Þjóðviljinn - 28.07.1976, Síða 3
Lockheed-múturnar enn á dagskrá
Miðvikudagur 28. júli 1976. ÞJÓÐVILJINN — SÍÐÁ 3
Tanaka kominn
í steininn
Tanaka, fyrrverandi forsætisráð-
herra Japans — nú i steininum.
TÓKIÓ 27/7 — Kakuei Tanaka,
sem var forsætisráðherra Japans
frá 1972 til 1974 var handtekinn i
dag og var honum gefið að sök að
hafa þegið 500 miljónir yena i
mútur frá bandarisku flugvéla-
verksmiðjunum Lookheed, en það
munu vera um 310 miljónir is-
lenskra króna. Toshio Enemoto,
sem var einkaritari Tanaka með-
an hann var forsætisráðherra var
einnig handtekinn og ákærður
fyrir að hafa átt þátt i þessum
málum.
Kakuei Tanaka var viðskipta-
málaráðherra og iðnaðarráð-
herra frá júli 1971 til júli 1972, en
siðan forsætisráðherra þangað til
i desember 1974. Á þessum tima
gerðu Lookheed verksmiðjunrar
miklar tilraunir til aö afla sér
markaða i Japan fyrir Tristar
þotur og Orion-kafbátaveiða.
Tanaka sagði af sér embætti for-
sætisráðherra eftir að hann hafði
verið ákærður fyrir ýmislegt mis-
ferli i fjármálum, en enginn grun-
ur var þá um að hann hefði tekið
við mútum. Var sagt að hann
hefði verið að undirbúa þátttöku i
stjórnmálum á nýjan leik. Hann
var stöðugt einn helsti forystu-
maður frjálslynda lýðveldis-
Framhald á 14„ siöu
Fólk er flutt burt
vegna eiturgass
SEVESO, ttaliu, 27/7 — t gær
voru 179 menn', eða 43 fjölskyldur,
fluttir burt frá 15 hektara svæði
umhverfis verksmiöjuna Iomesa
i smábænum Seveso, skammt
fyrir norðan Milano, en þar varð
sprenging 10. júli og breiddist þá
eiturgas út um héraðið i kring. t
dag fyrirskipaði bæjarstjórinn i
Seveso, Francesco Rocca, að alls
70 hektara svæði yröi lýst hættu-
svæöi, og mun það hafa i för með
sér að flytja verður brott sextán
menn til viðbótar.
Lögregla lagði i dag gaddavirs-
girðingu utan um hættusvæðið, og
fá einungis lögregluþjónar og em-
bættismenn að fara inn fyrir girð-
inguna.
Verksmiðjan er i eign sviss-
nesks fyrirtækis, og er talið að tvö
kiló af eiturefni hafi borist út i
andrúmsloftið við sprenginguna.
Hundruð fugla og annara dýra
hafa látiö lifið, laufblöð hafa fallið
af trjám og uppskera eyðilagst i
grenndinni. I gær lést kona, sem
var i Seveso þegar sprengingin
varð, og var fyrirskipuð krufning
til að komast að raun um það
hvort eitrið hefði orðið henni að
bana. Mikill fjöldi ibúa svæðisins
umhverfis Seveso hefur gengist
undir rannsókn á sjúkrahúsum og
hefur komið i ljós að um hundrað
manns þjáðust af brunasárum,
eða lifrarsótt.
Eiturefni það sem komst út i
andrúmsloftið i Seveso er skylt
efnum sem bandarikjamenn not-
uðu i styrjöldinni i Vietnam, og
hefur italska varnarmálaráðu-
neytið spurt bandamenn sina úr
Nató ráða um það hvernig hægt
sé að losna við þetta efni. Sér-
fræðingar velta þvi fyrir sér hvort
unnt sé að brenna það burt með
bensinhlaupi, en hinir svissnesku
eigendur verksmiðjunnar vara
við þvi og telja ráðlegar að fjar-
lægja gróður og jarðveg á öllu
svæðinu kringum Seveso og grafa
það allt.
Samþykkja 200 mílna
auðlindalögsögu EBE
BRUSSEL 27/7 — Utan-
rikisráðherrar Efna-
hagsbandalagsrikjanna
gáfu i dag út yfirlýsingu
þar sem þeir féllust á
rétt ^strandrikja til 200
milna efnahagslögsögu.
