Þjóðviljinn - 24.07.1976, Blaðsíða 15
Laugardagur 24. júli 1976. ÞJÓÐVILJINN — StÐA 15
Elju-
starf
tveggja
brœðra
*■
i
Kópavogi
16
ára
Ford
Hvað á að gera við 16 ára
gamlan bíl sem ekki hefur
verið í gangi i allan vetur,
gírkassinn í rusli og annað
eftir því. Henda honum á
haugana, finnst víst
f lestum sjálfsagt, sem vita
hve dýrt er að gera upp
gamla bila sem hafa lifað
sitt fegursta, ef alla vinnu
YAMAHA
utanborós-
mótorar
hagstætt verð. Leitið
nánari upplýsinga.
BÍLABORG HF.
Borgartúni 29 simi22680
s>* ©
\S^
POSTSENDUM
TPOLOFUNARHRINGA
Joliiimirs i.nfsson
H.ina.iUrsi 30
é>imi 10 209
Mótorinn fer I gang i kvöld sögðu þeir Daniei, sem sést hér t.v. á myndinni, og Haraldur brööir hans.
haugunum
þarf að kaupa á verkstæði.
Þeir voru á öðru máli
bræðurnir Haraldur og
Daníel Ingþórssyndir á
Víghólastíg 21 í Kópavogi
þegar blaðamaður Þjóð-
viljans leit inn til þeirra í
bílskúrinn fyrir nokkrum
dögum.
Þar voru þeir önnum kafnir að
gera bilinn upp. Hann verður
kominn á götuna um verslunar-
mannahelgina sögðu bræðurnir,
þá verður brunað vestur á tsa-
fjörð þar sem við eigum skyldfólk
og höfum oft dvalist. Við förum
þetta á 7 timum auðveldlega, við
vitum um strák á Flateyri sem
fór þetta á'5 1/2 klst.
BiHinn er Ford Zodiac árgerð
1960 og hefur verið i ættinni frá
fyrstu tiö, fyrst átti afi hann og
siðan pabbi, sem ætlaði aö henda
honum á haugana i vor en við
tókum hann bara eignarnámi
þegar pabbi fór til Kanarieyja,
hann fær ekki að koma nálægt
þessu.
Girkassinn var alveg kominn i
tóbak og hann og skrokkurinn
eins og eftir sandblástur. Viö
byrjuðum á þessu snemma i vor
og höfum verið við þetta öllum
stundum i fritimanum. Fengum
girkassa úr Zephir uppi á Kjalar-
nesi á 7000 kr., raunar tvo og
eigum þá einn til vara. Við
fengum lika upptekna vél úr
samskonar bil i Bilapartasölunni
fyrir 13000 kr. og notuðum
„headið”. Þetta er eiginlega það
eina sem viö höfum þurft að
kaupa.
Við tókum skrokkinn alveg i
gegn, suðum i þar senveitthvað
reynir á og settum trefjaplast
annarsstaöar. Nú erum við að
slipa þetta og' gætum sprautað
hann um helgina ef við eigum
fyrir lakki. Það bjargast einhvern
veginn, það eru svo margir góð-
hjartaöir hér i grenndinni. Hann á
að vera dökkblár með hvitum
toppi og hvitir renningar með
öllum útlinum, það er stællinn.
Við værum löngu búnir að
þesssu ef við hefðum ekki þurft
svo mikinn tima i mótorhjólin
okkar. Við áttum hjólið sem vann
i sandspyrnukeppninni i Olfusi i
sumar, settum það saman úr
tveimur hjólum og breyttum heil-
mikið. Viö höfum farið um allar
trissur á hjólunum, m.a.s. keyrt
upp á tind á Helgafelli hér ofan
við Hafnarfjörð. Næst iangar
okkur upp á tind Keilis, við
komumst það áreiðanlega.
—Hvað kostar nú svona viö
gerð á bil sem er haugamatur?
Nú eru bræðurnir ekki alveg
sammála. Haraldur segir að það
fari ekki yfir 50 þús. kr. en Daniel
erekki eins bjartsýnn. Hann fer i
70þús. segir Daniel, enda er hann
fjárhagslegur bakhjarl fyrir
tækisins að sögn Haralds. Hann
er sá eini sem á pening, vann
fyrsthjá Þjóðviljanum og var svo
á sjónum i vor.
— Þið eruð vissir um að koma
honum i gegnum skoðun?
Nú voru bræöurnir þó sam-
mála. Já áreiöanlega, nú ef þeir
verða meö eitthvert múður i
Reykjavik, þá förum við bara til
Hafnarfjarðar. Þar hlýtur það að
ganga. Það er eins og með bil-
prófið, þeir sem nenna ekki i al-
mennilegt bilpróf, þeir fara til
Hafnarfjarðar i próf. Menn eru
svo umburðarlyndir þar.
Isfirðingar mega áreiðanlega
lita upp um verslunarmanahelg-
ina þegar bláhviti Fordinn þeirra
Daniels og Haralds liður þar um
stræti, þá fá þeir að sjá árangur
af eljustarfi þessara pilta úr
Kópavoginum i vor og sumar.
Skyldu þá ekki allir vera sam-
mála þeim að þessi bill hefur
ekkert á haugana að gera i bráð.
Hj.G.
H0
h.
iö
W.
«
Fáanlegur
2ja og 3ja dyra
KrómaSir
hurSarhúnar
RySfrfir stállistar
me8 gúmmlkanti
Nýir hjólkoppar
\
' |-----------v
Berlina og Special 2ja
og 3ja dyra nýkominn
til afgreiðslu strax.
FIAT 127 er vinsæll
bíll um allan heim
vegna aksturseigin-
leika og glæsilegs út-
lits.
»________________________/
Nýr hitamælir
. Nýtt mælaborð
úr mjúku plastefni
— Kveikjari
Kraftmikil
2ja hraSa
miðstöð.
V____________________
FIAT 127 var í öðru sæti íhinni erfiðu Rally-keppni 1976
og sýndi með því
sína frábæru
eiginieika.
FIAT EINKAUMBOÐ A ÍSLANDI
Davíð Sigurðsson hí.
SÍOUMULA 35. SÍMAR 38845 — 38888.