kjörorð-
inu ,,Skák í hreinu lofti”. Eftir 5
Umsjón: Helgi ólafsson.
Lárus Johnsen efstir allir meö
fullt hús vinninga.
136 manns taka þátt i móti þvi
sem Krabbbameinsfélagið og
ýmsir fleiri aðilar standa fyrir i
umferðir eru þeir Margeir
Pétursson, Július Friöjónsson og
ögmundur Kristinsson efstir með
fimm vinninga. Umhugsunartimi
er 15 min, á mann hver skák.
Verölaun eru þau sömu i báöum
mótunum eöa 250 þús. kr. og
fyrstu verðlaun 50 þús. Báöum
mótunum lýkur á sunnudaginn.
Aö lokum skulum viö lita á eina
skák úr viöureign unglingasveit-
ar T.R. og Skáksambands
Austurlands. Skákin var tefld á 5.
boröi:
Hvitt: KarlHjelm (Skáksamband
Austorlands)
Svart: Hilmar Karlsson (Tafl-
félag Reykjavikur)
Drottningarbragð
1. d4 Rf6 2. c4 e6 3. Rc3 d5 4. Bd2
c5 5. e3 Rc6 5. Rf3 a6 7. cxd5 exd5
8. Hci c4 9. Be2 Bd6 10. 0-0 0-0 11.
Hel He8 12. Dc2.
(Taflmennska hvits i byrjun-
inni hefur ekki beinlinis verið til
eftirbreytni, en þessi leikur og sá
næsti eru hinsvegar mjög slæm-
ir.)
12. - Bg4 13. a3 Bh5 14. DdlRa5 15.
Rh4 Bxh2 +
(Mjög nærtæk leikflétta,en ekki
aiveg pottþétt. Mun öruggara var
15. - Bg6.9
16. Kxh2 Rg4+ 17. Kg3
(Hér kom 17. Bxg4 til álita, en
eftir 17. - Dxh4+ 18. Kgl Bxg4 19.
f3 Be6 20. Rxd5 Bxd5 21. Bxa5 f5
stendur svartur mun betur.)
17. - Dd6+ 18.f4 Rxe3 19. Bxe3
Hxe3+ 20. Kf2
(Þetta er örugglega lakasti
leikurinn af þeim þremur sem til
greina komu. Eftir 20. Rf3 viröist
svartur fyllilega halda sinu meö
20.-Hae8,en 20.Bf3er áhinn bóg-
inn býsna athyglisverður mögu-
leiki, og má þá mikið vera ef
svartur geti réttlætt fórnina t.d.
20. - Hd3 21. De2 g5 22. De8+ Hxe8
23. Hxe8+ Kg7 24. Rf5+ og
vinnur, 20. - Hae8 21. Hxe3 Hxe3
22. Rf5 Dg6+ 23. Kf2 Hxf3+ 24.
Dxf3 o.s.frv. 20. - Hxel 21. Dxel g5
22. Bxh5 Dxf4+ 23. Kh3 og drottn-
ingin valdar mátið á h4.)
20. - Dxf4+ 21. Rf3 Bxf3 22. Bxf3
Hd3 23. Da4 Rc6 24. Rxd5 Hd2+
25. Kgl
(25.Kfl Dh2 o.s.frv.)
25. - Dxd4+ 26. Khl Re5
(26. - b5leit vel út,en strandar á
27. Dxa6 o.s.frv.)
27. Re7+ Kh8 28. Rf5
(Hvitur er varnarlaus, t.d. 28.
He4 Dxb2 o.s.frv. 28. Bxb7 Dh4+
29. Kgl Rg4 og mátar.)
28. - Df4 29. Hxe5 Dxe5 30. Rh4 b5
31. Db4 Had8 32. Dc3 Df4.
Hvitur gafst upp.