Þjóðviljinn - 16.06.1976, Page 11
Miövikudagur 16. júni 1976 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 11
Bjarni Bjarnason I baráttu viö Stefán Halldórsson I leiknum I gærkvöldi. Mynd: gsp
Sunnanáttin greip
inn í leikinn á
viðkvæmu augnabliki
íslands-
mótið í
sundi
hefst í
kvöld
tslandsmótiö i sundi hefst i
sundlaugunum i Laugardal i
kvöld og veröur þar keppt i
1500 m. skriösundi karla, 800'
m. skriösundi kvenna og 400
m. bringusundi karla.
En áöur en keppnin i þess-
um greinum hefst fer fram úr-
tökumót þar sem keppt veröur
i 200 m. skriösundi og 200 m.
flugsundi kvenna og þar munu
þær Þórunn Alfreösdóttir og
Vilborg Sverrisdóttir reyna
viö Ólympiulágmörkin og eiga
báöar góöa möguleika á aö ná
þeim.
— S.dór
Staöan var oröin 1-0 fyrir Vik-
ing og fleiri uröu mörkin ekki.
Vikingar böröust vel og voru vel
aö sigrinum komnir. Þeir voru
allan leikinn ákveönari aöilinn,
fljótari á boltann og ætluöu sér
greinilega aö halda fengnu for-
skoti.
Þeir voru ekki langt frá þvi að
auka þaö á 30. min. leiksins. Þá
haföi mikil pressa veriö á mark
Breiöabliks, ólafur markvöröur
var kominn úr jafnvægi langt úti i
vitateig þegar Óskar Tómasson
fékk boltann fyrir miöju og tómu
marki nema hvaö Einar Þór-
hallsson stóð til varnar á mark-
linu. Fast skot Óskars rataöi
beina leiö i kviöinn á Einari en
varla heföi veriö mikiö verk aö
koma boltanum i netiö.
Oftast opnaöist vörn Breiöa-
bliks i fyrri hálfleik og tækifæri
Vlkings uröu fleiri, þó ekki væru
þau eins hættuleg. Breibablik
náði hins vegar ekki aö sýna um-
talsveröa getu, liöið reyndi aö
láta boltann ganga i rokinu en til-
raunirnar voru máttvana og end-
uðu i vandræðagangi eftir stuttan
og þröngan samleik.
Vikingar lágu enda ekki á liöi
sinu viö að fa^ra i mennina, kæföu
sóknarlotur og uppbyggingar
strax i fæöingu og sneru vörn I
sókn. Þeir tefldu fram frisklegra
liöinu i þessum leik meö þá Eirik
ÞORSTEINSSON OG Stefán
Halldórsson sem bestu menn.
Breiöablik lék áhugalaust, en
einna helst böröust þeir Hinrik
Þórhallsson og Bjarni Bjarnason
i vörninni.
I gærkvöld’ var á feröinni sann-
kallaður rokleikur. Veður var
slæmt til aö leika fótbolta og geta
leikmenn skotiö sér aö nokkru
leyti á bak viö veöurguöina og
kennt þeim um þá hörmungar-
knattspyrnu sem boðiö var upp á.
Dómari var Guðmundur Har-
aldsson. Enginn fékk áminningu.
Gisli Sigurðsson varb aö yfirgefa
völlinn vegna meiösla strax i
fyrri hálfleik og var þar skarð
fyrir skildi i liöi Breiöabliks.
— gsp
Sunnanáttin kom til
skjalanna á örlagaríkan
hátt i þæfingsleik milli
Breiðabliks og Víkings á
Laugardalsvelli i gær-
kvöldi- Það var á u.þ.b.
fimmTándu mínútu að
Stefán Halidórsson sendi
háan bolta fyrir mark
Breiðabliks til óskars
Tómassonar. Boltinn barst
úr leið/ varnarmenn Blik-
anna misstu af honum og
Eiríkur Þorsteinsson fékk
knöttinn á vitateigslinu.
Hann skaut úr erfiðu færi
fremur lausu og meinleys-
islegu skoti að marki#...en
viti menn, vindurinn lyfti
honum upp, boltinn barst i
hornið fjær og sigldi þar
inn rétt undir slá án þess að
ólafur Hákonarson fengi
vörnum við komið.
Hnútur ganga milli
Ródesíu og Sambíu
Lusaka, Salisbury 14/6 reuter —
Mikil leit er nú gerð um alla Sam-
biu að mönnum þeim sem komu
fyrir sprengjum i aðalpósthúsi
Lusaka og aðsetri hæstaréttar
Sambiu á sunnudag. Hún hafði
ekki borið árangur er siöast frétt-
ist.
