Þjóðviljinn - 14.08.1976, Side 2

Þjóðviljinn - 14.08.1976, Side 2
2 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. ágúst 1976 Skrifið eða hringið. Sími: 17500 Hólafélagið Formaður Hólafélagsins, sr. Arni Sigurösson, sóknarprestur á Blönduósi, hefur beöiö Bæjar- póstinn fyrir eftirfarandi grein: Hólafélagiö var stofnaö aö Hólum I Hjaltadai 16. ágúst, 1964. Höföu áhugamenn um endurreisn Hóiastaöar áöur komið saman og undirbúiö stofnun féiagsins. Ailt frá upp- hafi hefur megináherslan veriö lögö á, aö félagið næöi til alira landsmanna. I 2. gr. aö lögum félagsins er komist svo aö oröi: „Hlutverk félagsins er, aö beita sér fyrir samtökum meðal þjóðarinnar um eflingu Hóla- staðar á sem víðtækustu sviöi. Skal höfuðáherslan lögð á endurreisn biskupsstólsins á Hólum og eflingu Hóla sem skólaseturs og vill félagið vinna að þvi, að við hlið bændaskólans risi upp nýjar menntastofnanir, sem hæfa þessu forna mennta- setri. Aö því skal stefnt, aö Hól- ar verði i framtiðinni andleg aflstöð og kirkjuleg miðstöð i Hólastifti”. Hvað fyrra atriðið snertir má benda á, að fyrr eða siöar verð- ur mikil breyting gerð á skipun biskupsembætta islensku þjóð- kirkjunnar. 1 þvi sambandi má benda á að samþykktir Kirkjuþings frá 1964, 1966 og 1968, þar sem gert er m.a. ráð fyrir þvi, að landinu verði skipt i þrjú sjálfstæð biskupsdæmi, þar á meðal verði biskup yfir Norðurlandi. f lok siðasta alþingis lagði kirkjumálaráöh. fram frv. að lögum um biskupsembætti isl. þjóðkirkjunnar, þar sem gert er ráð fyrir biskupi á Norðurlandi með fullu biskupsvaldi og þeim möguleika, að hann sitji á Hól- um I Hjaltadal. Einnig mætti nefna álit hinnar svokölluðu „staðarvalsnefndar”, er fjallar um dreifingu hinna ýmsu stofn- ana útum landiö, en þar er m.a. kveöið á um, aö biskupsembætt- iðskuli flutt út á landsbyggðina. Varðandi endurreisn biskups- stóls og annarra kirkjulegra stofnana á Hólum, hefur Hóla- félagið lagt rika áherslu á, að islenska þjóðkirkjan fengi þar aðstöðu til kirkjulegrar upp- byggingar-heima á staðnum við hlið bændaskólans. Verði þjóðkirkjunni þegar af- hent landsvæði heima á staön- um til eignar og umráða, samkv. till. að skipulagi, er gert var að frumkvæði Hólafélagsins hjá skipulagsstjóra rikisins 1972. í sambandi við nýjar mennta- stofnanir vill félagið beita sér fyrirstofnun kristilegs lýöskóla, sem byggður væri á hinum sigilda grundvelli kristindóms- ins, i traustum tengslum við nútimann, þar sem stuðst væri við þá reynslu, sem þegar hefur fengist með stofnun og Hólar I Hjaltadal rekstri lýðskólans i Skálholti, sem nú hefur starfað um nokk- urra vetra skeið við góöan orð- stir. Félagið leggur áherslu á, að slikur skóli verði nauðsynlegur viðauki við núverandi skóla- kerfi og fylli þar i eyðurnar. 1. Að skólinn verði sem sjálf- stæðastur, jafnvel þótt hann starfi undir reglugerð mennta- málaráðuneytisins að einhverju leyti, en verði i nánustum tengslum viö þjóðkirkjuna. 2. Að aðalmarkmið skólans verði m.a. að efla þjóðrækni, isiensk fræði, félagsþroska og kristilegt uppeldi æskunnar. Það er álit vort, aö biskups- stólarnir á Hólum og i Skálholti, ásamt kristilegum skólastofn- rwi s • 1 unin orðin gagn- sósa af vatni — Heyskapurinn gengur vægast sagt hægt. Siöastliöna viku rigndi hvern einasta dag. Mjög litiö var um þurrka i júli- mánuöi, ég beld, sannast aö segja, aö ekki hafi komiö nema einir fjórir heilir þurrkdagar i þeim mánuöi, en þó náöu menn dálitlu af heyjum. Ég minnst þess ekki aö viö höfum nokkru sinni i sumar fengiö nema tvo þurrkdaga i röö. Svo sagðist Stefáni Jasonar- syni i Vorsabæ i Flóa frá, er blaðið átti tal við hann á miö- vikudaginn. — Túnin eru orðin svo gagn- sósa af vatni eftir ailar þessar rigningar, að um þau veröur vart eða ekki komist með vélar og þurfa þau talsverðan tima til þess að þorna áöur en unnt verður að hreyfa við heyi á þeim. Ég er nýbúinn að fara um ölfus, Skeið og Hreppa og er ástandið þar svipaö og hér i Fló- anum. Þessu til viðbótar