Þjóðviljinn - 14.08.1976, Qupperneq 10

Þjóðviljinn - 14.08.1976, Qupperneq 10
10 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Laugardagur 14. ágúst 1976 Sigurður Þórir í Gallerí SÚM: VL-MENN 0G ÓVIN- IR ALÞÝÐUNNAR 1 dag kl. 16 opnar Siguröur Þórir málverkasýningu I Gall- erí SÚM aö Vatnsstíg 3b. Þetta er fyrsta einkasýning Siguröar, en hann hefur tekiö þátt i sam- sýningum hér og i Kaupmanna- höfn, þar sem hann stundar nú nám i grafik viö Akademiuna. Viðfangsefni Sigurðar Þóris á þessari sýningu er undirskrifta- söfnun Varins lands, eða eins og Kristinn Einarsson orðar það á „kynningarblaði”: „Hér fær fólk að kynnast þvi hvernig um- horfs er i hugarheimi nokkurra helstu fulltrúa auðvaldsskipu- lagsins, eins og það kemur fram á tslandi — séð af sjónar- hóli Sigurðar Þóris. í öllum grundvallaratriðum er það hug- arheimur og sjónarmið slátrar- ans. Hámarksgróði, hámarks- völd, framleiðni, gæðastimplun. Hér standa þeir i kringum okk- ur. Og kringum sitt varða land. Er það okkar hugmynd um landið? Og er ekki einmitt verið að verja það fyrir okkur?” Þungamiðja sýningarinnar er stórt verk af vl-mönnunum fjór- tán með hönd á pung i Islensku landslagi, i viðeigandi félags- skap bandariskra dáta, generalissimo Frankós og harð- skeyitrar Islenskrar lögreglu. Út frá þessari mynd eru siðan portreit af ýmsum „óvinum al- þýðunnar” eins og Sigurður orð- aði þaö við fréttamann Þjóövilj- ans. Þessir óvinir eru málaðir i dollaragrænum lit, „hann fellur svo vel- þá,” eins og Sigurður sagði. Þessi málverk eru ekki til sölu, en á sýningunni verða grafikmyndir eftir Sigurð Þóri til sölu. Meðan á sýningunni stendur munu hanga á veggjum úrklippur um vl-málið, sem einskonar bakgrunnur sýning- arinnar. Aögangur að sýningunni er ókeypis og I staö þess að senda út boðskort með hefðbundnum hætti, er allri alþýðu sérstak- lega boðið á hana. Hún er opin daglega frá kl. 16 til 22. og lýkur 29. ágúst. — hm Siguröur Þórir situr hér viO ivv portreitanna á sýningunni, meö barn sitt i fangi. Frá fundinum um mjólkurbúöamáliö f Lindarbæ f fyrrakvöld. Yerri þjónusta Síðustu sumar- tónleikarnir í Skálholtskirk j u Um helgina verða haldnir fjórðu og siðustu tónleikar á „Sumartónleikum i Skálholts- kirkju 1976”. Tónleikar þessir eru kl. 4 á laugardag og sunnu- dag. Aðgangur er ókeypis. Hafliöi Hallgrimsson. Aö þessu sinni verða flutt verk fyrir cello og sembal eftir Johann Sebastian Bach. Flytjendur eru Hafliði Hall- grímsson celloleikari og Helga- Ingólfsdóttir semballeikari. Helga Ingólfsdottir Fyrsta starfsár ísl enskrar iðnkynn- ingar að hefjast og atvmmimissir eru helstu forsendur mótmœla gegn lokun mjólkur búða — Þjóðviljinn birtir texta undirskriftaskjalsins Eins og fram kemur á forsiðu er hafin undir- skriftasöfnun til að mót- mæla fyrirhugaðri lokun mjólkurbúða á höfðu- borgarsvæðinu. Það er i/Starfshópur gegn lokun mjólkurbúða" sem stendur fyrir söfnuninni en hér fer á eftir texti sá sem fólk er beðið að rita nöfn sín undir: „Gegn lokun mjóikurbúða. Viö undirrituö mótmælum lokun brauða- og mjólkurbúöa á eftir farandi forsendum: 1. Lokun mjólkurbúöa mun hafa I för með sér verri þjónustu viö neytendur, til dæmis fækkar útsölustöðum mjólkur, þar sem margir smákaupmenn munu ekki hafa bolmagn til þess aö selja brauö og mjólkurvörur. Lokunin mun einnig þýöa lakara vöru- eftirlit og þar meöeldri og lélegri vörur. Minna eftirlit veröur einnig meö hreinlæti og ekki er ósennilegt aö mjólkurverð muni hækka. 2. Atviniiu- „g félagslegur rétt- indamissir 167 kvenna sem hafa enga tryggingu fyrir annarri vinnu. Viö undirrituð skorum þvf á stjórn Mjólkursamsölunnar sf. aö endurskoöa afstööu sina til þessa máls og halda áfram rekstri mjólkurbúöa þannig aö full atvinna kvenna I brauöa- og mjólkurbúöum veröi tryggö.” Með þennan texta verður sem sé gengið I hús og fólk beðið að rita nöfn sin undur. Einnig verða safnarar á ferð utan við dyr mjólkurbúðanna. Aðgerð eins og þessi krefst þess að margir leggi baráttunni lið. Einnig er vlst aö hún mun kosta fé. Þeir sem hafa annað hvort starfskraft eða fé, eða hvort- tveggjd, iram að bjóöa geta haft samband við þær Lilju Kristjáns- dóttur Hraunteig 9 I sima 3-65-13, eöa Elisabetu Bjarnadóttur Skipasundi 83 en hún hefur slma 3-83-74.Hreyfingin hefur enn ekki fengið fast húsnæði né skrifstofu- aöstöðu en vonandi rætist úr þvi. —ÞH. Félag islenskra iðnrekenda, Iönaðarráöuneytið, Landssam- band iðnaðarmanna, Landssam- band iönverkafólks, Neytenda- samtökin og Samband Islenskra samvinnufélaga hafa tekið saman höndum um að brýna gildi Islensks iðnaðar fyrir þjóöinni. Hafa þau myndað samstarfsvett- vang, sem hlotið hefur nafnið „tslensk iönkynning” og verður fyrsta starfsár iðnkynningar- innar frá september 1976 til 1. sempember 1977. Þessir aðilar hafa tilnefnt fulltrúa I verkefnis- ráö, sem hafa mun yfirstjórn iön- kynningarinnar með hondum. Formaður verkefnisráösins er Hjalti Geir Kristjánsson. Fram- kvæmdastjóri iönkynningarinnar hefur verið ráðinn Pétur Svein- bjarnarson, sem fengið hefur árs- leyfi frá störfum hjá Umferðar ráöi til þess að sinna þessú verk'- efni. Kaupið bílmerki Landverndar Hreint É tíiSSand I fagurt landj LANDVERND Til sölu hjá ESSO og SHELL bensinafgreiðslum og skrifstofu Landverndar Skólavörðustíg 25

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.