Kenneth Kaunda forseti Sam-
biuhefur kennt „ródesiskum upp-
reisnarseggjum” um sprengjurn-
ar, en þessi orð notar hann yfir-
leitt um ráðamenn og útsendara
hvitu minnihlutastjórnarinnar i
Ródesiu.
Blöö i Sambiu sögðu i dag aö nú
væri strið gegn Ródesiu óumflýj-
anlegt.
1 Salisbury hélt Ian Smith for-
sætisráðherra sjónvarpsræðu þar
sem hann varaði Kaunda við af-
leiðingunum af þvi aö landamæri
Sambiu yrðu opnuð fyrir
ródesiskum skæruliðum.
Smith fjallaði i ræðu sinni eink-
um um breytingar sem stjórn-
skipuð nefnd hefur lagt til að
gerðar verði á kynþáttalöggjöf
Ródesiu. Hann minntist ekki einu
orði á fund sinn með John Vorster
forsætisráðherra Suður-Afriku
um helgina. Talið er vist að á
fundinum sem haldinn var i
Pretori'u, höfuðborg Suður-Af-
riku, hafi leiðtogarnir reynt aö
móta sameiginlega stefnu fyrir
fund Vorsters með Kissinger i
Bonn 23.-24. júni nk.
Italir reknir
úr NPG?
Brussel 14/6 reuter - Varnar-
málaráöherrar átta Natórikja
komu samantil fundar i dag til aö
ræða kjarnorkuvigbúnaö banda-
lagsins. Eitt af stærstu málum
fundarins er hvort þetta verður sá
siöasti sem italir sitja.
Talið er vist að bandariska
stjörnin fari þess á leit vib itali að
þeir hætti aö sækja fundi hjá
Kjarnorkuáætlanagerö Nató
(NPG) ef kommúnistar komast i
rlkisstjórn eftir kosningarnar um
næstu helgi. Þaö sama var uppi á
teningnum þegar kommúnistar
komust i stjórn i Portúgal.en nú
er málið talsvert flóknara þar
sem italir eiga fastafulltrúa i
NPG ásamt Bandarikjunum,
Vestur-Þýskalandi og Bretlandi
en aðrar aðildarþjóðir skiptast á
um aö fylla hin sætin.
NPG er mesta leyndarstofnun
Nató, og þar eru allar mikilvæg-
ustu áætlanir bandalagsins
ræddar. A fundinum sem nú
stendur yfir mun varnarmálaráð-
herra Bandarikjanna, Donald
Rumsfeld, skýra viöhorf Banda-
rlkjanna til hernaöarjafnvægis
Nató og Varsjárbandalagsins.
F orsetaskipti
í Uruguay
Montevideo 14/6 reuter — Juan
Maria Bordaberry var á laugar-
daginn sviptur embætti forseta
Uruguay. Astæðan er sögö sú að
hann hafi gerst helst til frekur til
valda að mati hershöfðingja
landsins sem fara meö hin raun-
verulegu völd i Uruguay.
I stað Bordaberrys var
skipaður Alberto Demichelli sem
er 79 ára gamall. Demichelli
kveðst einungis ætla aö gegna
embættinu i 70 daga en þá á aö
taka vib nýr maður skipaður af
sérstöku ráði herforingja og ann-
arra útvalinna sem sett var á
stofn fyrir nokkrum dögum.
Demichelli vinnur nú að tillög-
um um að koma á tveggjaflokka-
ferfi i stjórnmálum landsins.
Samkvæmt þeim eiga tveir hefö-
bundnir s t jór nm álaf r okka r
iandsins að bjóða fram til þings,
þó aðeins annarrar deildar þess
af tveimur. í hina verða skipaðir
fulltrúar atvinnurekenda, verka-
lýðshreyfingar og menntamanna.
Óskað eftir íbúð
Ung hjón, blaðamaður og skólanemi, með
eitt barn óska eftir litilli leiguibúð til
nokkurra mánaða, helst i Kópavogi. Þarf
að vera laus sem fyrst. Vinsamlegast
hringið i sima 41509 eftir klukkan 19.00 i
kvöld. Algjör reglusemi.
BLAÐBERAR
óskast í eftirtalin hverfi
Háskólahverfi Tómasarhaga
og viðar i vesturbœinn.
Ennfremur vantar blaðbera víðsvegar um
bæinn til afleysinga.
Vinsamlegast haf ið samband við afgreiðsluna
— sími 17500.
ÞJÓÐVILJINN