kemur svo það, að túnin eru að spretta úr sér og er hvorugur kosturinn góður: að slá og að slá ekki. Þaö gefur auga leið, þegar svona viðrar, hversu gifurleg verðmæti fara forgörðum, bæði i heyjum, sem hrekjast slegin á túnum,og úr sér sprottnu grasi og er þaö tjón að sjálfsögöu enn- þá meira og tilfinnanlegra fyrir Framhald á 14. siðu. unum, muni i senn verða nýr aflgjafi i islensku þjóðfélagi og efla þar með veg hinna fornu menntasetra. Ahugafólk hefur þegar lagt nokkurtfé af mörkum til stofn- uriar kristilegs lýðskóla á Hól- um. Mun Hólafélagið vinna að stofnun hans jafnhliða endur- reisn biskupsstólsins. 011 að- staða til stofnunar og reksturs skóla á Hólum mun stórlega breytast á næstu árum með lagningu hitaveitu fra Reykjum i Hjaltadal, en framkvæmdir við hana munu væntanlega hefj- ast á næsta ári. Eitt aðalmarkmið Hóla- félagsins allt frá stofnun þess hefur verið að standa fyrir árlegri Hólahátfð i 17. viku sum- ars, þegar þvi veröur við komið. t sambandi við hina árlegu Hólahátið hefur hátiðaguös- þjónusta farið fram i dómkirkj- unni og hátiðasamkoma aö lok- inni guðsþjónustu. Hafa kirkju- kórar viöa af Norðurlandi ann- ast kirkjusöng, ásamt lista- mönnum, er sungið hafa við samkomuna eða flutt tónverk og andleg ljóð. Erindi hafa og verið flutt um hin margvislegustu kirkjuleg málefni. t sambandi við Hólahátíð hef- ur aðalfundur Hólafélagsins oft- ast verið haldinn heima á staðn- um Verður Hólahátlðin I ár haldin sunnudaginn 15. ágúst n.k., ásamt aðalfundi félagsins. Niöurlag næst. Grafarnes i Grundarfíröi lOOstiga heittvatn í að á 1000 m. dýpi fannst 100 stiga heitt vatn I tveggja km. fjarlægð frá þorpinu. Enn hefur þó ekki komið i ljós um hversu mikiö vatnsmagn er þarna að ræða,en viö vonum hið besta i þeim efnum. Á þriðjudagskvöldiö kom skákmeistarinn Timman hing- að og tefldi fjöltefli á 40 boröum. Fóru svo leikar aö meistarinn vann 38 skákir og gerði 2 jafn- tefli. Ekki voru það einvörðungu heimamenn, sem þreyttu þenn- an leik við Timman, heldur dreif menn að héðan og þaöan til þess að reyna sig við þennan frægðarmann. Og svo er skattskráin hér komin út, með sama marki brennd og annarsstaðar. —mhg Grundarfirði — Skemmst er af þvl aö segja, að veðurlag hefur veriö mjög leiðinlegtnú aö undanförnu sifelldar rigningar og rok og gæftir því stopuiar og heyskap- ur seintekinn. Þannig fórust Sigurði Lárus- syni I Grundarfirði orö, er blað- ið átti tal við hann á fimmtudag- inn. — Tiu bátar eru gerðir héðan út. Þar af eru 6 með fiskitroll og 4 með rækjutroll. Er afli þeirra lagöur upp til vinnslu í þremur frystihúsum. Einn togara höfum við, en hann hefur komið aö litlum not- um fyrir atvinnulifið hér að undanförnu þvi hann var leigður til fiskirannsókna. Hafa fjar- vistir togarans, af þessum sök- um, orðiö langvinnari en upp- haflega var búist við.þvi leigu- timinn hefur veriö framlengdur hvað ofan I annað og nú siðast um hálfan mánuð. Og þó að atvinna megi heita hér sæmi- lega góö þá er verkafólk a.m.k. ekki neitt yfir sig hrifið af þvi, að togarinn skuli ekki notaður til styrktar atvinnulifinu hér, eins og áformað var í<öndverðu. Allmiklar framkvæmdir fara hér fram á vegum hreppsins. Unnið er að undirbúningi á lagningú olíumalar á aðalgötu þorpsins. Sundlaug hefur verið I byggingu að undanförnu og er að þvi stefnt, að hún verði tekin^i notkun nú I lok þessa mánaðar. t fyrra var 350 m. langur grjótgarður byggöur I höfninni. Er hugmyndin aö klæða hann með stálþili og veröur þaö verk unnið i áföngum. Nú verður lokið viö að klæða 50 m. af garð- inum. Jafnframt er svo unnið að þvi að dýpka höfnina. Töluvert er hér um byggingar hjá einstaklingum. En það er sama hvað mikið er byggt, allt- af er skortur á Ibúöarhúsnæði. Nokkrar likur eru nú á þvi, aö hér sé fyrir hendi heitt jarðvatn til upphitunar á húsum I þorp- inu. Orkustofnun stóð hér fyrir jarðhitaleit með þeim árangri, Umsjón: Magnús H. Gíslason

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.