Þjóðviljinn - 24.07.1976, Blaðsíða 1
Laugardagur 24. júli 1976. — 41. árg. —161. tbl.
Er Þorvaldur í Sild og fiski rikastur íslendinga?
Eignir á rúma
þrjá miljarða
Samt voru árstekjur hans aðeins 1,6 milj
Skattskránni fyigdi ekki eignaskatt greiða. Það er
að þessu sinni úrtak yfir þá því nokkuð erfitt að finna
einstakiinga sem hæstan út hverjir séu ríkastir ís-
lendinga á fasteignir og
verðbréf.
En af yfirliti i skattskránna
mætti þó gera ráð fyrir, að Þor-
valdur Guðmundsson, kaupmað-
ur, hótelrekandi, svinahirðir og
fl. ofl. sé rikastur islendinga, þvi
honum er gert að greiða rúmlega
1 miljón 131 þúsund krónur i
eignaskatt, sem þýðir, að eigur
hans eru metnar upp á rúman
miljarð — þúsund miljónir — og
yrðu þær seldar á frjálsum mark-
aði mætti búast við, að fyrir þær
fengjust rúmlega þrjúþúsund
miljónir króna!
Fast á hæla Þorvaldar að
eignahaldi kemur Sveinn Val-
fells.en svo virðist sem hann eigi
einnig eignir að matsveröi rúm-
lega miljarð og þá með þrefalt
hærra söluverði.
Sú aldna kempa Einar riki Sig-
urðssonvirðist af svo lauslegu yf-
irliti vera kominn i þriðja sæti
hvað rikidóm snertir og er mat
eigna hans rúmlega 800 miljónir
og þá söluverðið á að giska 2,4
miljarðar.
Ríkastur
ráðherra
Geir Haligrimsson, forsæt-
isráðherra, er áreiðanlega
rikastur ráðherra. Sam-
kvæmt skattskránni greiðir
hann 276.709.00 krónur i
eignaskatt, sem svarar til
þess að hann cigi fasteignir
að mati upp á 276 miljónir
króna og yrðu þær reiknaðar
tii söluverðs, sem láta mun
nærri að sé þrisvar sinnum
hærra en matsvirði þá gæti
ráðherrann selt þessar reyt-
ur sinar fyrir rúmar 800
miljónir króna!
Annars geldur ráðherrann
keisaranum það sem keisar-
ans er, þvl samtals nema
skattar hans rúmlega 2 milj-
ónum króna og úr þeirri
ágætu bók, skattskránni, má
ráða, að árslaun ráðherrans
hafi verið rúmlega 4,4 milj-
ónir króna, eða fjögur til sex-
föld verkamannalaun.
Er þvi vart við þvi að bú-
ast, að ráðherrann muni
leggja lið þingsályktunartil-
lögu Stefáns Jónssonar þess
efnis, að enginn skuli hafa
hærri laun en sem nemur
tvöföldum verkamannslaun-
um, þvi við það myndu tekj-
ur hans heldur en ekki rýrna.
— úþ
Hættu-
ástand
vegna
tyrknesks
rannsókna-
skips
ANKARA 23/7 Reuter — Heldur
ófriðlega horfir nú með Nató-
rikjunum Grikklandi og Tyrk-
landi. t dag lagði af stað frá
Istanbul tyrkneskt rannsóknar-
skip til athugana á hafsbotni
Eyjahafs, en grikkir og tyrkir
deila hart um yfirráðaréttinn á
hafsbotninum þar og auðlindum,
sem þar kunna að vera. Sagt er að
griski herflotinn áe nú mestallur á
Eyjahafi og er óttast að hann
veitist að rannsóknarskipinu,
þegar það kemur þangað. Ekki er
vitað til þess að tyrkir sendi her-
skip með rannsóknarskipinu, en
þeir hafa tekið fram að þeir láti
hart mæta hörðu ef grikkir áreiti
skipið.
Bílar, hjól
og umferð
— skoðið
blaðið
ögmundur Magnússon skipstjóri
á Guðmundi Jónssyni.
Fullkomnasti skuttogari Isiendinga, Guðmundur Jónsson GK við
bryggju i Reykjavík i gær.
Einn full-
komnasti
skuttogari
í heimi
Iiinn nýi skuttogari Guðmund-
ur Jónsson GK 475 kom til heima-
hafnar, Sandgerðis, sl. fimmtu-
dag og landaði þar 80 tonnum
sem hann fékk á heimieiðinni frá
Akureyri. Skipiðhélt aftur á veið-
ar frá Reykjavik, en þar var gest-
um boðið að skoða skipið i gær.