Þessi yfirlýsing var
samþykkt á ráðherra-
fundi i siðustu viku, en
ekki var unnt að sam-
þykkja hana formlega
fyrr en búið var að leysa
ýmis vandamál.
Utanrikisráðherrar EBE-rikj-
anna ákváðu einnig i dag sameig-
inlega afstöðu sina á hafréttar-
ráðstefnunni, sem næst verður
haldin I New York. Hingað til
hafa EBE-löndin haft hvert sina
fulltrúa á hafréttarráðstefnum,
en nú munu þau koma fram með
sameiginlega afstöðu til þeirra
mála sem þar verða rædd. Munu
þau leggja til að tekin verði upp
200 milna auðlindalögsaga, en
strandriki hafi þó rétt til að hag-
nýta sér auðlindir landgrunns,
þar sem það nær lengra en 200
milur. Fulltrúar EBE munu einn-
ig leggja til að sett verði á fót al-
þjóðleg stofnun, sem sjái um rétt-
láta notkun auðlinda á úthafi.
Enn eru þó deilur milli stjórna
EBE-landanna um það hve mikið
vald hvert riki á aö hafa i auð-
lindalögsögu sinni. Bretar og irar
vilja að löggjöf hvers rikis skuli
vera i gildi innan auðlindalögsögu
þess. Þykir bretum þetta mikil-
bægt atriði, þvi að þeir vilja full
yfirráð yfir oliulindum i Norður-
sjó. Stjórnir annarra EBE-rikja
vilja þó að sameiginleg lög og
reglur Efnahagsbandalagsins
verði látin gilda á auðlindalög-
sögum.
Grikkir vilja
ganga í EÉE
BRUSSEL 27/7 — Grikkir hófu
i dag samningaviöræöur viö
utanrikisráöherra efnahags-
bandalagsrikjanna niu og
stefna þeir aö þvi aö veröa
tiundi félagi bandalagsins.
Fulltrúi Grikklands var Pana-
yotis Papaligouras, áætluna-
málaráöherra, en Max van
der Stoel, utanrikisráöherra
Ilollands, stjórnaöi samninga-
nefnd Efnahagsbandalags-
rikjanna. Fundurinn i dag var
einungis formsatriöi og var
hann haldinn vegna þeirrar
beiöni grikkja aö hefja samn-
ingaviöræöurnar fyrir sumar-
leyfin. Búist er viö þvi aö viö-
ræöurnar geti ekki hafist af al-
vöru fyrr en I október og eru
allar hofru á þvi aö þær taki
marga mánuöi og e.t.v. meira
en ár.
Papaligouras sagði að
grikkir þyrftu ekki meira en
fimm ára aðlögunartima til að
aðhæfa efnahagslif sitt að
efnahagsllfi Efnahagsbanda-
lagsrikjanna. Bretar, irar og
danir fengu einnig aðlögunar-
tima þegar þeir gengu i
bandalagið 1973.
Papaligouras sagði að
grikkir hefðu sýnt fram á
stjórnmálalega þroska sinn á
þeim tveim árum sem liðin
væru siðan herforingjastjórn-
inni var steypt þar i landi, og
sagði hann að menningarlega,
sögulega og efnahagslega
væri Grikklanc hlutiafVestur-
Evrópu.
Áður en viðræðufundurinn
hófst, komu utanrikisráðherr-
ar Efnahagsbandalagsrikj-
anna saman til að ræða sam-
skipti bandalagsins við tyrki
en þau eru mjög slæm siöan
stjórnin i Ankara neitaöi að
endurskoða samning sinn við
EBE.
Erlendar
fréttir í stuttu
máli
Þessi mynd var tekin úr Marsflauginni Vikingi I skömmu eftir
aö hún lenti á Mars og sýnir myndin þann „jaröveg” þar sem nú
á aö safna sýnishornum.
Vikingur I byrjar tilraunir i dag
PASADENA, Kaliforniu, 27/7
— Marsflaugin Vik I. mun á
morgun hefja tilraunir sinar
til að komast að þvi hvort ein-
hver merki um lif finnist á
r e i k is t j ö r n u n n i Mars.
Skömmu eftir sólarupprás á
þeim staö þar sem ftaugin er
lent verður flaugin látin
teygja út gröfuarminn, sem er
þriggja metra langur, og á
hann aö róta upp 130 kúbik-
sentimetrum af jarðveginum.