Guðmundur Jónsson er smiðað-
ur hjá Slippstöðinni á Akureyri,
491 tonn, og er fullkomnasti togari
okkar islendinga að öllum búnaði.
Hann er fyrsti skuttogarinn sem
er meö útbúnað fyrir botnvörpu,
flottroll og nót, og er trúlega eina
skipið i heiminum með slikan út-
búnað sámeiginlega. Kostnaðar-
verðskipsins er um 670 milj. kr.
en þar af eru um 55 milj. kr.
vaxtakostnaður meðan á smið-
inni stóð. Ölafur H. Jónsson
skipaverkfræðingur teiknaði
skipið.
Skipstjóriá Guðmundi Jónssyni
verða tveir, ögmundur Magnús-
sonsem áður var skipstjóri á Jóni
Gafðari hjá sömu útgerð og er
jafnframt einn af eigendum
skipsins, og Þorsteinn Einarsson
sem áður var stýrimaður á Dag-
stjörnunni; 1. vélstjóri er Eirikur
Hermannsson, 2. vélstjóri Pétur
Björnsson, 1. stýrimaður Hilmar
Ólafsson og 2. stýrimaður Pétur
Björnsson. — Ilj.G.
GEKK AGÆTLEGA
EN ENGINN AFLI
segir Gunnar Hermannsson um
loðnuveiðarnar við Nýfundnaland
Þetta gekk ágætlega
nema það var enginn afli,
sagði Gunnar Hermanns-
son útgerðarmaður og
skipstjóri á Eldborgu i við-
tali við Þjóðviljann í gær
Eldborgin kom i fyrradag af
loðnuveiöum við Nýfundnaland
en þangað fór hún i byrjun júni.
Við fengum 1730 tonn af loðnu á
þessum sjö vikum og lönduðum
fjórum sinnum i Catalina. Tveir
aðrir islenskir bátar, Grindvik-
ingur og Hilmir, voru einnig á
loðnuveiðum á þessum slóðum og
fengu svipaðan afla og Eldborgin,
enþeir fóru um miðjan mai og
komu heim I siðustu viku.
Venjulega er mikil loðnuveiði á
þessum slóðum á þessum tima en
brást alveg i sumar, og var aflinn
ekki nema 10% af þvi sem venju-
legt er, enda hefur sjávarhiti ver-
ið óvenjumikill þar. Sem kunnugt
er var Sigurðuur á loðnuveiðum
þar vestra i fyrrasumar og land-
aði i Norglobal. Framhald á bls.18.
Rannsóknarlögreglumaður
staðinn að tékkafölsunum
Rannsóknarlög-
reglumaður I Reykja-
vik var i gær tekinn
fastur fyrir ávisana-
fölsun. Hann var stað-
inn að verki er hann
var að selja 150 þúsund
krónu falsaðan tékk i
Háaleitisútibúi Iðnað-
arbankans. Við yfir-
heyrslur viðurkenndi
lögreglumaðurinn,
Matthias Guðmunds-
son, að hafa stundað
útgáfu á fölsuðum
tékkum um hrið.
Matthias var færður i
varðhald og hefur mál-
inu verið visað til
sýslumannsins i Kjós-
arsýslu, en þar á lög-
reglumaðurinn varnar-
þing.
í fréttatilkynningu Sakadóms
I gær um þetta mál segir svo:
,,Um skeið hefur staðið yfir
rannsókn út af fölsuðum tékkum
sem notaðir hafa verið i við-
skiptum I bönkum og verslunum
hér I borg og vlðar, og likur
þóttu benda til að sami maður
hefði staðið að. 1 morgun hand-
tók rannsóknarlögreglumaður
mann sem var að selja i Háa-
leitisútibúi Iðnaðarbankans
tékka að fjárhæö 150.000 krónur
meö fölsuðum nafnritunum.
Maður þessi reyndist vera
Matthias Guðmundsson rann-
sóknarlögreglumaður, Byggð-
arholti 29, Mosfellssveit. Hann
hefuri skýrslu,sem tekin varaf
honum i dag, kannast við, að
hann hafi notað i viðskiptum
nokkra falsaða tékka auk tékka
þess,sem hann var með er hann
var staðinn að verki. Matthi'as
hefur starfað i rannsóknarlög-
reglunni i Reykjavik siðan i
febrúar 1975, en áður var hann i
lögregluliði Reykjavikur.”