Sjö slikar tilraunir veröa
framkvæmdar og veröa sýnis-
hornin látin i rannsóknar-
hylki, þar sem ýmsar athug-
anir verða gerðar. Um hálf
fjögur að islenskum tima geta
visindamenn sagt hvort tekist
hefur að safna þessum sýnis-
hornum og koma þeim á rétt-
an stað, en hins vegar tekur
allmarga daga aö fá niður-
stöður rannsóknarinnar.
Meðan þessar tilraunir fara
fram á yfirborði Mars heldur
geimfarið, sem flutti Mars-
flaugina til áfangastaðar,
áfram að snúast umhverfis
reikistjörnuna og taka mynd-
ir. Fyrir skömmu komu fram
mjög greinilegir árfarvegir á
slikum myndum, og bendir
það til þess að einhvern tima i
fornöld hafi verið rennandi
vatn á Mars. Sennilega hefur
þetta vatn verið i sambandi
við leysingu á heimskauta-is- .
hellum plánetunnar, þvi að
engin merki hafa sést um
stöðuvötn. Þessi uppgotvun
eykur mjög likur fyrir þvi að
einhvern tima hafi verið til lif
á Mars.
Tilraunir gerðar til að miðla
málum milli Úganda og Kenya
NAIROBI 27/7 — Utanríkis-
ráðherra Kenia, Munyua
Waiyaki, setti i dag sjö skil-
yrði fyrir friösamlegri sam-
búð við úgandamenn, en mikl-
ar viðsjár hafa verið’ með
þessum þjóðum aö undan-
förnu. Kraföist utanrikisráö-
herrann þess m.a. að úganda-
menn hættu öllum striöshót-
unum og flyttu herliö sitt burt
frá landamærum Kenia, þeir
hættu að gera tilkall til land-
svæða í Kenia, þeir hættu
„rógsherferð” sinni gagnvart
keniamönnum, borguðu fyrir
alla þá þjónustu sem þeir
fengju frá Kenia og hættu að
handtaka, pynda og drepa
keniamenn, sem byggju i
Úganda.
í óbeinu svari til kenia-
manna sagöi útvarpiö i Kamp-
ala að unnt myndi vera að
finna málamiölun milli þjóð-
anna beggja, og sagði að
William Eteki Mboumoua,
framkvæmdastjóri Einingar-
samtaka Afrikurikjanna
myndi koma til Nairobi og
Kampala á morgun, ef kenia-
menn féllust á það. Að sögn
áreiðanlegra heimildarmanna
er nú búist við komu hans til
þessara tveggja höfuðborga.
Mikil úlfúð hefur verið milli
úgandamanna og kenia-
manna, siðan israelar milli-
lentu i Nairobi á leiðinni til
Entebbe flugvallar, þar sem
þeir leystu úr haldi israels-
menn, sem arabiskir skæru-
liðar höfðu i gislingu. Nýlega
ákærðu úgandamenn yfirvöld
Kenia fyrir að stöðva oliu-
flutninga til landsins.
Sagt er að Eteki Mboumoua,
framkvæmdastjóri Einingar-
sambands Afrikurikjanna,
hafi stungið upp á þvi að for-
seti samtakanna, Sir
Seewosagur Ramgoolam, hitti
bæði Idi Amin og Jomo
Kenyatta að máli persónu-
lega.
Kommúnistar i mikilvœgum
stöðum á italska þinginu
RÓM 27/7 — I fyrsta skipti I
næstum þrjátiu ár hafa full-
trúar kommúnista verið
kjörnir formenn ýmissa mikil-
vægra nefnda á italska þing-
inu. Stafar þetta af málmiðlun
milli kristilegra demókrata,
sem eru enn stærsti flokkur
landsins, og kommúnista, sem
uku mjög fylgi sitt i siðustu
kosningum. Hafa kommúnist-
ar nú verið kjörnir formenn i
fjármálanefnd neðri deildar
þingsins, stjórnarskrárnefnd,
samgöngunálanefnd og nefnd,
sem sér um opinberar fram-
kvæmdir. 1 öldungadeildinni
hafa kommúnistar verið
kjörnir formenn fyrir fjár-
laganefnd landbúnaðarnefnd
og heilbrigðisnefnd.
Kommúnistar gera þó enn
meiri kröfur til að fallast á að
sitja hjá við atkvæðagreiðslu
um traustsyfirlýsingar á þingi
þannig að kristilegir
demókratar geti myndað
minnihlutastjórn. •